Alþýðublaðið - 04.12.1974, Side 4

Alþýðublaðið - 04.12.1974, Side 4
AD EN SETJA BARHD MARKVISST, FREMUR I „GEYMSLU" ÞROSKANDI UPPELDI A fulltrúafundi Bandalags kvenna í Hafnarfirði, sem haldinn var mánudaginn 25. nóvember 1974, var eftir- farandi ályktun samþykkt með samhljóða atkvæðum: Að gefnu tilefni vegna umræðna og skrifa um umræður, sem fram fóru i Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hinn 5. nóvember s.l. um tillögu um könnum á dagvist- arþörf í Hafnarfirði, þá gerir Bandalag kvenna i Hafnar- firði eftirfarandi ályktun: 1. Það hlýtur að vera sann- gjarnt réttlætismál, að sérhver einstaklingur i þjóðfélaginu hafi sem besta möguleika til þess að stunda þau störf, sem standa áhuga hans næst, hann hefur hæfi- leika til að stunda og eru þjóðfélaginu til gagns. Konur eru engin undan- tekning frá þessu. 2. Til þess að konur sem eiga ung börn hafi þessa aðstöðu, raunverulegt valfrelsi um stöðu og starf, þurfa þær annað hvort að eiga þess kost, að faðir barnsins sé reiðubúinn að sinna heimilisstörfunum þannig, að þær geti stundað þá at- vinnu sem þær hafa áhuga á, eða viðunandi dagvistun- araðstaða sé fyrir hendi fyr- ir barnið eða börnin. 3. Það er staðreynd i þjóð- félagi okkar i dag, að fjöldi mæðra tekur þátt i atvinnu- lifinu og skilar mikilvægu starfi á þeim vettvangi, án þess að feðurnir taki að sér umönnun heimilisins eða viðunandi dagvistunar- aðstaða sé fyrir hendi fyrir börnin, sem verða þá ýmisl að ganga meira og minna sjálfala eða þá að þau eiga allt undir hjálpsemi og velvild vina og vandamanna foreldranna. Slikt ástand er til vansa fyrir þjóðfélagið og þá sem að því standa og stýra þvi. 4. Þess vegna er það skýlaus skylda hvers sveitarfélags að sjá svo um, að til séu dagheimili, leikskólar, vöggustofur og skóladag- heimili sem geti sinnt þeim börnum i sveitarfélaginu, sem á þvi þurfa að halda. 5. Bandalag kvenna i Hafnarfiröi varar við þeirri þróun, að börnum sé i rikum mæli komið fyrir i dag- vistun hjá fólki, sem ekkert hefur til þess lært sérstak- lega að ala upp börn við þroskandi leiki og störf. Sé slikt gert er hætt viö að barnið verði fremur i „geymslu” en i markvissu, þroskandi uppeldi. Jafnframt er rétt að vekja athygli á þvi, að á dagvistunarstofnunum eru ýmsar aðstæður, sem bjóða upp á að þroska félagskennd og tillitssemi barna gagn- vart hvert öðru, aðstæður sem ekki eru fyrir hendi á mörgum heimilum. Þau börn, sem alast upp heima hjá foreldrum sinum, eiga þess vegna lika að fá tæki- færi til þess að dvelja einhvern tima á dag- vistunarstofnun, svo að þau standi ekki hvaö þennan þroska snertir, mikið ver að vigi en börnin frá dag- vistunarstofnunum þegar þau hefja skólagöngu sina. 6. Bandalag kvenna i Hafnar- firði lýsir ánægju sinni yfir byggingu væntanlegs dag^ heimilis i Norðurbænum og skorar á bæjaryfirvöld að hraða þeirri byggingu svo sem frekast er kostur. Jafnframt telur banda- lagið nauðsynlegt að könnuð verði ýtarlega þörf bæjar- búa fyrir dagvistunar- stofnanir barna, svo sem dagheimili, leikskóla, vöggustofur og skóladag- heimili svo og nauðsynlegt skólahúsnæði á næstu árum, miöað við það, að skólabörn hér i bæ fái skynsamlegan og samfelldan skóladag og siðan verði gerð nokkurra ára framkvæmdaáætlun til þess að koma þessum málum i viðunandi horf. Bandalag kvenna i Hafnarfirði skorar á alla bæjarfulltrúa að sýna nú skilning og áhuga á þessum málum og taka upp mark- vissa og ákveðna stefnu til farsællar lausnar þessara vandamála. FLOKKSSTARFIÐ Kvenfélag Alþýðuflokksins í Kópavogi og Garðahreppi heldur spilakvöld fimmtudag 5. desem- ber, i Félagsheimilinu i Kópavogi, neðri sal, kl. 8 £30 s.d. Stjórnandi: Karl Guð- laugsson. Alþýðuflokksfólk mæti vel og stundvislega og takið með ykkur gesti. Stjórnin Aðalfundur Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra verður haldinn laugardaginn 14. desem- ber n.k. að Háaleitisbraut 13. kl. 2 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið og mætið stundvis- lega. Stjórnin. Stjórnmál miður virðist utanrikisráð- herra ekki hafa fyllt þennan hóp skynsamra manna, þvi aö hann hefur beinlinis gefið öfgamönnunum vopn i hendur með þvi að hjúpa samkomulag sitt við Bandarikjastjórn þeirri hulu, sem það var sveipað þangað til i gær. Nú er að sjá til, hvort svar fáist við þvi, hver tilgangur feluleiks- ins var. H.E.H. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður, Bankastr. 12 Lóðaúthlutun — Hafnarfjörður Hafnarf jarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum fyrir ibúðarhús i Norðurbæ. A. Ein- býlishús. B. Raðhús, einnar hæðar. C. Tvi- býlishús. Nánari upplýsingar um lóðir til ráðstöfun- ar og úthlutunarskilmála, veitir skrifstofa bæjarverkfræðings, Strandgötu 6. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 23. desember n.k. — Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Bæjarverkfræðingur Gumafélagar Fundur verður á Hótel Esju fimmtudag- inn 5. des. n.k. kl. 8.30. Kjartan Jóhannsson varaformaður Al- þýðuflokksins mætir á fundinn og svarar fyrirspurnum. Félagar mætið vel og stundvislega Aðvörun um stöðvun atvinnurekstrar vegna van- skila á söluskatti. Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtæk.ja hér i umdæminu, sem enn skulda sölu- skatt fyrir júli — sept. 1974, og nýálagðan söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til þuúháfa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggva- götu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 2. des. 1974 Sigurjón Sigurðsson Para system Skápar, hillur uppistöður og fylgihlutir. CiiiQHBE] STRANDGÖTU 4 HAFNARFIROI slml 5 1618 Myndakvöld — Eyvakvöld verður i Lindarbæ niðri i kvöld (miðvikud. 4/12) kl. 20.30. Eyjólf- ur Haiidórsson og fleiri sýna. Ferðafélag lslands Stjórnin Auglýsið í Alþýðublaðinu: Sími 28660 og 14906 \ ■ «|^r Þökkum auðsýnda samúð viö fráfall eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa Valdimars Sigurjónssonar, simavarðar, Krókatúni 16, Akranesi. Salóme Guðjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. 0 Miðvikudagur 4. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.