Alþýðublaðið - 04.12.1974, Page 6

Alþýðublaðið - 04.12.1974, Page 6
Martröð austur-þýsks landamæravarðar Blaðamaður segir frá: Ég var í fyrsta skipti í Austur-Berlín á eins árs afmæli múrsins gegnum stórborgina. Það var 13.- ágúst 1962 og þá kynntist ég hinu gleðisnauða lífi í þeim hluta Berlínar, sem er austan við múrinn. Af tilviljun lá leið mín aftur til Austur-Berlín, þegar múrinn er þrettán ára. Nú og þá, spyr maður sjálfan sig, hvernig menn geti búið við þrúgandi skrifstofuveldi kommún- ismans þar. Svariðfékkég þar, sem ég hafði síst vænst þess: Frá einum af lögreglu- þjónunum, VOPOa, sem við Ijósmyndararnir töl- uðum við af tilviljun. Eftir klukkustundabið- röð fyrir framan vega- bréfaskoðunina, tollinn, * gjaldeyrisskoðun og yfir- heyrslur, því að við dróg- um ekki dul á, að við vær- um að heimsækja Austur- Berlin til að skýra f rá að- stæðum þar sem blaða- menn, komumst við loks inn í Friedrichsstrasse, götuna, handan við hið fræga — eða illræmda — Checkpoint Charlie. Við urðum að hætta við að fá leigubíl. Það var engan að sjá. Við komum hvergi auga á strætisvagn. Við gengum kílómeter- inn að Unter den Linden með þungar ferðatöskur, Ijósmyndavélar og ritvél- ar að nr. 41, en þar er danska sendiráðið. Eftir að við höfðum rætt við starf smennina þar, reyndi sendiráðstulltrú- inn, Poul Chr. Kjæböll, árangurslaust að útvega okkur leigubíl simleiðis. Hann fékk alls ekki sam- band, en ráðlagði okkur að ganga yfir i Lúxus- hótelið „Unter den Lind- en" handan götunnar. Þar tókst okkur að fá leigubíl eftir „aðeins” 35 mínútna bið. Þá gátum við ekið um borgina í herbergisleit. Áður en við gátum flutt inn urðum við að fara í útlendingaeftirlitið til að fá sólarhrings vegabréf. í stuttu máli sagt: Frá Heródesi til Pílatusar til að gera það, sem í vest- rænum löndum tekur eina mínútu eða minna. Þá fengum við leigubíl og bílstjórinn á honum, gagnstætt við hina leigu- bílstjórana, þorði að opna munninn, þegar hann frétti, að við værum danskir blaðamenn. — Ég býst við, að ég geti treyst ykkur, sagði hann. Við játuðum því. Þegar hann hafði um stund lýst áliti sína á kommúnista- kerf inu, sem var alls ekki jákvætt, sagði hann: — Það eru ekki allir lögregluþjónar, sem lofa kommúnismann! — Ég hélt, að í VOPO- lögreglunni væru aðeins vinstri sinnar, sagði ég undrandi. — Menn velja þá, sem menn halda að séu það, en það er ekki enn farið að lesa hugsanir okkar hérna megin. Langar ykkur til að tala við einn, sem ekki dáist að stjórn- inni? Vegna þess að hann þekkir til mála. Ég játaði auðvitað. — Talið við bróður minn, Hann er VOPO! Hann stöðvaði bílinn og sagði okkur að bíða, fór inn í verslun og hringdi víst, því að hann sagði, þegar hann kom til baka: — Við förum á veit- ingahús. Svo kemur bróð- ir minn. Hann er ekki á vakt í dag. Klukkustundu síðar höfðum við bæði hitt bróðurinn og farið yfir allt það, sem nauðsynlegt var til að við gætum treyst hver öðrum. I salnum var enginn nema bræðurnir og við og svo barþjónninn, sem var önnum kaf inn við að þvo glös innst — hann gat ekkert heyrt. Þá sjaldan hann kom að borðinu til að taka við pöntun fóru báðir bræðurnir að tala um mál, sem voru ópóli- tísk svo sem list, menn- ingu og sögu. — Það er aðeins vika siðan við bræðurnir töluð- um um líkurnar á því að segja hinum frjálsa heimi allt af létta með því að tala við blaðamenn, sagði VOPOinn, sem við skulum kalla „Heinz". — Fyrsta árið eftir að múrinn var reistur bjugg- umst við öll við því, að þetta væri aðeins tíma- bundin ákvörðun. Á með- an veröldin væri á móti DDR. Á meðan aðeins kommúnista ríkin viður- kenndu okkur og höfðu hér sendiráð. Á- meðan S.Þ. vildu ekki sam- þykkja DDR. Þá héldum við, að kerfið myndi bresta. Nú er vonin brostin. Jafnvel Danmörk hefur viðurkennt DDR og þar fór síðasta vonin — líka flóttavonin. Flestir þeirra Austur-Þjóðverja, sem hafa vonast til að flýja yfir til Danmerkur yfir Eystrasalt óttast nú, að dönsk stjórnvöld mundu senda þá aftur til DDR. Svarið þið mér. Mun Danmörk veita austur- þýskum flóttamönnum hæli eftir að hafa viður- kennt DDR? Ég sagði, að viðurkenn- ingin á DDR, sem ríki myndi líklega engin áhrif hafa á vernd Dana á Austur-Þjóðverjum, sem flýja af stjórnmála- ástæðum. — Ég þarf að vita það, sagði Heinz. — Við bræð- urnir höfum lengi rætt að flýja til Vesturlanda. Ég veit, að þið leggið litla trú á, að VOPO flýi, en margir hafa flúið síðan fræga myndin var tekin 13. ágúst 1961 af VOPOa, sem flýði yfir gaddavír- inn. Við höf um séð mynd- ina gegn um sjónauka, þetta risaplakat, sem hangir handan múrsins — rétt hjá Checkpoint Charlie. — Veistu annars, hvað margir austur-Þjóðverj- ar hafa flúið yfir múrinn frá því að hann var reist- ur fyrir 13 árum? — Ég hef heyrt margar tölur, segir hann. — Ég veit ekki, hverju ég á að trúa. — Vestur-þýsku blöðin segja í tilefni 13 ára af- mælisins, að 33.467 manns hafi flúið frá 13. ágúst 1961. 65 mistókst. Það fólk var skotið á flóttan- um. Það var greinilegt, að þessar upplýsingar komu honum á óvart. Hann sat um stund í þungum þönkum, svo sagði hann: — Ég skaut sjálfur einn. Það var árið 1968. Ég þorði ekki annað. Við stóðum tveir hlið við hlið, þegar maðurinn kom hlaupandi að múrnum meðstiga undir hendinni. Ég hefði verið handtek- inn, ef ég hefði ekki skot- ið, en ég miðaði á fæt- urna. Það gerði félagi minn ekki. Hann skaut manninn í lungað. Okkur var skipað að láta hann liggja og blæða út við múrinn. Hann veinaði og grét í hálfa klukkustund áður en hann dó. Það var hræðilegt. Þennan dag skildi ég, að hér er ekki mannaríki heldur tilfinn- ingalaust lögregluríki. Daginn þann ákvað ég að flýja, ef tækifæri gæf- ist. Það hefur bara ekki komið ennþá. Ég fer í sumarleyfi að Eystra- salti árlega í þeirri von að fá tækifærið og því spurði ég um afstöðu Danmerkur til flótta- manna eftir, að landið hefur viðurkennt DDR. Ég verð dæmdur til dauða, ef ég verð sendur aftur. Ef fólk í Danmörku rannsakar fortíð mína og kemst að því, að ég var VOPO og hef skotið flóttamann verður um- sókn minni synjað og ég sendur heim. — Hvernig ætti það að f réttast? — Austur-þýsk stjórn- völd senda strax fregnir til Danmerkur um, að ég sem VOPO hafi fengið heiðursmerki fyrir störf mín. Þá efast dönsk stjórnvöld með réttu um, að ég sé pólitískur flótta- maður. — Hafa aðstæður hér f DDR ekki batnað síðan múrinn var reistur fyrir 13 árum? — Jú, sem betur fer. íbúðirnar eru fleiri, f jár- hagsafkoman betri, en samt ekki jafngóð og í Vestur-Þýskalandi fyrir 13 árum. — Hvernig veistu það? — Við bræðurnir fórum þá oft til Vestur-Berlín. Þá gat maður farið eins oft og maður vildi. Að kvöldi 12. ágúst vorum við á dansleik í Vestur- Berlín. Við sáum, hvað lífskjörin voru betri þar og það var líka ástæðan fyrir því, að múrinn var reistur. Kerf ið þoldi ekki, að við sæjum, hvað Vestur-Berlínarbúum leið vel. Mánuðina áður en múrinn var reistur flýðu 3 þúsund manns á dag. DDR mátti ekki við því, ekki síst vegna þess, að það voru háskólaborgar- ar og vel stæðir menn, sem flýðu. — Þið bræðurnir voruð i Vestur-Berlín 12. ágúst, en hvers vegna snéruð þið aftur fyrst þið voruð svo óánægðir? — Við fórum að kvöldi Þessi mynd er af austur-þýskum lögreglumann i aö tala viö vestur-þýskan dreng yfir gaddavirsgiröinguna, sem aöskildi Austur- og Vestur-Berlfn áöur en múrinn var reistur og hún segir meira en nokkur orö um ástandiö og óhugnaöinn I Austur-Berlin. 0 Miðvikudagur 4. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.