Alþýðublaðið - 04.12.1974, Side 7

Alþýðublaðið - 04.12.1974, Side 7
og snérum heim um nótt. Við sáum auðvitað, að verkamenn og lögreglu- menn voru að koma fyrir gaddavírsgirðingu, en við hugsuðum lítið um það. Næsta morgun lásum við í „Neues Deutschland", að allar útleiðir væru lok- aðar. Þá var ég ekki VOPO. Það gerðist seinna. Við vorum aðeins venjulegir Austur-Þjóð- verjar, sem hugsuðum lítið um stjórnmál. — En aðstæður hafa batnað í DDR? — Fjárhagslega séð, en launin eru enn lág miðað við aukin útgjöld fyrir mat og húsnæði. — Það segir fólk líka i hinum frjálsa heimi. — En það er ekki f jár- málin, sem eru það versta. Það er allt þetta þrúgandi lögreglukerf i með leynilögreglu, föld- um hljóðnemum, fólki, sem njósnar fyrir kommúnistakerf ið. Þið hljótið sjálfir að hafa orðið varir við það, þegar þið fóruð gegnum skoð- unina í Checkpoint Char- lie. Það höfðum við. Við þörfnuðumst ekki frekari skýringa. Við höfðum einmitt spurt sjálfa okkur, hvernig fólk gæti lifað svona lífi. — Við getum það að- eins vegna þess, að við eigum ekki annars úr- kosta, segir Heinz. — Ég held, að það breytist aldrei. Frá júníuppreisn- inni 1953 í Austur-Þýska- landi — sem rússneskar hersveitir bældu niður — hefur enginn þorað að trúa á frelsi frá kommúnisma. Menn eru einu sinni þannig gerðir, að þeir laga sig eftir að- stæðum. Það er ekki hægt að vera óhamingjusamur alla ævi. — En þið bræðurnir hafið ekki sætt ykkur við ástandið? — Ég held, að 90% Austur-Berlínabúa — ég veit lítið um þann hluta DDR utan Berlínar — dreymi innst inni um flótta. Hættan er hins vegar of mikil. Það er erfitt fyrir fjölskyldu- menn að flýja; eitt er að f lýja einn, annað, að taka heila f jölskyldu með. Við bræðurnir höfum ekki kvænst til að vera ekki bundnir. Við viljum helst flýja saman, en við höf- um komið okkur saman um að fái hinn tækifæri fyrst, þá flýr hann. Ég er alltaf vakandi fyrir flóttalíkum, þegar ég er á vakt. — Hvað gerirðu, ef bróðir þinn f lýr, þegar þú ert á vakt? Skýturðu hann? — Ég myndi neyðast til þess, en við höfum komið okkur saman um, að hann flýi ekki, ef ég er á vakt, þó að tækifæri bjóðist. Annars neyddist ég til að skjóta á hann öryggis sjálfs mín vegna. Annars hef ég ekki verið á vakt við múrinn í tvo ár, ég er í innri hringnum — eins og í morgun við Brandenburger Tor, en þar er ég á vakt í 200 metra fjarlægð frá múrnum. Við spyrjum Heinz, hvort við megum taka mynd af honum. Hann verður taugaóstyrkur og minnir okkur á loforð okkar um að koma ekki upp um hann. Við útskýr- um, að við munum alls ekki gera það, ef við fá- um að taka mynd „breyt- um" við andliti hans, svo að hann þekkist ekki. — Þá er það í lagi, seg- ir Heinz. Hann segir okk- ur, hvenær hann sé á vakt og biður um, að Ijós- mvndarinn noti aðdrátt- arlinsu til að félagi hans sjái ekki að verið er að taka af honum mynd. Þegar ég segist gjarnan vilja vera með á mynd- inni, segir hann: — Reyndu. En ég get ekki staðið og talað við þig lengur en það tekur að svara einni spurningu og ef til vill ekki svo lengi. Þannig voru myndírnar með greininni teknar. Barþjónninn kemur að borðinu. Það á að fara að loka. Við borgum og för- um. Úti á götu ákveðum við, hvernig á að taka myndirnar á morgun. Við kveðjumst og förum í leigubílinn, sem „Hein- rich" (líka gervinafn) ekur. Við förum til Hotel Stadt Hamburg og þar lesum við eftirfarandi leiðara í austur-þýska blaðinu „Neues Deutsch- land" í tilefni af 13 ára afmæli múrsins. 13. ÁGÚST 1961 I ÞÁGU FRIÐARINS ,,... Aðgerðir okkar 13. ágúst 1961 til að tryggja borgarmörkin gerðu vestrænum heimsveldis- sinnum það Ijóst, að þeir kæmust „hingað og ekki lengra" . . . Þeir vildu fyrir löngu fara yfir Brandenburger Tor og inn í DDR.Nú stóð múrinn á milli og þar með vökt- um við meiri athygli á kalda stríðinu milli aust- urs og vesturs og einnig milli Vestur- og Austur- Þýskalands ... 13. ágúst 1961 unnu sósíalístísku löndin sitt mesta afreks- verk í þágu friðarins. Þessar öryggisaðgerðir við landamærin gerðu sitt til að slaka á spennu milli austurs og vesturs ekki aðeins þá, heldur og nú og um alla framtíð eins og sést hefur á sambúð Austur- og Vestur-Þýska- lands. Því skulum við í dag þakka af heilhug þeim, sem þennan dag og næstu daga gerðu skyldu sína. Við þökkum her- mönnum þjóðarhersins og lögreglumönnunum (VOPO). Við gleymum aldrei þeim sonum sósíal- íska föðurlands okkar, sem handlangarar heimsveldissinna myrtu við landamærin . . . Við þökkum öllum þeim, sem nú og fram- vegis munu hjálpa sósíal- ismanum og friðinum með því að verja landa- mæri okkar". Ritstjóri „Neues Deutschland"s, dr. Gúnt- her Kertzcher, var a þakka VOPO-lögreglu- manninum, Heinz. Heinz hefði helst viljað afþakka. Þessi frega mynd er af einum féiaga Heinz, sem flýöi fyrir mörgum árum frá Austur-Berltn til Vestur-Berlfnar. Hann geta Austur-Þjóöverjar séö daglega, þvf aö hún hefur sem risaplakat veriö sett á einn af þeim veggjum i Vestur-Berlln, sem snúa í austur. Heinz dreymir um, aö hann geti einhvern timann gert slikt hið sama. Páll ísólfsson -inmemoriam- Það er óþarfi að skýra frá ir, það er stundum best að spila æviferli Páls Isólfssonar, eða ti- fyrir fáa. Hvað skyldi Páll hafa unda störf hans i þágu islenskr- haldið marga slika tónleika? ar tónlistar. Svo kunn voru þau Ég held að þau mörgu störf þjóðinni og henni hjartfólgin. sem hlóðust á Pál hafi gert það Og það er ógerlegt að lýsa i að verkum, að hann lagði ekki orðum þeim tilfinningum, sem rækt við tónsmiðagáfu sina sem bærast i brjóstum okkar, núna skyldi. En á þvi sviði bjó hann þegar Páll er allur. yfir miklum hæfileikum og sjaldgæfum: hann hafði frá- Thomas Mann dregur upp bæra íaglinugáfu. Þessi gáfa, — ógleymanlega mynd af aö semja „góða” laglinu — er organista i þýskum smábæ i kannski sú mikilvægasta ,i tón- skáldsögu sinni Doktor Faustus. jjstinni, þótt hún sé oft vanmetin Hann nefnist Wendeil Kret- af þeim sem berja saman tónlist schmar og kann allt sem að tón- meir af vilja en mætti. Það eru list lýtur, — er afburða organ- engar reglur til um hvernig leikari, kennari, fræðimaður og „góðar” melódiur eiga að vera. tónskáld. Það er þessi mann- gerð, sem hefur verið burðarás- Sumar eru góðar, aðrar ekki, — inn i þýsku tónlistarlifi i fjögur það er allt og sumt. Samt er hundruð ár. Þeir menn voru ótrúlegt hvað Páll afkastaði óþreytandi að miðia öðrum af miklu. Mér þykir vænst um þau nægtabrunni tónlistarinnar, lög hans, sem bera svip þjóðvis- stundum fyrir daufum eyrum, unnar: hrosshár i strengjum en þó ekki alltaf. Mér fannst . ég beið þin lengi lengi.... Páll að mörgu leyti þessi mann- sáuð þið hana systur mina... við gerð, þó gjörólikur væri per- litinn vog i litlum bæ.... og sónuThomasar Manns. Páll var margt fleira. hinn þýski kantor, enda mennt- aður i þeim skóla. 1 tónlsitinni var Bach hans alfa og ómega. En um leið var Páll var ekki eingöngu af- Pál1 allt.af forvitinn um nýjung- burða organsnillingur, hann var ar 1 tónlist,hann vildi skilja þær einnig frábær kennari og mikill °S fyJgjast með. Tilraunir i tón- uppfræðari, liðtækur píanóleik- list tuttugustu aldar voru ekki ari, kór- og hljómsveitarstjóri 1,305 hjartans mál, og hann og skipuleggjari. t stuttu máli: kannski ekki sáttur við þær all- driffjöður i öllum tónlistarmál- ar. En við okkur, svokallaða um yngri menn, ræddi hann málin af mikilli viðsýni, óvanalegu Mér eru minnisstæðir tónleik- fordómaleysi og yfirgripsmikilli ar sem hann hélt, fyrir mörgum þekkingu á samhengi tónlistar- árum, fyrir okkur krakkana i þróunar i aldanna rás. Menntaskólanum. Það komu mjög fáir. En efnisskráin var Páll var i fjölda ára heiðurs- mjög vönduð, og Páll flutti forseti Tónskáldafélags íslands. verkin eins og væri að leika fyr- Að leiðarlokum þakka islensk ir tignasta fólk heimsins, i fræg- tónskáld honum störf hans og asta hljómleikasal veraldarinn- afrek, og við vottum ekkjuhans. ar. Eg man enn hvað hann sagði frú Sigrúnu, og aðstandendum á eftir: það eru ekki alltaf bestu innilega samúð. tónleikarnir sem eru fjölsóttast- Atli Heimir Sveinsson. Miðvikudagur 4. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.