Alþýðublaðið - 04.12.1974, Síða 12

Alþýðublaðið - 04.12.1974, Síða 12
alþýðu hiRlilTn Bókhaldsaðstoð með tékka- færslum BÚNAÐAR- BANKINN KOPAVOGS APÓTEK Opifl öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SENDI8IL ASTÖOIN Hf ALÞÝÐUBLADID HEIM- SÆKIR VINNUSTADI AÐBUNADUR r A VINNUSTAD í dag áttum við leið fram hjá ísbirninum hf. á Seltjarnarnesi/ og Lýsi hf. Þegar við komum að ísbirninum, var þar æði tómlegt um að litast, og fáir á ferii. Inni i að- gerðarsalnum var hvergi að sjá það kvenfólk, sem venjulega er þar við vinnu. Viðspurðumst fyrir um það, hver j u þetta sætti, og var okkur þá tjáð að eng- inn fiskur væri í dag. Þá fórum við þar að,þar sem líf virtist vera á staðnum, og kom í Ijós, að hér voru menn að vinna ef ni i nýtt hús ísbjarnarins, sem á að rísa út í Örfirisey með tíð og tíma. Voru þarna nokkrir að bera gríðarstóra glugga- karma, sem nýlokið hafði verið smfði á. Við tókum þar tali Guðmund Guð- mundsson, og sagði hann eftirfarandi. „Við fáum vinnu við þetta þegar enginn fiskur er, þá er upplagt að nota mannskapinn í þetta. Við verðum að gera eitthvað við fólkið, það þýðir ekki að láta það standa að- gerðarlaust". Þátöluðum við við eina stúlkuna, sem við sáum þarna vera að bora göt i timbur. Hún sagði. „Við tökum bara hverju sem er, við eigum að vera í fiski, en það er bara frekar litið um hann núna. Við erum auðvitað vanastar því að vinna í fiski en það er gott að geta gert eitthvað." Og með það skildum við, við isbjörninn og fisk- verkunarstúlkurnar, sem skyndilega voru komnar í trésmíði, á verkstæði, sem slegið hafði verið upp í óupphituðu geymsluhúsnæði. Þegar við gengum inn í húsnæði Lýsis hf. lagði á móti okkur fnyk mikinn, og það svo sterkan að við tókum andköf. Þar inni hittum við fyrir verk- stjórann í fóðurblendi- verksmiðjunni, og töluðum lítillega við hann. Hann sagði. „Jú við vinnum alltaf í þessu ólof ti, það er ekkert hægt að gera við því. Maður fann mikið fyrir þessu fyrst þegar maður var að byrja, en þetta venst eins og allt annað. Aðstaða öll gæti verið betri, en þetta er þó all- þokkalegt eins og það er. Að vísu vill mjölið rjúka töluvertútí loftið, en við því er ekkert að gera." Það má eiginlega segja að þetta sé tómt ryk og drulla, og þegar það bætist við hávaðann, þá geta menn sjálfir dregið sínar ályktanir, hvort það sé þægilegt að vinna í sliku umhverfi". Og með það Ijúkum við frásögn okkar af heimsókn á vinnustaði í dag, en þeir eru fleiri sem við eigum eftir að heimsækja, og mun nánar greint frá árangri á næstu bak- síðum. FIMM a förnum vegi Hefurðu athugað hve mikið landbúnaðarvör urnar hækka, og gerirðu þér grein fyrir því hvað mikla hækkun er hér um að ræða? Guörún Jónsdúttir, húsmóöir: „Auövitaö er þetta slæmt, en ég hef. þó heyrt, aö búvörur séu mun dýrari i öörum Evrópu- löndum. Þaðer aö minnsta kosti ekkert betra að fara I verkföll, þaö hefst ekkert meö þvi”. Erna Marinósdóttir, húsmóöir: „Þetta er alveg geysileg hækk- un, og ég skil hreinlega ekki hvernig mannmörg heimili eiga aö komast af, þegar allar nauð- synjar hækka, en kaupið ekki neitt. Sjálf er ég svo heppin, að viö erum ekki nema tvö i heim- ili”. Lára óskarsdóttir, húsmóöir: Hér er eflaust um mikla hækkun aö ræða, en hversu mikiö veit ég ekki”. Siguröur Jónsson, úrsmiöur: Hefur þetta nokkuö aöra þýö- ingu, en að loka bara augunum á meðan eitthvaö er til i vesk- inu. Er þetta ekki þaö sem viö má búast, fastir liðir eins og venjulega. Helga Siguröardóttir, húsmóö- ir: Mér finnst þetta alveg of- boöslegt, hvað þetta hækkar mikiö. Þetta kemur auövitað illa út fyrir heimilishaldiö, og engar launahækkanir, sem koma i staöinn. Það er komiö nóg af svo góðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.