Alþýðublaðið - 23.08.1975, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 23.08.1975, Blaðsíða 5
Iþróttir Umsjón: Björn Blöndal „Eru ekki kæruglaðir” - en íhuga samt að kæra!? Fram skoraði ekki mark í 20 mfnútur misti niður 5 marka forskor - og Víkingar urðu (slandsmeistarar í handknattleik utanhúss 1975 Vikingar urðu íslands- meistarar i handknattleik utan- húss 1975 og unnu þvi „tvöfalt” — urðu einnig Islandsmeistarar i handknattleik innanhúss. A fimmtudagskvöldið var leikið til úrslita i útimótinu og >léku Vikingar við Framara um titil- inn. Fram náði forystunni fljót- lega i leiknum og um tima var ktaðan ekki glæsileg hjá Viking. Þvi að i seinni hálfleik hafði Fram náð fimm marka forystu 12:7. En þá var eins og Vikingarnir vöknuðu til lifsins og skoruðu hvert markið á fætur öðru hjá Frömurum sem áttu ekkert svar við þessum stakka- skiptum Vikinga, sem skoruðu næstu sjö mörk og breyttu stöðunni úr 12:7 i 12:14, og úrslit leiksins voru ráðin. Lokatölurnar urðu svo 14:17 fyrir Viking. Keppnin um þriðja og fjórða sætið var milli Vals og Hauka og var það ójafn leikur. Haukarnir áttu aldrei möguleika og Vals- menn unnu stórt 21:13, staðan i hálfleik var 10:5 Valsmönnum i vil. „Við erum ekki kæruglaðir hérna i Vestmannaeyjum”, sagði Hermann Jónsson formaður knattspyrnuráðs ÍBV I gær. ,,En við ætlum að athuga okkar gang vel og vandlega áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Við höfum verið að biða eftir ýmsum gögn- um I þessu máii — og ætlum okk- ur ekki að fara eftir því sem blöð- in skrifa heidur hafa allt á hreinu.” Þá sagði Hermann að frestur- inn rynni ekki út fyrr en á sunnu- dag og þvi væri enn timi til stefnu. Reikna má með að þeir Eyja- menn biði eftir úrslitum leikjanna i dag, en þeir eiga að leika við IBK I Keflavik og KR-ingar eiga að leika við FH I Reykjavik. Tapi Eyjamenn og KR vinnur FH þá fer staða þeirra að verða allt ann- að en glæsileg og reikna má þá fastlega með kæru frá þeirra hálfu. Páll Björgvinsson fyrirliöi Vikings er að vonum kampakátur, enda ný- orðinn tslandsmeistari utanhúss 1975 og hampar tslandsmeistara- bikarnum. Furðulegar yfirlýsingar lands- Þaðhefur ekkigengið aiitof vei hjá KE liðinu i sumar og leikmenn ekki haft tækifæri til að fagna mörgum mörkum. iliðinu —fall blasir við og þjálfarinn búinn að missa trúna á leikmönnum liðsins. Nú er útiitið æði dökkt hjá Ashton Villa — Leeds „Við byrjum á ensku knattspyrnunni að nýju á morg- un”, sagði Bjarni Felixsson i viðtali við Alþýðublaðið i gær. „Við vorum að fá fyrstu sendingu áðan, en það er leikur Aston Villa og Leeds sem leikinn var um siðustu helgi.” Það er örugglega mörgum mik- ið fagnaðarefni að fá enska bolt- ann aftur á skjáinn, eftir langt hlé. Liðin sem leika i dag eru ekki að verri endanum Aston Villa sem kom upp úr 2. deild á siðasta keppnistimabili og Leeds sem verið hefur i fremstu röð knattspyrnuliða á England und- anfarin ár. Leikið var á Villa Park i Birmingham, heimavelli Aston Villa, að viðstöddum 46 þúsund áhorfendum. Liðin voru þannig skipuð: Aston Villa: Cumbes, Gidman, Atkin, Ross, Nicholl, Philips, Greydon, Little, Leonard, Hamilton, Greydon. Leeds: Harvey, Reaney, F Grey, Bremner, McQueen, Cherry, Lorimer, Clark, Madeley, Yorath, McKenzie. Maður leiksins að dómi dag- blaðanna i Englandi var Billy Bremner fyrirliði Leeds. liðsþjálfarans Antony Knapps Virðist vera tilbúinn að hlaupa frá KR þegar verst gengur og upphefja sig á kostnað landsliðsins Mjög alvarlegur ágreiningur er nú risinn upp milli KR annarsvegar og Antony Knapp lands- liðsþjálfara og KSí hins- vegarvegna fyrirhugaðrar ferðar landsliðsins í knattspyrnu til Belgíu, Frakklands og Rússlands, nú um mánaðamótin. KR-ingar segja að Knapp hafi tekið að sér þjálfum hjá liðinu sem aðalstarfi, en samningur hans við KSt og þjálfun landsliðs- ins sé aðeins aukastarf. Hafi skýrt verið tekið fram I samhing- unum að hagsmunir KR gangi fyrir öllu, og nú hafi liöið mikilla hagsmuna að gæta i fallbarátt- unni sem framundan er. Fari svo að liðið hafni i neðsta sæti, þá sé fyrirsjáanlegur auka- leikur — og þvi veiti ekki af að nota allan þann tima sem gefst til undirbúnings. Það er þvi mikið vandamál i uppsiglingu hjá KSÍ og ekki er giæsilegt að senda landsiiðið út til keppni þjálfaralaust. Hitt vekur furðu að Knapp skuli láta hafa það eftir sér að hann telji þessa ferð hápunktinn i starfi sinu hér og hann muni engan veginn una við að verða kyrrsettur af KR. Með þessari yfirlýsingu sinni hefur hann sennilega misst allt traust leikmanna KR, sem hann hafði áður tilkynnt að hann myndi standa með I gegnum súrt og sætt. Ekki er heldur vist að allir séu honum sammála um að ferðin með iandsliðinu yrði hápunktur- inn á starfi hans hér færi svo að KR félli i 2. deiid. En þó að Knapp gefi yfirlýsing- ar eins og hann hefur gert, þar sem hann segir að leikmenn KR hafi ekki neinn viija og þar liggi orsökin á slakri frammistöðu liðsins i Islandsmótinu, Jiá ætti hann að þekkja það manna best að i Englandi er ekki leikmönnum um kennt — heldur þeim sem stjórnar og félögin eru ófeimin við að losa sig við menn sem ekki ná árangri. öllum er ljóst, sem bera hags- muni landsliðsins fyrir brjósti ,að samkomulag verður að nást milli KSl og KR, en það næst ekki mcðan landsliðsþjálfarinn heldur áfram að gefa ámóta yfir- lýsingar. Þvivist er, að þær gera KR-inga ekki alltof samvinnu- þýða i þessu máli. Blikarnir kvöddu 2. deild með sýningu! Tóku Þróttara í kennslustund í knattspyrnu í gærkvöldi Það verða Blikarnir úr Kópa- vogi sem leika i 1. deild á næsta ári. Þeir tóku Þrótt heldur betur i karphúsið i gærkvöldi þegar liðin léku á grasvellinum i Kópavogi. Leikmenn Þróttar voru leiknir sundur og saman langtimunum saman og var ekki hægt að sjá að þar léku tvö af efstu liðunum i 2. deild. Loka- tölur leiksins urðu 4:1 fyrir Breiðablik og hefði sá munur getað orðið mun meiri. Veður til að leika knattspyrnu var ekki hagstætt i gærkvöldi, rok og rigning, en Blikarnir létu það ekki á sig fá — hófu strax stórsókn og þess var ekki lengi að biða að Þróttarar fengju að hirða boltann úr netinu hjá sér. Fyrsta mark Blikanna skor- aði Hinrik Þórhallsson á 7. min, eftir leikhlé hafði Þór Hreiðar- sson bætt öðru marki við eftir góðan undirbúning frá Hinrik og þannig var staðan i hálfleik. Blikarnir héldu sömu yfir- burðum i seinni hálfleik og skor- uð þá tvivegis, Hreiðar Breiðfjörð og Ólafur Friðriks- Þrótturunum tókst að minnka muninn á siðustu minútu leiks- ins með marki Sverris Brynjólfssonar. En þó Þróttarar hafi tapað þessum leik er ekki öll von úti hjá þeim að vinna sæti i 1. deild — þeir fá annað tækifæri og leika þá við neðsta liðið i 1. deild. Laugardagur 23. ágúst 1975 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.