Alþýðublaðið - 15.11.1975, Side 14
í HREINSKILNI SAGT
Hvað er milljón?
Altalaö er, að þessi spurning hafi ein-
hverju sinni hrokkið af vörum Einars
Benediktssonar skálds i umræðum um
fjármál. Þétta urðu fleyg orð og flest
landsins börn kannast vfst við þau, þó
ööruvisi séu metin nú en þegar þau voru
sögð. Mönnum þótti svona framsláttur
bera vott um alvarlegt kæruleysi. Þá
var krónan reyndar meira virði en nú til
dags.
Ekki verður annað sagt en að við-
skiptalifiö hér á landi gangi glatt þessa
dagana og milljón af litlu krónunum
okkar vex mönnum ekki i augum meira
en svo. Þegar öllu er á botninn hvolft eru
þeir vfst ótaldir milljónamæringarnir á
íslandi eins og sakir standa, sennilega
flestir, sem hafa náð eignarhaldi á hús-
kofa-þaki yfir höfuð sitt og sinna. Það
eru hreint engar smáupphæðir, sem
velta hér milli manna daglega. Upp-
skátt varð um daginn, þegar Seðlabank-
inn lét gera skyndikönnun á ávisunum
hérna á suðvesturhorni landsins, að
dagsveltan var hvorki meira né minna
en á fjórða milljarð bara i ávisunum!
Þá eru auðvitað öll viðskipti i peningum
ótalin. Þetta ersannarlega biómlegt en
reyndar er ekki laust við að nokkur
skuggi hvili yfir meðan svo stendur, að
hluti af þessari hringrás er falskur. Við
höfum fengið upplýst, að i þetta sinn,
sem könnunin var gerð hafi ástandið
verið lakara en oft áður og Seðlabank-
anum taldist svo til, að röskar 100 mill-
jónir f ávisunum hef ðu verið útgefnar án
þess að innistæður væru fyrir hendi. Sið-
ar höfum við einnig fengið upplýst, að
fjöldi þess fólks, sem hefur ávisanabæk-
ur undir höndum, muni vera býsna mik-
ill. Þess er getið til, að um 100 þúsund
ávisanahefti muni vera i fórum manna á
þessu tiltekna svæði, en auðvitað má
vera, að sumir hafi fleiri en einn slikan
reikning, svo tala heftanna gefur ekki
beinar upplýsingar um tölu þeirra, sem
hafa ávisanarétt. Engin ástæða er til að
amast við þvi. Alltaf getur það hent, að
menn glati veskjum sinum, og það þarf
ekki að valda verulegu tjóni þótt ávis-
anahefti týnist, að minnsta kosti miklu
siður en þegar peningar tapast. Og við
skulum segja, að bankarnir séu öruggar
geymslur fyrir seðla og annað fé. Samt
viröistvera umtalsverður brestur í pott-
inum, þegar það getur gerzt, að menn,
sem iðka það að gefa út falskar ávísan-
„Innistæðulaus,
því miður!”
ir, valsa um meö ávisanarétt og tékk-
heftifrá þessum stofnunum. Ekki er rétt
að horfa framhjá þvi, að hér þarf alls
ekki alltaf að vera um að ræða tilraun til
svika frá hendi útgefenda. Þar getur
komið til röng samlagning og útgefandi
verið I góðri trú að allt sé i lagi. Þá er
einnig venjulega um smáupphæðir að
ræða. En þegar ávisanir fara að velta á
milljónum — talið var að hæsta inni-
stæðulausa ávisunin um daginn hefði
verið á átta milljónir — er varla um
misgáning að ræða. Þá er málið komið á
alvarlegt stig. Okkur er sagt, að bank-
arnirberjistaf alefli móti sliku misferli,
sem er næsta trúlegt, og okkur er enn-
fremur sagt, að þeir gripi til þeirra
varna, að svipta þessa óreiðumenn ávis-
anarétti. Okkur er ennfremur sagt, að
til sé i landinu tölvukerfi, sem ætti að
Eftir Odd A. Sigurjónsson
geta komið i veg fyrir að tilraunir til
tékkamisferlis heppnist vegna daglegs
eftirlits. Samt er nú ástandið ekki betra
en að framan er sagt. Þrátt fyrir að við
höfum einnig fengið upplýst að bank-
arnirhafi traustsamband sin á milli um
slika hluti, virðast vera alvarlegar gluf-
ur i kerfinu. Spurning hlýtur að vakna
um hversu traust sambandið og kerfið
sé og hvað valdi þvi að milljónafúlgur
séu á flökti i fölskum pappirum af þessu
tagi. Aftan i þessu hangir svo spurning-
in: Er nægileg gangskör gerð að þvi af
bankanna hálfu, að taka ávisanaréttinn
af þeim sem skrifa falska tékka? Það
væri f meira lagi furðuleg tilviljun ef all-
ar þessar 100 milljónir um daginn hefðu
verið fyrsta brot útgefenda! Þetta er
ekkert hégómamál. Hversu margir ein-
staklingar hafa orðið fyrir barðinu og
tapað stærri eða smærri upphæðum
vegna þess að þeir hafa tekið við
greiðslum i fölskum ávisunum, skal ó-
sagt látið. Eflaust eru þeir margir. En á
það skal jafnframt bent, að þetta er i
reynd á siðferðilegri ábyrgð viðkomandi
banka, nema útgefandi hafi beinlinis út-
fyllt stolið eyðublað. Gæti bankar þess
ekki, að gripa hart til útgáfusviptingar
ávisanafalsara, hverjir sem það svo
eru,er veriðað ala á ósómanum og dilla
honum. Þess verður að krefjast að stað-
iö verði af bankanna hálfu við lög og rétt
og umsvifalaust beitt þeim viðurlögum
sem duga þegar um er að ræða útgef-
endur tékka, sem bersýnilega falsa vit-
andi vits.
f< IK
Jesú og
Casanova
Margir eru undrandi á þvi
hvernig kvikmyndastjórar
velja i hlutverk, ekki sizt
þegar um er að ræða persón-
ur úr sögunni sem fólk hefur
gert sér ákveðnar hugmynd-
ir um.
Roberto Rossellinier nú að
gera kvikmyndina Messias. 1
hlutverk Jesú hefur hann
valið 26 ára gamlan italskan
verkfræðistúdent, Pier
Maria Rossi að nafni.
Rossellini segir að þetta sé
nákvæmlega rétti maðurinn
til að leika Jesú.
Annar þekktur leikstjóri,
Federico Fellini vinnur um
þessar mundir að kvikmynd
um lif og lifnaðarháttu Casa-
nova. Með aðalhlutverkið fer
brezki leikarinn Donald
Sutherland, sem Fellini segir
að sé hinn fæddi Casanova.
Barnið ekki
lengur barn
Brigitte Bardot varð fjúk-
andi reið er hún sá myndir af
syni sinum, hinum 16 ára
gamla Nicolas, þar sem
hann var með bráðfallegri
piu — klæddri topplausu
tizkunni. Þau voru að
skemmta sér með föður,
stráksa og fyrrverandi eigin-
manni Bardot, Jacques
Charrier um borð i lysti-
snekkju hans.
— Guð minn almáttugur —
hann er aðeins barn. Og nú
skal hann sko koma og búa
hjá mér, sagði Bardot.
En i þetta sinn fékk þessi
fræga og dekraða leikkona
ekki vilja sinum framgengt.
Sonurinn skyrði út fyrir
henni, að þar sem hún hefði
getað verið án hans i 16 ár
væri það nokkuð seint að
blanda sér i uppeldismálin.
Auk þess hefði hann aldrei
skipt sér af þvi pótt nektar-
myndir birtust af henni i
blöðum og timaritum.
Það varð fátt um svör hjá
Bardot og nú lætur hún sig
dreyma um að eignast annað
barn. Eflaust eru margir til-
búnir til að aðstoða hana við
að láta þann draum rætast!
Elaggi rólegi
FJalla-Fúsi
j—i o I
STJðRHUBÍÓ Slmi IS936
Bíéin
IAFNARBÍÚ
HASKÓLABÍÓ
Slmi 22140
Skotglaðar stúlkur
Emmanuelle
selja, eða vanhagar um -
kostnaði að auglýsa?
og svarar vart
Ástfangnar konur
.Women in Love'
Mjög vel gerö og leikin, brezk
átakamikil kvikmynd, byggö
á einni af kunnustu skáldsög-
um hins umdeilda höfundar
S.H. Lawrence „Women in
Lovc”
Leikstjóri: Ken Russell
Aðalhlutverk: Alan Bates,
Oliver Reed, Glenda Jackson,
Jennie Linden.
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuö yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
S.P.Y.S.
Einstaklega skemmtileg
brezk ádeilu- og gamanmynd
um njósnir stórþjóöanna.
Brezka háöiö hittir I mark I
þessari mynd.
AÖalhlutverk: Ponald Suther-
land, Elliott Gould.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
IÝ1A ÉÚ Sjmi 1154*
Ævintýri
Meistara Jacobs
Hörkuspennandi ný banda-
risk litmynd um þrjár stutt-
ar sem sannarlega kunna aö
bita frá sér.
Georgina Hendry, Cheri
Caffaro, John Ashley.
ISLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
'ÖNABÍÖ Slmi 111162
AUQARASBÍÓ sim~
ENGINN
ER ILLA SÉDUR,
SEM GENCUR MED
ENDURSKINS
NERKI
Heimsfræg ný frönsk kvik-
mynd i litum gerö eftir skáld-
sögu meö sama nafni eftir
Emmanuelle Arsan.
Leikstjóri: Just Jackin.
Mynd þessi er ailsstaöar sýnd
meö metaösókn um þessar
mundir i Evrópu og viöa.
Aðaihlutverk: Sylvia Kristell,
Alain Cuny, Marika Green.
Enskt tal.
ISLENZKUR TEXTI.
Stranglcga bönnuö innan 16
ára.
Nafmsklrteini.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Miöasalan opin frá kl. 3.
Sprenghlægileg ný frönsk
skopmynd meö ensku tali og
islenskum texta. Mynd þessi
hefur ailsstaöar fariö svo-
kaliaöa sigurför og var sýnd
meðmetaösókn bæði I Evrópu
og Bandarikjunum sumariö
1974.
Aöalhlutverk: Luois Pc
Funes.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
\vvyiisvj
Ný karate-mynd i litum og
cinemascope meö
ISLENSKUM TEXTA
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 11.
Barnsránið
iríC
ISLACh
WINDMILL
A UNIVERSAI. RELEASF
önnuö börnum innan 14 á
ýnd kl. 7 og 9.
Þá hefur Alþýðublaðið lausnina:
ÓKEYPIS SMÁAUGLÝSINGAR, sem er okkar
þjónusta við lesendur blaðsins.
Laugardagur 15. nóvember 1975.