Alþýðublaðið - 19.12.1975, Qupperneq 6
Danska blaðið Aktuelt skýrir frá
því í fyrradag, að á morgun,
laugardag, verði væntanlega
kunngjört í veizlu í sænsku kon-
ungshöllinni, að Karl Gústaf
Svíakonungur muni ganga að
eiga Silviu Sommerlath, 27 ára
gamla stúlku, sem konungur
kynntist er hann sótti ölympíu-
leikana í Munchen. 160 gestir
verða í veizlunni, og þykir gesta-
listinn benda til þess að von sé á
meiriháttar yfirlýsingu.
Orðrómur um trúlof un konungs
og Silvíu hef ur áður heyrzt, en að
þessu sinni hafa talsmenn kon-
ungs hvorki viljað játa né neita
neinu.
VERÐUR SILVIA
SVÍAÐROTT NING?
Svíadrottning
kunngjörð
á morgun?
Margir, sem þekkja vel til sænska kóngafólks-
ins segja að tilvonandi drottning Svia heiti Silvia.
Hún er 27 ára, af borgurum komin, alin upp i Suð-
ur-Ameriku og þýzkur rikisborgari. Hún ekur i
gömlum bíl, hún talar sex tungumál, hún er falleg
og hún er prúð. Þetta segja þeir , sem þekkja
þessa ungu stúlku og sem eru sannfærðirum,að
hinn ungi Sviakonungur, Carl Gustaf hafi með
Silviu Sommerlath fundið stúlkuna, sem hann
elskar og sem sænska þjóðin mun unna lika.
Silvia bjó i einstaklingsibúð i Munchen, þangað
til að sænski kóngurinn varð fárveikur i ágúst og
þá náðu sænskir blaðamenn fyrst tali af Silviu. Nú
er hún horfin og enginn veit, hvort það er rétt,
sem hún sagði, að hún yrði nokkra mánuði á
Spáni eða hvort hún hefur staðið við hlið Carls
Gustafs i laumi allan timann.
Konungurinn, sem er 27 ára kynntist Silviu á
Olympiuleikunum i Munchen en þar vann hún við
móttöku „finni” gesta, svo sem Rainerfursta af
Monaco og Carls Gustafs.sem þá var krónprins.
„Við kynntumst ekki nánar fyrr en siðar,” lét
hún þýzkt blað hafa eftir sér.
Þau fóru saman á skiði i Zermatt I Sviss og þar
kynntust þau vel. Eftir það hafa þau skrifazt á og
hringt oft hvort til annars og þau hittast jafnoft og
mögulegt er. Þau fóru t.d. saman á veiðar hjá Otto
von Bismarck fursta skammt frá Hamborg um
vorið.
Carl Gustaf kynnti Silviu fyrir afa sinum, áður
en hann lézt, frænda sinum Bertil prins og vinum
sinum á sumarhöllinni Solliden á öland og allir
töfruðust af þessari dökkhærðu, gáfuðu og yndis-
iegu stúlku.
Faðir Silviu er kominn á eftirlaun og hann býr
ásamt konu sinni, sem er brasilisl^i þýzkum smá-
bæ. Silvia, foreldrar hennar og þrir eldri bræður
bjuggu i 12 ár i Sao Paulo i Brasilíu og þvi talar
hún bæði portúgölsku og þýzku.
Vinir hennar segja, að hún sé hin eina og rétta
Sviadrottning.
Hún hefur stúdentspróf, en hún hefur einnig lært
hótelrekstur og farið á málanámskeið. Hún talar
lika ensku, frönsku, spönsku og itölsku eins og
innfædd. Hún hafði yfirumsjá með þeim 1500
stúlkum, sem unnu við móttöku og sem túlkar á
Olympiuleikunum i Munchen.
AFl FYLGDIST MEÐ HONUM
Beztu drottningarnar eru þær, sem eru kjörnar
af ást. Vinir Carls Gustafs og Silviu efast ekki um,
að hann elski hana heitt. Prinsinn, sem dansaði og
drakk,er gjörbreyttur eftir að hann varð konung-
ur. Það er erfitt að vera Sviakóngur og Ca'rl Gust-
af lifir ekki lengur hinu ljúfa lifi með forgylltum
dömum.
Listinn yfir fyrrverandi vinkonur Carls Gustafs
er langur: Það var Ulia.sem var aðeins 16 ára,
þegarhún varð vinkona prinsins. Pia Degermark,
sem varð leikkona og Titti Wachtmeister, sem
varð ljósmyndafyrirsæta.Christina Lindberg,
Barbro Ehn, Ewa Tresschow og svo barnabarn
Sir Winstons, Arabella Churchill.
Carl Gustaf hefur einnig verið bendlaður við
önnu, Englandsprinsessu, Karolinu Mónakó-
prinsessu og milljónaerfingjann Tinu Onassis.Þá
sagði hann: „Einkalif mitt kemur engum við.
Margir kvænast ungir, en ég er ekki ennþá reiðu-
búinn til þess, en ætti ég samt að hætta að daðra?”
Það voru ekki aðeins blaðamenn, sem fylgdust
með þvi við hverja prinsinn dansaði mest eða hélt
lengst i höndina á bæði i Sviþjóð og erlendis. Afi
Carls Gustafs, Gústaf Adolf konungur fylgdist vel
með barnabarni sinu. Hann — meira en nokkur
annar — ól hann upp sem verðandi konung og
undirstrikaði hvað eftir annað, að skyldan gangi
fyrir öllu.
BERTIL PRINS VERÐUR'AÐ BÍÐA
Einn er sá maður, sem hafði mikil áhrif á Carl
Gustaf meðan hann var „að hlaupa af sér hornin”
og það er Bertilprins, bróðir hins látna Sviakon-
ungs og Ingrid Danadrottningu.
Bertil prins hefur alla ævi neyðst til þess að
meta skylduna meira en einkalifið. Hann varð
alltaf að taka við skyldum konungsins, þegar hann
var á ferðalagi, unz krónprinsinn varð myndugur
25 ára gamall. Ef Gústaf Adolf hefði látizt fyriir
tveim árum hefði Bertil prins verið fulltrúi krún-
unnar, unz „litli prinsinn” hefði aldur til þess.
Þess vegna hefur Bertil prins aldrei kvænzt.
Hann er einhver hjartanlegasti og elskulegasti
maður, sem hægt er að hugsa sér og hann þráir
eðlilegt fjölskyldulif eins og aðrir. En hann neydd-
ist til að hætta við að ganga að eiga enska vinkonu
sina, Lilian Craig, sem hefur i mörg ár búið i
villu prinsins „Villa Mirage” á frönsku Rivier-
unni.
Þau hittast aðeins, þegar Bertil prins þarf ekki
að gegna störfum sinum i Sviþjóð. Meðan nýi kon-
ungurinn er ókvæntur og á engan son, sem verður
konungur eftir hans daga, neyðist Bertil prins enn
til þess að vera fulltrúi krúnunnar nr. 2.
CHRISTINA PRINSESSA ER ENN FYR§TA
FRÚ RtKISINS
Þar sem konur geta ekki orðið drottningar Svi-
þjóðar, þó að þær séu af konungsættinni, eru að-
eins til tveir menn, sem geta stýrt krúnunni. Ann-
ar er ungi konungurinn, en hinn Bertil prins, sem
er 61 árs „staðgengill” og verður enn að biða ró-
legur.
Ef Bertil prins kvænist konu af borgaraættum
missir hann allan rétt til krúnunnar og gerist það
og látist ungi konungurinn án þess að hafa látið
eftir sig erfingja er konungdæmið Sviþjóð úr sög-
unni. Það er mjög vafasamt, að Sviar myndu
velja nýjan konung til að gegna þeim örfáu skyld-
um, sem eftir eru af riki Bernadottanna.
Systir Carls Gustafs konungs, Christina prin-
sessa verður einnig að meta skylduna meira en
allt annað. Þessi þrituga Haga-prinsessa hefur
verið fyrsta frú Sviþjóðar frá þvi að móöir hennar,
Sibylla.dó. Christina prinsessa verður aðhaldaá-
fram að standa við hlið bróður sins unz hann
kvænist og þvi getur hún ekki gengiðaðeiga mann-
inn, sem hún elskar eins og systur hennaiChrist
ina prinsessa getur ekki komið fram fyrir hönd
krúnunnar, ef hún gengur að eiga mann af borg-
araættum. Prinsessan hefur alltaf neitað þvi, að
hún sé i hjónabandshugleiðingum, en hún á sér
vin, forstjórann Tord,,Tosse” Magnussonog hann
er af borgaraættum.
Christina hefur verið — og er, þangað til.að
bróðir hennar kvænistvirðuleg fyrsta frú rikisins
og hún hefur stutt konunginn mikið þessa erfiðu
fyrstu daga. Hún er nýtizkuleg og sjálfstæð stúlka,
sem vinnur úti . Fyrst i ráðuneyti, en nú hjá
Rauða krossinum og tekur engin laun fyrir starf-
ið. Hún hefur einnig tekið að sér mikið af störfum
móður sinnar, Sibyllu prinsessu, sem verndari
allskonar stofnana og félaga.
Skyldan gengur fyrir hjá henni, konunginum og
Bertil prinsi, en enginn efar það, að Christina
prinsessa hlakkar til þess dags, þegar Carl Gustaf
kvænist.
Þá getur hún gert það, sem hana langar til.
PlilStlME llf
PLASTPOKAVE RKSMHD JA
Sfmar 82639-82655
Vetnagörftum 6
Box 4064 — Reykjevfk
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Halnaiijarðar Apotek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
’Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Læknishjálpin að verða lúxusvara
Fleiri byggðas tj ðrnir mótmæla
málaflokks ef nauðsyn krefur.
Á fundi i Samstarfs-
nefnd sveitarfélaga á
Suðurnesjum sem
haldinn var 18. des.
’75 var eftirfarandi
samþykkt gerð:
,,Lagt hefur verið
fram á Alþingi stjórn-
arfrumvarp um
breytingar á al-
mannatryggingalög-
unum, sem felur i sér,
að sveitarfélögum er
falið að innheimta 1%
álag á gjaldstofna út-
svars, þ.e. brúttótekj-
ur gjaldenda. Skal fé
þessu varið til að
standa undir rekstr-
arútgjöldum sjúkra-
trygginganna”.
S.S.S. mótmælir harðlega
framkomnu frumvarpi, sem
gengur I þveröfuga átt við
stefnu sveitarstjórnarmanna
á Suðurnesjum, sem telja að
rikið eigi að taka að sér
sjúkratryggingarnar að fullu.
Skorar nefndin á alþingis-
menn að fella frumvarpið og
beita sér i staðinn fyrir þvi að
10% þátttaka sveitarfélag-
anna i sjúkratryggingunum
verði lögð niður og rikissjóði
falin sú fjármögnun og einnig
viðbótarfjáröflun til þessa
Guðmundur
sveitarstj
leysustr.hreppi.
Jóhann Einvarðsson
stjóri Keflavik.
Eirikur Alexandersson
bæjarstjóri Grindavik.
Hauksson,
V a t n s -
bæjar-
Alfreð Alfreðsson, sveitar-
stj. Sandgerði.
Albert K. Sanders, sveitar-
stjóri Njarðvikurhrepps.
Jósep Borgarsson, oddviti
Hafnahreppi.
Finnbogi Björnsson, oddviti
Gerðahreppi.
Verkfræðstofa Sigurðar Thoroddsen: Til að leiðrétta misskilning
Greinargerð um tæknilegan
undirbúning Kröfluvirkjunar
1. Ráðning ráðgjafar-
verkfræðinga
Kröflunefnd réði ráðgjafar-
verkfræðifyrirtækin Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen s.f.
(VST) og Rogers Engineering Co.
Inc., San Francisco til þess að
annast tæknilegan undirbúning
Kröfluvirkjunar og til umsjónar
með framkvæmdum. Var samn-
ingur milli aðila um það verk
undirritaður 21. nóv. 1974.
Verksvið ráðgjafarfyrirtækj-
anna er tæknilegur undirbúning-
ur og umsjón með framkvæmd-
um við orkuverið sjálft. Um aðra
þætti undirbúnings framkvæmd-
anna var ekki samið, svo sem
framkvæmdir við jarðboranir og
gufuveitu aðstöðvarhúsi, sem eru
á vegum Orkustofnunar og há-
spennulinu frá orkuveri til Akur-
eyrar, sem eru á vegum Raf-
magnsveitna rikisins.
Vegna tilfinnanlegs raforku-
skorts á Norðurlandi lagði
Kröflunefnd áherzlu á það við
ráðgjafarfyrirtækin, að fram-
kvæmdum yrði hraðað svo sem
kostur væri.
2. útboð og samningar
A. Véibúnaður
Hinn 2. des. 1974, eða aðeins ell-
efu dögum eftir að ráðgjafar-
verkfræðingarnir höfðu tekið að
sér hönnun verksins, sendu þeir
tiltækar upplýsingar um aðalvél-
ar til átta vélaframleiðenda með
fyrirspurnum um verð og af-
greiðslutima. Tilboð bárust frá
fimm þeirra ásamt margvisleg-
um upplýsingum um fyrirtækin.
Álitlegustu tilboðin voru frá
tveimur japönskum fyrirtækjum,
Mitsubishi Heavy Industries
(MHI) og Toshiba. Bæði þessi til-
boð voru mjög itarleg. Tilboðs-
gögn MHI voru 201 bls. en tilboðs-
gögn Toshiba 294 bls. Fulltrúar
beggja ráðgjafarfyrirtækjanrta
gerðu itarl. samanburð á þess-
um tveimur tilboðum og ræddu
við fulltrúa fyrirtækjanna. Var
það samhljóða álit þeirra, að til-
boð MHI væri hagstæðara bæði
hvað snerti verð og gæði vélbún-
aðar. Samningar um kaup á
tveimur 30 MW vélasamstæðum
var gerður við MHI, og var hann
undirritaður 7. febrúar 1975.
Utboð og samningar um önnur
vélakaup hafa staðið yfir siðan og
er nú að mestu lokið, þ.e.a.s. um
15% verðmætis. Hafa þeir samn-
ingar verið gerðir við fjölmörg
fyrirtæki, bæði Evrópu og
Ameriku auk viðbótarsamninga
við MHI.
B. Byggingarframkvæmdir
f samningum við vélaframleið-
endur tókst að semja um það
stuttan afgreiðslufrest, að sá
möguleiki opnaðist, að raforku-
framleiðsla gæti hafizt siðla árs
1976. Kröflunefnd ákvað að stefna
að þvi marki og skyldu fram-
kvæmdir við það miðaðar. For-
senda fyrir þessari áætlun var, að
stöðvarhúsið yrði gert fokhelt
fyrir veturinn ’75— ’76.
Útboð á mannvirkjum hefði
tekið nokkra mánuði og kom þvi
ekki til greina, ef sett timamörk
áttu að standast. Var þvi óhjá-
kvæmilegt að ráða verktaka til
verksins, og fól Kröflunefnd VST
að kanna hvaða verktakar kæmu
helzt til greina.
1 aprilmánuði sl. aflaði VST
upplýsinga um hvernig verkefn-
um væri háttað hjá þeim fyrir-
tækjum, sem helzt komu til
greina og var rætt við fulltrúa
nokkurra þeirra. Að lokum stóð
valið milli Miðfells h/f i Reykja-
vik og Norðurverks h/f á Akur-
eyri sem höfðu látið i ljós áhuga á
verkinu. Lögðu bæði fyrirtækin
fram upplýsingar um tækjakost,
starfslið og fyrri verk. A grund-
velli þeirra upplýsinga og ann-
arra tiltækra upplýsinga um
fyrirtækin tók VST saman grein-
argerð um þau og lagði fyrir
Kröflunefnd. Er hún dagsett 17.
mai 1975. 1 greinargerðinni er
m.a. fjallað um reynslu verktak-
anna á sviði byggingarfram-
kvæmdá, fjármál og tækjabúnað.
Kemur þar fram, að VST taldi
bæði fyrirtækin hafa næga verk-
þekkingu og reynslu til að vinna
vekið.
Talsvert vantaði á að Norður-
verk h/f hefði yfir að ráða nægum
tækjakosti til framkvæmdanna.
Vantaði fyrirtækið t.d. mulnings-
og hörpunartæki til steypuefna-
framleiðslu og fullnægjandi
steypuhrærivélar en ráðgerði að
útvega þau tæki erlendis frá. Með
tilliti tilþess, að engan tima mátti
missa, ef unnt átti að vera að
koma stöðvarhúsinu undir þak
fyrir veturinn, taldi VST óvarlegt
að treysta á afgreiðsluloforð
tækja erlendis frá.
Miðfell h/f hafði hins vegar til-
tæk öll nauðsynlegustu tæki til
framkvæmdanna og gat hafizt
handa án tafar. Réði það atriði
úrslitum um það, að VST lagði til
viðKröflunefnd, að gengið yrði til
samninga við Miðfell h/f. Sam-
þykkti nefndin þá tillögu og gerði
bráðabirgðasamkomulag við
Miðfell h/f, sem hófst handa um
virkjunarframkvæmdir sfðari
hluta maimánaðar sl. Verksamn-
ingur var siðan undirritaður 4.
júli 1975. Með þeim samningi tók
Miðfell h/f að sér að gera
stöðvarhúsið fokhelt, steypa
undirstöður kæliturna og undir-
stöður háspennuvirkja og að
ganga frá stöðvarhlaði.
Nokkrir verkþættir við frágang
stöðvarhúss hafa verið boðnir út i
haustog útboð annarra er i undir-
búningi.
t nóv. 1975
Verkfræðistofa
Sigurðar TKoroddsen sf.
Einfalt
SPENNANDI
ÓDÝRT
Fæst í flestum
bóka- og leikfanga-
verzlunum
Heildsöludreifing: FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN H.F.
t TÓMSTUNDAHÚSIÐ 4
STÆRSTA LEIKFANGAVERZLUN LANDSINS
Dýr leikföng
rQ CP<"0
Ódýr leikföng
TÓMSTUNDAHÚSIÐ
Laugavegi 164 Sími 21901
Teppahreinsun
Hréinsum gólfteppi og húsgögn i
heimahúsum og fyrirlækjum,
Krum meö nýjar vclar. GóÖ þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
ffijSfSWSSI Innrettingar
husbyggingar
BREIÐÁS |
Vesturgötu 3 simi 25144 i
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 74200 — 74201
Kasettuiðnaöur og áspilun,
fyrir útgefendur hljóinsveitir.
kóra og fl. Leitiö tilboöa.
Mifa tónbönd Akureyri
Pósth. 631. Slmi (96)22136
Dunn
í GlflEÍIDflE
/ími 64900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322