Alþýðublaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 8
8 OR YMSUM ATTUM Fösiudagur 27. ágúsf 1976 blaíid ssssr Föstudagur 27. ágúst 1976 VETTVANCUR 9 ÞEGAR RITSTJÓRI DAG BLAÐSINS LÆTUR AL- ÞÝÐUBLAÐIÐ FARA í TAUGARNAR Á SÉR -V., alþýðu Jónas Kristjánsson, ritstjóri Dagblaösins, hefur aö undan- förnu gert nokkra aðför að þeim dagblööum, sem hann nefnir póli- tisk sorprit. Með þessu vill hann gera greinarmun á „pólitiskum sorpritum” og öðrum sorpritum i hópi islenzkra dagblaða. Að visu dettur Jónas ekki úr háum söðli með þessum skrifum sinum, sem eru næsta óskiljanleg, þegar i hlut á jafn greindur maður og hann er. Sérstaklega hefur Jónas beint skrifum sinum að Alþýðublaðinu sem hann velur hin verstu nöfn, og talar oftlega um hjáleigu Visis I þvi sambandi. Þvi sérkennilegri eru þessi skrif þegar menn gera sér ljóst, að Alþýðublaðið er ekki háðara Visi en Dagblaðið ýmsum kunnum fjáraflamönnum. Að skrifum Jónasar Kristjáns- sonar verður ekki önnur ályktun dregin en sú, að hann sé að lýsa yfir striði á hendur' Alþýðu- blaðinu. En þar hittir andskotinn ömmu sina. Alþýðublaðið á nóg af þurru púðri til að heyja slika styrjöld. Blaöiö ræður yfir býsna stórum fallstykkjum til aö hleypa af og tundrið er eins þurrt og púðriö. Jónas Kristjánsson hefur fundið Alþýðublaðinu það helzt til foráttu, að það sé notaö til að koma af stað gróusögum um Dag- blaðið, sem Visir siðan taki upp og beini gegn blaðinu i baráttunni á siðdegismarkaðnum. — En staöreyndin er sú, að Alþýðu- blaðið hefur ekki staðið I hnútu- kasti við Dagblaðið fram yfir það, sem eölilegt getur talizt á blaöa- markaðnum. Hins vegar er Alþýöublaöinu nokkur heiður að þvi að Dagblaðiö skuli taka slikt mark á þvi, sem skrif Jónasar bera vitni um. í Dagblaðinu I fyrradag er les- endabréf, sem Alþýöublaðiö full- yrðir að hafi orðiö til á rit- stjórn Dagblaðsins.þar til annað hefur veriö sannað með birtingu nafns höfundar. Þar er á heldur óyndislegan hátt látiö að þvl liggja að ákriftargjald Alþýðu- blaösins eigi að vera lægra en annarra blaða af þv! aðþaö hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að gefa út fleiri eintök en fimm i viku, en bætir við sérstöku sunnu- dagsblaði á laugardögum. Bréf- ritari er látinn heita „sósial- demókrat”. Alþýðublaðið vill i þessu sam- bandi taka fram, að kaupendur blaðsins hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir þessu, þótt „sósial- demókratinn” sé núna fyrst aö átta sig á þessari staðreynd. Þvi verður ekki leynt, að á undan- förnum árum hefur fjöldi fólks keypt Alþýðublaðið meira af skyldurækni og góðvilja til blaðsins og Alþýðuflokksins, en beinni löngun i lesefnið. Sem betur fer hefur nú orðið breyting á, áskrifendum blaðsins hefur fjölgað, lausasala þess hefur aukizt og upplagið hefur veriö stækkað. Alþýðuflokknum er lifsnauðsyn að blaðið komi út. Orð Ólafs heitins Thors, forsætisráðherra, um Morgunblaðið gilda jafnt um Alþýðublaðiö. Olafur sagði, að gengi Sjálfstæðisflokksins yrði ávallt I réttu hlutfalli við gengi Morgunblaðsins. Sama regla gildir um Alþýðuflokkinn. Um f járhagsörðugleika Alþýðublaðsins er Jónasi Kristj- ánssyni kunnugt. Viti hann ekki um þá, betur hann auðveldlega aflaö sér upplýsinga hjá núverandi framkvæmdastjóra Dagblaðsins, sem eitt sinn sá um útgáfu Alþýðublaösins, en sú saga veröur ekki rakin hér. Ekki er ljóst hvort Jónasi er ami að Alþýöublaöinu vegna þess að hann telji það draga úr sölu Dagblaðsins. Slikt er mikill mis- skilningur. Alþýðublaðið hefur örugglega engin áhrif á útgáfu Dagbl.: til þess er það of litið og um leiö of áhrifaíitiö. Hins vegar verður áfram reynt að bæta blaðið og auka útbreiðslu þess og slikt mun eðlilega hafa einhver áhrif á blaðamark- aðnum, þótt þau verði vart merkjanleg á næstunni. Eru þá upptaldar þær ástæður, sem legið gætu til grundvallar þeim ónotum sem Jónas hreytir i Alþýöublaðið. En vonandi veröur þaö sama upp á teningnum með gagnrýni Jónasar á Alþýðu- blaðinu og islenzkri bændastétt, að hún hafi að einhverju leyti verið á misskilningi byggð. En þvi fer fjarri, að með þessum orðum sé verið að biðja um gott veður hjá Jónasi. Þaö hefur fyrr gnauðað á gluggum Alþýðublaðsins og margir hafa viljað það feigt. En blaðið hefur tórað, gerir enn og mun svo verða áfram. Hvort taka ber púðurskot Jónasar á „pólitisku sorpritin” sem einhverskonar viðvörun er ekki alveg ljóst. Fari hann hins vegar að skjóta kúluskotum er ekki um annaö að ræða en að manna byssurnar og skjóta á móti. En af þvi að kratar eru fremur friðelskandi en hitt er þaö von þeirra aö til þess þurfi ekki aö koma. Að lokum skal sú ósk látin I ljós, að Dagblaöið fái að lifa. Það mun a.m.k. gera það i friði fyrir Alþýöublaöinu að öllu óbreyttu. —AG StwP Wmk GOSHÆTTA FER SIVAXANDI A KROFLUSVÆÐI Greinargerð vísindamanna um ástand Kröflusvæðisins og ályktanir varðandi hættu á eldgosi Siðan i desember s.l. , er smá- gos varð við Leirhnjúk hefir oft- sinnis veriðgefið i skyn, að búast megi við að aftur gjósi á svipuö- um slóðum. Ef svo yrði, þá gæti Kröfluvirkjun, og e.t.v. einn- ig þéttbýlið við Reykjahlið og Kisiliðjan verið I yfirvofandi hættu. Hér veröur reynt að kryfja til mergjar þá þekkingu, sem fyr- ir liggur og nýta má til að áætla goshættu við Kröflu (eða annars staðar þar nálægt.) Jarðskjálftar: Eldgosum fylgja jafnan jarð- skjálftar og oft verður þeirra vart áður en gos hefjast. Á Kröflu- svæðinu er nú fylgzt mjög náið með jarðskjálftum og eru stöðugt i gangi þrir jaröskjálftamælar á svæðinu. Jaröskjálftar hafa verið tiðir á svæðinu siðan snemma á árinu 1975, en um þverbak keyrði eftir gosið 20. desember 1975 og allt fram I miðjan febrúar 1976. Svo virðist sem mjög tiðir jarð- skjálftar hafi hafizt um 2 klst fyr- ir gosið 20. desember, en enginn fylgdist þá með mælunum. Jarð- skjálftar munu hafa fundizt á Reykjahliðarsvæðinu um 20 min- útum fyrir gosið. Þessar upp- lýsingar geta benttil þess, að meö stöðugri vakt við jarðskjálfta- mælana megi segja fyrir með hálfrar til tveggja klst. fyrirvara ef gos er að hefjast. Alitamál er hvort nýta megi jarðskjálfta- mælingarnar ti-aö segja fyrir um goshættu vikum eöa mánuöum fyrir hugsanlegt gos. Sem fyrr segir dró mjög úr skjálftavirkni I febrúar 1976 og náði hún lágmarki siðari hluta marzmánaðar eða i apríl, en þá mældust að meðaltali um 15 jarð- skjálftar á dag i Reynihlið. Siðan i april hefir skjálftavirkni aukizt, fyrsthægfara, en siðar meö meiri hraða. Meöalfjöldi jaröskjálfta sem mældust á dag I Reynihlið var um 20 I mai, tæplega 30 i júni og um 401 júli. Enn fleiri mældust fyrri hluta ágústmánaöar. Þessa fjölgun jarðskjálfta má túlka sem merki um aukna goshættu, en ekki liggja fyrir neinar upplýs- ingar sem nota megi til að dæma um, hve mikil goshætttan er, né hvenær helzt megi búast viö að eldgos brjótist upp á yfirborð jar þar.Þó er e.t.v. hægt aö gera einhverjar ágizkanir þar að lút- andi. Svo virðist sem fjöldi jarð- skjálfta umfram 10 á dag hafi um þaðbil tvöfaldast á mánuöi hverj- um siðan I april. Ef svo heldur áfram, verða jarðskjálftar orðnir mjög tiðir um næstu áramót, eða nokkrir tugir mælanlegra jarð- skjálfta á hverri klukkustund, en slikter eðlilegtað túlka sem yfir- vofandi hættuástand. Þótt vafasamt sé að jarö- skjálftamælingar verði notaðar til að áætla goshættu dögum eða vikum fyrir gos, þá er hægt að nota þær til að áætla hvar mest hætta sé á gosi. Nú I sumar hafa langflestir jarðskjálftar á Mý- vatnssvæöinu verið innan hrings með miðju við Leirhnjúk og 4 km geisla, en auk þess hafa nokkrir jaröskjálftar átt upptök á linu, sem liggur um það bil frá Leir- hnjúki að Bjarnarflagi. Flestir stærstu jarðskjálftarnir hafa átt upptök innan eins km fjarlægðar frá Vlti. Nær allir jarðskjálftar á Kröglusvæðinu hafa átt upptök á minna en 4 km dýpi, en upptök sumra skjálfta á linunni frá Leir- hnjúk að Bjarnarflagi hafa verið nokkru dýpri, allt niður undir 10 km dýpi. Þessi dreifing jarð- skjálítaupptaka afmarkar tvö svæði þar sem goshætta viröist mest. Annast vegar næsta ná- grenni Vltis, þar sem stærstu skjálftarnir eiga upptök, og hins vegar llnu frá Leirhnjúk að Bjarnarflagi, þar sem dýpstu jarðskjálftarnir verða. Þessi lina fylgir gossprungu Mývatnselda frá fyrri hluta átjándu aldar. Athuganir á jarðskjálftabylgj- um geta sýnt, hvort bylgjanhefir borizt gegnum vökva. Bylgjur frá jarðskjálftum austan Leirhnjúks og norðan stöðvarhúss Kröflu- virkjunar-s'frna merki um að þær hafi borizt gegnum vökva á leið til Reynihliðar. Þessar upplýsingar gefei til kynna, að bráðin hraun- kvika sé undir svæði sem tak- markast að vestan af noröur-suð- ur linuum Leirhnjúk, en að sunn- an af austur-vestur linu um stöðvarhús Kröfluvirkjunar. Dýpi á þessa hraunkviku er vart yfir 4 km, annars mundu bylgjur frá mjög grunnum skjálftum ekki berast gegnum kvikuna. Hæðarmælingar og hallamælingar: Hæð fastamerkja i homum stöðvarhúss Kröfluvirkjunar hef- ir verið mæld nokkrum sinnum bæði fyrir og eftir gosið i desem- ber s.l. Fyrsta mæling eftir gosið var gerð 18. jan. 1976 og kom þá I ljós, að norðurendi hússins haföi sigið um næstum 5 cm miöaö viö suðurendann siðan i október 1975. Siðan seig norðurendinn enn allt fram I miðjan febrúar og haföi þá sieið 5,2 cm miöaö viö suðurend- ann. Mælingar fyrst i marz sýndu, að þessi þróun haföi snúizt við. Slðan hefir norðurendi húss- ins risið jafnt og þétt um rúmlega 4 mm á mánuði, eöa samtals um 2,4 cm siðan snemma I marz, en siðasta mæling var framkvæmd 11. ágúst 1976. Mælingar þessar sýna, að með sama rishraða mun húsið hafa rétt sig við til fulls um miðjan febrúar 1977. Hæðarmælingar frá Mývatni til Kröflusvæðisins hafa veriö fram- kvæmdar nokkrum sinnum siðan i marz 1976, en þá kom i ljós, að við stöðvarhús Kröfluvirkjunar hafði land sigið um rúma 2 metra miðað við Reykjahliö. Siðan hefir land risið við Kröflu og i byrjun ágúst 1976 var risið orðið 1 meter siðan i marz. Rishraðinn hefir veriö mjög jafn, en siðasta mæling gaf til kynna minnkun rishraðans um 5 til 10%. Þessi minnkun rishraö- ans er svo litil, aðhæpið er að um raunverulega breytingu sé að ræða. Ef rishraðinn veröur jafn áfram, verður hæð lands við Kröflu orðin jöfn og fyrir gos um miðjan janúar 1977. Nákvæmnishallamælingar austan Námaskarðs sýna, að þar ris land til norðurs eða norö-norð- austurs, en hallabreytingar eru þar aðeins 1/18 þess sem mælist við stöðvarhúsið. Þessar halla- og hæðarmæling- æc sýna, að siðan I marz 1976 hefir land risið á Kröflusvæðinu. Risið er i mjög góðu samræmi við þaö ris sem fræðilega á að eiga sér stað ef efnisauki verður á 2900 metradýpi undir stað, sem liggur 500 til 1000 metra norðan stöðvar- húss Kröfluvirkjunar. Þetta verð- ur bezt skýrt með þvi, að bráðin kvika þrýstist að þessum staö. Aöstreymið þarf að vera um 4,25 rúmmetra á sek. til að skýra landrisiö. Dýpi á kvikuna virðist aðeins vera 2900 metrar, en þess ber að gæta, að forsendur, sem gera þarf ráð fyrir við útreikning þessa dýpis, eru ekki að fullu þekktar, svo vera má að nokkru skakki, þó vart meira en 500 m» Mælingar á landrisi og halla gefa ekki til kynna, hvort gos á eftir að verða, eða hvenær. Þó er augljóst að ekki getur land haldið áfram að hækka mjög lengi þar sem togspenna bergsins yfir kvikuþrónnihlýtur þá að yfirstiga styrkleika bergsins. Þá myndast sprungur og um þær flæðir vænt- anlega upp eitthvað af þeirri hraunkviku, sem safnast hefir saman. Það er ástæða til að hafa i huga þá staðreynd, að land við Kröflu mun ná fyrri hæð á fyrstumánuð- um ársins 1977, e.t.v. er þaö sá timi þegar helzt má búast við gosi. Togspenna bergsins eykst þar sem landris er mest, en það er ná- lægthánorðri frá stöðvarhúsinu i 500 til 1000 metra fjarlægð. Hæð- armælingar benda til að þar sé mest hætta á gosi. Aðrar mælingar: Ymsar fleiri mælingar og at- huganir hafa verið gerðar á Kröflusvæöinuá þessuári, en þær gefaennþá a.m.k. litlar eða engar visbendingar varðandi hugsan- lega goshættu. í marz varö vart mikillar aukningar á gasi i bor- holum við Kröflu, sem bendir til þess að þá hafi nokkurt magn hraunkviku komizt I snertingu við jarðvatn svæðisins. Sennilegt er, að litlu hafi munað að hraun flæddi upp á yfirborð jaröar þeg- ar þetta skeði. Ályktanir: 1) Kvikuþró liggur undir allstóru svæöi við Kröflu og eru vestur- mörk þróarinnar við Leir- hnjúk, en suðurmörk nálægt stöðvarhúsi Kröfluvirkjunar. 2) Miðja þessarar þróar er nálægt Viti, en hún nær næst yfirboröi jarðar (um 3 km dýpi) skammt (0,,5 — 1 km) noröan stöðvarhúss. 3) Inn i þessa kvikuþró hefir streymt þunnfl jótandi kvika siðan i marz 1976. Áðstreymið hefir verið jafnt, um 4,25 rúm- metrar á sek., eða um 370.000 rúmmetrar á dag. 4) Ekki er með vissu vitað, hvað- an hraun streymir að kviku- þrónni, en likur benda til að kvikan komi upp um sprungu þá sem gaus i Mývatnseldum á átjándu öld, en flæöi til austurs út sprungunni á um 3 km dýpi. 5) Þegar hraunkvikan tók að flæða inn i kvikuþróna við Kröflu i marz 1976, komst nokkurt magn af hrauni svo hátt i jarðskorpuna að gas úr þvíkomsti jarðvatnið. Þá mun hafa legið við að gos hæfist. 6) Nóg bráðin hraunkvika liggur á litlu dýpi undir Kröfiusvæð- inu til að stórgos geti orðiö. Stöðugt bætist við kvikuna, að það má túlka þannig, að mögu- leiki sé á landvarand’ gosi. 7) Ekki veröur sagt með neinni vissu, hvort gos hefst á Kröflu- svæðinu á þessu ári, eöa næstu árum, og ekki hvenær slikt gæti helzt orðið. Þó benda bæði | jarðskjálftamælingar og hæð- armælingar tii þess að gos- ■ hætta fari nú sifellt vaxandi. | 8) Ef svo fer, að gos hefjist að j nýju, þá verður það sennilega annaö hvort á gossprungu er j iiggur frá Leirhnjúk að Bjarn- i arflagi, eða i botni Hliðardais, j rétt norðan við stöðvarhús j Kröfluvirk junar. 9) Land við Kröflu mun, með nú- : verandi rishraða, ná sömu hæð | og var fyrir gosið 20. desember j 1975 á fyrstu mánuðum ársins j 1977. Landris umfram fyrri landhæð má túlka sem merki j um yfirvofandi goshættu. 10) Likur eru til að gos, ef af þvi ! verður, geri boð á undan sér ' með snöggri aukningu á tiðni ; jarðskjáifta. Sú aukning hefst ! sennilega hálfri tii tveimur i klukkustundum áður en gos ! hefst. Vaktmenn við jarð- skjálftamæla munu væntan- lega geta sent út viövörun áður j en hugsanlegt gos hefst. 11) Frásagnir af Mývatnseldum 1724-1729 gefa tii kynna að eld- j gos á þessu svæði geti verið i langvarandi en slitrótt. 1 Mý-j vatnseldum liðu nær þrjú ár I með slitróttri virkni unz stór j! gos hófst i ágúst 1727. Reykjavik, 25. ágúst 1976. Guömundur E. Sigvaldson Kari Grönvold Eysteinn Tryggvason Páll Einarsson wsmmam Ewm

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.