Alþýðublaðið - 30.11.1976, Qupperneq 9
8
Þriðjudagur 30. nóvember 1976 tjff"':
Þriðjudagur 30. nóvember 1976
WEBKALÝÐSWIÁL 9
Skilaboð
til skipstjórans:
ímyndaðu þér að það sé þandvitlaust veður og þig dauðlangar í kaffi.
Ef þú ert með þennan síma um þorð þarftu ekki annað en ýta á takkann og þá getur
þú beðið kokkinn um hressandi kaffibolla.
Svo er það höfuðverkur kokksins að koma öllu kaffinu til skila.
Skilaboð til forstjóra
í frystihúsi:
Þú þarft að tala við hann Jón verkstjóra. En þú veist ekki hvort Jón
verkstjóri er inní sal að líta eftir stúlkunum. (eða horfa á þær). eða hvort
Jón er inná skrifstofunni, eða hvort hann Jón er að athuga hvenær næsti
bátur kemur með ferskfisk. Þetta er ekkert vandamál ef þú hefur kalltæki
við hendina. Þú ýtir bar á hnappana, sparar þér sporin, og
Jón verkstjóri er án efa kominn eftir nokkrar mínútur.
Ljósfari hefur á boðstólum margar
gerðir af innanhússsímum
og dyrasímum.
Ljósfari h.f.
Grensásvegi 5 sími 30600.
O P A L h/f Sœlgœtisgerð
Skipholti 29 - SÍMI24466
Áskriftarsími Alþýðublaðsins er 14900
Ræða forseta ASÍ, Björns Jónssonar, við setningu Alþýðusambandsþings í Háskólabíó í gær:
Varnarbaráttunni er lokið, sóknin hafin
Heiðruðu félagar og ágætu gestir.
Það þing Alþýðusambands ís-
lands, sem nú er að hefjast er af-
mælisþing er við hljótum að
minnast þess að 6 áratugir eru
liðnir frá þvi er stofnfundur Al-
þýðusambands Islands var settur
og haldinn hinn 12. mars 1916 i
Báruhúsinu i Reykjavik, og 19.
nóvember sama ár var fyrsta
sambandsþing þess háð á sama
stað.
Við langborðið í Bárubúð
A slikum timamótum rennum
við huganum um örskotsstund til
brautryðjendanna, sem sátu við
langborðið i Bárubúö og lögðu þar
hornsteinana að þvi óslitna starfi
Alþýðusambands Islands, sem á
vegum þess hefur siðan verið
unnið. Þeir menn sem þar stóðu
að verki voru ekki margir né
heldur höfðu þeir lagt undir sig
glæsileg salarkynni. Og þvi var
heldurekkitil að dreifa að liðsafl-
inn, sem stóð þeim að baki væri
fjölmennur, 650 manns töldu þau
félög innan sinna vébanda, sem
stóðu að stofnfundinum.
En þessir brauötyðjendur með
menn eins og Ottó N. Þorláksson,
Jón Baldvinsson, ölaf Friðriks-
son og Jónas Jónsson frá Hriflu,
fremsta i flokki báru allir i brjósti
heitan eld nýrra hugsjóna sam-
fara reynslu og raunsæi. Þeir áttu
sér og islenskum erfiðismönnum
drauma og fyrirætlanir, sem ein-
mitt á þessum tima féllu að að-
stæðum i þjóðfélaginu og nauð-
þörf verkalýðsstéttarinnar. Þess-
vegna tókst þeim einmitt á þessu
augnabliki sögunnar og þróunar-
innar að leggja grundvöllinn að
þvi að skapa verkalýðssamtök,
sem æ siðan hafa starfað og hafa
átt sinn mikla þátt i mótun is-
lensks þjóðlifs allar götur frá
fundi sinum i Bárubúð 1916.
Þrjár krónur á dag
fyrir karla og
ein og hálf fyrir konur
Það sem hér réð úrslitum var
það aö verkalýðsstétt fjölmenn á
islenska visu var að myndast
bæði ihöfuðborginni og ikauptún-
um úti um landið.
Þjóðfélagið var að breytast úr
þjóðfélagi bændasamfélags i
þjóðfélag stórútgerðar, sem kall-
aði til sin stétt verkamanna, sjó-
manna og handverkamanna,
þjóðfélag þar sem hrein verka-
lýðsstétt að nútimaskilningi var i
mótun og vexti.
Og þessi nýja stétt bjó við sár-
ustu -örbirgð á alla lund. Húsa-
kynni hennar voru ömurleg
hreysi, klæðnaður hennar tötrar,
fæðan að uppistöðu blautfiskur og
tros. Og styrjöld hafði geisað um
2ja ára skeið. Dýrtið óx úr öllu
valdi en kaupgjaldi var haldið
niðri með harðri hendi i 3 krónum
á dag fyrir karla og 1 1/2 krónu
fyrir konur en vinnutiminn i landi
frá kl. 6 að morgni til kl. 8 að
kveldi og á sjónum var vinnutim-
inn ótakmarkaður, hvildin iðu-
lega aðeins 1 klst. á sólarhring,
eða að þeim mörkum er menn
hnigu úrvinda niður. A sama tima
safnaðist mikill auður á fárra
hendur meðan örbirgöin óx að
sama skapi.
Við hyllum eldhugana
Timabil stéttarandstæðna og
stéttabaráttu var hafið og á réttri
stundu i rás timans komu fram
réttir menn til þess að leiða bar-
áttuna i broddi fylkingar þeirra
ónafngreindu hetja sem voru
reiðubúnir mitt i örbirgð sinni og
umkomuleysi að veita foringjum
sinum atfylgi sitt og fórna hverju
sem var fyrir þær hugsjónir sem
þeir voru sannfærðir um að fyrr
eða siðar hlytu að sigra. A þessari
stundu hyllum við eldhugana sem
hófu merki sigrandi verkalýös-
hreyfingar á loft á árinu 1916 og
jafnframt alla þá sem allar götur
siðan hafa lialdið þvi á lofti og
reynst trúir liðsmenn hvort sem
sagan geymir nöfn þeirra eða
ekki.
Islensk verkalýðshreyfing á
þessum mönnum lifs og liðnum
ómælanlega þakkarskuld að
gjalda. Islenska þjóðin öll hið
sama, þvi án verkalýðssamtak-
anna og ails þess sem þau hafa til
leiðar komið va:ri ísland ekki það
land sem það er i dag og hér væri
þá ekki heldur lifað þjóðlifi, sem
þrátt fyrir alla annmarka sina
hefur þróast á þann veg að raun-
veruleg aldaskil hafa orðið, að
miklu og mestu fyrir baráttu
verkalýðshreyfingarinnar og
hennar bestu manna á siðustu 60
árum.
Hér verður engin sagnfræði
rakin, en hver sem rennir huga að
þjóðlífinu fyrir sex áratugum og
þess sem nú er lifað sjá og skilja
betur en ófullkomin orð fá skýrt
þá þjóðlifsbyltingu sem á þessum
tima hefur orðið.
Einhuga og
sameinaðir
En það mikla og stóra sem á-
unnist hefur á ekki að valda þvi
að slakað sé á baráttu hreyfing-
arinnar heldur miklu fremur þvi
aö hvetja okkur öll — allan hópinn
—sem á 6 áratugum hefur fjölgað
úr 650 manna liðsafla ASl á stofn-
fundi þess i þau 47 þúsund sem nú
standa undir merkjunum til þess
að halda fána frumherjanna hátt
á lofti og sækja fram einhuga og
sameinaðir i óumflýjanlegri
hagsmunabaráttu alþýðustéttar-
innar, i baráttunni fyrir frelsi,
jafnrétti og bræðralagi allra
vinnandi manna, i baráttunni fyr-
ir áhrifum og völdum verkalýðs-
stéttarinnar, i baráttunni fyrir
fullu og óskoruðu sjálfstæði is-
lensku þjóðarinnar, i baráttunni
gegn innlendu sem erlendu auð-
valdi’, i baráttunni fyrir lýðræði
engegn hverskonar misrétti, sem
enn viðgengst i þessu landi, i bar-
áttunni gegn tilraunum stéttar-
andstæðinganna til að snUa hjóli
timanna afturábak en íyrir stöð-
ugri og farsælli þróun til bættra
lifskjara og velferðar allra, sem
land okkar byggja.
Afmælisþingið
mun móta stefnuskrá
Við munum ekki minnast 60ára
starfs ASI með neinskonar
oflæti, veisluhöldum, eða skála-
ræðum. Við minnumst þess á
þann eina verðuga hátt að treysta
raðir okkar i glimunni við þau
margvislegu vandamál sem við
er að etja i þeim málefnum sem
standa næst huga og hagsmunum
iylenskrar alþýðu. Við munum
r-eyna að minnast þess með þvi að
.Tíóta á þessu S3. þingi sambands-
ips stefnuskrá sem geti verið okk-
ur nokkur leiðarvisir i starfi okk-
ar um nokkurt skeið og að öðru
leyti með þvi að skipuleggja bar-
áttuna sem framundan er fyrir
heill og hagsmunum stéttarinnar
með ályktunum og ákvörðunum á
þinginu sem nú er að hefjast og
vanda þau mál sem nú eru efst á
baugi i verkalýðshreyfingunni.
Stórfelld kjaraskerðing
undanfarin tvö ár
Þótt fáu einu sé saman að jafna
um viðhorf þau sem riktu er
stofnþing ASl var háð i Bárubúð
árið 1916 svipar þó aðstæðum að
þvi leyti saman þá og nú að bæði
þingin eru háð við þau skilyrði að
almenn lifskjör hafa farið versn-
andi, þótt þau séu að öðru ekki
sambærileg.
Mikilvægasta verkefni þessa
Alþýöusambandsþings hlýtur að
vera það að fjalla um þá stór-
felldu lifskjara og launaskerðingu
sem orðið hefur hjá islensku
verkafólki til sjós og lands á sið-
ustu 2-3 árum og að undirbúa
gagnsókn verkalýðshreyfingar-
innar fyrir endurheimt þess sem
af henni hefur verið hrifsað sið-
ustu árin og sem varnarbarátta
hreyfingarinnar hefur ekki
megnað að hindra á þessu tima-
bili.
öll þróun kjaramála hefur ver-
ið á þann veg siðustu árin að i
næstu kjarasamningum er mikil
hækkun á almennum launum ó-
hjákvæmileg og kjörorð þings
okkar hvað þær snertir hlýtur að
vera það að timabili varnarbar-
áttunnar sé nú lokið og sókn hafin
til að rétta hlut vcrkalýðsstéttar-
innarallrar, en þó fyrst og fremst
þeirra, sem nú búa við skarðast-
an hlutinn. En sú sókn sem nú
þarf að hefja krefst þess, ef hún á
að reynast sigurvænleg að megin-
stefnan og markmiðin séu sam-
eiginleg og að öll aðildarsamtök
og félög innan ASI sæki þar fram i
einni fylkingu. Takist það mun
árangurinn ekki láta á sér standa.
Grundvallarhugsjón
verkalýðshreyf ingarinnar
En einingin sem hér þarf til að
koma útheimtir það að við séum
trúir grundvallarhugsjónum
verkalýðshreyfingarinnar um
gagnkvæman stuðning i allri okk-
ar baráttu og sýnum hvor öðrum
tillitsemiog þá allra frekast i þvi
að leggja sérstaka áherslu á að
styðja þá sem verðbólgan og
kaupránið hefur leikið allra verst
og bUa nU við bágustu kjörin. Þar
við liggur bæði sæmd okkar og
framtið að samtök okkar geti
staðið einhuga að þvi að lyfta
lægstu launum sem nú viögangast
uppúr þeirri smánarlegu stöðu
sem þau nú eru i og ekki siður að
lryggja viðunanlega lausn á kjör-
uhi ellilifeyrisþega og öryrkja.
Barátta gegn
verðbólgustefnu
ríkisstjórnarinnar
En þótt kauphækkanir séu aug-
ljóslega alger forsenda þeirra
lifskjarabóta sem viö hljótum að
krefjast og berjast fyrir skulum
við einnig gera okkur grein fyrir
að þær koma fyrir litið og kunna
að verða skammgóður vermir, ef
þær tengjast ekki bæði baráttu
okkar á ýmsum öðrum hags-
munasviðum, svo sem margvis-
legum réttindamálum, skatta-
málum, húsnæðismálum, vinnu-
verndarmálum, jafnréttismálum
kvenna og karla og þá ekki siður
-og jafnframt kröfum okkar um
gerbreytta stefnu i efnahagsmál-
um, baráttunni gegn þeirri verð-
bólgustefnu sem fylgt hefur verið
af stjórnvöldum á undanförnum
árum og öllu öðru fremur hefir
valdið þeirri stórfelldu lifskjara-
skerðingu, sem yfir okkur hefur
dunið.
Ég læt þá sterku von i ljósi að
um þessi efni öll takist þessu
þingi að marka skýra stefnu, sem
geti orðið grundvöllur sigursællar
baráttu á allra næstu tímum*
Með öllu afli
og öllum
tiltækum ráðum
A þessu ári hafa stjórnvöld bætt
gráu ofan á svarta kjaraskerð-
inguna með þvi að hafa uppi fyr-
irætlanir um að þrengja að frjáls-
um samningsrétti verkalýðssam-
takanna eftir þeim leikreglum,
sem um hann hafa gilt nú um
langt skeið og á ég þar við frum-
varpssmiðina um breytta vinnu-
löggjöf og sáttatilraunir i vinnu-
deilum. Þessum tilraunum til að
þrengja kosti okkar i kjarabar-
áttunni etv. um lengri framtið
hlýtur þetta þing að mæta með
þvi að staðfesta þá almennu for-
dæmingu sem þessar tilraunir at-
vinnurekenda og rikisstjórnar
hafa þegar hlotiö i flestöllum
verkalýðsfélögum ogaðöðru leyti
snúast gegn þeim af öllu þvi afli
og með öllum þeim ráðum.sem
unnt er að beita og sanna þeim
sem að þessari réttarskerðingu
standa að við munum ekki láta
hana stöðva baráttu okkar á
nokkurn hátt.
Bezta afmælisgjöfin -
Eining um stefnuskrána
Um verkefni þessa þings vil ég
að öðru leyti segja það að fyrir
þinginu liggja drög að stefnuskrá
Alþýðusambandsins, hinni fyrstu
eftir fullan aðskilr.að faglegu
hreyf ingarinnar og Alþýðuflokks-
ins um 1940. Eins og málum er
háttað i verkalýðshreyfingunni
má öllum vera ljóst að gerð slikr-
ar stefnuskrár sem ætlað er aö
verða leiðbeinandi um störf Al-
þýðusambandsins um nokkurt
skeið — er mikið vandaverk, þvi
pólitiskur skoðanaágreiningur er
meiri i okkar hreyfingu en víðast
annars staðar og gerð slíkrar
stefnuskrár er hinsvegar fjarri
þvi að ná tilgangi sinum, ef yfir-
gnæfandi meirihltuti þeirra sem
samtökin skipa una henni ekki
sæmilega vel. A hinn bóginn væri
það að minu viti ein besta af-
mælisgjöfin sem við gætum gefið
samtökum okkar, og um leið
okkur sjálfum, ef okkur tækist að
sanna það með góðri samstöðu
um stefnuskrána á þessu þingi, að
þau séu bæði bær um og fær um
að marka stefnu samtakanna til
nokkurs tima i flestum þeim mál-
efnum, sem varða hagsmuni og
velferð verkalýðsstéttarinnar,
þótt við skipum okkur i hina ýmsu
stjórnmálaflokka. Við skulum
vona að þetta takist og að verka-
lýðshreyfingin standi sterkari og
samhentari eftir en áður.
Auk þeirra málefna sem ég nU
hefi litillega dregið á mun þetta
þing óhjákvæmilega þurfa að út-
kljá ýms innri málefni Alþýðu-
sambandsins, svo sem þau er
varða fjárhagsmálefni þess og
hugsanlegar lagabreytingar i þvi
sambandi og að lokum þingsins
kjósa sér stjórn sem falið verður
það erfiða og vandasama heiö-
ursstarf að leiða baráttu verka-
lýöshreyfingarinnar á næsta
kjörtimabili. Ég læt i ljósi þá von
að þessi þáttur þingsstarfanna
sem og öll önnur reynist Alþýðu-
sambandinu og allri islensku
verkalýðshreyfingunni til far-
sældar og sóma.
Góöir félagar og þingfulltrúar,
ég lýsi 33. þing Alþýðusambands
Islands sett.