Alþýðublaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 19. MARZ
' — jð. árg.
mm'
■
Áskriftar-
síminn er
14-900
Álverid og hreinsitækiri:
„ísamræmi vid
venjur
9f
Af 69 álverksmidjum er álverið í
Straumsvík það eina sem ekki er
með nein hreinsitæki
Land Framl. geta þús. tonn/ár Fjöldi verk- smiðja Verksmiðj. án nokkurs hreinsi- búnaðar
U. S. A. 4569 31 O
Canada 1067 6 ob)
Japan 1474 13 0
Þýskaland 764 ÍO 0
Noregur 723 8 0
ísland 74 1 1
,,Að lokum vill ísal
taka fram að félagið er
reiðubúið til að gera
allar eðlilegar ráðstaf-
anir til að hafa hemil á
og draga úr skaðlegum
áhrifum af rekstri
bræðslunnar i sam-
ræmi við góðar venjur i
iðnaði i öðrum löndum
við svipuð skilyrði i
góðri samvinnu við
stjórnvöld.”
Svo segir i bréfi Islenzka álfé-
lagsins til þáverandi heil-
brigðisráðherra 31. október
1972, en i bréfi þessu gerði álfé-
lagið grein fyrir stefnu sinni í
byggingu hreinsibúnaðar við ál-
verksmiðjuna.
„1 samræmi við góðar venjur
i iðnaði i öðrum löndum”. Sam-
kvæmt þessum fyrirheitum áriö
1972 ætti að vera prýðisgott
ástand á hreinsitækjum al-
verksmiðjunnar. Eða eru ál-
verksmiðjur i öðrum löndum
ekki almennt með hreinsi-
búnað?
1 skýrslu sem Heilbrigðis-
eftirlitið hefur tekið saman
vegna yfirlýsingar Ragnars
Halldórssonar forstjóra ísal og
greinar fyrirtækisins i Morgun-
blaðinu 5. þessa mánaðar,
kemur fram merkilegur sann-
leikur. Þrátt fyrir loforð álfé-
lagsins um hreinsibúnað á verk-
smiðjuna, hefur það verkefni
aldrei haft fullan forgang hjá
fyrirtækinu.
Með skýrslu Heilbrigðiseftir-
litsins fylgir yfirlit yfir fram-
leiðsluhætti og mengunarvarnir
i nokkrum löndum þar sem ál-
framleiðsla er stunduð. Nær
yfirlitið yfir allar starfandi ál-
verksmiðjur i þessum löndum,
alls 68 verksmiðjur. 1 yfirlitinu
kemur fram, að engin þessara
verksmiðja er rekin með sama
hættiog verksmiðjan i Straums-
vik, þaö er að segja án hreinsi-
búnaðar.
Þau lönd sem þarna er um að
ræða eru Bandarikin, Kanada,
Japan, Þýzkaland og Noregur.
Skýrsla Heilbrigðiseftirlitsins
er mjög yfirgripsmikil, 34 blað-
siður, og verður birt i blaðinu i
næstu viku.
—hm.
Lánsfjárstefnan í
sns
sínu veldi
4600 milljón kr. lán á
aðeins f imm dögum
Jóhannes Nordal,
Seðiabandastjóri,
undirritaði i gær, i
umboði Matthlasar A
Mathiesen, fjármála-
ráðherra og fyrir
hönd rikissjóðs ts-
lands, samning um
opinbert lánsútboð i
Þýzkalandi að fjár-
hæð 50 milljón þýzk
inörk, sem jafngildir
4000 milljónum is-
lenzkra króna.
A þriðjudag hefst svo 6ala
spariskirteina rikissjóðs i ,1.
flokki 1977 að fjárhæð 600
milljónir króna. Otgáfan
byggist á fjárlagaheimild og
verður andvirði lánsins varið
til opinberra framkvæmda á
grundvelli lánsfjáráætlunar
rikisstjórnarinnar fyrir þetta
ár. Kjör skírteinanna eru hin
sömu og i fyrra.
Þýzka lánið tekur rikis-
sjóður samkvæmt heimild i
lögum vegna framkvæmda-
áætlunar 1977. Andvirðinu
verður annars vegar varið tU
opinberra frámkvæmda i
samræmi við fjárlög þessa
árs, en hins vegar til útlána
framkvæmdasjóös til atvinnu-
vegasjóðs.
Lán þetta var boðið út á al-
þjóðamarkaði með 8% árs-
vöxtum, en vegna hagstæðra
markaösskiiyrða tókst að fá
vextina lækkáða I 7 3/4%.
Skuldabréfin eru seid á nafn-
veröi og er lánið afborgunar-
laust fyrstu tvö árin, en láns-
timinner lOár. Akveðiðvarað
fiýta lántökunni vegna þess að
markaðsaðstæður eru hag-
stæðar um þessar mundir.
Þannig mun rikissjóður
taka að láni 4600 milljónír
króna á nokkrum dögum.
,,Valur skaltu heita",
sagði Daníel Guð-
mundsson skipstjóri á
nýja tollbátnum um
léið og hann braut
kampavinsf lösku á
stefni hins nýja og
glæsilega farkosts
Tollgæzlunnar i gær.
Margt manna var við-
statt athöfnina, sem
fram fór í Reykja-
víkurhöfn i bliðskapar-
veðri, meðalþeirra var
f jármálaráðherra
Matthias Á. Mathie-
sen. Nánar verður
grein frá þessum at-
burði i þriðjudags-
blaðinu. ( Mynd :
ARH).
SOFNUNIN A77:
4,2 milljónir
Fjársöfnun Alþýöuflokksins
A77 hetur gengið mjög vel.
Alls hafa nú safnast 4.2
mjflljónir króna. Þá eru ekki
tfllin með loforð utn fjár-
framlög, en i þeim felast
vAutegar fjárhæðir, sem
fljótlega bætast i sjóðinn . %
Þessar góöu undirtektir eru
mikiö fagnaöarefni, og i
þeim felst stuöningsyfirlýs-
ing viö starf flokksins. Söfn-
uninni veröur haldiö áfram,
og meö svipuöum árangri er
ekki fjarri lagi aö ætla aö
takist aö safna 10 milljónum
króna.
Þessir fjármunir veröa
notaöir til aö greiöa upp
gamlar skuidir Alþýöu-
flokksins vegna úgáfu
Alþýðublaösins, scm námu
8,4 milljónum króna um siö-
ustu áramót aö meötöldum
vangreiddum vöxtum.
Happdrætti flokksins hefur
varið mestu af ágóöa sinum
til aö grciða af iánunum. Þaö
hefur hins vegar valdið þvi,
að mjög hefur skort fé til aö
standa undir eðlilegri starf-
semi flokksins, skrifstofu
meö þremur starfsmönnum,
skipulags- og fræösiustarfi.
Þaö veröa þvl merk
timamót, þegar tekst aö
greiöa upp gömlu skuldirnar
og unnt verður aö veita tekj-
um flokksins i hiö almenna
starf. Alþýöublaðið vill koma
á framfæri innilegu þakklæti
til þeirra, sem gefiö hafa fé i
þessa söfnun.