Alþýðublaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 2
2 STJÖRNMAL/FR6TTIR
alþýöu-
Laugardagur 19. marz 1977 biaðió
, ——— j
alþýdu- blaöió Útgefa.idi: Alþýöuflokkurinn. ; Reksiur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni SigtryggSson. Aðsetur ritstjórnar er I Síöumúla 11, sinii 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarslmi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu.
Að fræða og upplýsa
( skrifum Alþýðublaðs-
ins undanfarin misseri
hefur komið fram sú ein-
dregna skoðun, að í bar-
áttunni gegn ofneyzlu
áfengis hér á landi dugi
ekki að beita boðum eða
bönnum. Eini áþreifan-
legi árangurinn náist með
öflugri fræðslu og upp-
lýsingastarfsemi. Þessi
skoðun nýtur nú æ meiri
stuðnings.
I frétfum hefur verið
skýrt frá því, að dönsk
stjórnvöld telji þetta einu
virku aðferðina gegn
áfengisbölinu í
Danmörku. Ætlun þeirra
er að stórefla fræðslu-
starf á þessu sviði, og þá
einkum meðal barna og
unglinga.
Eitt skýrasta dæmið
um árangur áróðurs- og
f ræðslustarfs af þessu
tagi er reykinga-herferð-
in mikla, sem vakið hef ur
þjóðarathygli. Þar hefur
unga kynslóðin gengið
fram fyrir skjöldu og
haft mikil áhrif. Þessi
áhrif munu þó ekki koma
fram nema að óverulegu
leyti hjá þeirri kynslóð,
sem þegar er vaxin úr
grasi. Hún mun bera
ávöxt hjá þeirri kynslóð,
sem hefur tekið mark á
fræðslunni og starfað
samkvæmt því.
Nákvæmlega þetta
sama verður upp á ten-
ingnum, þegar áfengis-
fræðslan er komin á svip-
að stig og baráttan gegn
sigarettureykingum. Það
hefur löngum þótt erfitt
að kenna gömlum hundi
að sitja. Eins er með þá
kynslóð, sem nú má telj-
ast fullorðin. Erfitt mun
reynast að kenna henni
nýjasiðií neyzlu áfengra
drykkja. Hins vegar er
ábyrgð þessarar sömu
kynslóðar gagnvart börn-
um og unglingum mikil.
Af einhverjum ástæð-
um hefur enn ekki tekizt
að sameina krafta þeirra
manna, sem vilja breyta
drykkjuvenjum (slend-
inga, fræða og upplýsa.
Vafalitið er ein af ástæð-
unum sú, að skoðanir á
því hvaða leiðir skuli
farnar, eru misjafnar.
Fyrr eða síðar verða
þessir menn þó að sam-
eina krafta sína og horf-
ast í augu við staðreynd-
ir.
Þó er vænlegast til
árangurs að ríkisvaldið
taki málið í sínar hendur.
Koma þarf á fót sjálf-
stæðri stofnug, er hafi
það hlutverk að samræma
og auka allt fræðslustarf
i áfengismálum. Leita
þarf til þeirra þjóða, sem
lengst hafa náð í áf engis-
fræðslu og nýta allt það
bezta, sem þær hafa lært
af langri reynslu.
Þessi stofnun ætti auð-
veldan leik með að koma
fræðslunni á framfæri í
ríkisfjölmiðlum og skól-
um, og hún þyrfti að hafa
mjög náið samstarf við
aðra fjölmiðla. Grund-
vallarsjónarmiðið verður
að vera sá sannleikur, að
fólki í frjálsu landi verð-
ur ekki í þessum efnum
stjórnað með boðum og
bönnum. Það er hins veg-
ar hægt að hafa veruleg
áhrif með miklu fræðslu-
og upplýsingastarfi, sem
byggist á því að hver og
einn geti samkvæmt
beztu fáanlegu upplýs-
ingum, gert upp hug sinn
til áfengis og áfengis-
neyzlu.
—AG
Myndin er tekin á sameiginlegri æfingu á Selfossi Isi&ustu viku.
50 manna lúðra-
sveit leikur
í Selfossbíói
Lú&rasveit Selfoss og Lú&ra-
sveit Hafnarfjaröar halda sam-
eiginlega tónleika i Selfossbiói á
laugardag, 19, marz, klukkan
17. Þetta er i þriðja sinn a& þess-
ar lúörasveitir leika saman.
Fyrir ári voru haldnir sams-
konar hljómleikar i Bæjarbiói i
Hafnarfiröi og þar áöur á Sel-
fossi. Alls eru um 50 hljóöfæra-
leikarar i báöum sveitunúm, og
stjórnendur eru þeir Asgeir Sig-
urösson og Hans Ploder.
Efnisskrá hljómleikanna á
laugardag er fjölbreytt og þar
ættu allir, sem ánægju hafa af
léttri hljómsveitartónlist, aö
finna eitthvaö viö sitt hæfi.
Méöa^ annars kemur fram 7
manna fedixielandhljómsveit,
skipuð mönnum úr bá&um
lúörasveitunum.
Bifvélavirkjun - Verkstjórn
Maður með meistararéttindi i bifvéla-
virkjun vanur verkstjórn óskast til starfa.
Ennfremur bifvélavirkjar eða menn vanir
viðgerðum þungavinnuvéla.
Upplýsingar á skrifstofu vorri, Lækjar-
götu 12 Iðnaðarbankahúsi, efstu hæð,
þriðjudaginn 22. marz n.k. kl. 2-4.
íslenzkir Aðalverktakar s.f.
Trumbusláttur
í Norræna búsinu
Á mánudag mun tón-
listafélag Menntaskólans
við Hamrahlíð gangast
fyrir tónleikum í Norræna
húsinu þar sem Askell
Másson leikur frumsamin
verk með aðstoð þeirra
Guðmundar Steingríms-
sonar og Reynis Sigurðs-
sonar.
A efnisskránni eru
fjögurverk, Vatnsdropinn,
skrifað fyrir hljómborð og
önnur slaghl jóðfæri,
Sindur skrifað fyrir
trommusett og ýmsar
ólikar trommur, Krabbinn
sem samið er fyrir
trommuleikara og tvo
slagverksmenn og Dúo
fyrir trommusett og slag-
verk.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og verða miöar seldir i Bóksölu
stúdenta á mánudag.
Askell Másson er fæddur i
Reykjavik 21. nóvember 1953 og
hóf tónlistarnám sjö ár gamall
viö Barnamúsikskólann I'Reykja-
vfk. Sibar beindist áhugi hans
sérstaklega aö trumbum og slag-
verki og frá niu ára aldri hefur
hann stefnt markvisst aö vaxandi
tækni og þekkingu á þeim vett-
vangi.
Askell kom fyrst fram I sjón-
varpinu áriö 1970 og áriö 1973
gekk hann til samstarfs viö Alan
Carter hjá Islenzka dans-
flokknum. A Listahátiö 1974 var
frumfluttur I Þjóöleikhúsinu ball-
ett viö tónverk Áskels, Höfuö-
skeppnurnar og slöar voru flutt I
Þjóöleikhúsinu þrjú önnur verk
eftir Askel, Eldtrölliö, Lagasafn
II og Svart-Hvltt
Aárið 1975 hélt Askell til
London, þar sem hann var viö
nám I tónsmlöum hjá James
Blades til ársloka 1976.
Um þessar mundir er Askell
meö nýtt hljómsveitarverk i
smlöum en hann hyggur á frek-
ara nám i tónsmiðum erlendis á
næsta ári.
—GEK
Matreiðslumenn —
Matreiðslumenn
Aðalfundur Félags matreiðslumanna
verður haldinn mánudaginn 28. marz 1977,
kl. 15 að Oðinsgötu 7, Reykjavik.
Fundarefni:
1 Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Uppsögn kjarasamninga
4. önnur mál.
Stjórn Félags matreiðslumanna.
EIN-
DÁLKURINN
Barnaefni
í útvarpi
og
sjónvarpi
Efni við hæfi barna i útvarpi og
sjónvarpi veröur sifellt slfellt
veigameiri þáttur i dagskrám
þessara fjölmiðla. Mun betur hef-
ur verið vandaö til þess á siöustu
árum. Aöur fyrr voru þaö sögur
Stefáns Jónssonar, rithöfundar,
sem voru perlurnar og gimstein-
arnir i þeim þáttum, sem ætlaðir
voru börnum. Annaö efni var
yfirleitt af lakara taginu.
í sjónvarpi hefur nú veriö lögö
meiri áherzla en áður á fræöandi
efni Stríösáraþættirnir eru hvort
tveggja i serA fróölegir og
skemmtilegir. Efnismat stjórn-
enda er nú raúnsærra en veriö
hefur. Sú skoöun er á undanhaldi,
að börn hugsi ekki og að allt efni
þurfi aö tryggja i þau, annars fari
allt fyrir ofan garð og neöan.
Gott dæmi um hvernig efni skal
velja fyrir börn er saga sú, er
Guöni Kolbeinsson lauk nýlega
lestri á. Þar fór saman góö þýðing
á skemmtilegri sögu, gott mál og
einkar skemmtilegur flútningur.
Það sem kannski er eftirtektar-
veröast aö þessi saga var ekki aö-
eins fyrir börn, heldur höföu full-
orðnir einnig gaman af henni.
Segja má meö nokkrum sanni,
aö Rikisútvarpiö hafi ekki lagt
nægilega rækt viö þennan þátt I
rekstri slnum. Til dæmis heföi út-
varpið átt aö stu&la aö þvi, að
starfsmenn, sem sjá um þætti
fyrir börn og unglinga, fengju
tækifæri til aö menntast á þessu
sviöi meö heimsóknum til ná-
grannalanda okkar.
Vlðast hvar er sá skilningur
lagöur I útvarps- og sjónvarpsefni
fyrir börn og unglinga, aö þaö eigi
fyrst og fremst aö hafa fróðleiks-
gildi og ekki siöur uppeldislegt
gildi. Fróöleikurinn er klæddur
þeim búningi aö hann verður um
leið hiö ágætasta skemmtiefni.
Hins vegar kostar þessi klæ&naö-
ur mikla fjármuni, og fjármagn
til barna og unglingaefnis I Rikis-
útvarpinu hefur ekki veriö
skammtað rlflega.
Aö þvi þarf aö stefna, aö innan
Rikisútvarpsins veröi komiö á fót
sérstakri deild, er sjái um þetta
efni, bæöi I útvarpi og sjónvarpi.
Þarna er á feröinni einn mikil-
vægasti þátturinn I rekstri þess-
ara áhrifamiklu fjölmiöla, og til
hans þarf vel að vanda. Hingaö til
hefur hann veriö hálfgerö horn-
reka, nema þegar útvarpsráö
hefur deilt um „pólitiskan áróö-
ur” i barnasögum, samanber hin-
ar fjarstæðukenndu sviptingar
sem uröu vegna lesturs Olgu
Guörúnar á sinum tima.
Ekki er kunnugt um, aö
útvarpsráö hafi variö dýrmætum
tima sinum til aö fjalla um barna-
efni. Þaö er yfirleitt afgreitt meö
nokkrum setningum og sett á
hendur starfsmanna þessara
stofnana, sem af veikum mætti
reyna að koma til skila þvi, sem
af þeim er ætlazt. Þetta er meira
sýndarmennska en hitt. Rikjandi
skoöun er sú, aö eitthvaö þurfi aö
vera i útvarpi og sjónvarpi fyrir
blessuö börnin, án þess aö hug-
leitt sé hvaö boriö er á borö fyrir
þau.
Hér er á feröinni gott verkefni
fyrir framsýnan útvarpsráös-
mann, sem vill láta gott af sér
ieiöa, og hugsar ekki eingöngu
um aö hafa jafnvægi á milli
vinstri og hægri I útvarpsdag-
skránni og þáttum.
Akveöa þarf rlflegt fjárframlag
til aö senda nokkra starfsmenn
utan til aö læra af þeim, sem okk-
ur eru fremri á þessu sviði. Þetta
er mjög brýnt verkefni.