Alþýðublaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 16
Ur
borgar-
stjórn:
T ryggve
Bratteli
kemur
f dag
Heldur ræðu
á Norræna
deginum
á morgun
Tryggve Bratteii forsætis-
ráöherra Noregs og kona hans
munu koma til tslands seinni
hluta dagsins I dag. Bratteii
kemur hingaö til Iands sem
gestur Norræna félagsins.
Hann mun á morgun halda
ræðu á kvöldvöku félagsins, i
tilefni Norræna dagsins.
Forsætisráðherrahjónin
koma meö véi Flugfélags ts-
lands frá Osló um fimmleytiö I
dag, og munu dvelja hér fram
á fimmtudagsmorgun. Bratte-
li mun meöal annars ræöa viö
forsætisráðherra tslands i
heimsókn sinni. —AB
ÞRIÐJUDAGUR
22. MARZ 1977
alþýðu
blaðið
Aðstöðu til skipa-
viðgerða ábótavant
nauösynlegt sé aö fá til Reykja-
vikur stóra skipalyftu, sem gæti
tekið upp stærstu skipin i kaup-
skipaflotanum. Verð slikrar
lyftu, það er tæknibúnaðarins,
er talið um 5-600 milljónir
króna, en síðan bætist að sjálf-
sögðu við einhver viðbótar-
kostnaður við standsetningu og
slikt. Þetta er þó ekki hátt verð
miðaö viö verð fiskiskipa i dag,
sem mun vera svipað. Þess má
geta að árið 1975 fór einn millj-
arður króna i skipaviðgeröir er-
lendis, þannig að skipalyfta eins
og þessi myndi spara gjaldeyri
jafnframt þvi sem hún myndi
auka atvinnu.
Björgvin lagði til I þessu sam-
bandi að borgin gerðst aðili að
útvegun slikrar dráttarbrautar,
stofnað yrði nýtt fyrirtæki
borgarinnar, Slippfélagsins og
járnsmiðja, sem myndu i sam-
einingu koma þessu fyrirtæki á
fót og reka það. Hér væri um
mikið fyrirtæki að ræða sem
gæti skipt sköpum efnahagslega
og atvinnulega.
Borgarstjóri svaraði ræðu
Björgvins og hafði það eitt um
þetta mál að segja, að vissulega
þyrfti að bæta aðstöðu til skipa-
viðgeröa I Reykjavik. Hins veg-
ar tjáði hann sig ekkert um
ábendingar Björgins né tillögu
hans, enda þarf meirihluti
borgarstjórnarinnar lengri tima
til að koma sér niður á ástæður
til að vlsa á bug uppástungum
minnihlutamanna, hversu hag-
kvæmar sem þær kunna að
vera.
—hm
Listasafn alþýdu og Verkalýðsfélag Vestm.eyja:
Málverk íþremur
fiskvinnslustödum
í gær var lokið við að
setja upp málverkasýn-
ingu i matstofum
þriggja fiskvinnslu-
stöðva i Vestmannaeyj-
um. Stöðvarnar eru
Fiskiðjan, ísféiag Vest-
mannaeyja og Vinnslu-
stöðin og er sýningin
haldin i samvinnu
Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja og Lista-
safns alþýðu.
Alls eru á sýningu þessari 41
mynd eftir eldri og yngri listmál-
ara þjóöarinnar, málverk,grafik
og vatnslitamyndir. Það var
Hrafnhildur Schram listfræðing-
ur sem sá um uppsetningu sýn-
ingarinnar. Meðal listamanna má
nefna Jón Stefánsson, Þorvald
Skúlason, Orlyg Sigurðsson,
Valtý Pétursson, Hafstein Aust-
mann, Jón Engilberts og Ólaf
Túbals.
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélagsins sagði Alþýöu-
blaðinu i gær, aö hann heföi mik-
inn áhuga á að fá einhverskonar
fræðslu um myndlist i tengslum
við sýninguna, og kvaðst hann
ætla aö reyna að fá Hjörleif
Sigurðsson til Eyja um næstu
helgi til aö annast eitthvað slikt ef
unnt væri.
Þá sagði Jón að eigendur þess-
ara þriggja fiskvinnslustööva
hefðu boöizt til að taka þátt !
kostnaði þeim sem af sýningu
þessari hlytist, flutningskostnaði
og tryggingum, þannig að verka-
lýðsfélagiö þyrfti ekki að greiða
nema rétt rúmlega 20 þúsund
krónur fyrir þetta, en það er hluti
af flutningsgjaldi aöra leiðina.
Myndirnar verða 1-2 vikur á
hverjum staö, en flytjast siðan á
milli, þannig að þær verða allar
til sýnis I öllum stöðvunum þrem-
ur. —hm.
Vilja þjodar-
atkvaeði um
prestskosningar
Þrír þingmenn hafa Iagt
fram tillögu til þingsályktunar
um þjóðaratkvæöi um prest-
kosningar. Flutningsmenn eru
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, Asgeir Bjarnason og
Ragnhildur Helgadóttir, en
þau vilja, að Alþingi álykti aö
fela rikisstjórninni að láta
fara fram þjóðaratkvæði jafn-
hliða næstu þingkosningum
um það, hvort afnema skuli
beinar og almennar prest-
kosningar.
1 greinargerð er þess getið,
að á siðari árum hafi komið
fram ákveðinn vilji af hálfu
forustumanna þjóðkirkjunnar
til að afnema núgildandi skip-
an, þ.e. prestkosningar.
Þjóðkirkján hefur m.a. fært
sem rök fyrir nýrri skipan
þessara mála, að prestkosn-
ingar I núverandi mynd reyn-
ist einatt iilkynjuð þolraun
fyrir söfnuðina og aö þær geri
prestum óeölilega erfitt að
færa sig til á starfsviði slnu.
Skjálftum fjölgar
Slðustu fimm sólarhringa
hefur skjálftavirknin á
Kröflusvæðinu veriö aö auk-
ast, þannig mæidust 133
skjálftar á siðustu mæliönn og
140 sóiarhringinn þar áður.
Af þessum 133 skjáiftum
mældust 7 yfir 2 stig á richter
og sá sterkasti 2,5 stig. Að
sögn vaktmanns á skjálfta-
vaktinni f Reynhlfð, viröist
sem landrisið hafi heldur hert
á sér sfðustu sólarhringa, en
upptök skjáiftanna eru á svip-
uðum slóðum og undanfarið.
—GEK
A borgarstjórnarfundi á
fimmtudag vakti Björgvin Guö-
mundsson athygli á því, hve að-
stöðu til skipaviögerða I
Reykjavfk væri mjög ábóta-
vant. Astandið í þessum málum
nú er slikt, að ekki er unnt að
taka stærstu flutningaskip
landsmanna til flokkunarvið-
gerða, þar sem ekki eru til svo
stórar dráttarbrautir, sem unnt
er að teppa I svo langan tfma
sem sllk viðgerð tekur.
Björgvin vakti athygli á þessu
I sambandi við fyrirspurn sem
hann bar fram um hvaö liði at-
hugun á atvinnuuppbyggingu i
Reykjavik sem verið hefur I
gangi og heildarskýrslu verður
skilað um I maimánuði,
samkvæmt svari borgarstjóra.
1 máli Björgvins kom fram,
að Slippfélagið hefur bent á að
HEYRT,
SÉÐ OG
HLERAÐ
Séð: 1 Suðurnesjatiðindum
I viðtali við Jón Böðvars-
son, skólameistara fjöl-
brautarskóla Suðurnesja,
að skólinn hyggst taka upp
tvær nýjar brautir, senni-
lega i haust. önnur er
einskonar fiskvinnslubraut
i tengslum við sjávarút-
veginn eins og hann er á
Suðurnesjum. Hin er
einskonar flugliðabraut,
sem myndi ná yfir alla
starfsmenn við flugvélar
aðra en flugmenn, til dæm-
is hleðslumenn og flug-
virkja.
★
Lesið: 1 siðasta Lög-
birtingablaði, að
bæjarfógetaembættið á
Ólafsfirði er laust til
umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 7. april næst-
komandi.
¥
Frétt: Að mjög reynist
erfitt að koma nýju vega-
áætiuninni heim og saman.
Mikið fjármagn skortir til
margvislegra fram-
kvæmda, og ekki ósenni-
legt að heimildar Alþingis
verði leitaö til myndunar
nýrra tekjustofna. Ef að
likum lætur verða bifreiða-
eigendur að punga út með
hækkun á benzinverði eöa
öðrum nýjum álögum.
¥
Hierað: Að fyrirhugaðar
séu ýmsar breytingar á
utanrikisþjónustunni, sem
muni vekja megna reiði og
óánægju meðal starfs-
manna hennar. Þar séu á
ferðinni pólitiskar ákvarð-
anir, er mikla athygli
munu vekja, þegar opin-
berar verða.
¥
Tekið eftir: I Lögbirtinga-
blaðinu, að auglýst eru sex
óveitt prestaköll. Þau eru
Arnesprestakall I Húna-
vatnsprófastsdæmi, Ból-
staðaprestakall i Húna-
vatnsprófastsdæmi, Háls-
prestakall i Þingeyrar-
prófastsdæmi, Hjaröar-
holtsprestakall I Snæfells-
ness- og Dalaprófasts-
dæmi, Reykhólaprestakall
i Barðarstrandarprófasts-
dæmi og Sauðlauksdals-
prestakall i Baröa-
strandarprófastsdæmi.
¥
Frét: Að margir pólitiskir
spekúlantar i Sjálfstæðis-
flokknum teiji, að enginn
þingmaður flokksins njóti
nú eins mikils persónufylg-
is og Albert Guðmundsson.
Astæðan er talin sú, að
Albert hefur veriö óhrædd-
ur við að iáta álit sitt i ljós
hvaö svo sem forystumenn
flokksins hafa sagt.