Alþýðublaðið - 25.03.1977, Side 10
10
Föstudagur 25. marz 1977 sar
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur raeð sjálfsafgreiöslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alia daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mimisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Slmi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
Amerísk bifreiðalökk
Þrjár linur í öllum litum
Mobil
Synthetic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Lacquer
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Einnig öll undirefni,
málningasíur, vatnspappír
H. Jónsson & Co. Brautarholti 22. Slmi 22255.
B.S.F. Byggung Kópavogi
Aðalfundur félagsins verður haldinn i
félagsheimili Kópavogs laugardaginn 26.
mars 1977 kl. 2 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagðir fram reikningar 1., 2. og 3. bygg-
ingaráfanga.
3. Kynntar byggingaframkvæmdir á árinu
1977.
4. önnur mál.
Stjórnin
Verkakvennafélagið
Framsókn
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins Framsóknar verð-
ur i Iðnó sunnudaginn 27. mars kl. 14.00
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
Sýnið skirteini við innganginn.
Stjórnin.
Álverið
3
löndum þar sem álframleiðsla
er stunduö. Nær yfirlit þetta til
allra starfandi verksm. í þess-
um löndum, 1975 (68 verksm.)
Sýnir yfirlitið að engin þeirra er
rekin með sama hætti og verk-
smiðjan i Straumsvik, þ.e. án
nokkurs hreinsibúnaöar. Fram
kemur einnig að mestur hluti
verksmiðja sem nota hliðstæöar
framleiðsluaðferðir eru með
lokuð ker, en það stuðlar aö
bættum mengunarvörnum og
dregur úr mengun i andrúms-
lofti starfsmanna. Nokkrar
verksmiðjur hafa einungis
hreinsun i rjáfri kerskála, en
slikt þykir úrelt orðið og er
vlðasthvar í þessum verksmiðj-
um unnið að þvi aö ker jum verði
lokað. Sumar verksmiðjanna
hafa bæði lokuð ker með full-
kominni hreinsun i þurrhreinsi-
búnaði og hreinsun með vatns-
úðun i rjáfri kerskála.
íslenzka álfélagið hefur ný-
veriö sent rikisstjórninni áætlun
um lokun rafgreiningarkerja
samfara hreinsun útblásturs i
þurrhreinsibúnaði og breyttum
framleiðsluaðferðum. Er gert
ráð fyrir af rafgreiningarkerj-
um verksmiðjunnar verði
breytt i miðjuþjónuð ker, en það
þýðir, að unnt verður að bæta
hráefnin á kerin og brjóta skurn
þeirra aðmestu leyti án þess a’ð
þekjur yfir þeim séu opnaðar og
berst þvi minna magn meng-
unarefna út i andrúmsloft ker-
skálans.
Heilbrigðiseftirlit rikis-
ins er sammála forsvarsmönn-
um álversins um að hér sé um
að ræða þá bestu leið til meng-
unarvarna sem völ er á I dag,
þegar tekiö er tillit til bæði ytra
og innra umhverfis, sé rétt á
málum haldið. Mun stofnunin
leggja rika áherzlu á, að að-
gerðum þessum verði hrint i
framkvæmd og þeim hraðaö
eftir þvi sem kostur er.
Hver verða viðbrögðin?
Hér lauk skýrslu Heilbrigðis-
eftirlitsins um álverið i
Straumsvik. Þessi skýrsla var
gefin út af gefnu tilefni, nefni-
lega grein I Morgunblaðinu 5.
marz sl. og vegna málflutnings
Ragnars Halldórssonar I sjón-
varpi daginn áður. Hér kemur i
ljós, aö Heilbrigöiseftirlitið hef-
ur unnið mikið og gott
starf i aö afla sér upplýsinga um
verksmiðjur á borð við
Straumsvikurverið, og nú ætti
að vera svo komið, að eftirlitiö
geti i krafti þeirra upplýsinga
fariö að krefjast þeirra úrbóta
sem svo oft hefur verið farið
fram á en aldrei hafa verið
framkvæmdar.
Þá verður ekki siður fróðlegt
að fylgjast með viðbrögðum
Isal. Það fyrirtæki hefur komizt
upp meö að hunza allar kröfur
um aukna öryggisgæzlu á
vinnusvæði slnu, i krafti van-
þekkingar á stóriðnaöi hérlend-
is. Nú er þetta tímabil vanþekk-
ingarinnar liðiö og fróðlegt að
fylgjast meö þvi, hvort forráöa-
menn Isal draga af þvt þann
lærdóm, að bezt sé að setja upp
sjálfsögð hreinsitæki og annan
varnarútbúnað. —hm
Tvær áhugaverðar bækur:
„Veðurfar á íslandi”
og „Móðurmál”
Bókaútgáfan Iöunn hefur gefið
út tvær áhugaverðar bækur,
„Veöurfar á Islandi” eftir
Markús A. Einarsson og „Móður-
mál, leiðarvísir handa kennurum
og kennaraefnum” eftir Baldur
Ragnarsson.
I bók Markúsar um veðurfar á
Islandi er að finna á einum stað
yfirlit yfir helztu niðurstööur
rannsókna á verðurfar tslands.
Bókin er ekki aðeins til fróðleiks
fyrir áhugamenn, heldur til
beinna nota fyrir verkfræðinga,
skipulagsfræðinga og náttúru-
fræðinga, sem þurfa á að halda
'ipplýsingum um ve.ðurfar vegna
starfa sinna og rannsókna.
Bók Markúsar skiptist i 10
meginkafla, sem nefnast:
Inngangur, þar sem fjallað er al-
mennt um veðurfar og veður-
athuganir á Islandi, — Loftslag
fyrritíma, — Hitafar, — úrkoma,
— Vindar, —Raki, ský, skyggni,
þoka og þrumuveður, — Sólskin
og sólgeislun, — Uppgufun.
Fjöldi mynda er til skýringar
á efni. svo og töflur, sem sýna
Klæðum og bólstrum
gömul húsgögn. Gotr
úrval af áklæðum.
BÓLSTRUN
ÁSGRÍMS
Bergstaðástræti 2,
Sími 16807.
mmmm®‘
veðurlag á ýmsum veðurat-
hugunarstöðvum vlðsvegar um
land. Bókin er 150 blaösiöur,
prentuð i Hafnarprenti.
Bók Baldurs Ragnarssonar um
móðurmálið er að stofni til álits-
gerð, er samin var á vegum
skólarannsóknadeildar mennta-
málaráðuneytisins á árunum
1971-1972.
Þetta er úttekt á móðurmáls-
kennslu iislenzkum skólum, og er
fjallað um alla helztu þætti henn-
ar, jafnframt þvi sem þess er
freistað að marka heildarstefnu i
þessu efni. Ný móðurmáls-nám-
skrá fyrir grunnskóla, sem út
kom haustið 1976, er reist á þeim
grunni, sem hér er lagður.
Bókin er einkum ætluð kenn-
aranemum, en einnig og ekki sið-
ur öllum starfandi kennurum.
Þetta er önnur bókin i Ritröð
Kennaraháskóla Islands og
Iðunnar, en þar birtast einkum
fræðirit og handbækur um nám og
kennslu. Aður er komin út i þess-
um flokki bókin Drög að almennri
og islenzkri hljóöfræði eftir dr.
Magnús Pétusson.
Laugardagur 26. 3. kl. 13.00
Jarðfræðiferð. Leiösögumaður
Ari T. Guðmundsson, jarðfræð-
ingur. Farið verður um Þrengsli
— ölfus — Hellisheiði. Verð kr.
1500 gr. v/bllinn.
Sunnudagur 27.3.
1. Kl. 10.30, Gönguferð um
Sveifluháls. Fararstjóri: Sigurð-
ur Kristinsson. Verð kr. 1200 gr.
v/bflinn.
2. Kl. 13.00. Gönguferð: Fjallið
Eina-Hrútagjá. Fararstjóri:
Tómas Einarsson. Verð kr. 1000
gr. v/bflinn.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni
að austanverðu.
Paskaferðir
1. Þórsmörk.
2. Landmannalaugar
3. öræfasveit — Hornafjörður.
Nánar auglýst siðar.
Auglýsing
um ferðastyrk til rithöfundar
1 fjárlögum fyrir árið 1977 er 100 þús. kr.
fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar
stjórn Rithöfundasjóðs íslands, Skóla-
vörðustig 12, fyrir 25. april 1977. Umsókn-
um skulu fylgja greinargerðir um, hvern-
ig umsækjendur hyggjast verja styrknum.
Reykjavik, 24. mars 1977.
Rithöfundasjóður íslands.
Sighvatur Ásmundur Sigurður
Almennur fundur um atvinnulýðræði
verður haldinn i Lindarbæ laugardaginn 26. marz kl. 14.
Frummælendur verða þeir Sighvatur Björgvinsson alþingismaður og As-
mundur Stefánsson hagfræðingur ASl. Fundarstjóri verður Siguröur E.
Guðmundsson. Frjálsar umræður. — Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur