Alþýðublaðið - 20.05.1977, Page 6
VETTVANGUR
Föstudagur 20. maí 1977
ssr
Færeyjafréttir:
TIL MINNINGAR UM NÓLSEYJflR-PflL
Hugmyndir bygginga-og fornfræðinga um byggingar Nólseyjar-Páls, naust og hjallur.
Nólseyjar-Páll
Frá þvi er sagt i Sosialnum
þann 11. mai s.l., að Klakks-
vikingar hafi efnt til hlutafélags
um smiði og rekstur tveggja
9000 tonna tankskipa sem þeir
ætla að reka i félagi við Oddfjell
A/S i Bergen.
Ætlunin er, að fyrra skipið
verði tilbúiö i ágústmánuöi 1979
og hiö siðara i ágúst 1980.
Skipunum er ætlað að sigla
milli Evrópu. Vesiur-Afriku,
Suöur-Ameriku, Bandarikjanna
og Kanada.
Fé til smiðanna hafa Færey-
ingar tryggt sér að sögn, og eru
erlend lán um 90% af kaupverði
en hlutafélagið (Stella h/f)
leggur fram 10%. Ahafnir skip-
anna verða færeyskar og eru
flestir af þeim hluthafar.
Samningur hefur einnig verið
gerður við hið norska fyrirtæki,
aö skipshafnirnar fái allt að 6
mánaða þjálfun i siglingum og
meðferð slikra skipa, sem hér
um ræðir. .
Til minningar um Nóls-
eyjar- Pál.
Fyrir tólf árum siðan fannst
grunnur að húsum á Biskups-
stöð, sem talið er að þjóðhetja
Færeyinga, Páll frá Nólsöy hafi
reist eða látið reisa á sinum
tima. Bæjarstjórn Klakksvikur
samþykkti fyrir tveim árum, að
liiðlýsa þessar minjar og nú
hefur verið ákveðið að endur-
reisa húsin, sem þar stóðu i
þeirn mynd, sem að þvf bezt er
vitað, að þau hafi upphaflega
haft. Þetta er sjóhús, sem Páll
notaði til útgerðarsinnar, að þvi
talið er á árabilinu 1802-1808.
Bæjarstjórnin i Klakksvik hefur
ákveðið að verja til þessa 60
þús. krónum á fjárhagsáætlun
1977-1978.
Trúlegt er, aö minning Nóls-
eyjar-Páls muni seint falla i
fyrnsku meðal landa hans.
Veldur þvi margt. Páll var hinn
ötulasti i sjálfstæðismálum
eyjaskeggja, en i þvi minni met-
um meöal Dana. Páll var skáld
gott og hlifðist ekki við fjendur
sina, hina dönsku valdsmenn.
Kunnasta kvæði hans — Fugla-
kvæðið — er enn sungiö undir
færeyskum dansi, en þar er taliö
að hann hafi lýst dönskum
valdsmönnum sem rán- og hræ-
fuglum. Sjálfum sér lýsti hann
eða likti við Tjaldinn, sem siðan
hefur veriö einkennisfugl Fær-
eyja.
Páll reyndi að brjóta hið
danska einokunarvald með þvi
að láta smiða skip, til siglinga
til annarra landa og vildi þannig
losa landa sina við danska
áþján.
Skip hans, Royndin frida,
hvarf i hafi og hanií sjálfur einn-
ig. Var af flestum talið að þaö
hafi verið skotið i kaf undan
Suðurey, enda höföu heyrst fall-
byssuskot undan eynni á þeim
mmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmLtiMtL'
Færeysk sjóhús
tima, sem von var á Royndinni
fridu úr siglingu. Var hann, að
vonum , lengi harmaöur af lönd-
um sinum.
mmmmmmm^—mmmmmmmmm^J
f ' —.. '■ t
OR YMSUM ATTUM
Samstarfið við
Samtökin á
Vestfjörðum
Skutull, blað Alþýðuflokksins
á Vestfjöröum fjallar um sam-
starfið við Samtökin i leiðara 11.
mai sl. Þar segir svo:
1 siöasta tbl. af VESTRA,
blaði SFV á Vestfjörðum, er
m.a. kvartað undan þvi, að
Alþýðuflokksmenn á Vestfjörð-
um hafi ekki tekið nægilega vel
hugmyndum SFV um samstarf i
Vestfjarðakjördæmi. Þaö er
rangt. Alþýðuflokkurinn á Vest-
fjöröum hefur tekiö jákvætt i
það mál, skipaö nefnd til við-
ræðna við SFV-menn og biöur sú
nefnd nú eftir þvi að Samtökin
láti vita hvar og hvenær þau
óski að fyrsti viðræöufundurinn
verði haldinn. A þeim fundi
munu Alþýðuflokksmenn á
Vestfjörðum leita eftir þvi um
hvers konar samstarf Samtökin
eru aö tala, en það hefur aldrei
komið fram, svo og hvort það
rúmist innan nýsamþykktra
laga Alþýðuflokksins um próf-
kjör eða hvort Samtakamenn
hafi i huga einhver önnur og
sérstök skiiyröi fyrir samvinnu
við Alþýöuflokkinn. Eölilegast
væri að sjálfsögðu, aö Samtaka-
menn á Vestfjörðum gengju til
liðs við Alþýðuflokkinn eins og
margir aörir flokksbræður
þeirra hafa gert á undan þeim,
meö þvi að ganga i Alþýöuflokk-
inn eins og það fólk gerir, sem
vill starfa meö honum að fram-
gangi jafnaðarstefnu á Islandi.
Þar yrði Samtakafólkið að
sjálfsögðu boðið velkomið og
myndi njóta allra sömu réttinda
og annað Alþýðuflokksfólk. Vilji
Samtakamenn á Vestfjörðum
hins vegar ekki ganga til liös við
Alþýðuflokkinn með þeim hætti
heldur aðeins með einhverjum
skilyrðum, þá er aö vita, hver
þau skilyrði eru. í þvi skyni hafa
Alþýðuflokksmenn á Vestfjörð-
um kjörið nefnd til viöræðna við
Samtökin. Þeir Samtakamenn
geta þvi ekki kvartað undan, aö
tilmæli þeirra um samvinnu séu
að engu höfð.
Hitt er svo annað mál, sem
SKUTULL viðurkennir fúslega,
að Alþýöuflokksmenn á Vest-
fjörðum eru síöur en svo full-
vissir um, að alvara búi á bak
við þetta samvinnutal Samtak-
anna. Vestfirskir Alþýðuflokks-
menn hafa rika ástæöu til að ef-
ast um það. I fyrsta lagi i ljósi
fyrri reynslu. 1 öðru lagi vegna
þess, hvernig á málinu er haldið
að hálfu sumra forystumanna
SFV á Vestfjörðum.
Hver er sú reynsla, sem rætt
er um? Hún er Alþýðuflokks-
mönnum á Vestfjörðum enn i
fersku minni. Ekki skorti á það
fyrir siðustu Alþingiskosningar,
að Samtakamenn á Vestfjörö-
um færu mörgum og fögrum
orðum um samvinnuvilja sinn
með Alþýöuflokknum. Alþýðu-
flokksmenn á Vestfjöröum
trúðu þessum orðum lengi
framan af og ýmsir forystu-
menn flokksins I öðrum kjör-
dæmum mun lengur. En reynsl-
an var sú, að á sama tima og
forystumenn Samtakanna i
Vestfjaðakjördæmi töluðu fag-
urt viö Alþýðuflokksfólk á Vest-
fjörðum og stóðu i baktjalda-
makki við ýmsa aðra menn voru
þeir i óöa önn að ganga frá
framboðslista sinum og undir-
búa kosningabaráttuna. Þegar
þeir svo loksins töldu, aö ekki
yrði lengur undan þvi komist að
tjá Alþýðuflokknum að ekkert
yrði úr samstarfi munaði
minnstu að þeim heföi tekist að
koma i veg fyrir, að Alþýðu-
flokknum ynnist timi til þess að
bjóða fram á Vestfjörðum og
kosningaundirbúningur Alþýðu-
flokksmanna komst i eindaga.”
í siðari hluta leiðarans er vik-
iö nokkuö að þeirri málsmeð-
ferö Karvels Pálmasonar og
Samtakanna á Vestfjöröum aö
leita til „forystu Alþýðuflokks-
ins i Reykjavik” um samstarf
og samvinnu en ekki til kjör-
dæmisráðs Alþýöuflpkksins á
Vestfjörðum. Gagnrýnir leiðar-
ahöfundur mjög harölega þessa
málsmeðferð.
Þessi „Forysta Alþýöu-
flokksins i Reykjavik” sem um
er rætt er auðvitaö flokksstjórn-
in sjálf, sem er æðsta valda-
stofnun flokksins á landsvisu en
ekki fyrir Reykjavik, þótt svo
hagi til að aðalskrifstofa flokks-
ins sé staðsett i Reykjavik og
aðalstarfsemi flokksstjórnar og
framkvæmdastjórnar fari fram
i Reykjavik.
Það er þvi mjög vafasamt að
hægt sé að gagnrýna þá Sam-
takamenn fyrir þessa máls-
meðferð. Kjarni málsins er
hinsvegar sá að skipuö hefur
veriö samninganefnd af beggja
hálfu, þar sem formaður
Alþýðuflokksins, Benedikt
Gröndal, á m.a. sæti fyrir hönd
flokksstjórnar Alþýðuflokksins.
Ef Samtakamenn i alvöru
vilja ganga til samstarfs viö
Alþýðuflokkinn ættu þeir ekki
að láta dragast mikið lengur að
svara bréfi Alþýðuflokksins frá
28. marz sl. þar sem greint er
frá skipan viðræðunefndar-
innar, og látin i ljós ósk um að
vfðræöur geti hafizt sem fyrst.
SSðan eru liönir tæpir tveir
mánuðir og ekkert hefur heyrzt
frá viðræðunefnd Samtakanna á
Vestfjörðum. Viðræðunefnd
Alþýðuflokksins biður þvi enn
eftir að heyra frá Samtökunum,
og þar viö situr.
—BJ