Alþýðublaðið - 10.07.1977, Blaðsíða 3
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS 40
TOURIST BUREAU
--- ^W-w r-r m>*' .Vw' -
Umfangsmikið starf land-
kynningar og ferðalaga
Ferðaskrifstofa ríkis-
ins hefur nú starfað i um
40 ár. Tii þess að minnast
þessara tímamóta buðu
forráðamenn skrifstof-
unnar blaðamönnum
austur að Laugarvatni
fyrr i vikunni/ og kynntu
fyrir þeim starfsemina.
Fulltrúar Ferðaskrif-
stofu ríkisins í þessari
ferð voru þeir Kjartan
Lárusson settur forstjóri
og Halldór Sigurðsson, en
hann sér um skipulagn-
ingu hópferða á vegum
skrifstofunnar og segist
þekkja landið eins og lóf-
ann á sér, — á landakorti!
Hins vegar fullyrti hann,
að hann myndi óðara vill-
ast, ef hann yrði settur
eitthvað verulega út fyrir
þéttbýliskjarna höfuð-
borgarsvæðisins, — hans
þekking væri bundin við
fjarlægðir milli staða,
heppilegar dagleiðir milli
áningarstaða og slíkt á
landakorti.
Hér á eftir veröur reynt að
gera nokkra grein fyrir starf-
semi Ferðaskrifstofu rikisins á
fjörutiu ára starfsferli:
Einokunarfyrirtæki í
upphafi
Þegar Ferðaskrifstofa rikis-
ins var stofnuö áriö 1936 var
hlutverk hennar að sjá um allan
flutning feröamanna til og frá
Islandi. HUn var þvi algjört ein-
okunarfyrirtæki fyrstu árin.
Fyrsti forstjórinn var Eggert
Briem og gegndi hann störfum
fram að upphafi heimsstyrjald-
arinnar, en þá lagðist starfsemi
Feröaskrifstofu rikisins niður
að mestu leyti.
Eftir aö strlðinu lauk var
starfsemin endurvakin, og Þor-
lákur Þórðarson ráöinn for-
stjóri. Hann gegndi starfinu til
ársins 1973, aö Sigurður
Magnússon fyrrum blaðafull-
trúi Loftleiöa var ráðinn. Hann
stóö þó stutt við þvi áriö eftir
var Björn Vilmundarson ráðinn
forstjóri Feröaskrifstofu rikis-
ins. Björn var siðan leystur frá
störfum um óákveðinn tima i
nóvember mánuði s.l., og Kjart-
an Lárusson settur forstjóri.
Eins og fyrr segir var Ferða-
skrifstofa rikisins meö aigera
einokun á feröum manna til og
frá landinu fyrstu árin. En I
hlutverki hennar var einnig að
sjá um landkynningu hvers kon-
ar erlendis I samvinnu við hið
opinbera. Einnig hafði skrifstof-
an forgöngu I að bæta aðbúnað
ferðamanna vlöa um landið.
Rútubílar og minjagripir
Rekstur langferðabifreiða var
talsverður hluti af starfi Ferða-
skristofu rlkisins I upphafi, eða
þar til Bifreiðastöð Islands var
stofnuð. Einnig beitti skrifstof-
an sér fyrir framleiðslu minja-
gripa, þegar eftirspurnir eftir
slikum uröu slfellt háværari hjá
erlendum feröamönnum. Voru
þá einstaklingar með hagleiks-
hendur mjög hvattir til að skera
út og smlða þjóölega gripi, sem
unnt væri að selja erlendum
ferðamönnum, sem gjarnan
vildu hafa eitthvaö meö sér
heim til að sanna ferö sina norö-
ur á hjara veraldarinnar, enda
ferðalag til Islands ekkert smá-
ævintýri.
Upp úr þessu fóru að sjá dags-
ins ljós lambagærur I öllum
regnbogans litum, auk aska,
rokka og fleiri gamalla þjóð-
legra gripa I vasaútgafu. Þessar
umgetnu lambagærur hljota
raunarað hafa kitlað mjög for-
vitni útlendinga á ferðalagi, þvl
hvernig hlýtur ekki hjörö slík
fénaðar aö lita út þegar rekiö er
til rétta?
Oti fyrir Hotel Eddu i Húsmæöraskólanum á Laugarvatni. Frá vinstri Kjartan Lárusson forstjóri, Ing-
óifur Pétursson og Halldór Sigurösson. (Ljósm.: AH)
Or gömlu Baöstofunni f Hafnarstræti. Þarna hófst minjagripasala
Feröaskrifstofu rikisins.
Aðalsölustaður minjagrip-
anna var I Baðstofunni, gömlu
húsi við Hafnarstræti, sem nú er
horfiö en setti skemmtilegan
svip á borgina á sinum tlma.
Hóteirekstur
Feröaskrifstofa ríkisins hefur
nú um fimmtán ára skeiö rekiö
Edduhótelin svonefndu. Upphaf
þess rekstrar má rekja til þess,
aö mistök urðu I bókun hótels
nokkurs noröur á Akureyri. Þar
haföi veriö pantað hótelpláss
fyrir nokkra útlendinga, en þeg-
ar máliö var kannað morguninn
áður en feröalangarnir skyldu
halda noröur, kom I ljós, aö
pöntunin haföi aldrei verið færð
I bækur hótelsins. Þvl var gripiö
til þess ráðs, að prófa heimavist
MA. Meö góðra manna hjálp
tókst þetta með ágætum, og þar
meö var fræi hótelrekstrar sáð I
hjörtu forráöamanna Feröa-
skrifstofu rlkisins. Hótel Edda
hóf starfsemi sina, eitt af öðru
og eru nú ellefu á tiu stöðum á
landinu, — tvö á Laugarvatni.
Nýjasta hótelið er að Stóru-
Tjörnum viö Ljósavatn I Þing-
eyjarsýslu.
Verðlag Edduhótela er alls
staðar þaö sama, eða kr. 3.800 á
nóttina fyrir tveggja manna
herbergi, en 2.850 fyrir eins
manns herbergi án baðs. Morg-
unverður kostar 665 kr.
Hér veröur aö vlsu að undan-
skilja hótelið i Húsmæðraskói-
anum á Laugarvatni, en þar
fylgir bað hverju herbergi, auk
þess sem sauna er I húsinu. Þar
kostar tveggja manna herbergi
6.080 krónur, en fyrir eins
manns herbergi þarf að greiöa
4.750 krónur.
Aöstaða til hvers konar ráð-
stefnuhalds er mjög góð I hótel-
unum, að sögn þeirra Kjartans
og Halldórs, auk þess sem þau
eru ákjósanlegir áningarstaðir
fyrir sumarferöir starfshópa
eða félagssamtaka.
Nýtt launakerfi
1 sambandi viö rekstur Eddu-
hótelanna er rétt aö vekja at-
hygli á nýju launakerfi sem
ttökazt hefur viö rekstur þeirra
frá árinu 1974. Hér er um að
ræöa prósentukerfi, sem gefur
starfsfólkinu ákveöinn hluta af
ágóöa hótelsins. Starfsemin er
nánast færð I hendur starfs-
fólksins, sem ákveöur innkaup á
hráefni og sllkt.
Aö sögn var þetta kerfi fyrst
prófaö I hótelinu aö Krikju-
bæjarklaustri og gaf það mjög
góða raun. Þá hafði verið veru-
legt tap á hótelinu um þriggja
ára skeið, en snarskipti yfir I
ágóða strax fyrsta árið, sem
þetta nýja kerfi var reynt, og
hefur veriö svo síðan. Sama
reynslan er I öllum öörum
Edduhótelum, sem tekið hafa
upp þetta bónuskerfi, — tapið
breytist I ágóða og laun starfs-
fólksins hækkar að mun, allt
upp I 50%.
Aö söng Ingólfs Péturssonar,
sem se‘r um rekstur Edduhótel-
anna, byggist breytingin mest á
þvi, að nýting öll verður mun
betri. Hráefni nýtast betur og
vinnutimi starfsfólksins einnig.
Þetta leiöir aö vlsu af sér meiri
skorpuvinnu, því starfsfólk er I
lágmarki að fjölda, en leiðir
aftur til lengri frla, ef eitthvaö
lát verður á komu gesta.
Meðalvinnutima á sólarhring,
þegar upp væri staöiö eftir ver-
tiðina, kvaö Ingólfur állta 8-9
tima.
önnur starfsemi.
Ef viö snúum okkur að ann-
arri starfsemi Ferðaskrifstofu
rikisins, þá felst hún I skipu-
lagningu hóp- og einstaklings-
ferða um landið, auk þess sem
skrifstofan sér um skipulagn-
ingu ferða fyrir þá tslendinga,
sem ferðast erlendis utan hóp-
ferba. Skipulagning hópferða
fyrir tslendinga erlendis er liðin
tíb hjá fyrirtækinu, enda hafa
einkaskrifstofurnar tekið slika
starfsemi yfir.
Mikill fjöldi ferða hefur verið
auglýstur hjá Ferðaskrifstof-
unni yfir sumarmánuðina, frá 5.
júnl fram I september. Að sögn
þeirra Kjartans og Halldórs er
vinsælasta feröin þar 10 daga
hringferð, en I þeirri ferð
er komið við á flestum fjölsótt
ustu ferðamannasöðum hér
lendis. I slikar ferðir er farið
tvisvar I viku allt sumarið. Þá
eru einnig farnar vikulegar 5-6
daga ferðir, og þá til skiptis
farið um Suðurland, austur I
Skaftafell og I Borgarfjörðinn,
en I hinni noröur um Kjöl I
Húnavatnssýslu, til Akureyrar
og Mývatns og suður um
Sprengisand.
Framhald á bls. 10
Sff Sunnudagur
10. júlí 1977