Alþýðublaðið - 13.08.1977, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 13.08.1977, Blaðsíða 3
hSb^a Laugardagur 6. ágúst 1977 FRÉTTIR 3 Göturæsin * i höfuðborginni: Eilíft vandamál? Göturæsi eru og verða mikið vandamál. Þegar leggja þarf nýtt lag af malbiki á götur borgar- innar, þá verður að sjálf- sögðu að hækka ræsin, ella myndi annað tveggja gerast. Malbikað yrði yf ir öll ræsin; ræsin hyrf u og ræsavandamálið yrði úr sögunni. Sá kosturinn er ekki talinn heppilegur. Hinn kosturinn er sá, að í göturnar mynduðust d j úpar holurjþarsem ræsin eru, og yrðu holurnar dýpri i hvert sinn sem nýtt malbikslag bættist við. Slíkar holur yrðu að sjálfsögðu til mikils baga fyrir bifreiðaeigendur og með tímanum stórhættu- legar gangandi vegfar- endum. Það er þvi ljóst, að hækka verður ræsin. Að þessari sömu niðurstöðu hafa gatnagerðar- yfirvöld einnig komizt. Eitt atriði hefur þó vafizt fyrir þeim og það er hversu mikið á að hækka ræsin. Það er nefnilega bitur reynsla bifreiðaeigenda, að aki þeir göt- ur, sem á að fara að malbika, vilja hjól ökutækjanna, gjarnan rekast i hvassar brúnir upp- hækkaðra ræsanna. Að sjálf- sögðu eru engar merkingar við ræsin um það, aö menn eigi aö gæta varúðar i hvivetna. Aki maður hins vegar um ný- malbikaðar götur, hlunkast hjólin marga sentimetra niöur, þvi ræsin voru hækkuð of litiö. Hann er vandrataður hinn gullni meðalvegur. bess má að lokum geta, að fráleitt er að ætla að endurtek- inn akstur á og ofan i ræsi fari vel með ökutæki borgarbúa. —ATA Hér stendur blaðamaður Alþýðublabsins við ræsi á Kringlumýrarbrautinni. Hér hefur ræsið ekki verið hækkað nógu mikið, þegar malbikab var slðast, þannig að umtalsverð hola cr nú i akbrautinni. (Mynd: —ATA). Sjónvarpsleikrit Gísla i. Ástþórssonar: nMjúkt gaman með alvarlegum undirtón” Eftir helgina mun sjónvarpið hefja upptökur á leikritinu „Skripaleikur”, eftir Gisla J. Astþórsson. Sjónvarpsstarfsmenn leituðu viða að hentugum stað úti á landi sem gæti fallið vel að efni leikritsins en það á að gerast um 1940. Sigluf jörður varð fyrir valinu og verður verkið þvi að mestu kvikmyndað þar. Engin leiktjöld veröa notuð. Leikritið „Skripaleikur” er, eins og aðstandendur upptök- unnar sögðu i samtali 'við Alþýðublaöið, mjúkt gaman með alvarlegum undirtón. Það fjallar um strák, sem kemur úr smáplassi úti á landi til höfuð- bæjar landsfjóröungsins til aö slá sér lán fyrir vörubil. Aðal- hlutverkin leika Sigurður Sigur- jónsson, Gisli Halldórsson, Guð- mundur Pálsson og Elisabet Þórisdóttir. Auk þeirra koma fram leikarar frá Siglufirði og Sauðarkróki. Leikstjóri verður Baldvin Halldórsson. Upptökur hefjast þann 15. þessa mánaðar og mun tiu manna hópur frá sjónvarpinu, auk leikara og leikstjóra halda til Siglufjarðar strax eftir helgi. —ATA Fröken Júlía til Italíu og víðar Hreyfisleikhúsinu berast boð víða að úr heiminum Innan skamms mun Hreyfi- leikhúsið halda til italiu þar sem það mun taka þátt i leik- listarhátið sem haldin er I Bergamo. Hátiðin er haidin með styrk frá UNESCO og erstjóm- andi hennar leikhússtjóri Odin- leikhússins,Eugenio Barba. Samhliða hátiðinni verður haldið þing þar sem rætt verður um stöðu frjálsra leikhópa, vinnuaðferðir þeirra, verkskipt- ingu, stjórnarfyrirkomulag og fleira i þeim dúr Þá verður i gangi „workshop” (leiksmiðja) og námskeið og sýnir hver leik- hópur þar eitthvert stykki sem sýna á vinnuaðferðir hans. Alls taka um 15 leikhópar viðs vegar að úr heiminum þátt i leiklistarhátiðinni i Bergamo. Hreyfileikhúsiö mun þar sýna „Fröken Júlia alveg óð”, sem sýnt var i Reykjavik fyrr á þessu ári. Hreyfileikhúsinu hafa borizt boö frá ýmsum leikhópum þará meðal leikhóp frá Italiu og öðr- um frá Indlandi, sem byggir á gamalli indverskri danshefð. Er islenzka leikhópnum boðið aö vinna meö þessum hópum i eina viku eftir þingiö i Bergamo og ferðast meö þeim um ttaliu til að sýna Fröken Júliu. Frá Cardiff i Wales hefur Hreyfi- leikhúsið fengið boð um að sýna Júliu og hefur verið ákveðiö að sýna hana 19. 20. og 21. ágúst næstkomandi. Einnig hefur leikhúsinu borizt boð frá Am- sterdam i Hollandi, en ekki hef- ur enn verið tekin ákvörðun um hvort það boð verður þegið. AB Svipmynd úr Fröken Júlia Al- veg Óð, sem Hrey fðeikhúsið heldur með I sýningarför til ttaliu og Wales innan skamms. t Hreyfileikhúsinu i þessari ferð vcrða Inga Bjarnason, Nigel Watson, Sólveig Halldórsdóttir og Viðar Eggertsson. Fundur hjá BSRB í næstu viku Svo sem kunnugt er stóð til að viðræður BSRB við ríkis- valdið hæfust að nýju um miðjan ágústmánuð, en sið- ustu vikur hafa aðilar unniö að ýmiskonar gagnasöfnun. Að sögn Haralds Steinþórs- sonar hjá BSRB, er fyrirhug- aður félagsfundur í BSRB i næstu viku þar sem samn- inganefnd bandalagsins mun leggja fram og skýra þau gögn sem unnið hefur verið að. Sagðist Haraldur eiga von á að upp úr þvi færu formlegir samningafundir að hefjast, en að sjálfsögðu væri það undir sáttasemjara komið hvenær jhann boðaði fyrsta fund. Tilhögun þorskveiðibanns togara: Nokkrir útgerðarmenn eiga enn eftir að tilkynna sjávarútvegsráðuneytmu Næstkomandi mánudag 15. ágúst rennur út sá frestur sem útgerðarmönnum togara var gefinn til aö tilkynnahvemigþeir hafi hugsað s«r að hafa þvi 23 daga stoppi sem þeir verða aö setja á þorskveiðar fram að 15. nóvember. 1 viðtali við Þórð Asgeirsson frá Sjávarútvegsráðuneytinu kom fram að flestir togaranna hafa þegar tilkynnt um tilhögun stöðvunarinnar, en nokkrir eru þó eftir og vonast ráðuneytið til að heyra frá þeim fljótlega upp úr helginni.__________________ Alls var togurunum gert aö stöðva þorskveiðar i minnst 15 daga á timabilinu 26. júli-15. nóv. Þau skilyröi voru sett i fyrsta lagi að stöövað yrði ann- aö hvort vikuna 26.7.-2.8 eða 2.8.-8.8. Siðan skal stöðva sam- tals 23 daga fram til 1. nóvem- ber og aldrei skemur en viku i senn. Þórður Asgeirsson sagði að vel hefði veriö fylgzt með lönd- unum þar sem af væri banninu og ekki annað aö sjá en sjómenn tækju þessu með alvöru og virtu bannið. __________________ . ItórS messudagur í Skálholti Nú um helgina verður Stóri messudagur haldinn i Skál- holti. Að þessu sinni verður þó um meira en einn dag að ræða þvi byrjað veröur kl. 17 i dag laugardag meö lesmessu fyrir þá sem komnir verða á stað- inn og sfðan hefst undirbún- ingur fyrir starfið daginn eftir. Fyrsta messa sunnudagsins hefst klukkan 10 siöan verða haldnar messum samkomur og tónleikar með litlum hvild- um allt til kvölds. Allir, jafnt leikir, sem lærð- ir, eru velkomnir til þessarar hátiðar og verða sumaTbúð- irnará staðnum opnar gestum ^til nota um þessa heigi. Á Leiðrétting Ranghermt var í frétt i Alþýðublaðinu á fimmtudag að Finnur Birgisson arkitekt hefði átt þátt í tillögun varð- andi nýtt skipulag gamla miðbæjarins. Hið rétta er að arkitektarnir þrír sem að tillögunum unnu voru þeir Gestur Ólafsson, örn Sigurðs- son og Hilmar Þór Björnsson, en nafn Hilmars féll niður i fréttinni i blaðinu. Við biðjum viðkomandi vel- virðingar á þessum mis- tökum blaðamanns.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.