Alþýðublaðið - 06.09.1977, Síða 1

Alþýðublaðið - 06.09.1977, Síða 1
BSRB boðar verkfall — frá og með 26. september Á sameiginlegum fundi sem stjórn og samninganefnd banda- lags starfsmanna rikis og bæja sátu i gær, var akveðið að notá verk- fallsheimild, þá sem BSRB hefur nú i fyrsta sinn og boða til verk- falls frá og með 26. þessa mánaðar. Að sögn Haralds Steinþórs- sonar framkvæmdastjóra BSRB kemur verkfallið til framkvæmdar þannig, að ef ekki hefur náðst samkomulag fyrir 21. september, ber -sáttanefnd skylda til að leggja fram sáttatilboð. Hún getur siö- an frestað verkfallinu um 15 daga, til þess að fram geti farið atkvæðagreiðsla um fram- komna sáttatillögu. Verkfall hefst ekki nema tillaga sátta- nefndar hafi verið felld. Sem kunnugt er er hálfur mánuður liðinn siöan samn- ingaviðræður hófust milli opin- berra starfsmanna annars veg- ar og rikis og sveitarfélaga hins vegar. í frétt frá BSRB segir að þrátt fyrir svo til daglega sátta- fundi þennan tima hafi engin þau tilboð komiö frá riki eða sveitarfélögum, er þyki skapa grundvöll til samkomulags. Launatilboð ríkisins geri ráð fyrir mun minni kjarabótum en atvinnurekendur hafi almennt samið um i sumar, hvað þá að það leiðrétti það misræmi, sem skapazt hafi á undanförnum ár- um milli launa opinberra starfs- manna og annarra. Tilboð rikis- ins um önnur atriði en grunn- launahækkunina gangi einnig alltof skammt. 1 tilboði um verðtryggingu launa sé komið til móts við kröfur bandalags- ins. þó sé þar ekki gert ráð fyrir verðlagsbótum á lágmarks- krónutölur áfangahækkana til hinna lægst launuðu. 1 fréttinni segir enn fremur, að meö kröfum BSRB sé stefnt að þvi að semja um sambærileg kjör starsmanna rikis og bæja og aðrar starfsstéttir þjóö- félagsins hafi, og styðji sá samanburður sem fyrir liggi kaupkröfur sterklega. Þvi verði boðað til ofan- greinds verkfalls til að koma hreyfingu á samningaviðræö- urnar þar sem reynt verði til þrautar að ná samningum. —JSS «5^ Kæra verðlagsstjóra: Lögd fram ígser í gær var lögð fram i verðlagsdómi kæra verðlagsstjóra gegn verktökum i rafiðnaði og málm- og skipa- smiði. Forsaga málsins er sú, að samtök verk- taka i þessum greinum hafa auglýst taxta ein- hliða, hærri en verð- lagsstjóri hafði ákveð- ið. Agreiningurinn mun vera um vægi 2,5% sérkröfuhækkananna siðan i siöustu samningum, hvemig þær hækkanir eiga að dreifast á taxta f útseldri vinnu. Vilja verktakar láta 2,5% vega misjafnt eftir töxtum, en verð- lagsyfirvöld láta þau leggjast flöt ofan á alla taxta. Talsmenn rafverktaka og eig- enda fyrirtækja f málm- og skipasmiðaiðnaöi hafa látið i ljós ánægju sina vegna kæru verðlagsstjóra og telja, að dóm- ur muni sýna fram á réttmæti sjálfákveðinna taxta þéirra. En kæran var sem sagt lögð fram i'gær, og er þess að vænta, að dómur verði upp kveðinn ef t- ir ekki mjög langan tima. —hm Eldavélaprósenturnar: Endurgreiðsla athuguð í ráðuneytinu Það er verið að finna flöt á þvi af eldavélum þar til fyrir stuttu, hér i ráðuneytinu hvernig hægt sé þrátt fyrir að gjaldið hafi verið aö koma þessu vörugjaldi til afnumið með auglýsingu i skila, en hugmyndin er sú aö ekki Stjórnartiöindum þann 30. júni veröi innheimt meira af þessari siðast liðinn. vöru en ákvæði gera ’áö fyrir, — Sagði Jón að reynt yrði að færa sagði Jón Sigurðssr .áöuneytis- þessa skekkju til rétts vegar allt stjóri í fjármálaraóuneytinu i aftur til þess tima er auglýsingin i samtali við Alþýðublaðiö i gær, en Stjórnartiðindum tók gildi, en það svo sem skýrthefur verið frá hér i mun hafa veriö þann 1. júli síðast blaðinu hefur komið i ljós að liðinn. greitt hefur verið 18% vörugiald —GEK Sparimerkjamálið: Tekid fyrir fimmtudag Senn liður að þvi aö Spari- merkjamálið svokailaða veröi tekið til munnlegs málflutnings við « bæjarþing Reykjavfkur. Aformað er aö taka máliö fyrir næstkomándi fimmtudag 8. september, en likur eru á aö eiginlegtir málflutningur tefjist eitthvað. Mál *það sem hér um ræðir, snýst ^m hvort rétt hafi veriö • staðið að útreikningi verðbóta á sparimerki ungmenna, en ágrein- ings hefur gætt um hvort eigend- ur merkjanna hafi fengið tilskild- ar verðbætur fyrir merki sin. Þar sem hér er um prófmál að ræða er þaö rekið fyrir dómstól- um á kostnaö rikisins, en stefn- anda algjörlega að kostnaðar- lausu. Heimil- ið ’ 77 AB leit inn á sýning- una Heimilið ’77 i gær. þar var margt um manninn, jafnt ungir sem aldnir. Tiskusýn- ingin vakti mikla at- hygli eins og sjá má á andlitum þessara ungu Reykvikinga, sem hér fylgjast af at- hygli með þvi sem fram fer á sviðinu. Sjá nánar á bls. 6 og 7. Prófkjörsblað fyrir Suðurland Alþýðublaðinu i dag fylgir 4ra siðna auka- blað, þar sem fjallað er sérstaklega um prófkjör Alþýðuflokks- ins i Suðurlandskjör- dæmi. Þar eru fram- bjóðendur kynntir og greint frá prófkjörs- reglum. Ætlunin er að dreifa þessu blaði til allra ibúa kjördæmisins og verður framhald á þessari útgáfu eftir þvi sem efni og aðstæður leyfa. Blaðinu verður dreift i rösklega 5000 eintökum á Suðurlandi. —GEK

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.