Alþýðublaðið - 06.09.1977, Side 2

Alþýðublaðið - 06.09.1977, Side 2
Þriðjudagur 6. september 1977 Telex keppnin: ísland í átta lida úrslitunum — eftir sigur yfir Finnum Islendingar sigruðu Finna i telexkeppninni i skák nú um helgina og veitir það islenzku sveitinni rétt til að taka þátt i átta landa úrslitum keppninnar. Af Islands hálfu fór keppnin fram i starfsmannasal Útvegs- bankans. Keppt var á 8 borðum og leikirnir sendir út til Finn- lands um telextæki. Svarleikir Finna komu siðan til baka á tækinu. A fyrsta borði islenzku sveitarinnar keppti Friðrik Ólafsson. Mótherji hans var Poutianinen. Finninn hafði hvitt. Skákinni lauk með ósigri Friðriks, sem féll á tima. A öðru borði keppti Guðmund- ur Sigurjónsson fyrir Islands hönd. Mótherji hans var Ran- tanen. Finninn féll á tima, en þá hafði Guðmundur mun betri stöðu. A þriðja borði var fyrir Is- lands hönd Ingi R. Jóhannsson. Mótherji hans var Pyhaele. Skákinni lauk meö jafntefli. A fjórða borði gerðu Jón L. Árnason og Raste jafntefli. Á fimmta borði tefldi Helgi Ólafsson við Kanko og vann skákina. A sjötta borði tefldi Margeir Pétursson fyrir Islands hönd. Mótherji hans var Binheim. Skákinni lauk með jafntefli. A sjöunda borði tefldu Ingvar Asmundsson og Kivipelto. Skák þeirra lauk með jafntefli. A áttunda borði gerðu Magnús Sólmundarson og Piuva jafn- tefli. Úrslit þessara 8 skáka urðu sem sagt tveir sigrar Islend- inga, fimm jafntefli og eitt tap. —ES. Kennslumálin í Reykjavík: SBR varar við ómenntuðum kennurum Stjórn og fulltrúa- ráð Stétta rféla gs barnakennarai Reykjavik kom saman til fundar á föstudag til að ræða þau vandamál, sem skapazt hafa vegna skorts á menntuöum kennurum I borg- inni. Að fundi loknum var samin greinargerð, sem send var fræðsluskrifstofu Reykjavikur. Þessi greinargerö hefur einnig verið send f jölmiðlum, og er hún á þessa leið: „1 sjónvarpsviötali 30. ágúst sl. ræddi fræðslustjórinn i Reykjavík, Kristján J. Gunnarsson , um þann vanda, sem skapast hefur i grunnskól- um borgarinnar i haust vegna skorts á kennurum. Spurður af fréttamanni um úrræði, svaraði fræðslustjóri þvi til, að um þrjá valkosti væri að ræöa til lausnar þessu máli. Þeir voru þessir: 1) að ráöa fólk án réttinda til kennslu. 2) að ráða ekki fólk i stöðurnar, sem þýddi skerta kennslu hjá nemendum i viðkomandi skól- um og 3) að flytja nemendur frá nýrri skólum borgarinnar til þeirra eldri, þar sem fátt er i bekkjum. Stjórn og fulltrúar SBR (Stéttarfélags barnakennara i Reykjavik) tók fyrrnefnd atriði til umræðu á fundi i dag og voru niðurstöður þeirra umræðna eftirfarandi: I. Undanfarin ár hefur fjöldi þess fólks farið vaxandi viða um land, sem stundar kennslustörf við grunnskóla án tilskilinna kennararéttnda. Fræðsluyfir- völd hafa ráðið fólkiö, og að- standendur barnanna orðiö að sætta sig við það, en samtök kennara mótmæltaftur og aftur árangurslaust. A þennan hátt hefur kennaraskorturinn verið „leystur” aö mati yfirvalda. Fram til þessa hefur aðsókn kennaramenntaðs fólks að barnadeildum grunnskóla Reykjavikur verið þaö mikil að unnt hefur verið að ráða kenn- ara i allar stöður. Nú steðjar það vandamál að fræðsluyfir- völdum Reykjavikurborgar að ekki sækir nægilega margt kennaramenntaö fólk um þær stöður, sem lausar eru. Stjórn og fulltrúaráð SBR mótmælir eindregið þeirri hug- mynd að leysa kennaraskortinn i borginni á sama hátt og gert hefur verið á ýmsum stöðum til þessa. Samtök kennara hafa margoft bent á veigamestu ástæðurnar fyrir kennaraskort- inum i landinu og vill stjórn og fulltrúaráð SBR enn á ný taka undir þær. Stjórn og fulltrúaráð SBR trúir þvi ekki, að fræðsluyfir- völd borgarinnar hafi i hyggju aö ráða réttindalaust fólk til kennslu í barnadeildum grunn- skóla i vetur. II. Stjóm og fulltrúaráö SBR bendirá,að undanfarin ár hefur ekki verið framfylgt ákvæðum námsskrár i mörgum skóla- hverfum borgarinnar. Hafa kennarar undrast mjög það tómlæti, sem forráðamenn nemenda hafa sýnt i þvi máli. Ef nú á enn að skerða nám- stima nemenda i grunnskólum borgarinnar eða flytja þá i skólavögnum fram og aftur til að „leysa” þann vanda, sem skapast hefur vegna skorts á Framhald á bls. 10 rj J \Uj fjl Vilu >i irj- PÓST- OG SlMAMÁLASTJÓRNIN Lausar stöður hjá Umdæmi II ísafjörður tvær stöður loftskeytamanna/ simritara Súðavik staða stöðvarstjóra Nánari upplýsingar eru veittar hjá starfs- mannadeild i sima 2 60 00 og einnig hjá umdæmisstjóra á ísafirði. Laus staða Staða háskólamenntaðs deildarfulltrúa I heimspekideild Háskóla ísiands er laus til umsóknar. I.aun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins. Umsóknir ásamt itarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 28. september nk. Menntamálaráðuneytið, 2. september 1977. Reiknistofa Bankanna óskar að ráða starfsmenn til tölvustjórn- unar. I störfunum felast m. a. stjórnun á einni af stærstu tölvum landsins ásamt móttöku og frágangi verkefna. Við sækjumst eftir áhugasömu fólki með stúdentspróf, verslunarpróf eða tilsvar- andi menntun. Störf þessi eru unnin á vöktum. Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu Bankanna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyrir 8. september n.k. Laust embætti er forseti íslands veitir Staða kennslustjóra við Háskóla Islands er laus til um- sóknar. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. október n.k. Menntamáiaráðuneytið 2. september 1977.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.