Alþýðublaðið - 06.09.1977, Page 4

Alþýðublaðið - 06.09.1977, Page 4
4 Þriðjudagur 6. september 1977 bia&íö1' alþýöU' Útgefandi: Alþýöufiokkurinn. Kckstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Aðsetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Frentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1300 krónur á mánuöi og 70 krónur i lausasölu. Þegar frystihúsin græða Menn deila nú hart um hvernig komið er fyrir hraðf rystiiðnaðinum á Suð-Vesturlandi. Morgunblaðið hefur ekki vílað fyrir sér að bera sökina á verkalýðshreyf- inguna, og segir laun verkafólks í fiskiðnaði of há. Jafnframt hefur blaðið vakið upp atvinnu- leysisdrauginn og ógnar launafólki með honum. Alþýðusamband Islands svaraði þessum skrifum Morgunblaðsins hraustlega í síðustu viku, og óskaði svara við ýms- um spurningum um rekstur f rystihúsanna. Var meðal annars spurt hvort rekstur þeirra og stjórn væri í nægilega góðu lagi. Ekki hefur Morgunblaðið ennþá svarað þessum spurn- ingum, en launaf ólk bíður með óþreyju eftir svörum. í Alþýðublaðinu á laugardag var viðtal við Guðmund Hákonarson, stjórnarformann Fiskiðjusamlags Húsa- víkur. Þar kemur fram, að samkvæmt bráða- birgðauppgjöri hefur hreinn hagnaður Fisk- iðjusamlagsins fyrstu sjö mánuði þessa árs verið 32 milljónir króna, þegar búið er að draga frá af- skriftir og launatengd gjöld. 65 af hundraði hagnaðarins fer í endur- greiðslur til þeirra, sem leggja inn fisk. Þessar greiðslur hafa numið allt að 21% fiskverðs. Um ástæðuna fyrir þessari góðu afkomu Fiskiðjusamlagsins segir Guðmundur orðrétt: ,,Ég tel okkar rekstur vera í eðlilegu horfi og hér er ekki nein vitleysa í rekstrinum. Við fáum jafntog gott hráefni, sem hefur að sjálfsögðu sitt að segja. Maður hefur óljósan grun um að rekst- urinn á þessum húsum sé ákaflega misjafn og sum þeirra haf i hreinlega ekki nægilegt hráefni. Þessi hús eru síðan tekin inn t myndina, þegar viðmiðunargrundvöllur er fundinn". Morgunblaðið ætti að líta nokkru nánar á þetta dæmi og fleiri, þar sem frystihús eru rekin með verulegum hagnaði. Þar er það vinna verkafólks- ins, sem skapar hagn- aðinn, auðinn. Því fer hins vegar fjarri að það séu laun verkafólksins, sem hafa slæm áhrif á reksturinn. Upphlaup Morgunblaðsins útaf frystihúsunum er dæmi- gert um skrif blaðsins; það skal vera verka- lýðurinn, sem sökina á, þegar illa gengur. Orsak- anna er ekki leitað annarsstaðar. Ef á hinn bóginn gengur vel þakkar Morgunblaðið það góðri stjórn eigenda og for- stjóra. Sjónvarp, kvikmyndir og ofbeldi Hverskonar ofbeldi hefur farið vaxandi hér á landi síðustu árin. Barsmíðar, líkams- meiðingar og manndráp eru óhugnanlega tið, einkum meðal unglinga. Menn velta m jög vöngum yfir því hvað valdi. I nágrannalöndum okkar kenna menn sjónvarpi og kvikmyndum um vaxandi ofbeldishneigð. I Banda- ríkjunum eru glæpir, sem börn og unglingar fremja, orðið eitt helzta vandamálið, sem lög- reglan á við að stríða. Kvikmyndaf ram- leiðendur og sjónvarps- stöðvar keppa um mark- aðinn og helzta vopn þeirra eru ofbeldis- og hryllingsmyndir. Hetjurnar drepa menn og limlesta með bros á vör og það gildir ekki lengur í kvikmyndum, að glæpir borgi sig ekki. Þessar hetjur kvikmyndanna verða síðan fyrirmyndir barna og unglinga. Hér á landi virðast nú litlarhömlur lagðar á það hvaða kvikmyndir heimilt er að sýna. Of beldismyndir eru kannski bannaðar12 og 14 ára börnum, en strangar tekið á hlutunum ef nöktum karli eða konu bregður fyrir á tjaldinu. Islendingar hafa löngum verið lítthrifnir af boðum og bönnum. Það eru bara einhverjar ,,kerlingar", sem vilja láta banna, segja þeir. En það yrði íslendingum til sóma, ef þeir reyndu að takmarka sýningar í sjónvarpi og kvikmyndahúsum á myndum, sem eru kennslustundir í þvi hvernig á að limlesta og drepa menn. Þessi 220 þúsund manna þjóð hefur fylli- lega fengið sinn skammt af glæpum að undan- förnu. Fyrirmyndirnar eru oft sóttar í kvik- myndir. Það er því engin fásinna að bregða þeirri hugmynd á loft að fækka kennslustundum í of- beldi. —AG Minningarord GUÐLAUGUR RÓSINKRANZ í rikisstjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar, sem sat aö völd- um á árunum 1947—49, var Eysteinn Jónsson menntamála- ráöherra. Hann skipaöi nefnd manna til þess aö semja frum- varp aö lögum um Þjóöleikhús- iö, sem þá var gert ráö fyrir, aö tæki til starfa innan skamms, svo sem einnig varð raun á. 1 nefndina voru skipaöir Guö- laugur Rósinkranz, Siguröur Bjarnason og sá, sem þessar linur ritar. Frumvarp okkar varö að lögum og reyndist Þjóö- leikhúsinu traustur starfs- grundvöllur viö stofnun þess. Eru þau reyndar i gildi enn, þótt endurskoöun þeirra sé nú löngu oröin timabær, svo sem eðlilegt er. Fyrstu kynni min af Guölaugi Rósinkranz voru samstarf okk- ar i þessari nefnd. Þar urðu mér þegar ljósir þeir kostir hans, sem ég átti eftir aö kynnast miklu nánar siöar: Dugnaöur, ósérhllfni, áhugi, hagsýni. Skömmu siöar var Guölaugur Rósinkranz skipaöur þjóð- leikhússtjóri. ÞaÖ var að öllu leyti skiljanlegt og eölilegt, aö veiting jafnmikilsvægs emb- ættis og þjóöleikhússtjóra- starfsins i fyrsta skipti yröi nokkurt ágreiningsefni. En reynsla sýndi fljótlega, aö val ráöherra var hyggilegt og skyn- samlegt. Einkum og sér i lagi á fyrstu árum listastofnunar eins og Þjóðleikhúss var þörf á hag- sýnum manni, góðum stjórn- anda. Vitaö var, aö I stétt islenzkra leikara, sem þá höföu starfað við einkaleikhús, flestir sem áhugamenn, voru margir frábærir listamenn, bæöi vel menntir og rikir að hæfileikúm. Engan kviðboga þurfti þvi aö bera fyrir listrænu gildi þess, sem hið nýja Þjóöleikhús gæti boöið landsmönnum. En fram- tiö stofnunarinnar gat veriö i hættu — og þar meö framtiö at- vinnuleiklistar i landinu — ef fjármálastjórnin misheppnaöist og verkstjórn væri ábótavant. En einmitt I þessum efnum kunni Guölaugur Rósinkranz sérstaklega vel til verka. Hann var hagsýnn maður, án þess þó aö vera smásmugulegur i meö- ferö fjár. Og hann var strangur verkstjóri, án þess aö beita ósanngjarnri kröfuhörku. Hann var jafnframtgóðviljaöur og til- litssamur i stjórnsemi sinni. Liklega eru fá störf erfiöari en stjórn stórra og mikilvægra listastofnana. Oft þarf aö ganga vandrataðan meöalveg milli eölilegra óska um aöstööu til sem beztra skilyrða til listiök- unar og óhjákvæmilegs aöhalds i fjármálum. Auðvitaö voru ákvaröanir Guölaugs Rósin- kranz i þeim efnum ekki ávallt öllum ánægjuefni, þegar þær voru teknar. En þegar frá leiö, varö yfirleitt ljóst, aö þjóöleik- hússtjórinn var gæddur sjald- gæfum hæfileika til þess aö varðveita skynsamlegt jafn- vægi I þessum efnum. Ekki má skilja þessi orö svo, að Guðlaugur Rósinkranz hafi eingöngu verið fjármálamaöur og verkstjóri. Hann haföi mik- ínn áhuga á leiklist og öölaöist smám saman mikla þekkingu og reynslu á þvi sviði. Og marg- oft sýndi hann það I verki, aö smekkur hans var góður og traustur. Þegar ég var kjörinn I þjóö- leikhúsráö nokkrum árum eftir aö leikhúsiö tók til starfa, kynntist ég ekki aðeins þjóö- leikhússtjóranum betur en áöur, heldur einnig manninum Guðlaugi Rósinkranz. Ég fékk miklar mætur á mannkostum hans, reglusemi, alúð og góövild i garö annarra manna. Ég minnist þess ekki, aö hann hafi nokkru sinni lagt illt orð til nokkurs manns. Þaö kunni ég vel aö meta. Þessi persónulegu kynni reyndust mikils viröi, þegar samstarf okkar varö enn nánara, er ég tók viö forstööu menntamálaráöuneytisins áriö 1956, en þaö samstarf hélzt öll þau ár, sem Guðlaugur Rósin- kranz átti eftir að gegna emb- ætti. A samvinnu okkar I öll þessi ár bar aldrei minnsta skugga. Ekki komst ég hjá þvi að þurfa oft aö synja tilmælum hans. Aldrei varð þaö til þess, að styggöaryröi félli. Sem betur fer gat ég oft oröiö viö óskum hans. Þá leyndi sér ekki, hversu innilega hann bar hag stofn- unarinnar fyrir brjósti og af hversu heilum hug hann vann aö velgengni hennar. Þaö var og er Þjóöleikhúsinu mikil gæfa, aö fyrsti forstööumaöur þess skuli hafa verið slikur maöur. Þaö er ein skýring þess, hvilikur þjóöarsómi Þjóöleikhúsiö og listastarf þess er. A langri starfsævi vann Guölaugur Rósinkranz aö mörgum öörum hugöarefnum en stjórn Þjóöleikhússins. Hér skal aðeins getiö starfs hans i þágu norrænnar samvinnu, en hann var um langt skeiö formaöur norræna félagsins og sænsk-islenzka félagsins. Hann haföi djúpan skilning á gildi norræns samstarfs fyrir Is- lenzkt menningarlif. A þessu sviði gætti einnig ótrúlegrar starfsorku hans og starfsgleöi. Islenzk leiklist stendur I þakkarskuld við Guölaug Rósin- kranz fyrir forystu hans fyrir Þjóðleikhúsið á mörgum fyrstu starfsárum hans. Oft léku hvassir vindar um störf hans og stöðu, eins og eölilegt er, þegar um mikilvæg störf og vandasöm verkefni er aö tefla. En dómur sögunnar verður áreiöanlega sá, að þegar á heildina er litiö hafi Guölaugi Rósinkranz auön- azt aö inna af hendi störf sin i þágu Þjóöleikhússins og islenzkrar leiklistar meö þeim hætti, aö stofnunin og þessi mikilvæga listgrein munu njóta þess um langan aldur. Svo vel tel ég mig hafa þekkt Guðlaug Rósinkranz, að betra hlutskipti hefði hann ekki getaö kosiö sér. GylfiÞ. Glslason.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.