Alþýðublaðið - 22.03.1978, Síða 3

Alþýðublaðið - 22.03.1978, Síða 3
Miðvikudagur 22. marz 1978. 3 Neytendasam tökin 25 ára Næstkomandi fimmtudag, 23. marz, eru iiðin 25 ár frá stofnun Neytendasamtakanna hér á landi. Þau Sveinn Asgeirsson hag- fræðingur, Jónína Guðmunds- dóttir og Jóhann Sæmundsson prófessor áttu forgöngu að þvi að undirbúningsnefnd að stofn- un samtakanna var komið á laggirnar. Var bráðabirgða- stjórn kosin 26. jan. 1953 og áttu sæti i henni Sveinn Ásgeirsson, Helga Sigurðardóttir skóla- stjóri, Eiríkur Asgeirsson for- stjóri, Páll S. Pálsson lögfr. og frú Margrét Jónsdóttir. Ney tendasamtökin voru formlega stofnuð þann 23. marz 1953 og var fyrsti formaður kjörinn Sveinn Asgeirsson, en alls skipuðu 25manns stjórnina. Neytendasamtökin geröust þegar i upphafi aðili að Alþjóða- sambandi neytendafélaga, International Organization of Consumers Unions, og eru sam- tökin háð lögum þess.. Samtök- in hafa gefið út Neytendablaðið, en útgáfa þess hefur gengið erfiölega þar sem félagar i söm- tökunum eru i rauninni alltof fá- ir til að standa undir kostnaði af reglulegri blaðaútgáfu og öðr- um rekstrargjöldum samtak- anna. Félagsmenn eru nú á þessum timamótum 3004, en þyrftu að vera um 10 þúsund talsins. Mjög umsvifamikill þáttur i 'starfi Neytendasamtakanna er kvörtunarþjónusta þeirra og að ýmsu leyti sá mikilvægasti. Berast skrifstofunni mörg mál til úrlausnar, mörg torleyst, en skrifstofan leitast við að miðla málum og ná sáttum svo að báð- ir aðilar megi vel við una. t mörgum tilvikum veita samtök- in lögfræðilega aðstoð ef þurfa þykir, og er trúnaöar-lögfræð- ingur I þjónustu þeirra. Flestar kvartanir berast vegna raf- magnstækja og vefnaðarvöru, en einnig vegna húsgagna, gólf- teppa og glerisetningar. A árinu 1977 bárust 403 kvartanir og 750 fyrirspurnir. A afmælisárinu og ef litið er til framtiðarinnar eru megin- verkefni Neytendasamtakanna þessi: Fjölgun féjagsmanna. Aukinn stuðningur hins opin- bera við lausn verkefna sam- takanna. Skipaðir verði fulltrú- ar samtakanna sem vlðast á landsbyggðinni, einkum i þétt- býli. Stofnaðar verði mats- nefndir og aukið samstarf inn- flytjenda og framleið- enda annars vegar og Neyt- endasamtakanna hins vegar og stofnaður neytendadómstóll svo sem tiðkast viða erlendis. Unnið verði merkvisst að neytenda- fræðslu i skólum. Menningar- og fræðslusamband alþýðu LANDSÝN-ALÞÝÐUORLOF AÐ FRÆÐAST OG FERÐAST Ferðaskrifstofa launþegasamtakanna Skólavörðustig 16 — Sími 28899 Kynnisferð til Júgóslaviu Menningar- og fræðslusamband alþýðu og Alþýðuorlof hafa f samvinnu við Feröaskrifstofuna Landsýn skipulagt sérstakar orlofs- og fræðsluferðir fyrir félagsmenn i stétt- arfélögum innan Alþýðusambands tslands, ætlaðar þeim sem hafa hug á að sameina orlof og fræðslu með þvi að kynnast löndum og þjóðum um leiö og þeir njóta hvildar og hressingar. Fyrsta ferðin til Júgósiaviu verður farin 17. >)ai 1978. Ferðin stendur yfir i 3 vikur. Dvalið verður i baðstrandar- bænum PORTOROZ — Blómahöfninni — á strönd Adrla- hafsins i 2 vikur, en einni viku verður varið til skoðunar- og fræðsluferðar um einhver fégurstu héruð Júgóslaviu. Auk þess að kynnast rómaðri náttúrufegurö og sögufrægu umhverfi.gefst þátttakendum kostur á þvi að heimsækja verksmiðjur og aðra vinnustaði, opinberar stofnanir og sveitarstjórnir og fræðast með viötölum og á annan hátt um lifskjör fólksins og kynnast stjórnarfari Júgóslaviu. Verð aðeins kr. 145.000.- Þessi einstæða ferð mun aðeins kosta kr. 145.000,- á mann fyrir þá sem eru félagsmenn i stéttarfélögum innan ASt eða i félögum sem aöild eiga að Alþýðuorlofi. Innifalið I þessu veröi er: Dagflug Keflavik/Ljubljana, fiutningur til og frá flugvelli i Júgóslaviu, gisting I 3 vikur, þ.e. 2 vikur á hótelunum Neptun/Apollo I Portoroz með frium aðgangi að einkabaðströnd hótelanna, morgun- mat/kvöldmat allan timann og — siöast en ekki sist — 7 daga skoðunarferð með Islenskri leiðsögn. Bókanir hjá Landsýn h.f„ Skólavörðustig 16, simi 28899, og þar eru veittar frekari upplýsingar. Akranes-Akranes Kjörskrá vegna sveitastjórnarkosninga 1978 liggur frammi til sýnis á bæjarskrif- stofunni Kirkjubraut 8, frá 28. mars til 25. april n.k. Bæjarstjóri CASITA fellihýsi í ór Nú er kominn tími til að tryggja sér Casita fellihýsi fyrir sumarið.Þaö muna allir eftir töfrakerr- unni á sýningunni Heimilið ’77sl. hausten þá heillaði hún alla.sem fengu hana augum litið, þegar hún var i essinu sinu. Væntanlegir kaupendur hafi sainband við okkur strax i dag. Munið að Casitaheillar alla með sinni frábæru, snilldarlegu, frönsku hugvitsemi. Þér eruð aðeins 30 sekúndur að reisa þak yfir höfuð fjöl- skyldu yðar með Casita: Casita heillar alla. Hallbjörn J. Hjartarson h.f. Skagaströnd, simi 95-4629. ÚTIER VETUR - HJfl OKKUR ER VOR Mynta Mnra ÓQ Ilcpla Smæra Við bjóðum BLÓMALÍNURNAR frá HAGA i nýjum og fjölbreyttari búningi. *"toelf&ðnnrétt- -"uisar HAGI Hf Glerárgötu 26 Akureyri sími 96 21507 Suðurlandsbraut 6 Reykjavik sími 91 84585

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.