Alþýðublaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 13
sasr Miðvikudagur 22. marz 1978.
Stjórn Landsvirkjunar gaf
fagran farandgrip til þessarar
keppni auk þess fengu sigurveg-
ararnir bikar til minningar um
atburöinn. Hver sveit var skip-
uð fjórum mönnum.
Keppnin fór fram aö Búrfelli
laugardaginn 19. marz og voru
menn ræstir i Reykjavik kl. 6.30.
,Farið var að hinu nýja húsnæði
Landsvirkjunar við Háaleitis-
braut 68, og þaöan var lagt af
stað meö hinum prýðilega,
skemmtilega og liflega bilstjóra
Gunnari Kragh, sem hjálpaði
dyggilega við að halda
„húmornum” uppi svo aldrei
varð dauöur punktur alla ferð-
ina i bilnum báðar leiðir.
Komiö var við i Hverageröi og
einn keppandi tekinn þar, siöan
stoppað á Selfossi, tekið benzin
og menn fengu aö létta á sér, en
Gunnar ók siðan upp aö trafossi
og náði i tvo keppendur þar, sið-
an aftur niður á þjóöveginn og
nú beint til Búrfells. Þar var
konunglega tekið á móti kepp-
endum og þeim sem fylgdu meö
af Eliasi Ivarssyni og hans liöi
og einnig Elinu Jónsdóttur sem
var matráðskona þennan dag,
hreinn snillingur i matargerö og
uppsetningu á kaffiboröinu.
Nú hófst keppnin, timamörk
voru 40 min. á mann og bar að
ljúka skákinni á þeim tíma.
Ein umferð fór fram fyrir há-
degi, en tvær eftir hádegi. Fjór-
ar sveitir tóku þátt i keppninni
og urðu úrslit sem hér segir:
Háaleitisbr. 68 (skrifst.) 8
vinninga
Spennistöð Reykjavikur 7,5
vinninga
Búrfellsvirkjun 6vinninga
Sogsvirkjun 2,5vinninga
Skák
Sigursveitina skipa: Arni
Björn Jónasson, Elias B. Elias-
son, Stefan Halldórsson og
Magnús Guðlaugsson.
Aðrir keppendur voru:
Spennistöðvar Reykjavikur:
Asgeir Sigtryggsson, Bjarni As-
mundsson, Sigurþór Hjartarson
og Sævar Magnússon.
Búrfell: Hallur Kristjánsson,
Elias tvarsson, Jón Askelsson
og Pétur Kristjánsson.
Sogsvirkjun: Trausti Finns-
son, Jóhannes Jónsson, Öli H.
Sveinsson og Sigurður Jónsson.
I * I
' XXIi XX f
xtéxt X*
X ihs
- & Afi
&& &
* aMaa *
'S Sö j
abcdefoh
Hvltur á leik i þessari stöðu og
var það Pétur Kristjánsson,
Búrfelli, en svörtu mönnunum
stýrði til sigurs Sævar Magnús-
son, Spennistöðvum Rvikur. 1.
b5 Bxh3, 2. bxc6 Dg4, 3. g3 Rxg3,
4. Rh2 Rxe2+, 5. Khl Dg2 og
mát.
Sigursveitin taliö frá vinstri: Arni Björn Jónasson, Magnús Guö-
laugsson, Elias B. Eliasson og Stefán Halldórsson.
Ljósm. Agnar Ólsen
Einnig var eftirminnileg ferð-
in til baka, þá var ekið aftur upp
aö trafossvirkjun með keppend-
urna tvo, sem þaðan voru. Bær-
inn Tannastaðir var á leiðinni,
en þar mun mestur hluti kvik-
myndarinnar „Siðasti bærinn i
dalnum” hafa verið tekinn,
einnig var ekið framhjá sér-
kennilega staðsettum sumarbú-
stað sem einn fangavarðanna á
Litla-Hrauni mun eiga. Ferða-
langar komu viö i Hverageröi og
kvöddu þar einn keppandann
og sumir notuðu tækifæriö og
keyptu blóm, en sumum fannst
veröið sistlægra en i Reykjavik.
Siðan þaut Gunnar Kragh á
bláu þotunni til Rvikur og
skemmtilegum keppnis- og
ferðadegi var lokið.
Gagnfræðaskólinn i
Mosfellssveit. Meist-
aramót.
Sigurvegari varö Atli Steinarr
Atlason meö 7 v. af 7 möguleg-
um. 2. Kristján Kárason 6v. 3.
Helgi Pálsson 4 v. 4-6. Ingi Már
Gunnarsson, Daöi Hrólfsson og
Július Hreinsson. 7. Sigurjón
Kristinsson 8. Asgeir Júliusson.
Veitingar annaðist Guöný
Hallgrimsdóttir.
Svavar Guöni Svavarsson.
Fulltrúastarf
Staða fulltrúa á innritunardeild er laus til
umsóknar, menntun og starfsreynsla á
félags- eða uppeldissviði æskileg.
Umsóknarfrestur er til 10. april, umsóknir
skilist til skrifstofu Dagvistunar, Forn-
haga 8, en þar eru veittar nánari upplýs-
ingar.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SÍMI 27277
Billmn
fyrir island
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik
óskar eftir tilboðum i raflögn i 18 fjölbýlis-
hús 216 ibúðir i Hólahverfi. tJtboðsgögn
verða afhent á skrifstofu V.B. Mávahlið 4,
Reykjavik gegn 20.000.- kr. skilatrygg-
ingu. Tilboðsfrestur til 11. april n.k.
Útboð — Raflagnir
Peugeot hefur orðið sigurvegari í erfiðustu þolaksturskeppnum
veraldar oftar en nokkur önnur gerð bíla. Þetta sýnir betur en
nokkuð annað, að Peugeot er bíllinn fyrir íslenzka staðhætti.
Sveitarkeppni
Landsvirkjunar
UMBOÐIÐ Á AKUREYRI
HAFRAFELL HF. VÍKINGUR SF.
VAGNHÖFÐA 7 FURUVÖLLUM 11
SÍMI: 8 5211 SÍMI: 21670
Kúpangskaupstaður
Skólafulltrúi
Staða skólafulltrúa i Kópavogi er hér með
auglýst til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 1. mai 1978. Um-
sóknarfrestur er til 15. april 1978. Um-
sóknum skal skila á sérstökum eyðublöð-
um til undirritaðs,sem einnig veitir nánari
upplýsingar.
Bæjarritarinn i Kópavogi.
M