Alþýðublaðið - 26.01.1980, Side 1

Alþýðublaðið - 26.01.1980, Side 1
alþýðu blaöið =rn íí Laugardagur 26. jan. 1980—tbl.61. árg Frá Austurvelli til Bessastaða IVI e6 þvi aö hafna þátttöku i stjórnarmyndunarviðræöum undir forystu Benedikts Gröndals, hafa Framsóknarmenn bætt nýjum kapitula i þá kynlegu framhaldssögu, sem þessar stjórnarmyndunarviöræöur eru orBnar. Þessar viöræöur eru nú hættar að snúast um málefni. Af hálfu Framsóknarflokksins snýst tafliö nú aðeins um eitt. For- sætisráöherrastólinn. Formaöur Framsóknarflokksins viröist ekki vera til viö- ræðu viö aöra flokka nema tryggt sé fyrirfram, aö hann setjist sjálfur i stól forsætisráöherra. En i ljósi viöburöa seinustu vikna, gætir þó vaxandi efasemda, lika innan Framsóknarflokksins sjálfs, um aö formaöurinn hafi til að bera þá pólitisku dómgreind, sem embættið krefst. Hof- móöur Framsóknarmanna er nú orðinn slikur, að efamál er að hann rúmist innan rikjandi flokkakerfis. Meö skömmu millibili-er formaöur Framsóknarflokksins búinn aö hafna stjórnarsamstarfi við Sjálfstæöisflokkinn, Alþýöubanda- lagiðog núsiöast, Alþýðuflokkinn. Eins oger,er ekki annað sýnna en aö Steingrimur Hermannsson hafi gert þessa stjórnarkreppu óleysanlega, nema aö tilkomu utanþings- stjórnar . Rökrétt samhengi i framferði Framsóknarmanna er vandfundið. Þaö er alger nýlunda i þessum stjórnar- myndunarviðræðum, að einn flokkanna neiti fyrirfram að ræða málin. Þrátt fyrir yfirlýsingar fyrirfram um mál- efnaágreining við Sjálfstæðisflokk, og siðan Alþýðubanda- lag, var Framsóknarflokkurinn i báðum tilvikum reiðu- búinn til viðræðna. Nú virðist annað vaka fyrir honum. Litum nánar á samhengið i afstöðu Framsóknarflokks- ins. Framsóknarmenn lýstu þá ákvörðun Alþýðuflokksins, að rifta fyrrverandi stjórnarsamstarfi, ástæðulausa og óábyrga. Þeir lýstu málefnaágreiningi samstarfsflokkanna sem óverulegum og auðleysanlegum. 1 kosningabaráttunni lýstu Framsóknarmenn fjálglega sáttasemjarahlutverki sinu og lýstu þvi yfir, að þeir stefndu aftur að vinstri stjórn. Jafnframt lofaði Steingrimur Strandamönnum þvi, að hann gengi ekki til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. En hann var fram borinn á fölskum forsendum og gegn betri vitund. Þessi áróður bar góöan árangur i atkvæða- veiðum fyrir kosningar. Eða hvers vegna er það, fyrst ágreiningur Framsóknar og Alþýðubandalagsins var svo óverulegur, sem Steingrimur vildi vera láta, að honum tókst ekki á hálfum mánuöi að jafna miskliðina við Alþýðu- bandalagið? Eða hvernig stendur á þvi, loks þegar Alþýðu- bandalagið lagði fram sin úrræði, eftir hálfs annars árs bið, að það tók Framsóknarmenn ekki nema tvo daga að komast að niðurstööum um það, að stjórnarsamstarf viö AB væri útilokað? Eftir að Alþýðuflokkurinn hafði lagt fram efna- hagstillögur sinar i stjórnarmyndunarviðræðum undir forystu Steingrims, lýsti Steingrimur þvi yfir aö þær „væru sér miklu nær skapi” en tillögur Alþýðubandalagsins. t kosningabaráttunni viðurkenndu framsóknarmenn, að til- tölulega litið bæri i milli þessara tveggja flokka, að þvi er varðaðistefnuiefnahagsmálum. Þær tillögur semBenedikt Gröndal hefur nú lagt fram, sem umræðugrundvöll milli flokkanna, byggjast að s jálfsögðu á stefnu Alþýöuflokksins, að þvi viðbættu, að þar er aö finna jákvæöar undirtektir við ýmsum hugmyndum annarra flokka. Hvers vegna breg&ur þá.allt i einu svo við, að framsóknarmenn eru ekki einu sinni reiðubúnir að ræða málin, heldur hafna þvi fyrirfram? Það er ekki málefnalegafstaða. Þar býr annaðaðbaki. Auðvitað er ágreiningur milli þessara tveggja flokka i þýðingarmiklum málum. Þar ber hæst stefnuna i land- búnaðarmálum og hina sjálfvirku fyrirgreiðslupólitík, sem er samnjörvuð hagsmunum Framsóknarflokksins. En þetta er ekki nýtt. Það er hins vegar nýtt, að Framsóknar- flokkurinn sé ekki til viðtals við aðra flokka um þessi sér- hagsmuna mál sin. Þá er vandséð, með hverjum yfirleitt þeir geta hugsaö sér að starfa. A göngum Alþingis stinga ráðvilltir menn nú saman nefjum, um „öfuga Stefaniu” — rikisstjórn allra flokka nema Alþýðuflokksins. Það er guð-velkomiö að leyfa mönn- um að reyna það. Þaökynni þó að vefjast fyrir forystu Sjálf- stæðisflokksins, i ljósi siðustu viðburða i alþjóða málum. Liklegast er þó, að formanni Framsóknarflokksins hafi nú endanlega tekizt að loka öllum útgönguleiðum úr þessari stjórnarkreppu — öðrum en utanþingsstjórn. Það er óglæsileg byrjun á formannsferli, að ný afstöðnum kosningasigri. Það er vissulega áfellisdómur yfir þeirri pólitisku forystu, sem þjóðin hefur kjöriö sér. En úr þvi sem komið er, er utanþingsstjórn ef til vill eini raunhæfi kosturinn. Þá skiptir mestu máli, að vel takist til um skipan hennar. Fyrirfram er ástæðulaust að ætla, aö slik stjórn yrði svo veik og vanmáttug, að hún geti ekki komið fram nauðsynlegum umbótum. Ef Aiþingi kýs að dæma sig úr leik, verður forseti íslands að taka i taumana, skv. þvi valdi, sem stjórnarskráin lér honum. Það er stutt leið til Bessastaða. Tillögur Alþýduflokksins um málefnasamning ríkisstjórnar Sjá bls. 4-5 Benedikt Gröndal á bladamannafundi: Framsókn hafnar viðraedum fyrirfram „Utanþingsstjórn í dyragættinni” . Benedikt Gröndal kynnir tillögur Alþýöuflokks ins Benedikt Gröndal forsætis- ráðherra upplýsti á blaða- mannafundi, sem haldinn var I Stjónar r áðs hús inu, að bæði Fr a ms óknar flokkur inn og Alþýðubandalag hefðu hafnað um r æðugr undvelli Alþýðu- flokksins, án frekari skýringa. Það kom fram á fundinum með Benedikt, að Alþýðuflokkurinn heföi lagt fram umræðugrund- völl, gerandi ráð fyrir, að ein- stök atriði grundvallarins mætti semja um, einsog eðlilegt yrði að teljast, þegar um samstjórn nokkurra flokka væri að ræða. Hann tók fram, aö sérstaklega hefði verið á þetta bent, þegar hinum flokkunum heföi verið af- hentar tillögurnar. Hann sagði ennfremur, að Alþýðuflokkurinn hefði viljað draga fleiri atriöi inn i viöræðurnar en efnahagsmál eingöngu. En að sjálfsögðu yrðu þau mál að hafa algeran forgang fyrst i stað. Tillögurnar einkenn- ast lika af þvi, að þær eru lagðar fram sem umræöugrundvöllur til myndunar rikisstjórnar fjögurra flokka, enda bauð Bene- dikt Gröndal formönnum allra flokkanna til viðræðnanna. Lúövík afneitaði þrisvar Eins og fram kemur i fyrir- sögn hafnaði Lúðvik Jósepsson tillögunum alfarið. Lúðvik mætti einsamall á fund Benedikts Gröndals, neitaði tillögunum án þess að lesa þær eða ræða þær efnislega við nokkurn mann. Benedikt kvaðst hafa boðið Lúövik upp á fjögurra flokka stjórn, en hann hefði kveöið nei við, Þá heföi Benedikt viörað hugmyndir um nýsköpunar- stjórn Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Sjálfstæðisflokks, en Lúövik heföi aftur neitað að taka þátt i slikristjórn. Um þetta sagði Benedikt Gröndal orðrétt: „Alþýðubandalagið virðist þar með vilja draga sig út úr islenskri pólitik i miðri stjórnarkreppu.” Fulltrúar Framsóknarflokks- ins, þeir Tómas Arnason og Steingrímur Hermannsson, höfnuðu umræöugrundvelli Alþýðuflokksins án frekari skýringa, en buðust i staðinn til þess að leggja fram sinar tillög- ur til viðræöna um stjórnar- myndun. Sjálfstæðisflokkurinn hafði þegar fundurinn var haldinn enn ekki látið frá sér heyra en mun hafa fjallað um máliö á sama tima og Benedikt hélt fundi með blaðamönnum. Framhald á bls. 6 fslandsdeild Amnesty International: Skora á stjórn Sovétrikjanna ad endurskoda afstödu sína til Sakharovs tslandsdeild Amnesty Inter- national afhenti á fimmtudag Mikhail Streltsov eftirfarandi bréf, vegna handtöku sovéska andófsm annsins og vfsinda- mannsins Andrei Sakharoff. Sendiráð Sovétrikjanna Herra Ambassador Mikhail Streltsov Garðastræti 33 Reykjavik. Reykjavík, 24. janúar 1980 Islandsdeild Amnesty International harmar þá frelsis- sviptingu, sem sovésk yfirvöld hafa beitt hinn viðkunna baráttumann mannréttinda, Andrei Sakharov og konu hans, meðþviaðflytjaþaunauðug frá Moskvu til útlegðar í borginni Gorky. Islandsdeild Amnesty International vekur jafnframt á þvi athygli, að i fréttatilkynn- ingu frá aðalstöðvum alþjóöa- samtakanna i London, sem birt var 15. þessa mánaðar, var frá þviskýrt, að svo virtist sem yfir stæði viðtæk herferð gegn andófsmönnum i Sovét- rikjunum. Hefðu meira en fjörtiu þeirra verið handteknir þar á siðustu þremur mánuðum fyrir að reyna með friðsamlegu móti að færa sér viðurkennd mannréttini i nyt. A sama tima hafa talsmenn aukinna mann- réttinda hlotið þunga fangelsis- dóma og vitað erum a.m.k. tvo, sem lagðir hafa verið i sérstök geðsjúkrahús. hYá þvi i október s.l. er samtökin Amnestv International birtu opið bréf til Leonids Brezhnevs, forseta Sovét- rikjanna, hefur handtökum og fangelsunum fremur fjölgað en fækkað. Að visu hefur ein- hverjum föngum verið veitt uppgjöf saka i tilefni alþjóðlega barnaársins, en ekki er vitað til þess að neinir pólitiskir fangar hafi verið meðal þeirra, sem nutu góðs þar af. Stjórn íslandsdeildar skorará stjórn Sovétrikjanna að endur- skoða afstöðusina til mannrétt- indamála. Með virðingu, Margrét R. Bjarnason, form. tslandsdeildar Amnesty International. Nýtt f iskverd ákvedið Á fundi yfirnefndar Verðlags- ráðs Sjávarútvegsins á fimmtu- dagskvöld náðist samkomulag um nýtt fiskverö, er gildir frá áramótum. Samkomulagið felur isér hækkun á skiptaverði helztu botnfisktegunda, sem nemur að meðaltali 11%. Verö á þorski hækkar um 11%, á ýsu og keilu um 16%, ufsa og löngu um 10%, steinbiti um 13%, karfa um 7% og grálúðu um 4%, en jafnframt var ákveðið að greiöa skuli linuupp- bót á grálúðu og að greidd skuli 25% verðuppbót úr nýstofnaðri deild við aflatryggingarsjóð á karfa og ufsa á árinu 1980, þó ekki ufsa veiddan I mánuöunum marz, apríl og mái. Meðal mikilvægustu ior- sendna þessa samkomulags eru þrenn lög, sem samþykkt voru á Alþingi i dag: 1. Lög um timabundið oliugjald • til fiskiskipa, þar sem gjald þetta er lækkað úr 9% i 5%. 2. Lög um breytingu á lögum um útflutningsgjald af sjávaraf- urðum og um ráðstöfun tekna af þvi. 3. Lög um breytingu á lögum um Aflatryggingasjóð sjávarút- vegsins, þar sem m.a. er stofnuð sérstök verðjöfnunar- deild við sjóðinn, sem 'm.a. skal standa undir verðupp- bótum á fisktegundir eins og ufsa og karfa. Þegar tillit hefur verið tekið til áhrifa þessarar lagasetningar, má lýsa niðurstöðu fiskverðs- samninganna að þessu sinni á eftirfarandi hátt. 1. Skiptaverð til sjómanna hækk- ar um 11%. 2. Hlutur útgeröar i fiskveröi hækkar um 5,5%. 3. Hráefniskostnaöur fiskvinnsl- unnar hækkar um 7,3%. Verðið gildir til 31. mai 1980 en er uppsegjanlegt með viku fyrir- vara frá og meö 1. marz. Verðið var samþykkt sam- hljóða. t yfirnefndinni áttu sæti: Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, sem var oddamaður nefndarinnar, Arni Benedikts- son og Eyjólfur Martinsson af hálfu kaupenda og Ingólfur Ingólfsson og Kristján Ragnars- son af hálfu seljenda. Reykjavik, 24. janúar 1980. Verðlagsr áö s jávarútvegsins. —JBH

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.