Vísir - 04.01.1969, Síða 5

Vísir - 04.01.1969, Síða 5
VíSIR . Laugardagur 4. janúar 1969. iiffiri 5 K3 ■Listir -Bækur -Menningarmál- Þráinn Bertelsson skrifar bókmenntagagnrýni: ... 3 punktar og þankastrik Gunnar Dal: ORÐSTÍR OG AUÐUR. Skáld- saga, 263 blaðsíður. — Útgefandi: Skarð h.f. — Verð kr. 357,75. Það er indælt stríö, sem geisar milli rithöfunda og gagn- rýnenda. Þeir fyrrnefndu draga upp ógeðslega mynd af hinum síðamefndu í bókum sínum og fá síöan goldinn rauðan belg fyrir gráan, þegar til kasta gagnrýnandans kemur, að kynna ritverkið og höfund þess fyrir hinum ahnenna lesanda, sem ekki er innvígður í þennan smá- skítlega nábúakryt, en hann get- ur oröið talsvert leiðigjam til lengdar. Eiginlega átti maður ekki von á því, að Gunnar Dal mundi al- gerlega feta troönar slóðir á ritvellinum í skáldsögu sinni „Orðstír og auöur“, sem kom út fyrir jólin. Gunnar Dal er löngu landskunnur af ritstörfum sín- um og fyrirlestrahaldi, og þótti ekki óliklegt, að kveða mundi við nýjan tón í fyrstu skáld- sögu hans. En þá hefur helzti mikils verið vænzt. „Orösfcír og auður“ er „nú- tímasagaúrborgarlífinu“. Aðal- persónumar eru: hinn sígildi góði ungi rithöfundur (vonar- neisti í spilltri og formyrkvaöri veröld); menningarsnauðir millj- ónamæringar og stórbissniss- menn, sem brúka kjarvalsmál- verk til að hylja peningaskápa í veggjum og FLOKKINN OG FORSÆTISRÁÐHERRANN sér og sínum til framdráttar; góða unga stúlkan (þótt hún eigi ríka foreldra), sem hefur verið hlunnfarin í ástum, en finnur nú sæluna hjá góða, unga rit- höfundinum; ráðherrasonurinn, pabbadrengur á stórum bíl, rot- inn og spilltur; og síðast en ekki sízt ber að nefna vonda pólinn í sögunni, gagnrýnand- ann, sem helzt vill, að í skáld- sögum sé hver blaösíöa klippt sundur að endilöngu og síðan límd saman af handahófi. (Gagnrýnandinn er að sjálfsögðu fullur af hatri til alls og allra og ber dauðann í sér). Eins og vænta má gengur höf- undinum erfiðlega að gæða þessar persónur lífi. Þær verða aðeins táknmyndir, dauðar leik- brúður, sem hann með ærinni fyrirhöfn dröslar milli blað- síðna, og talar síöan út um þeirra munn — og á þá engum að dyljast, hvar hugur og hjarta höfundar fylgir máli. Svolítill söguþráöur er notað- ur til að tengja saman hin inn- blásnu samtöl og gefa þeim bak- sviö; Hinn ungi upprennandi rithöfundur kemur til Reykja- víkur til skammrar dvalar á flótta undan einverunni. Hann lendir á Loftleiðahótelinu og Gunnar Dal. fyrsti maður,. sem hann hittir þar, er viðbjóðsmennið og gagn- rýnandinn Ólafur Hreinn Andrésson (eitthvað gætj hann verið kunnugur Ólafi Jónssyni, Eiríki Hreini og Andrési Krist- jánssyni), magister í kínversku og kínverskum bókmenntum, sem aftur kynnir hann fyrir þeim persónum, sem eiga eftir aö koma við sögu. Ungi rithöfundurinn heitir Stefán (Engilhreinn hefði líka verið 'gott nafn á hann) og á Loftleiöum hittir hann drauma- dísina Mónu Alexandersdóttur milljónamærings Ormssonar. Ástir takast, og haldið er í partí heim til Alexanders, þar sem gagnrýnandaskömmin ginnir gamla vinkonu sína, Aldísi Evu, mágkonu húsráöanda, til fylgi- lags viö sig, meðan eiginmaður- inn, Þorvaldur Ormsson, hellir í sig viskíblöndum frammi í stofu. Þorvaldur er þó seigur og kemur á vettvang og lúber Ólaf Hrein, sem hunzkast burt og skilur Aldfsi Evu eftir í nauð- um. Eftir þessa lýsingu á sam- förum, barsmíð og drykkjuskap er kominn skriður á söguna. Stefán fer heim til pabba síns, gamals skólastjóra og landvamamanns. Þeir eiga upp- byggilegar samræður. (Klókt að nota þær til aö sýna bilið milli eldri og yngri kynslóöarinnar). Stefán lýkur við skáldsöguna sína og Móna kemur í heim- sókn. Þau synda í sjónum, Stef- án klífur drang einn mikinn (vinsælt karlmennskutákn), og þau Móna gera hitt í sumar- húsinu. I millitíðinni er svínabestið og ráöherrasonurinn, Alfgeir Erlendsson, búinn að vera fullur og dópaöur á bíl (hvítum jagú- ar) og keyra niður mann í Hafn- arfirði (á rúml. 160 km hraða) og hefur ofan í kaupið stungið af lögregluna og gert tilraun til að nauðga Mónu, (sem eitt sinn hélt, að hann elskaði sig). Stefán og Móna fara í bæinn og Stefán fær vinnu hjá til- vonandi tengdapápa, þótt ekki vilji hann ganga í FLOKKINN. I millitíðinni hefur Ólafur Hreinn samt ekki slegið slöku við illvirkin. Hann hefur komið aldraðri leikkonu, Anítu Berg (sic!), til að fremja sjálfsmorð á viskíi og svefntöflum, en leik- kona þessi hafði löngum omað honum í bólinu og þegið skikk- anlega krítík í ómakslaun. Stefán sýnir gagnrýnandan- um skáldsöguhandrit sitt og Ólafur Hreinn (sem er upptek- inn, þegar Stefán kemur, við að ræða hæfileikaleysi Shake- speares), bendir Stefáni á að klippa blaðsíðurnar sundur og líma þær síðan saman af handa- hófi. Stefán verður daufur í dálkinn og brennir handritiö. Alfgeir Erlendsson, sem er ennþá á því, kemur nú heim til Mónu vopnaður skammbyssu og særir hana. Hún nær sér, og nú getur pabbi ekki lengur verndað strákinn Tuma, og Alfgeir er settur í svartholið og út úr sög- unni. Móna og Stefán fara nú i smáferðalag upp í Borgarfjörð í septembersól, drukkin af ást og fögnuði, þar sem þau aka í sólskininu fyrir Hvalfjörð. í þessari reisu gerist í dulitlu dragi dulítið upp á tvær og hálfa blaðsíðu. Síðan dregur að leikslokum. Eldfjalli einu fyrir ofan helzta snobbhverfi Reykjavíkur, verö- ur skyndilega óglatt og þaö tekur að spúa eldi og eimyrju yfir hina syndum spilltu borg. Þetta gerist klukkan korter fyr- ir tíu á sunnudagsmorgni, og Stefán og Móna horfa á hamfar- irnar í sjónvarpinu og fylgjast síðan meö erindi forsætisráð- herra, sem snarráðir sjónvarps- menn hafa fengið á vettvang. Snobbhverfið fer í kaf, og Alexander Mónupabbi deyr þar 10 síða HUSNÆÐISMALASTOFNUN RlKISINS MíJní^nw^m Húsnæðismálastofnun ríkisins vill hér með benda væntanlegum umsækjendum um íbúðarlán á neðan- greind atriði: 1. Einstaklingar og sveitarfélög, sem hyggjast hefja byggingu íbúða á árinu 1969 svo og einstaklingar, sem ætla að festa kaup á íbúðum, og sem komia vilja til greina við veitingu lánsloforða húsnæðis- málastjómar árið 1969, sbr. 7. gr. A laga um Hús- næðismálastofnun ríkisins, skulu senda umsókn- ir sínar, ásamt tilskildum gögnum og vottorðum, til Húsnæðismálastofnunar ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík eigi síðar en 15. marz 1969. Umsóknir, sem síðar kunna að berast, verða ekki teknar til greina við veitingu lánsloforða á árinu 1969. Láns- loforð, sem veitt kunna að verða vegna umsókna, er bárust eða berast á tímabilinu 16. 3. 1968 til og með 15. 3. 1969, koma til greiðslu árið 1970. 2. Umsækjendum skal bent á, að samkvæmt 2. gr. reglugerðar um lánveitingar húsnæðismálastjómar ber þeim að sækja um lán til stofnunarinnar áður en bygging hefst eða kaup á nýrri íbúð eru gerð. 3. Þeir, sem þegar eiga óafgreiddar umsóknir hjá Húsnæðismálastofnuninni, þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar. 4. Framkvæmdaaðilar í byggingariðnaðinum er hyggjast sækja um undanþágu um komutíma um- sókna, sem berast eftir ofangreindan skiladag, 15. marz, vegna íbúða, er þeir hafa í smíðum, skulu senda Húsnæðismálastofnuninni skriflegar beiðnir þar að lútandi eigi síðar en 15. marz nk. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS LAUGAVEGI77, SI'MI 22453 Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Framboðsfundur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat- kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar- mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur. Listum eða tillögum skal skilað í skrifstofu V. R. eigi síðar en kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 7. janúar nk. Kjörstjómin. Við ryðverjuni uiSur tegundir bifreiðu — F3AT-verkstæðið Látið okkur gufuþvo mótor bifreiðarinnar! Látið okkur gufubotnþvo bifreiðina! Látið okkur botnryðverja bifreiðina! Látið okkur alryðverja bifreiðina! Við ryðverjum með því efni sem þér sjálfir óskið Hringið og spyrjið hvað það kostar, áður en þér ákveðið yður. FIAT-umboðið Laugavegi 178. Sími 3-12-40. GÓLFTEPPALAGNfR GÓLFTEPPAHREINSUN HÚSGAGNAHREINSUN Söluumboð fyrir: VEFARANN rEPPAHREINSUNIN 80LH0LTI 6 Slmar: 35607 - 41235 - 34005 ■Æsiíssaa

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.