Vísir - 08.02.1969, Síða 11

Vísir - 08.02.1969, Síða 11
V1SIR . LaugArdagur 8. febrúar 1969. 11 m EH □ BORGIN i ctOLÆJ ijTfmnTp] STEINKISTA PALS BISKOPS Tvær myndir eftir Ósvald Knud sen verða sýndar í dagskrá sjonvarpsins í kvöld kl. 20.25. Fyrri myndin er Skálholts- kvikmynd og sýnir m.a., þegar steinkista Páls biskups var grafin upp. Þá er einnig sýnt hátíðar- haldið í Skálholti í tilefni 900 ára afmælis Skálholtskirkju, og þegar hornsteinn var lagöur að nýju kirkj'unni. Síðari kvikmyndin fjallar um séra Friðrik Friðriksson og starf hans í K.F.U.M. Ósvaldur tók þá kvikmvnd á árunum 1954 — 1955 nokkru áður en séra Friðrik varð blindur. Myndatakan er víða að, m.a. frá sumarbústöðum K.F.U.M. £ Kambárseli og í Svínadal. Þulur er dr. Kristján Eldjárn. Ósvaldur Knudsen hefur gert upp undir 30 kvikmyndir. Síðasta verkefni hans var að ganga frá kvikmynd um Pál ísólfsson, tón- skáld en þá mynd hefur hann verið að taka annað slagiö á und anförnum tíu árum. MARIA I BALLETT- SKÚLANÖM Sjónvarp sunnudag. Á morgun kl. 18.15 verður sýnd kvikmynd í „Stundinni okkar“, sem sjónvarpið lét gera, um nám ungrar stúlku Maríu Gísladóttur, við Listdansskóla Þjóðleikhússins. María er 15 ára gömul og auk ballettsins er hún í Gagnfræða- skóla Garðahrepps. Hún hefur ver ið í ballett í fjögur ár, og ef ekk- ert bregzt, eins og hún segir, heldur hún til Englands eftir gagn fræðapróf til framhaldsnáms í ballett. — Kvikmyndin gengur út á þaö, segir María, aö þaö er lítil stelpa, sem fer í fyrsta sinn í ballettskólann. Síðan er sýnt þeg ar hún er í fyrsta, öðrum, þriöja og fjórða bekk. Hvernig sporin breytast og hvernig þetta þróast. Litlu stelpuna leikur Helga Bem- höft, en eftir að hún hefur verið sýnd á fyrsta ári tek ég við. Það er strangur vinnudagur hjá þeim, sem leggja fyrir sig ballett nám auk annars náms því mæta þarf £ skólanum tvisvar á dag alla daga nema um helgar en þá notar Mar£a tímann til að slappa af. PIERRE OG JEAN Utvarpsleikritið kl. 20.20 £ kvöld heitir Pierre og Jean, og það eru engir smákarlar, sem að þvi standa, sagði Þorsteinn Ö. Stephensen leiklistarstjóri út- varpsins i viðtali um laugardags- leikritið. Það er unnið upp úr sögu eftir Maupassant af öðrum merkum manni, sem heitir Arthur Adam ov, franskt leikritaskáld. Eins og kunnugt er samdi Maupassant ó- sköpin öll af smásögum, einnig lengri sögur og þetta leikrit er unnið upp úr einni þeirra, en hún er talin vera hans bezta og merk asta skáldsaga. Að sumu leyti vegna þess, að hann skrifaði merkilegan formála að þessari sögu, £ honum talar hann um af stöðu sfna til smásögunnar og skáldsögunnar og bókmenntanna yfirleitt og það sem hann hefur lært af samtiðarmanni sinum Flaubert. Sagan fjallar um vissar kring- umstæðu-, sem hljótast af ást- inni, í þessu tilfelli £ fjölskyldu tveggja bræðra, Pierre og Jean. í hlutverkum þeirra eru Þor- steinn Gunnarsson og Borgar Garðarsson en -foreldra þeirra leika Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Þorsteinn Ö. Stephensen Leik- stjóri er Gísli Halldórsson. FORELDRAR MINIR Annað kvöld kl. 20.10 flytur Þórunn Elfa Magnúsdóttir fyrsta minningarþátt sinn f útvarpið, og nefnist hann Foreldrar minir. — Þetta er frásögn af foreldr- um minum, kynningu þeirra, og búskaparbyrjun í Revkjavfk, við fábreytt og erfið lifskjör, á þeim árum, þegar Reykjavik var að taka fyrstu skrefin i áttina til þess að veröa höfuðborg. Jafn- framt er þetta tímabilslýsing, og drepið á hvaða stærri mannvirkj- um var komið upp á þessum tfm- um og faöir minn vann aö eip- hverju leyti við. Birzt hefur 21 bók eftir Þór- unni Elfu Magnúsdóttur, sú síð- asta var Kóngur vill sigla, sem kom út í vetur. Auk þess hefur Þórunn Elfa flutt mikið magn af efni í útvarp og \ýmislegt efni hefur birzt eftir hana í ýmsum blöðum og tímaritum, — Á döfinni eru ýmiss konar verkefni, segir Þórunn Elfa, en á seinni mánuðum hef ég unnið að minningaþáttunum. OTVARP SJÚNVARP Laugardagur 8. febrúar. 16.30 Endurtekið 'efni. Réttur settur. Þátturinn er saminn og fluttur af laganemum við Háskóla íslands. Húsbyggjandi fer fram á að iðnaðarmaður vlnni tiitekið verk innan ákveðins tíma, en síð ar ris ágreiningur með þeim um greiðslu fyrir verkið. Réttað er og dæmt f málinu. Áður sýnt 20. aprfi 1968. 17.55 Skyndihjálp. — 18.05 íþróttir. Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 íslenzkar kvikmyndir (6s- valdur Knudsen): Ská'holt: Upp- gröftur og rannsókn hins gamla kirkjugrunns i Skalholtl. Einnig eru svipmyndir frá 900 ára hátíð Skálholts 1956. Þulur: Dr. Kristj- án Eidjám. - Séra Friðrik Frið- riksson og starf hans f K.F.U.M. Þulur: Dr. Kristján Eldjám. — 20.55 Grín úr gömlum myndum. Bob Monkhouse kynnir. Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir. 21.20 Smith fer til Washington. Bandarísk kvikmynd. Höfundur og leikstjóri: Frank Capra. Aðalhiutverk: Jam- es Stewart, Jean Arthur, Claude Raines, Edward Amold og Thom- as Mitchell. Þýðandi: Júlíus Magn ús^on. 23.25 Dagskrárlok. MESSUR Laugardagur 8. febrúar. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Oska- lög sjúklinga. Kristín Sveinbjöms dóttir kynnir. 14.30 Ung kynslóð Gunnar Svavarsson og Ingimund- ur Sigurpálsson sjá um þáttinn. 15.00 Fréttir. — Tónleikar. — 15.20 Um litla stund. Jónas Jón- asson ræðir í sjötta sinn við Áma Óla ritstjóra, sem heldur áfram að segja sögu Laugarness. 15.50 Harnjonikuspil. 16.15 Yeðurfregn- ir. Á nótum aeskunnar. Dóra Ingvadóttir og Pétur Steingríms-'1i son kynna nýjustu dægurlögin. 17.00 Fréttir. Tómstundaþáttur barna og unglinga í umsjá Jóns Pálssonar. Alda Friöriksdóttir handavinnukennari flytur þennan þátt. 17.30 Þættir úr sögu fom- aldar. Heimir Þorleifsson mennta skólakennari flvtur fyrri þátt sinn um Grikki: Eftir fall Mykenu Sveitamenn gerast sæfarendur. 17.50 Söngvar i léttum tón. — 18.20 Tilkynningar. 18.45 Veður- fregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Dag- legt lif. Ámi Gunnarsson frétta- maður sér um þáttinn. 20.00 Rómönsk lög af léttara tagi. y ítalskir listam. flytja. 20.20 Leik- rit: „Pierre og Jean“ eftir Arthur Adamov. Samið upp úr skáldsögu eftir Guy de Maupassant. Þýð- andi: Torfey Steinsdóttir. Leik- stjóri: Gísli Halldórsson. 21.30 Lúðrasveitin Svanur leikur í út- varpssal. Stjómandi Jón Sigurðs- son. Einleikari á klarínettu: Ein- ar Jóhannesson. 22.00 Fréttir. — 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiu sálma (6). 22.25 Danslög. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. ------ Dómkirkjan. Prestvígsla kl. 11. Biskup íslands herra Sigurbjörn Einarsson vígir Guðmund Ó. Ólafsson. Séra Ing- þór Indriðason lýsir vígsluXVígslu vottar auk hans séra Garöar Þor- steinsson prófastur, séra Bragi Friðriksson og séra Lárus Hall- dórsson. Hinn nývígði prestur prédikar. Bamasamkoma kl. 11 í sámkomusal Miðbæjarbamaskól ans. Séra Jón Auðuns. Hallgrímskirkja. Bamaguðsþjónusta kl. 10. Systir Unnur Halldórsdóttir. Messa kl. 11. Dr. Jakob JónSsori. Messa kl. 5. Ólafur Ólafsson kristniboði predikar, 'Kirkjúkör Neskirkju syngur Jón ísleifsson stjómar. — Að lokinni messu verður haldinn aðalfundur „Hins íslenzka Biblíu- félags". Séra Ragnar Fjalar Lár- usson. Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10 fyrir hádegi. Séra Magnús Guðmundsson fyrr- verandi prófastur messar. Ásprestakall. Messa i Laugarásbíói kl. 1.30. Bamasamkoma kl. 11. Séra Grim- ur Grimsson. MýrarhúsaskólL Bamasamkoma kl. 10.30. Séra Frank M. Halldórsson. Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Bamasam- koma fellur niður. Séra Páll Þor- leifsson. LangholtsprestakalL Bamasamkoma kl. 10.30. Guðs- þjónusta kl. 2. Biblíudagurinn. Tekið á móti gjöfum til Bibliufé- lagsins. Séra Árelius Níelsson. Langholtsprestakall. Aðalfundur Bræðrafélagsins verð- ur i safnaðarheimilinu þriðjudag- inn 11. febrúar kl. 8.30. Óska- stundin verður á sunnudag kl. 4. BústaðaprestakalL Baraasamkoma i Réttarholtsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Ólafur Skúlason. Háteigsklrkja. Barnasamkoma kl. 10. Séra Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2. Séra Arngrímur Jónsson. Laugameskirkja. Messa kl. 2. Séra Gísli Brynjólfs- son. Bamaguðsþjónusta kl. 10. Séra Garöar Svavarsson. Fríkirkjan. Barnasamkoma kl. 10.30. — Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barnasamkoma með upplestri og kvikmyndasýningu kl. 11. Vænt- anleg fermingarbörn á næsta ári komi til viðtals í kirkjunni sunnudag kl. 10.30. Séra Bragi Benediktsson. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 2 Séra Helgi Tryggva- son yfirkennari messar. Barna- guðsþjónusta kl. 11. Kennarar og nemendur úr Öldutúnsskóla hafa barnaguðsbjónustuna á hendi. — Séra Gárðar borsteinsson. Kvenfélag Noskirkju heldur fund þriðjudaginn 11. febrúar kl. 8.30 i félagsheimilinu. Skemmti- atriði — Kaffi. — Stjómin. SLYS: Slysavarðstofan i Borgarspital- anum. Opin allan sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra. Simi 81212. S JÚKRABIFREIÐ: Simi 11100 I Reýkjavík og Kópa- vogi. Simi 51336 f Hafnarfirði. LÆKNIR: Ef ekki næst ! heimilislækni er tekið á móti vitjanabeiðnum i síma 11510 á skrifstofutima. — Læknavaktin er öll kvöld og næt ur virka daga og allan sólarhring inn um helgar * slma 21230. - Helgarvarzla íHafnarfirði til mánudagsmorguns 10. feb.: Grímur Jónsson Ölduslóð 13, sími 52315. LYFJABÚÐIR: Kvöld- og helgidagavarzla er í Borgarapóteki og Reykjavíkur- apóteki til kl. 21 virka daga 10-21 helga daga. Kópavogs- og Keflavíkurapótek eru opin virka daga kl. 9-19, laugardaga 9—14, helga daga 13—15. — Næturvarzla lyfjabúða á Reykjavikursvæðinu er í Stór- holti 1, simi 23245. TILKYNNINGAR Aðalfundur Hins Islenzka Biblíu félags verður á Bibliudaginn, n.k. sunnudag 9. þ.m., I Hallgríms kirkju á Skólavörðuhæö að Iok- inni síðdegismessu, er hefst kl. 5. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. önnur mál. — Stjórain. Kvenfélag Grensássóknar. — Fundur í Breið gerðisskóla þriðju daginn 11. febrúar kl. 8.30. Árið- andi mál rætt Spurningakeppni. Kvikmyndasýning. Kvenfélag Ásprestakalls, opiö hús fyrir eldra fólk í sókninni alla þriðjudaga kl. 2—5 í Ásheimilinu að Hólsvegi 17. KALLI FRÆNDI

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.