Vísir - 10.02.1969, Síða 4

Vísir - 10.02.1969, Síða 4
y r \ Af dönskum leikurum mun Dirch Passer þykja vinsáelastur hérlendis. Af honum kunnum við þaer fréttir að færa, að hann mun nú hafa myndað nokkurs konar dúett með danskri leik- konu — Ulla Pia heitir hún — og saman ætla þau að skemmta dönsku leikhúsfólki næsta kastið. Þetta verða stuttir gamanþættir, sém þau munu flytja af leikhús- fjölunum, en jafnframt þessu læt- ur Passer sig ekki muna um að leika í nýrri kvikmynd í leiðinni. Þar fer hann með hlutverk um- ferðarlögregluþjóns. Dirch Passer. * Þrjózkur tuddi, sem haldinn var algerri óbeit á dauðanum komst á forsíður blaöanna fyrir stuttu, þegar hann — á leiðinni til sláturhússins í Messina á Sikil- ey — sleit sig lausan, /ruddist gegnum strætin og stakk sér i höfijina. Þar greip hann trl sunds og stefndi á haf út. Tuttugu og eins árs gamall fiskimaður var þar nærstaddur á bát. Hóf hann þegar eftirför og lagðist þungt á áramar, enda leið ekki löng stund, áður en hann hafði dregið bola uppi. Tókst honum að slöngva vað yfir homin á tudda en kálið var ekki sopið, þótt í ausuna væri komið, því að þá hófust mikil á- tök. Þó tókst honum að draga nautið að landi, en rétt við fjöru- borðið sökkti tuddinn kænunni. Aðrir fiskimenn höfðu þá laðast að og vom nærstaddir til þess að bjarga „kúasmalanum". Boli var síðan teymdur í slátur- húsið, L.n hinn ungi fiskim.... „kúasmali", vildum við sagt hafa — hlaut mikið lof fyrir sína frammistöðu. Bátkænan molaðist hins vegar í briminu en hvað er það á móts við hitt, að geta ein- hvem tíma sagt barnabörnum sínum frá því, „þegar ég snaraði tuddann úti á rúmsjó...." Dr. Barnard hyggst gefa * börnum á Italíu ný hjörtu Dr. Christian Barnard, prófess or, mun nú hafa í hyggju að fram kvæma hjartaflutninga utan heimalands síns. Þessi frægi hjartasérfræðingur frá Suður- Afríku hefur að undanfömu dval- izt i Róm, þar sem hann hefur rannsakað fjölda hjartaveikra barna. Það mun lengi hafa verið fyrir- ætlun hans að senda bömin í flug vél til Groote Schuur-sjúkrahúss- ins í Höfðaborg til þess að fram- kvæma þar hjartaflutninga á þeim, en heyrzt hefur, að hann hafi nú skipt um skoðun. Hann mun í staðinn ætla að senda allt aðstoðarlið sitt með hjálpartækj- um til Rómar í sumar og fram- kvæma skurðaðgerðimar þar. En síðustu mánuðum hefur dr. Bamard varið til þess að fræða ítalska skurðlækna, svo þeir verði sjálfir færir um einn góðan veð- urdag að flytja hjarta í milli manna. í öðrum löndum búa menn sig einnig undir hjartaaðgerðir á borð við þær, sem dr. Bamard hefur gert. 1 Vestur-Þýzkalandi þykj- ast menn fvrir löngu vera reiðu- búnir til þess, og þeir á ríkis- sjúkrahúsinu í Berlín — Neukölln hafa aðeins beðið þess, að á fjörur þeirra ræki hinn rétta hjartagjafa. Þegar hefur verið val- inn sá Vestur-Þjóðverji. sem fyrst ur skal þiggja nýtt hjarta úr hendi vestur-þýzks læknis. 45 ára gamall maður, Heinrich Lutter- beck að nafni. Hann hefur legið i nokkrar vikur í sjúkrahúsinu, þar sem sveit 22 fekna bíður reiðubúin. -<S> SYISSNESK atómklukka Skakkar um sekúndu á 3000 árum Svisslendingar eru engum lík- ir í úrsmíði. Þeir hafa nú fært sig upp á skaftið og gert atóm- klukku, sem heita má að náð hafi fullkominni nákvæmni. Mesta ó- nákvæmni, sem búast má við, er að hún seinki sér eða flýti um eina sekúndu á þrjú þúsund ár- um. Klukka þessi hefur nú farið f ferðalag. Hún er flutt um þvera og endilanga Suður-Ameríku. Klukkur þar eru stilltar eftir henni, einkum höfuðklukkumar í höfuðborgunum. Brasilía var fyrsti viðkomustaðurinn. Hættuleaasta glíma nautabanans £fvíiiíi/.ýf'vÁ E1 Cordobes á leikvanglnum. E1 Cordobes, frægasti nauta- bani Spánar, svífur nú miMi herms og helju vegna ígerðar, sem hann hefur fengið í nefið. Átján sinnum hefur það komið fyrir El Cordob- es á lífsleiðinni, að hann lægi á sjúkrabeði, nær dauöa en lífi. Tvisvar hefur honum verið veitt hinzta smumingin. En ævinlega hefur það skeð eftir hetjulega bar áttu á leikvanginum. Eftir að hafa banað nær 2000 nautum liggur hann nú f rúmi sínu, haldinn svæsinni ígerð, sem breiðzt hefur út í heilann. Lækn- ir hans segir, að hann hafi aldrei verið svo nærri dauða. sínum fyrr. E1 Cordobes þykir vera ein- hver snjallasti nautabani allra tíma, nokkurs konar samnefnari þessara fífldjörfu manna. Áður sást hann oft í fylgd fegurðardisa (þ. á m. Geraldine Chaplin), en fyrir stuttu trúlofaðist hann al- gerlega óþekktri spænskri stúlku og situr hún nú daga og nætur og vakir yfir honum viö sjúkra- beð hans. Menn héldu um tíma, aö hinn rétti hjartagjafi væri fundinn, þegar hinn 44 ára gamli póstsend ill, Werner Ullrich lenti fyrir bil fyrir nokkru. Hann hlaut þungt höfuðhögg og heili hans skaddað- ist svo, að menn hugðu honum ekki lff. Fjölskylda hans skrifaði undir yfirlýsingu þess efnis, að hún væri eindregið fylgjandi því, að hjarta hans yrði að honum látnum grætt í hjartaveika mann- eskju. Dögum saman lá hann meðvitundarlaus og ailan tímann töldu læknar, að hver dagur væri hans síðasti. En skyndilega komst Ullrich til fullrar meðvitundar og er nú orðið alveg ljóst, að hann mun halda lífi, þótt hann komist aldrei til fullrar heilsu aftur. í dag eru 48 hjartaþegar á lífi af þeim rúmlega 100, sem skipt hefur verið um hjarta I. Af þess- um rúmlega 100 hjartaflutning- um voru 96 framkvæmdir í fyrra. Hjartaskurðlækningum hefur fleygt meira fram, en menn óraði fyrir. í hitteðfyrra var það full- yrt, að á- eða ígræðsla líkams- hluta á mönnum yrði ekki fram- kvæmanleg fvrr en í fyrsta lagi einhvem tíma árið 1972. Dr .Barnard fræðir nú hj artasérfræðinga. italska Windsor-arnir i hlekkjum 4 Keöjur hér og keðjur þar. Þegar tízkan krefst þess af fólki, telur þaö ekki eftir sér aö leggja á sig hlekki. Síðasta misserið hefur því hver sem betur getur gengið um með dinglandi hlekki og hringlandi í staö missisóla, hálsmena, armbanda o. s. frv. - Hertogahjónin af Windsor hafa að vísu alltaf þótt vera vel til fara, en samt hafa þau ekki hin seinni ár verið mikið fyrir aö elta duttlunga tízk- unnar, og því hlýtur þessi mynd af þeim með þetta hringi- andi fyrirbæri tízkunnar aö vekja nokkra athygli. Þessi skýring fylgic Myndin var tekin í viröulegu meðdegisboði, svo fjölmennu, að númera þurfti sæti gestanna við matar- boröið. Hverjum gesti var svo afhent sitt númer, hangandi í keðju, viö innganginn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.