Vísir - 27.02.1969, Blaðsíða 8
8
V í SIR . Fimmtudagur'27. febrúar 1969.
VlSIR
Otgefandi: ReyKjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aöstoóarritstjóri: Axe! Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði innaníands
í lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Samstaða er nauðsyn I
Lausn verkfalls yfirmanna á bátaflotanum varð )
kommúnistum hryggðarefni. Vonir þeirra um langvar- )
andi atvinnuleysi og stöðvun framleiðslunnar brugð- )
ust í bili. En það er auðséð á Þjóðviljanum að þeir (
eru ekki enn úrkula vonar um að geta komið á vinnu- (
stöðvun. Það er því auðsætt að kommúnistar eru ekki (
að hugsa um hag verkamanna, þótt þeir reyni að láta /
líta svo út. Og fjöldi launafólks úr öllum stéttum og l'
starfsgreinum, sem lætur sér brölt kommúnista vel (
líka, veit ofur vel að þeir eru að vinna gegn hagsmun- /
um þjóðfélagsins og grafa undan efnahagslegu sjálf- )
stæði þjóðarinnar. )
Þegar Alþingi stöðvaði sjómannaverkfallið kölluðu /
kommúnistar þá ráðstöfun þrælalög. Þeir vildu )
þrengja kosti láglaunafólks enn meira en orðið var. \\
Þeir vissu þó eins vel og aðrir að það var þjóðarnauð- (\
syn að koma bátaflotanum af stað. Það þoldi enga bið. ((
Og nú reyna þeir að stöðva framleiðsluna aftur. Von- /I
andi tekst þeim það ekki. Allir þjóðhollir menn verða /)
að trúa því í lengstu lög og stuðla að því með öllum )l
tiltækum ráðum, að ágreiningsmálin verði leyst með (
samkomulagi áður en til vinnustöðvunar kemur. \
Kommúnistar tala alltaf og skrifa eins og það sé )
stjórnvöldum landsins sérstakt áhugamál, að þrengja (
kosti almennings sem mest. Á þessu hafa þeir hamrað (
látlaust undanfarna áratugi, nema þegar þeir voru (\
sjálfir í ríkisstjórn. Þetta er áróður sem ekki ætti að /
fá mikinn hljómgrunn hjá hugsandi fólki. Hvernig )
ætti það að vera nokkurri ríkisstjórn keppikefli, að )
rýra lífskjör almennings? Er ekki líklegri leið til í|
trausts og fylgis að bæta lífskjörin? Vissulega, en þeir /
tímar geta komið, ekki sízt hjá þjóðum, sem búa við )
eins óviss afkomuskilyrði og við íslendingar, að \
stjórnvöldin neyðist til að grípa til ráðstafana, sem (
skerða lífskjörin í bili. En það gerir engin ríkisstjóm (
með glöðu geði. /
Núverandi ríkisstjóm sýndi það svo ekki varð um (
vilízt, meðan vel gekk, að hún unni almenningi fullrar /
hlutdeildar í afrakstri góðu áranna. Hefur þar ef til /
vill verið gengið lengra en gætilegt mundi talið í sum- )
um öðrum löndum. En þá verður líka að ætlast til þess, )
að þjóðin sætti sig við að leggja nokkuð að sér þegar (
verr árar — að einstaklingarnir skilji það, að minna (
hlýtur að koma í hvers hlut þegar minna verður til /
skiptanna. Þá verða allir að fórna einhverju. En þá er .
það tilræði við efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, ,
að ala á metingi og togstreitu milli stétta, æsa upp til
kröfugerða, sem ekki er hægt að uppfylla og reyna (
að koma á upplausn og ringulreið, eins og kommúnist- ;
ar gera. Þá ríður hvað mest á að allir standi saman, því /
að með því móti einu er von til þess að sigrazt verði á /
erfiðleikunum. )
Brezk-frönsku deilurnar og
væntanleg Parísarheim-
sókn NIXONS
• Eltt vikublaðanna brezku
birti pistil s.l. laugardag frá
stjómmálafréttaritara sfnum í
Washington, þar sem svo var aö
orði komlzt, að sumir ráöunaut-
ar Nixons forseta legöu fast að
honum að hætta viö Parisar-
heimsóknina, sem menn áður
höföu gert sér vonir um aö yröi
glæsilegur Iokaþáttur (grand
flnale) Evrópuferöarinnar.
Ekki er frá þessu sagt hér, til
þess að gefa í skyn, að til þessa
komi, heldur vegna þess —
sé rétt með farið —, — að það
gefur hugmynd um hugarfar
sumra stjórnmálamanna vestra,
þegar forsetinn var að leggja
upp í Evrópuferðina, en hann
hafði m. a. oftar en einu sinni
lýst yfir, að hann óskaði þess
sérstaklega að ræða við de
Gaulle Frakklandsforseta i þeim
tilgangi, að bæta sambúð Banda-
ríkjanna og Frakklands.
1 fyrmefndum fréttapistli var
litið svo á, að það væri líkast
þv£ sem de Gaulle hefði varpað
sprengju, er hann gerði Soames
ambassador Bretlands grein fyr-
ir skoöunum sfnum hinn 4. febrú
ar — skoðunum, eða uppástung-
um, eins og sumir kalla þær, en
tilgangurinn hjá de Gaulle sagð-
ur, að því marki verði náð, að
losaEvrópu undan bandarfskum
áhrifum, en í því samb. ræddi
forsetinn stjómmálalega forustu
(direktorat) Frakklands, Bret-
lands, Vestur-Þýzkalands og
Italíu, þegar nýskipan mála kæm
ist á, Noröur-AtlantshafsLanda-
laglð verið lagt niöur og komiö
á viötækara, en lauslegra efna-
hagsbandalagi.
Undir umræðunni í neðri mál-
stofu brezka þingsins í fyrradag
kom það fram hjá einum gagn-
rýnanda, að mistök hefðu verið
að líta á skoðanir eða uppástung
ur de Gaulle, sem gert var, —
þetta hefðu verið „heimspeki-
legar hugleiðingar", og réttast
að halda þeim leyndum, en gagn-
rýnin fékk ekki meiri undirtekt-
ir en það, að þaö var fellt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
að taka ekki til umræðu van-
traust á ríkisstjórnina út af mál-
inu, og sátu fjölda margir þing-
menn íhaldsflokksins hjá, en að-
algagnrýnandi hafði verið Sir
Alex Douglas-Home, fyrrv. for-
sætisráöherra, nú formælandi
íhaldsflokksins í málstofunni
um utanríkismál. Og í fyrradag
gerist einnig þetta: Vestur-
Þýzkaland ákveður að taka þátt
í Lundúnafundi VBE (Vestur-
Evrópubandalagsins), þótt það
hefði verið búiö að leggja til
vegna deilunnar við Frakka, að
fresta fundinum. Og Nenni utan-
ríkisráðherra Ítalíu lýsti yfir í
þingræðu f fyrrakvöld fullum
stuðningi við Bretland í brezk-
frönsku deilunum, og sagði þau
athyglisverðu orð, að Vestur-
Evrópa gæti ekki frekar án Bret-
lands verið en Frakklands. í svip
aðan streng tók Josef Luns ut-
anríkisráðherra Hollands fyrr i
vikunni og Pierre Harmel utan-
ríkisráðherra Belgíu. í stuttu
máli, — Frakkar standa einir í
afstöðu sinni varðandi Bretland,
bæði í EBE óg VBE, og neita aö
sitja fundi í hinu síðamefnda
(sem H*tar eru í), nema geta
raunverulega beitt þar neitunar-
valdi.
Nú er að sjálfsögðu tilgangs-
lítið að vera með frekari vanga-
veltur út af væntanlegri París-
arheimsókn Nixons forseta og
bíða heldur fregna um hvemig
fer á með honum og de Gaulle,
og þá hvort brezk-franska rifr-
ildið hefir þar nokkur áhrif, en
óneitanlega var það óheppilegt
fyrir de Gaulle, að mikill blást-
ur skyldi verða í blöðum út af
því máli með þeim afleiðingum
sem kunnar eru, vegna skoðana
hans um að losa Evrópu imdan
bandarískum áhrifum, óheppi-
legt eins og þetta bar undir og
var blásið upp, þótt skoðanir
forsetans í þessu efni séu að
vísu alkunnar.
Annars er ekki úr vegi að
minna á það, þegar um áður-
nefndan brezk-franskan ágrein-
ing er að ræða, að það hefir oft
verið grunnt á því góöa í brezk-
franskri sambúð, og einmitt um
forustuhlutverk í álfunni. Sam-
eiginlegur ótti við Þýzkaland
knúði fram vináttubandalagið
brezk-franska (entente cordiale)
snemma á öldinni og svo eru
tvær heimsstyrjaldir háðar, Bret
ar og Frakkar bandamenn í báö-
uip. Frakkar fara rislágir út úr
hinni síðari og búa við lepp-
stjórn (Vichystjómina og her-
nám), en við forustu eins manns
er baráttunni haldið áfram, og
er sá maður de Gaulle, en sam-
starf háns við aðra leiðtoga
bandamanna var svo erfitt
vegna metnaðar hans og skap-
bresta, að „það er vafasamt
hvort af þvi leiddi meira gott en
illt fyrir bandamenn", eins og
sagt var í fyrirlestri í brezka
útvarpið eitt kvöldið fyrir
skemmstu.
Það var árið 1952 sem de
Gaulle sezt á valdastól, og víst
hefir hann unnið þjóð sinni mik-
ið gagn, og mikill er hans metn-
aöur, en alltaf er gagnrýnin á
honum harðnandi, uggurinn vax-
andi, og það er víst lítill vafi,
að margir hans eigin fylgis-
manna óska þess að hann dragi
sig í hlé, og sumir segja jafnvel
opinskátt, aö hann ætti að vera
búinn að því.
Sú skoðun hefir komið fram,
að af hálfu de Gaulle hafi ver-
ið gerð tilraun til að valda klofn-
ingi Bretlands og stuðningslanda
þess í VBE, en „enginn hvorki
vestan eöa austan Ermarsunds
muni látá sér detta I hug að
taka þátt í samkomulagsumleit-
unum um hinar stórpólitísku
skoðanir de Gaulle."
Ofangreind tilraun hefir mis-
tekizt. Bretland sennilega öfl-
ugra eftir, en Frakkland veik-
ara. Samstarfið milli Bretlands
og meginlandsþjóðanna í álfunni
vestanveröri (að Frökkum undan
skildum) virðist vera að koma á
fastari grundvöll — segir þar
einnig.
Minnt er á eftirfarandi orsák-
ir þess, að Frakkland hefir veik
ari aðstöðu en áður:
Samstarfiö milli Frakklands
og hinna (5) þjóðanna í EBE
hefur versnað svo, að i árs-
skýrslu ráðsins er varað sérstak
lega við að „grafa undan fram-
tíð bandalagsins“. Þetta gerist á
þeim tíma, er franskur efnahag-
ur er orðinn sammarkaðnum enn
háðari en áðui-, og þörfín vax-
andi á sameigmlegri og sam-
10. slöa.
Samskipti Bandaríkjamanna og Frakka voru erfið á forseta-
tíma Johnsons og birti hið kunna blað Washington Post þá
skopmyndina hér að ofan. Tilgangur Nixons með Parísarheim-
sókninni er að koma sambúðinni í gott horf. En nú velta marg-
ir því fyrir sér, hvort brezk-franska deilan muni verða þránd-
ur í götu þeirrar viðleitni Nixons.