Vísir - 01.03.1969, Side 1

Vísir - 01.03.1969, Side 1
, Eftirfarandi barst blaðinu í gærkvöldi frá félagsmálaráðuneytinu: „Samkvæmt tilmælum sáttasemjara ríkisins, Torfa Hjartarson- ar, tollstjóra, hefur félagsmálaráðuneytið í dag skipað sáttanefnd í yfirstandandi vinnudeilum. í sáttanefndinni eiga sæti, auk ríkis- sáttasemjara, þeir Jónatan Hallvarðsson, hæstaréttardómari, Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri, Baldvin Jónsson, hæsta- réttarlögmaður og Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlögmaður. Nefndin mun fjalia um allar kjaradeilur, sem nú hefur verið vísað til sáttasemjara.“ íslenzkur fatnaður verður kynntur kaupendum í framtíðinni á kaupstefnum. Næsta kaupstefnan á vegum Félags ísl. iðnrekenda verður 13.—16. apríl og haustkaupstefna í septembermánuði. Fataframleiðendur eru fjölmargir á Islandi, en allir þeir stærstu í þeim hópi munu verða meðal sýnenda. Myndin er af peysuframleiðanda að sýna kaupanda varning sinn. Sáttanefnd skipuð fyrir alSar kjara- deilurnar Lítíll drengur ttuttur nær duuðu en Iffí í sjúkruhús eftír bursmíður Var handleggsbrotinn á bóðuni hand» leggjum, afmyndaður í andliti, nef brotinn og ekki nema skinn og bein þegar að var komið ■ Fimm ára drengur var í fyrradag fluttur nær dauða en lífi í Slysa- varðstofuna eftir með- ferð móðurinnar á hon- um. Hann var brotinn á báðum framhandleggj- um og öðrum upphand- legg, afmyndaður í and- liti af barsmíðum og nef- brotinn, og með ljót för á hálsi. Hann var ekkert nema skinn- ið og beinin og með kúlumaga ems og börn, sem hafa verið svelt um langan tíma. Drengur- inn litli gat ekki talað og starði aðeins út f loftið. Hann liggur nú í Landspítalanum, og von- ast læknar til aö geta grætt hann. Móðir drengsins, sem olli þessum misþyrmingum, hefur verið flutt á geðveikraspítala. Hún bjó í Bjarnarborg og það var fyrir tilviljun, að ódæðiö komst upp. Nágrannar hennar höfðu skýrt Húsnæðismála- stjóm frá því, að húsnæði henn- ar væri ekki íbúðarhæjt.. Vegna þessa kom bamaverndamefnd á staðinn og fann hún þá dreng- inn í þessu ásigkomulagi. Mis- þyrmingarnar hafa staðið lengi, því að bæði framhandleggsbrot- in virtust vera gömul. Vísi er ekkj kunnugt um, aö þetta mál eigi sér neinar hlið- stæður hér á landi á síðustu áratugum I gærkvöldi kvaðst dr. Bjöm Björnsson hjá barnavemdar- nefnd ekk; hafa leyfi til að út- tala sig um mál þetta. Kristbjöm Tryggvason, yfirlæknir bama- deildar Landspítalans kvaðst heldur ekki mega veita neinar upplýsingar um máliö, bama- verndarnefnd hefði umráðarétt yfir baminu og kvað hana eina geta upplýst um málið. Dr. Bjöm kvað starfsfólk nefndar- Aðgangs- eyrir að kvikmynda- húsum hækkar Um þessar mundir eru kvik- myndahús að hækka verð á að- gðngumiðum og hefur hækkunin tekið gildi hjá flestum þeirra Kosta miðar á mynd, sem ekki er með íslenzkum texta 55 og 60 krónur eftir því hvar setið er, en á myndir með íslenzkum texta 65 og 70 krón ur. Nemur hækkunin 5 krónum á miðann. ÁTTA AF HVERJUM TÍU MÁLUM FJÁRSVIKAMÁL Stúlka iðin v/ð falsið i skjóli jbess oð hér er ekkert kvennafangelsi • Fjársvikamál eru 80% þeirra mála, sem sakadómur fær til meðferðar árlega, en til fjársvikamála teljast m.a. ávísanafalsanir, sem hafa auk izt svo hin síðari árin, að til stórra vandræða horfir. Sem dæmi um aukningu ávisanafalsana má nefnda, að i febrúarmánuði, sem nú er ný- liðinn, fékk rannsóknarlötreglan 63 falsaðar ávísanir til með- ferðar. Allt áriö 1965 fékk hún 57 falsaðar ávísanir, og hefur nú orðið mikill munur á, eins og allir sjá. Flestar þessar ávísanafalsan- ir, sem lögreglan fékk til með- ferðar í síðasta mánuði, hafa verið upplýstar og höndum ver- ið komið yfir falsarana, en þó hefur ekki allt verið upplýst enn, sem von er. Meðal þessara falsara er stúlkan, sem í fyrra vakti á sér athygli fyrir ávísanafals. Þá höfðu nokkrir misjafnir náung- ar fengið hana í félag við sig innar eiga eftir að rannsaka málið og leggja það fyrir nefnd- arfund. Lögregluskýrsla mun ekki hafa verið tekin i málinu. og eggjað hana til verkanna, á þeim forsendum, að ekkert kvennafangeisi væri í landinu og því ólíklegt, að hún yrði lát- in afplána dóma, ef svo tækist til, að upp um þau kæmist. Reyndust þeir því miður allt of sannspáir í því efni. 130 þúsund krónur sveik hún út í síðasta mánuði með þessum hætti og var ekki ein, frekar en fyrri daginn í verkum. Til tölulega lítið af þessu fé hefur komizt til réttra eigenda aftur og svo fór einnig í fyrra, en þá var líka um að ræða allveruleg- ar upphæðir. „Hin nýja stétt": Tveir læra til plötusmíðs Plötusnúður er nýtt atvinnu- heiti hér á landi, og mun einn maður vera ráðinn í það starf,' en það er Pétur Steingrímsson, sem snýr plötum fyrir unga fólk ið í Tónabæ, skemmtistað unga fólksins. Steinþór Ingvarsson fram- kvæmdastjóri staðarins tjáði blaðinu, að nú væru tveir ungir menn í læri hjá Pétri að kynna sér starfið. Steinþór sagði: „Þetta starf krefst mikillar þekkingar á dæg- urmúsik. Pétur hafði þá þekk- ingu, svo að við fengum hann til að byrja með. Hann er lausráð- inn.“ „Þetta starf er mjög vel borg- að, er það ekki?" „Öll músikvinna er vel borg- uð, annars er samningum við hann ekki lokið. í dægurmúsik- inni eru kjörin eins misjöfn óg mennirnir eru misjafnir.“ „Er það rétt. að Pétur fái 3000 krónur fyrir kvöldið?" „Nei, ekki er það alveg rétt. Samningum er ekki lokið viö hann, en verið p.etur að hann hafi fengið þessa upphæð fyrir dansleik hér eitt kvöld, en við stóðum ekki að honum.“ „Eru fleiri menn að kynna sér þetta nýstárlega starf?“ „Já, það eru tveir ungir menn að læra hjá Pétri. Þeir Stefán Baldursson og Sigurjón úr Flow- ers.“ WWNAAAAAAAAA/WWVWWVWWVWW^VNAAAAAAAAAAAAAA/WSAAAAAAAAA^

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.