Vísir - 04.11.1969, Blaðsíða 3

Vísir - 04.11.1969, Blaðsíða 3
VISIR . Þríðjudagur 4. nóvember 1969. 'igurmarkið variloftinu m fíautun bjargaði Honved — Frábær markvarzla Þorsteins Björnssonar bjargaði jafnteflinu • Þorsteinn Björnsson er svo sannarlega í landslið- inu aftur. í gær varði Þor- steinn eins og berserkur, — og sannarlega var það honum að þakka, að lands- liðið náði jafntéfli gegn ungversku meisturunum Honved. Leikurinn var hörkuspennandi og á síð- ustu sekúndubrotunum var boltinn á leiðinni í net- ið hjá Ungverjunum frá Einari Magnússyni, — en flautan bjargaði Ungverj- unum frá tapi að þessu sinni. Ungverjarnir höfðu annars gert sig seka um einstakt svmdl. Þcgaf tíu mínútur voru eftir af leik var Plymouth '66 Belvedere til sölu f því ástandi sem hann er í eftir árekstur. Tilboð óskast. Til sýnis á Bílaverkstæði Árna Gísla- sonar í Súöarvogi í dag og á morgun. Tliboð leggist inn til Samvinnutrygginga tjónadeild fyrir hádegi á föstudag 7. nóv. Varga vísaö af velli og rétt á eftir Tucacs. Staöan þá var 11:13 fyrir Ungverja, en Ólafur Jónsson skor- ar strax 12:13, og þá sá Varga aö við svo búiö mátti ekki standa, en hljóp inn á völlinn. Var þessu ekki mótmælt fyrr en síðar aö tímavörð ur benti á þetta í stað þess að gera það strax. Rétt á eftir kom Tucacs inn og léku Islendingar þvl of stutt gegn 5 manna liði Ungverja, en um leið og Tucacs fór inn fór Varga aftur út til að taka út þann hegn- ingartíma, sem hann átti ólokið. Einar Magnússon jafnaöi þá á þessu tímabili 13:13 og voru á 7 mín. eftir, og Geir náði forustunni meö góöu skoti 14:13, en Adorjan skoraði jöfnunarmarkið fyrir Ung- verja. Lauk leiknum þannig, en sannariega mátti ekki miklu muna að ísland sigraöi. Þar urðu aðeins sekúndubrot sem stóðu í veginum. ísland '.ék annars mun betur í fyrri hálfleik. Þá mátti oft sjá glettilega góðan leik liðsins, eink- um i sókn, en í síðari hálfleik var sóknin eins og ráðþrota, vandræða- leg, utangátta. Varnarleikurinn var skárri, en markvarzlan óviðjafnan- leg. Aðeins Þorsteinn getur verið eins og í gær. Var ekki laust við að Ungverjar væru farnir að líta hann hornauga. íslenzka Iiðið náði 4:1 forystu eftir 10 mín. leik. Ungverjar jafna þennan mun á næstu 3 mín., en ísland náði aftur forystunni, fyrst 2 marka og í hálfleik 3 marka, 9:6. Seinni hálfleikur byrjaði með hörmungum. Ungverjar skora tví- vegis, en Einar Magnússon skorar 10:8, en á næstu 6—7 mínútum skipast veður í lofti. Ungverjar skora hvert markiö á fætur ööru, 5 1 röð, en vítakast Geirs er variö. Staðan var því orðin óhagátæö Is- lendingum, 10:13 og aðeins eitt mark skoraö á 15 mínútum. Þá ákorar Einar Magnússon 11:13 og lokaátökin hefjast. Fyrir íslenzka liðíð lofar þessi leikur góðu. Það viröist ekki útilok að að íslenzka liðiö verði í sinum bezta ham einmitt þegar mest á ríður, liðið er greinilega í framför, og gleðiefni er það ef markvörður- inn er fundinn. Geir fór sér tiltölu lega hægt í þessum leik, en var þó góður, skoraöi óvenju lítið, að- eins 2 mörk, en Einar var helzta skyttan, skoraði 6 mörk. Vita þá Ungverjar vel hverjir geta skotið á íslandi, og hverjir ekki. Ölafur Jónsson átti ágætan leik í sókn og ekki síöri í vörn, hann skoraði 2 mörk. Traustur leikmaður, Ólaf- ur, Björgvin, Stefán óg Sigurbe.rgur skoruðu sitt markið hver fyrir landsliðið. Langbezti maöur ungverska liðs ins var Fenöiy, en Varga bar lítið sem ekkert á, virtist í einhverri ónáð hjá liðinu. Karl Jóhannsson og Reynir Ólafs- son skiluðu sínu hlutverki ffábær- lega vel. — Var gaman að sjá svo góða íslenzka dómara. -jbp- Breiðablik íapaði kærumálinu Breiðablik fær ekki nýjan leik við Akureyri um 1. deildarsætið. Knattspyrnudómstóll KSÍ hefur nú nýlega dæmt i málinu sem spratt vegna þessa leiks, en Breiðablik kærði og taldi að rangur aðilj hefði akveðið hvar leikur liðanna skyldi fara fram, þ.e. niðurröðunarnefnd, en ekki mótanefnd KSÍ. Dómstóllinn skipaður þeim Jóni G. Tómassyni, Bjarna Guðnasyni og Halldóri V. Sig- urðssyni, dæmdi svo í málinu aö niðurröðunarnefnd hefði m.a. verið falin þau verkefni aö raða niður leikjum og úrskuröa breyt ingar. „Veröur að líta svo á, að með þessu orðalagi haf i niðurröð unarnefnd einnig verið falið að ákveöa leikstaöi, enda mun sá háttur hafa verið á hafður", seg ir dómstóllinn. Úrskuröast krafa Breiða- bliks um ógildingu leiksins á Ak ureyri því ekki tekin til greina. ÓKUKENNSLA ' Útvéga/ Öll gögn , várðándi bílpróf. Geir P; Þormar. Símar 19896 og 21772. Skilaboð Gufunes, sími 22384. ::;^'/-:,--:¦:::¦.*: ífhlihmi Nú M enginn að fara bónleiður til búðar Ólafur H. Jónssön, einn bezti maður landsliðsins í gærkvöldi, | er hér kominn gegnum vörnina og skorar. Jbv/ oð v/ð höfum nægan forða r'rívélaborba i allar tegundir þeirra ritvéla, sem í landinu eru Athugið nafn vélarinnnr og rétta borðann fáið þér ávallt hjá okkur Pappírs- og ritfangaverzlunin Fullkomin sérverzlun Hafnarstræti 18, Laugavegi 84y Xaugavegi 178 meSSM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.