Vísir - 04.11.1969, Blaðsíða 16

Vísir - 04.11.1969, Blaðsíða 16
VÍSIR Þriðjudagur 4. nóvember 1969. SKltáR 5KRÚFUR LDItHR Úrualshnnduerhf. yggingavörur hf. LAUGAVEG 178 ■ SlMf 3 56-97 I — Óvenju sterkt segulsvið v/ð Stardal — / undirbúningi að kanna svæðið með borun Ræðir um menning- urpólifík Dnnn Danskur ritstjóri, gagnrýnandi og rithöfundur, dr. Jens Kruuse, veröur gestur Norræna hússins nú i vikunni. Flytur hann tvo fyrirlestra fyrir almenning, fimmtudag 6. nóv. kl. 20.30 um danska menningarpóli- tík, og sunnudag 9. nóv. kl. 16.30 um danskar menningarrökræöur á líðandi stund. — Jens Kruuse er menningarritstjóri Jyllandsposten, jiriðja stærsta morgunblaðs í Dan- mörku og víðkunnur gagnrýnandi um bókmenniir og leiklist. Hann er einnig mikilvirkur rithöf., hefur samið fræðileg rit um bókmennta- sögu, rit með bókmenntagagnrýni og léttar og alþýðlegar bækur um sína eigin reynslu, endurminningar og ferðalýs'ngar. Síðasta bók hans ncfnist „Som vanvid. Oradour-sur- G!ane“ og lýsir hervirkjum Þjóð- verja í samnefndu sveitaþorpi i í rakklandi á stríðsárunum. Hún var kjörin „bók ársins“ af dönskum gngnrýnendum árið 1967. i ■ Óvenju sterkt seg- ulsvið hefur fundizt við Stardal á Kjalarnesi með segulmælingum þeim, sem Þorbjörn Sig- urgeirsson, forstöðumað ur eðlisfræðistofu Raun- vísindastofnunarinnar, hefur staðið fyrir. Er nú í undirbúningi að bora þar sem segulsviðið er sterkast til að kanna, hvað valdi þessu mikla fráviki frá venjulegu seg ulsviði, en segulsviðið er þarna um 10 sinnum sterkara en venja er í basalti. X Ég er ekki fær um að segja, hvað valdi þessu sterka segul- sviði, en það má teljast liklegt að járnsambönd valdi því, sagði Þorbjörn í vjðtali við Vísi í morg un. Svona sterk frávik frá venju- legu segulsviði eru yfirleitt þess virðj að þau séu könnuð nánar. Til þess að fá úr því skorið hvaö er þarna á ferðinni er nauðsyn- legt að bora um 100 metra nið- ur og er nú í undirbúningi að gera það. Sérfræðingur Sameinuðu þjóð anna, Sloboda Jankowich, sem hefur verið hér í sumar til að kanna hagnýt jarðefni á íslandi telur þetta vera mjög athyglis- vert og þess virð; að það sé kannað nánar. Kortlagning á seg ulsviði landsins hófst fyrir al- vöru í fyrrasumar og hafa kom iö fram fleiri athyglisverð frávik frá venjulegu segulsviði. Þannig er segulsviö mjög sterkt í Skála felli á Hellishe'ði. í Hvalfirði og á svæði nálægt Hvanneyri í Borgarfiröi. Rannsókn á þessum 5um er mjög forvitnileg, en þo að ekki finnist þar jám í nýt anlegu formi, getur rannsóknin skýrt mjög sterk frávik á segul sviði á Reykjaneshryggnum og yfirleitt á úthafshryggjum. Ætlunin er að Leo Kristjáns- son, sem þegar hefur rannsakað Stardalssvæðið með segulmæl- ingum á jörðu niðri og Þorvald- ur Búason hafi þessa rannsókn með höndum. Styrkj a drykkj usjúka, — efna til kabaretts ® Við ætlum að efna til nokkurs I drykkjusjúkum. Við störfum í sam- konar kabarett-dansleiks í ráði við líknamefnd þjóðkirkjunn- Gílaumbæ á fimmtudagskvöldið í ar, er fær allt það fé, er inn kann iiáröflunarskyni til styrktar I að koma til ráöstöfunar. Við höf- Símastúlkur hlusta á sína eigin rödd til tilbreytingar um áhuga á aö starfa að ýmsum líknarmálum í þjóðfélaginu og von- um að fleiri komi á eftir, þar eð okkur finnst af nógu að taka. Þann- ig mælti Arnþór Jónsson, meölimur í Tónatríóinu. Er þess skemmst að minnast, þeg ar þeir félagar stóöu fyrir kabar- ett-skemmtunum víöa um landið við frábærar undirtektir, til ágóða fyrir Bíafra-söfnunina hér um árið. Til dæmis um, að þar var ekki á ferðinni neitt smáfyrirtæki, er skemmtunin, sem haldin var á Akra nesi, en þar komu fram 70—80 manns. Simameyiarnar æfa sig, en Vilhiálmur tekur raddirnar upp á segulband. „Fæstar þessara símstúikna hafa heyrt, hvernig þeirra eig in raddir hljóma í síma, og við ætlum að taka þær upp á seg ulband og leyfa þeim að heyra,“ sagði Viihjálmur Vil- hjáimsson, deildarstjóri hjá Bæjarsímanum, þegar blaða- maður hitti hann í gær við að leiðbeina 18 símstúlkum á námskeiði Stjórnunarfélags- ins, sem nú stendur yfir. Þessi þriggja og fjögurra daga námskeiö, sem fylgja í kjölfar bæklings, er Stjómunarfélagið gaf út um „Rödd fyrirtækisins“ (sfmsvarann), byrjuðu í gær, en næsta byrjar á miðvikudaginn, og af undirtektum að dæma virð ast þau ætla að njóta vinsælda. „Við leggjum mikla áherzlu á bað við stúlkurnar, að þær séu í rauninni líka sölumenn fyrir- tækja þeirra. Þær eru fyrstu kvnni viðskiptavinanna af fyrir- tækinu. Þess vegna er mikið kapp lagt á aö æfa þær í því að ná réttum áhrifum með tilsövrum sínum — að ná þessu þægilega vin- gjarnlega viömóti, sem allir óska svo gjaman að mæta“, sagði Helgi Sigurðsson, forstöðumaður hjá SÍS, sem er annar leiðbein- andi námskeiðsins. „Léttan raddblæ og skýrar á- herzlur, ekki: „GóðandaginnJón Jónssonogkompaní" í einni bunu ....“ í þessum dúr voru leiðbeining arnar, sem blaðamaðurinn heyröi, að stúlkunum voru gefn- ar. Síöan fékk hver og ein aö spreyta sig á raunhæfu verkefni og var þá samtalið tekið upp á segulband, sem sfðan var hlust að á eftir og gagnrýnt og leiðrétt það sem betur hefði mátt fara. „Halló! Góðan daginn! Þetta er hjá fyrirtækinu X. Ég hringi vegna reiknings, sem þér hafið sent okkur, en okkur sýnist hann nokkru hærri, en áður var gert ráð fyrir ....' „Á fimmtudagskvöldiö verður margt til skemmtunar," sagði Arn- þór, „tízkusýning, sem Tízkuþjön- ustan mun sjá um, Árni Johnsen mun þarna verða með skemmtiþátt, en hann hefur þegar vakið athygli á sér sem efnilegur á því sviðinu. Við munum kynna þarna unga ís- lenzka stúlku, sem er söngkona og ballettdansmær og hefur lært úti í Englandi, hefur hún samið ballett- inn sjálf, sem er blues-ballett. Ný hljómsveit verður kynnt og nefnir hún sig „Breta“. Ef þetta tekst vel hjá okkur núna erum við að hugsa um að halda einstöku sinnum kabarett-dansleiki í vetur, og hef ég þá sérstaklega áhuga á að kynna skemmtikrafta, er ekki hafa staðið í sviðsljósinu áður, en á íslandi í dag er ara- grúi af ungu hæfileikafólki, sem gjarnan vill koma fram fyrir ekki neitt, en á þessari skemmtun, sem við höldum á fimmtudagskvöldið, gefa allir skemmtikraftarnir vinnu sína.“ Skautaveður i borginni • Tjömin er lögð og krakk- ar og fullorðnir þyrpast þangað til að renna sér á skautum eða sleðum. Tjörnin í vetrarskrúða sýnir betur en margt annað að vetur er kominn og iðkun vetr aríþrótta þar með. I gær gafst hið prýð'legasia skautaveður, hæfilegt frost og glampandi sól skin á tímabili. Frost verður áfram í Reykja vík fram eftir degi, en klukkan níu í morgun mældist 6 stiga frost hér, en mesta frostið á landinu var 13 stig í Hauka- tungu. Búizt er við að dragi úr frostinu, þegar líður á daginn og verði hér um bil frostlaust með kvöldinu en þykkni upp með suölægri átt, þó að verði ekki veruleg hláka úr þvi, eins og Páll Bergþórsson veðurfræð ingur tjáði blaðinu í morgun. „Búm ' eftir bræluna • Fjöldi skipa kastaði á síld út af Jökli í nótt. Skipin fundu þar síld 22 miiur undan landi í gærkvöldi og héldu sig í nótt á um það bil 20 mílna belti út af Jöklinum. Flestir höfðu þó lítið upp úr krafsinu. Harpa Sandgerði var með um 50 tonn og var það langbezti aflinn í nótt. Jón Finnsson, Garði var meö 25 tonn og Sólfaxi Akra- nesi 15 tonn. — Fleiri fengu ekki teljandi veiði og margir fengu hálf gerð ,,búm“. Þetta er fyrsti dagurinn nú í nær hálfan mánuð, sem síldarflot- inn getur athafnað sig, fyrir veðrinu Flest hafa skipin legið i höfn, en einstaka hefur lagt leið sína suður í Noröursjó, þar sem eru nú ekki færri en tuttugu íslenzk skip að veiðum, en veiði mun hafa verið lítil þar f nótt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.