Alþýðublaðið - 23.01.1922, Side 2

Alþýðublaðið - 23.01.1922, Side 2
s raun að ræða, eða árás á sjálfs ákvörðunarrétt vor Islesdinga. Þau hafa mótmælt því harðlega, þrátt fyrir álit ýmissa mikils metinna erlendra stjórnmálamanna. Þau hafa reynt að styrkja aðstöðu andbanninga með allskonar stór- yrðum og blekkingum og reynt að vekja upp hreyfingu fyrir af námi bannlaganna. En einmitt með þvi, að nota árás erlends ríkis á sjálfstæði land ins, til að vinna málstað sfnum fylgi, hafa andbanningar mist það litla álit, sem þeir áður höfðu. Þeirra eigin vopn hefir snúist í höndum þeirra gegn þeim sjálfum. Þeir hafa orðið sér til athlægis og nó standa þeir uppi ráðalausir, því krafan sem þeir studdust við, er svo að segja úr sögunni. Fytir aðgerðir templara hér á landi, er vakin sú hreyfing meðal bannmanna um heim allan, að slfks munu engin dæmi, og er vafalaust, að sú hreyfiag hefir eigi lítil áhrif á úrslit þessa máls á Spáni. Eftirfarandi skeyti frá al- þjóðabindindisskrifstofunni í Laus- anne,‘ undirritað af Hercod for- stjóra skrifstofunnar, sannar þetta: MAIþjóðaskrifstofa bindindis- manna hér, hefir í dag sent spönsku stjórninni ávarp, sem mótmæiir tilraunum Spánverja til þess að kúga ísiendinga. (Leturbr. hér). Avarpið er undirritað af ýms- um þjóðfrægum borgurum 12 landa í Evrópu og Bandaríkjunum. Eru þeir, sem undirritað hafa ávarpið ráðherrar ýmsra ríkja, þingmenn og háskólakennarar. Munum vér sénda yður afrit af ávarpinu á- samt undirskriftunum * Það þarf ekki að efa það, að ávarp þetta hefir sín tilætluðu á- hrif og mega andbanningar, með ritstjóra Morgunblaðs'ns f farar- broddi bera kinnroða fyrir sín afskifti af málinu hér heima, /. y. Börnin. Fyrir nokkrum dögum var eg á gangi í einum útjaðri bæjarins. I dyrunum á kjallaraholu elnni stóð lftil stúlka, á að gizka 8 ára gömul. Eg tók sérstakiega eftir þessari litlu stúlku, hún var ein- . ALÞYÐUBLAÐIÐ staklega fallegt barn, en svipurinn var alvarlegur éins og á reyndum manni og andlitið var fölt og bióðiaust, Eg staðnæmdist ósjálfrátt til að virða hana fyrir mér, hún hafði litið upp, og við borfðumst f augu Hvílik barnsaugul Þau geymdu hellan heim af sorg og vonleysi, þau geymdu alt of mikið af grát Iegri Iffsreynslu, svartnætti iífsins var þegar búið að eyða gleðinni f þessari ungu sál. Mig langaði tii að segja eitt hvað sem gæti komið brosinu fram í þessi tárvotu augu, en eg fann að hér var ekkert sem átti við; engin hughreystingarorð gátu bætt þessu barni upp það sem lífið hafði rænt það. Frá þessu barni var búið að stela helgasta innihaldi lífsins, sak leysinu, lífsgleðinni, æskueldinum. Hver hefir ábyrgðinaí Eg spyr ykkur, prestar, og þið sem kallið ykkur guðs þjóna, þið sem leyfið ykkur að tala um syndír og hel vfti, f sambandi við guðs heilaga kærleiksboð: Fyrir hvers syodir á þetta barn að bæta? Á það að bæta fyrir syndir þeirra sem skemma likamma sinn með daglegri ofnautn þeirra lífs nauðsynja, sem þetta barn varð að fara á mis við? Já, vissulega er því þannig var ið; það eru syndir hins rótfúna og óheiibrigða þjóðfélagsskipulags sem koma niður á þeim þúsundum af börnum, sem búa við hungur og neyð, Það eru syndir og sví virðingar hins kapitalistiska fyrir- komulags sem koma niður á sak lausum börnum og sem drepur kynslóðirnar í fæðingunni. Hvað á þetta að gaaga lengi svona. Alþýðukonur I Þið sem eigið börn, sem eru ykkur kær, sitjið ekki auðum höndum f baráttu al- þýðunnar að marki frelsisins; ef ykkur þykir sárt að sjá börnin ykkar svelta og skjálfa af kulda, ef þið eigið nokkra ögn af vilja og sjálfstæði, þá vinnið ykkar hlutverk. Vinnið að sigri alþýð- unnar, vinnið fyrir framtíð barn- anna ykkar. Nú standa kosningar fyrir dyrum, munið skyldu ykkar, gerið sigurinn glæsilegan, hann er spor i áttina til hins mikla dags, þegar svívirðingar auðvaldsins koroa ekki lecgur niður á sak» lausum börnum. G. K. ^staniií I bsnnn. Fyrir nokkru síðan átti eg er- iudi til eins kunningja mfns, eg barði. Til dyranna kom sonur hans 12 ára. Er pabbi þinn heima? Já, hann er heima, gerðu svo vel. Eg íór inn og þá blasti við mér það, sem Morgunblaðið segir, að ekki sé tii í Reykjavlk, þ. e. fátækt. Fjölskyldan ss manstendur af 7 manneskjum, hjónum og £ börnum. Hjónin eru í rúminu, þau eru bæði veik. Fyrir ofan konuna í rúminn liggur hvítvoðungur. Vagga stendur á miðju gólfi og: þar í barn á öðru ári. Stúlka 14 ára er að rugga því. 2 hengirúm 'eru við þilið, í öðru þeirra iiggur drengur, hann er nýkominn af Landakotsspítaia, Læknirinn sagði við föður hans um Ieið og hann fór af spítaíanum, að ef drengur- inn ætti nokkurntima að komast til heilsu, þá yrði hann að kom- ast á gott heimili, heizt f sveit, þar sem haan hefði næga mjólk og fulikomna aðhlynningu. Það gat nú ekki orðið, en í þess stað lá hann nú þarna náfölur, kaldur og svangur, skinhoraður, vafinn í tötrum, sem nægðu alls ekki tii þess, að verja hsnn vetrarkuidan- um, sem nísti íbúa kofáns þrátt fyrir það, þótt dagbiöð væru iímd um aila veggi og loftið. — Maðurinn var búinn að vera verk • laus um iangan tíma. Eg ætla mér ekki að lýsa þeim nauðsynja- skorti, sem eg varð þarna var við. Það geta víst flestir gett sér það f hugarlund, jafnvel Knútur og lfklega ailir nema Morgunblaðs- aðstandendurnir. Nú er þessi fjölskylda farin úr Reykjavík, því að Knútur neitaði henni um hjálp. En hreisið stend- ur enn þá, það er fyrir innan Kirkjubói, inn undir sundlaugum. Það er 2,94 cm. á lengd, 2,04 cm. á breidd og 1,71 eto. frá gólfi tii lofts. í þessari fbúð var fslenzkt alþýðufólk á þriðja ár.. Þarna varð konan að vera allan þann tima keagbogia, nema þann tíma, sem hún lá í rúminu, sem var orðið ærið oft upp á síðkastið,.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.