Mosfellsblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 3
Verðum við í gíslingu
á Kristnitökuhátíð?
Umferðarskipulag vegna Kristni-
tökuhátíðar 1. og 2. júlí 2000 er gert
ráð fyrir verulegum breytingum á
tengingum Mosfellsbæjar við þjóð-
vegakerfið. Ljóst er að breytingar á
umferðarskipulagi mun hafa í för með
sér verulega truflun fyrir íbúana og
sérstaklega í Mosfellsdal.
Akstur frá þéttbýlissvæðum bæjar-
ins á að tryggja með eftirtöldum tak-
mörkunum:
1. Að fara verður Reykjaveg/Hafra-
vatnsveg að og frá Helgafells-
hverfi og Alafosskvos. Tengingu
Vesturlandsvegar við Alafossveg
og Asland verður lokað og hring-
torg fjarlægt tímabundið.
2. Þverholt að og frá Vesturlands-
vegi verður lokað og umferð
beint um hringtorg á Langatanga.
3. Aðkoma að Skálatúni verði frá
Bröttuhlíð framhjá Hulduhólum.
4. Aðkomu að Hlíðartúnshverfi og
Skarhólabraut frá Vesturlands-
vegi verður lokað og verður hún
um Skarhólabraut og Skarhóla-
mýri að Reykjavegi. Farið verður
í endurbætur á veginum yfir
Skarhólamýri. Fara verður um
lóð Trésmiðjunnar Mosfells frá
Hamratúni og að Grænumýri, eða
tengja hverfið með öðrum hætti
við Skarhólabraut.
5. Gatnamótum í Mosfellsdal verð-
ur lokað og umferð beint um
Skammadal að Reykjavegi, þar
sem lagður verður bráðabirgða-
vegur.
Ljóst er að hundruðum milljóna
verður eytt í Kristnitökuhátíðina og
sumt aðeins bráðabirgðaráðstafnir, en
þó eru ekki áætlaðar nema 10 milljón-
ir hér innanbæjar fyrir utan vegaxlir og
innifalið í því að komu nánast öllu í
samt lag aftur. Fólk vill eðlilega nota
fjármagn til raunverulegra vegafram-
kvæmda, eins og tvöföldun Vestur-
landsvegar sem er afar brýnt, en ekki
skyndilegar lagfæringar á vegöxlum
vegna Kristnihátíðar, en svona hafa
vegaxlimar verið undanfarin 30 ár og
ekkert legið á fram að þessu. Það er
umferðin og umferðarslysin á vegin-
um sem kalla á framkvæmdir strax.
Hvatningarverðlaun Mosfellsbæjar
ann 4. febr. s.l. voru í fyrsta skipti veitt hvatningarverð-
laun Mosfellsbæjar og hlaut þau Flugfélagið Atlanta ehf.
Félagið hefur markað sér þá stefnu að reka eingöngu breið-
þotur. Astæðan er að tekjumöguleikar slíkra véla er meiri en
minni véla og ekki mikill mun-
ur á rekstrarkostnaði. Flugvéla-
floti Atlanta samanstóð áður af
Boeing 737-200/300, Boeing
747-100/200/300. Tri Star vél-
amar munu hverfa úr þjónustu
félagsins á næstu misserum og
Boeing 767 koma í staðinn. í
lok febrúar 2000 var félagið
með 17 þotur í rekstri sem taka
rúmlega 7.200 farþega. Félagið
hætti nýlega rekstri þriggja
Boeing 737 véla og við þær
breytingar lækkaði meðalaldur
flugflotans um 10 ár. Meðalald-
ur mun enn lækka á árinu 2001
með tilkomu Boeing 767 vél-
anna. Fyrirtækið er með fastar útistöðvar í Jeddah, Keflavík,
London Gatwick, Manston, Manchester og Miami. í Man-
ston, Englandi er aðalviðhaldsstöð félagsins, en Miami í
Bandaríkjunum er varahlutalager.
Eftirfarandi fyrirtæki
voru einnig tilnefnd til
verðlaunanna: Reykjagarð-
ur, Isfugl, Mosfellsbákarí,
Nýbrauð, Mottó, ístex, fyr-
irtæki og verslanir í Kjam-
anum, Reykjalundur, Hlín
Blómahús, Sigurplast, Á.
Oskarsson, Pizzabær,
Reykjabúið og Álafoss
verksmiðjusala.
Arngrímur Jóhannsson og
Þóra Guðmundsdóttir eigend-
ur Atlanta, taka við verðlaun-
um frá Björgvin Njáli Ingólfs-
syni,form. Atvinnumálanefnd-
ar.
Nýkaup
tfyfiðó
Glœsileg
húsgögn og
gjafavörur
Mikið
vöruúrval
Alltafferskir
566-8555
Aí/taj
góð
tilboð
Apwtekið Café Krónika Heitur matur í hádeginu
Brautryðjendur að lcegra lyfjaverði
BASIC Tíska og sport ífararbroddi BÓKASAFN Bcekur, tónlistardiskar, margmiðlunardiskar, tímarit, hljóðbcekur og myndbönd
s n y r t i s t o t a n
FAT I/A\ A mfwara
fyrir dömur
og herra
fyluA
Hársnyrting við allra hœfi
MosfcllsbliiðiA o