Mosfellsblaðið - 01.07.2000, Page 3

Mosfellsblaðið - 01.07.2000, Page 3
 I llmbyltíng á skípula, skólahaldsins í Mosfelísbæ Kennarav ekki hafðir með í ráðum Á fundi bæjarráðs þann 30. maí síðasliðinn var kynnt skýrsla fyrirtæk- isisns Rekstrar og ráðgjafar urn stjóm- sýsluúttekt á fræðslu- og menningar- sviði Mosfellsbæjar. Úttektin sem unn- in er sem liður í að móta heildstæða skólastefnu fyrir bæinn, en því verk- efni skal lokið í nóvember á þessu ári og er þessi hluti skýrslunnar aðeins fyrsti áfangi. I verklýsingu segir m.a. um markmið úttektarinnar sé "að gera tillögur að stjómskipulagi fræðslu og menningarsviðs með það að leiðarljósi að skilvirkni og nýting fjármuna verði sem best, ásamt því að tryggja faglega starfsemi sviðsins. Skipulagið á að gera sviðið hæfara til að takast á við þau verkefni sem því eru falin af bæj- arstjóm þannig að þjónusta þess verði sem öflugust innan þeirra ijárveitinga sem til málaflokksins er ætlað. I skýrslunni kemur fram að verkefn- ið hafi verið unnið með þeim hætli að tekin vom viðtöl við kjöma fulltrúa, starfsmenn og stjómendur bæjarins til að kynnast viðhorfum þeirra til núver- andi skipulags og kanna hvernig stjómsýslunni verði best fyrir komið. Yfírlýsing kennara Það undarlega við þessa skýrslu virðist vera það að kennararnir sjálfir hafa lítið verið hafðir með í ráðum. Þannig virðist skýrslunni vera slengt fram í lok skólaársins og þeim ekki gefinn kostur á að fjalla unt þetta mik- illvæga málefni, sem snýr að þeim og þeirra vinnustað. Á kennarafundi þann 30. maí samþykktu kennarar og starfs- menn Varmárskóla einróma að lýsa undrun sinni á þessari stjómsýsluúttekt og því að hún sé kynnt á síðasta degi skólans og þá aðeins örfáum hluta starfsmanna. I yfirlýsingunni kemur fram að starfsmenn skólans munu ekki hafa nokkra aðstöðu né tækifæri til að kynna sér skýrsluna og gera athuga- semdir við hana áður en endanleg ákvörðun er tekin. Þá lýsti fundurinn Kjósin í Kjósinni voraði ekki afleitlega, en stundum verið betra. Sauðburður gekk vel og margarjarðir em með sauðfé. - Það sumraði vel seinni part júní og lít- ið kal, sláttur er þegar hafinn á nokkmm bæjum nú í endaðan júní, enda sprettur vel í 20 stiga hita. Farið er að veiðast nokkuð vel í Laxá. Aðalfundur veiðifélagsins sam- þykkti ekki byggingu veiðihúss að svo komnu máli. - Refur hefur sést og greni hafa verið unnin. Að öðm leyti er fagurt mannlíf og góð framtíð í Kjósinni, sagði Magnús Sæmundsson að Eyjum í Kjós að lokum. yfir áhyggjum sínum yfir því að starfs- menn skólans geti ekki komið skoðun- um sínum á framfæri. Tillögur Tillögur sem byggðar em á úttekt- inni gera ráð fyrir að skipurit fræðslu og menningarsviðs greinist í þrjár megin einingar, líkt og verið hefur þ.e. fræðslumál, menningarmál og íþrótta- og æskulýðsmál. Þá er lagt til að ráð- inn verði aðstoðarmaður forstöðu- manns fræðslu-og menningarsviðs. Lagt er til að tveir heildstæðir skólar verði í Mosfellsbæ, annar á vestur- svæðinu og hinn á austursvæðinu. Þetta þýðir að skólarnir á austursvæð- inu þ.e. Varmárskóli og Gagnfræða- skólinn verði sameinaðir í einn skóla, eina skipulagsheild. Þá verður skólun- um stigskipt til að koma til móts við stigskiptingu aðalnámsskrár, en með því að færa skólana saman í eina skipulagsheild er komið til móts við heildstætt nám og þannig dregið úr til- búnum skilum á milli skólastiganna. Lagt er til að að skipurit gmnnskólans verði skipt í þrjár megin einingar: fageiningu, stigstjómun og rekstar- þjónustu. Fleiri tillögur em gerðar. Nemendafjöldi Nemendafjöldi í Varmárskóla var á síðasta áji 594 nemendur, auk 107 nemenda í útibúinu á vestursvæðinu. í Gagnfræðaskólanum vom síðastliðinn vetur 389 nemendur. Gert er ráð fyrir að nýji skólinn á vestursvæðinu verði tekinn í notkun haustið 2001. Þá er gert ráð fyrir að nemendafjöldinn verði um 1150 böm á gmnnskólaaldri, en á síðustu tveim ámm hefur gmnnskóla- nemendum fjölgað um 7 % á ári, en spá Mosfellsbæjar byggir hins vegar á að nokkuð hægi á fjölgun milli ára og verði um 2.5 % að jafnaði til 2003. Með samþykkt tillögunnar um einn heildstæðan skóla á austursvæðinu yrði til mjög stór skóli með yfir 1000 nemendum. Umfjöllun Fjallað hefur verið um þessa skýrslu í bæjarstjóm og í fræðslunefnd. Á fundi fræðslunefndar þann ló.júní síð- astliðinn var fjallað ítarlega um úttekt- ina og samþykkt einróma að mæla með því við bæjarstjóm að unnið verði áfram í anda þessarar úttektar og þeg- ar nánari útfærslur liggja fyrir í ein- stökum þáttum komi þeir til umsagn- ar nefndarinnar. Þá gerði Ásta Björg Bjömsdóttir fyrirvara um tillögu um tvö skólasvæði með tilliti til þeirra kosta og galla sem koma fram í skýrsl- unni. Minnihlutinn hefur lagt til að gildis- töku væntanlegra breytinga verði frestað til haustsins 2001 þegar nýr skóli tekur til starfa þannig að eyða megi óvissu starfsmanna varðandi stöðu sína, en erfitt getur reynst fyrir bæjarfélagið að auglýsa eftir kennur- um á miðju skólaári. Þessu hafnaði meirihlutinn. Þrír góðir §aman Þessi mynd er tekin í kaffistofu Gróðrarstöðv- arinnar að Dalsgarði í Mosfellsdal fyrr í vor. Þama eru bræðumir Fróði Jóhannsson og Gísli Jóhannsson, en á veggnum er faðir þeirra, Jó- hann Jónsson, hýr á svip. Hann er látinn. Jóhann setti gróðrarstöðina á fót á sínum tíma, Fróði rak hana síðan um árabil og nú hefur Gísli tekið við. Tilefnið að þessari mynd er stuðning- ur Dalsgarðs ásamt fleiri fyrirtækja við vígsluhá- tíð Kiwanisklúbbsins Mosfells og eru hér með sendar þakkir frá Kiwanismönnum til allra þeir- ra sem studdu klúbbinn í sínum fyrstu skrefum . til samfélagsins hér. MoslrllMblaðið Q

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.