Mosfellsblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 8
Kristnitaka 1
Myndin er af umferð frá Kristnitökuhátíð á Þingvöllum
gegnum Mosfellsbæ 2. júlí 2000. Kristnitökuhátíðin var
afar vel undirbúin og skipulögð af hálfu þeirra sem að henni
stóðu.
Það var skemmtilegt að sjá tvo alþingismenn búsetta í
Mosfellsbæ taka til máls á þingfundi, þau Sigríði Önnu
Þórðardóttur og Guðjón Arnar Kristjánsson, en á skemmti-
skránni steig fram á sviðið Sigrún Hjálmtýsdóttir og söng
sig inn í hjörtu allra landsmanna eina ferðina enn.
Þegar þessi mynd er skoðuð, má ekki gleyma að færsla
Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ var grundvöllur fyrir því
umferðarskipulagi sem í gildi var á Kristnitökuhátíð. Hefði
færslan ekki verið gerð, hefði hátíðin verið í uppnámi.
Reyndar kom á hana færra fólk en gert var ráð fyrir. Mos-
fellingar sjá fyrir sér margar hátíðir á Þingvöllum um ókom-
na framtíð og munu leggja sig fram um að greiða fyrir umferð landsmanna um
bæjarfélag sitt, eins og nú var gert. Deilt er um kostnað, en hátíðina varð að halda
og fólk um allt land vill öryggi á Vesturlandsvegi, ekki síst við sem búum við
hann.
Heita vatnið:
Hækkar verðið?
Hœqt er að greiða med debet-
og kredltkortum f heimsendingu
Sendum heim frá
kl. 11:30 aila daqa
O 12“ med 3 áleggstegundum og I l coke............. 1390
O 16" með 3 álggstegundum og 2 L coke.............. 1590
O 16" med 2 áleggstegundum, hvftlaukoha, midstœrd af frönskum
eda tltid hvltlauks- eda kryddbraud og 2 L coke. 1790
O 18" med 2 áleggstegundum og 2 L coke............. 1790
O 18“ med 2 áleggstegundum, hvlttaukolla, mldstœrd af frönskum
eda lltid hvftlauks- eda kryddbraud og 2 L coke. 1990
0 12" med 3 áleggstegundum.. 990 1X1
o 18" med 3 áleggstegundum.. 1190
0 18" med 3 áteggstegundum.. 1390
Frábærar Iranskar
Hunl's
Opid:
Sunud. - fimmtud. 11:30-23:30
Föstud. - laugard. 11:30-01:00
566-8555
Þverholti 2
Á fundi bæjarráðs þann 29. júní s.l.
lá fyrir tillaga frá tækninefnd um að
hafin verði vinna við endurskoðun á
gjaldskrá Hitaveitu Mosfellsbæjar. Til-
lagan var rökstudd með því að frá því
að gjaldskrá veitunnar var síðast end-
urskoðuð 1996 hafi útsöluverð á heitu
vatni hjá Orkuveitu Reykjavíkur
hækkað um 7,9%, byggingarvísitala
um 16,6% og launavísitala um 32%.
Fulltrúi Sjálfstæðismanna í bæjarráði,
Hákon Bjömsson lét í tilefni af þessari
tillögu bóka eftirfarandi:
„Af samþykkt tækninefndar má ráða
að tilefni sé til hækkunar á útsöluverði
heits vatns. Ég er þessu ósammála þar
sem:
I Gullbrúði
Hjónin Freyja Norðdahl frá
Ulfarsfelli og Þórður Guðmunds-
son frá Reykjum áttu gullbrúð-
kaup þann 19. maí 2000. Þau
gengu saman í skóla og upplifðu
tímana tvenna í Innansveitar-
króniku Kiljans.
Þau fermdust saman í Lága-
fellskirkju þann 19. maí 1940,
prestur var séra Hálfdán Helga-
son.
Örlögin höguðu sér á þann veg
að þau felldu hugi saman og sami
prestur í sömu kirkju gaf þau sam-
an þann 19. maí 1950. Myndin
var tekin á brúðkaupsdegi þeirra í
dyrum Lágafellskirkju 19. maí
1950.
a. að söluverð á heitu vatni hjá Hita-
veitu Reykjavíkur til Hitaveitu
Mosfellsbæjar lækkaði fyrir
tveimur ámm um u.þ.b. 18%.
b. að hagnaður af rekstri hitaveitu á
árinu 1999 nam 36,2% af tekjum.
Hækkun á heitu vatni við þessar að-
stæður getur aðeins túlkast sem við-
bótarskattlagning á íbúa bæjarins.
Ég tel ekki tilefni til endurskoðunar
á verði á heitu vatni með tillili til
hækkunar. Hins vegar get ég fallist á
að almenn skoðun fari fram á gjaldskrá
Hitaveitunnar í þeim tilgangi að lag-
færa hugsanlega hnökra sem á henni
kunna að vera.“
—
Yfirlitsmynd (Index Print)
FramköHun á APS filinuni
Stækkanir uppí 20 x 30 cm
ojr ölluni framköllunum o
=i CL
c
~o
n'<
FUJI hágæðapappír notaður í allar framkallanir
c
3
01