Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Qupperneq 12
Samstarfshópur innan Aftureldingar
hélt veglegt þorrablót í Hlégarði
s.l. laugardagskvöld. Jóhann Guð-
jónsson form. handknattleiksdeild-
ar setti blótið, veislustjóri var Páll
Guðjónsson f.v. bæjarstjóri sem
fór á kostum að venju. Örn Árna-
son skemmti gestum, sem hlógu
Hlégarð nærri upp af undirstöðum
og síðan lék hljómsveit Geirmund-
ar Valtýssonar fyrir dansi, sem var
stiginn langt fram á nótt. Blótið var
hið skemmtilegasta, enda Vignir lista-
kokkur og þetta þorrablót er komið til að
vera.
Guðbrandur ng Bjarni Asgeir.
hhh - kjósið
kfarnakonuna
hlöru
Pun'íiblúl
Eg styð Klöru af heilum hug vegna
þess að ég treysti henni til að
koma málefnum sem hún beitir sér
fyrir í höfn. Ég hef þekkt hana í tæp
30 ár og hún er áreiðanleg, dugleg og
fylgin sér. Klara hefur búið vel að
fjölskyldu sinni og rekið heimili sitt
með miklum myndarbrag, en nú
þegar ungamir eru flognir og aðeins
einn fugl eftir heima, vill hún og hefur
tíma til að láta að sér kveða í bæjar-
málunum.
Klara er víðlesin og vel að sér í
mörgu. Hennar helsta áhugamál eru
umhverfismál og er fengur í að fá
slíkan liðsmann sem Klöru til að
vinna að þeim málum og fegra okkar
fallega bæ, ekki síst þar sem verið er
að koma okkur á kortið sem ferða-
mannabæ.
KKK - kjósið kjarnakonuna
Klöru í 5. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðismanna 9. febrúar ‘02
Kristján Ásgnmsson
deildarstjóri
Ölg.Egils Skallagnmssonar.
Kennarar úr Varmárskóla fyrir framan Mosfellskirkju.
Halldórs Laxness
Myndin er tekin 19. jan. s.l. þegr
komið er frá Reykjavík að at-
hafnasvæðinu á Vestulandsvegi við
Skarhólamýri. Fremst á myndinni
blasir við akbrautarmerki, en engin
merking er á steyptum einingum sem
loka akreininni og hún sveigir til
vinstri. Margir ruglast, sérstaklega í
myrkri og ætla hægra megin. Þama
hefur fólk lent í óhöppum og skemmt
bíla sína. Fólki er bent á að það getur
átt kröfurétt á Vegagerðina vegna
skemmda á bílum vegna ófullnægj-
andi merkinga og hættulegra að-
stæðna, sem skapaðar hafa verið.
Ákvörðun um hringtorg og
nýjar vegtengingar
Tekin hefur verið ákvörðun um að
byggja hringtorg á Vesturlandsvegi
við Skarhólabraut, en Baugshlíð mun
tengjast því. Þessi framkvæmd er haf-
in með því að fergja og láta landið
síga austan Vesturlandsvegar, en þetta
er gert vegna þess að Vesturlandsveg-
urinn er „flýtur“ þarna í mýrinni og er
ekki grafinn á fast. Fargið flýtir sigi á
það stig sem vegurinn er á. Um mán-
aðamót febr./mars verður fargið flutt
vestur fyrir veginn og reiknað er með
að framkvæmdum verði lokið með
haustinu.
Veghaldari berábyrgð
Vegagerðin er veghaldari og ber
ábyrgð á ástandi þjóðvegar nr. I um
Mosfellsbæ. Þegar ráðist var í þessar
framkvæmdir og merkingar höfðu
verið settar upp voru þær með þeim
hætti að óhöpp urðu og lá við slysum.
Það má þakka Þorsteini Sigvaldasyni
og mönnum hans í Áhaldahúsinu að
aðstæður og merkingar voru færðar til
betri vegar, en ekki Vegagerðinni.
Það er ótrúlegt að ekki sjáist viðvar-
anir fyrir fólk úr höfuðborginni eða
utan af landi gegn um Mosfellsbæ
með öflugum ljósaskiltum einhveij-
um kflómetrum áður en komið er að
framkvæmdum. Hraðinn er tekinn
niður í 50 km., merkin eru lág, en ekki
stór og augsýnileg uppi á ljósastaur-
um. Fólk er óundirbúið, merkingar af-
leitar og langt undir þeim staðli sem
sést erlendis. Merkingar við fram-
kvæmdir í Kollafirði nú í haust voru
með sama sniði, þar voru sett upp um-
ferðarljós sem margir sáu ekki vegna
þess hve lág og ófullkomin þau voru.
Margir fóru á rauðu ljósi óafvitandi.
Iðnaðarsvæði í herkví
Framkvæmdir á Vesturlandsvegi
við Skarhólabraut hafa breytt veru-
lega aðkomu að iðnaðarsvæði sem
hefur átt undir högg að sækja undan-
farin ár af ýmsum ástæðum. Þar eru
mörg rótgróin og virt fyrirtæki sem
þjóna bæði fólki af höfuðborgarsvæð-
inu og landsbyggðinni. Nú hefur vegi
að hverfinu verið breytt og lagður
ljóslaus moldarvegur í stað upplýsts
malbikaðs vegar. Með þessari fram-
kvæmd er ásýnd iðnaðarsvæðisins
breytt til verri vegar. Það er krafa
fólks sem starfar og rekur sín fyrir-
tæki í Skarhólamýri að iðnaðarhverfið
haldi sínu öryggi með malbikuðum og
upplýstum vegi í heilt ár sem tekur að
koma þessari breytingu Vesturlands-
vegar á legg.
Varúð
Blaðið fer þess á leit við ökumenn
að þeir aki sérstaklega varlega um
þetta svæði Vesturlandsvegar í Mos-
fellsbæ, sem verður stórhættulegt í
hálku og snjó. Þá kröfu þarf að gera til
veghaldara, að merkingar og umbún-
aður bráðabirgðaleiða sé samkvæmt
hámarksöryggiskröfum. Annað sætta
bæjarbúar sig ekki við.
Gylfi Guðjónsson.
Að undanfömu hafa kennarar við
grunnskóia hér í Mosfellsbænum
verið að undirbúa hátíðarhöld í tilefni
þess að hundrað ár verða liðin frá
fæðingu heiðursborgara Mosfellsbæj-
ar, Halldórs Laxness.
Kennarar hafa setið á skólabekk þar
sem fjallað hefur verið um nóbels-
skáldið. Heimir Pálsson sagnfræðing-
ur hélt fyrir skemmstu skemmtilegt
og fræðandi erindi um skáldið. Þá hélt
Bjarki Bjamason erindi um Halldór
og laugardaginn 12. janúar var farið í
vettvangskönnun að Gljúfrasteini og
gönguleiðir skáldsins gengnar. Mos-
fellskirkja var heimsótt svo og
Guddulaug.
Á næstu mánuðum munu nemend-
ur og kennarar vinna saman að verk-
efnum tengdum lífi og störfum Hall-
dórs og í lok febrúar verða haldn-
ir „þemadagar" til heiðurs
skáldinu. Laxnesshátíðarhöld
fara svo fram á sumardaginn
fyrsta þar sem kynntur verð-
ur afrakstur vinnu nemenda
í leik-og grunnskólum bæj-
arins.
llndirbúníngur
að aldarafmæli
I'10SFELLS/2