Vísir - 17.03.1970, Page 4
Getraunaspá Halls S'imonarsonar:
V1SIR . Þriðjudagur 17. marz 1970.
Heimaliðin virðast
vera sigurstranglegri
Á getraunaseðlinum 21. marz eru
allt leikir úr deildakeppninni og eru
það snúningsleikir frá 6. desember.
Úrslit urðu þá þessi:
Arsenal — Southampton 2—2
Coventry—Tottenham 3 — 2
C. Palace —Derby 0 — 1
Everton—Liverpool 0—3
Leeds — Wolves 3—1
Manch. Utd.—Chelsea 0—2
Notthm. For.-Sheff. W. 2-1
Stoke—Newcastle 0—1
Sunderland —Ipswich 2 — 1
W.B.A.—Bumley 0 — 1
West Ham—Manch. City 0—4
Sheff. Utd. — Leicester 1—1
Af þessum úrslitum sést, að vinn-
ingamir hafa skipzt nokkuð jafnt
millj heimaliða og útliða_ — sex
gegn fimm — og eitt jafntefli.
Núna i vikunni verða háðir fjöl-
margir leikir á Englandi — og
verða nær öll liðin í eldlínunni.
Ættu þau þvi hvað það snertir að
standa jafnt að vígi á laugardaginn.
Á töflunni hér á eftir sjáum við úr-
slit milli liðanna, sem leika saman
á laugardaginn, þrjú síðustu árin
og er hægt að draga af þeim ýmsar
ályktanir. Taflan skýrir sig að
mestu sjálf — en til öryggis skul-
um við aðeins líta á fyrsta leikinn
— milli Burnley og WBA. Þar kem-
ur fram, að félögin hafa gert jafn-
tefli í Bumley 1969 og 1968, en 1967
vann Bumley með 5 — 1. Og þá er
það taflan.
sigraði í fyrra, þegar félögin voru
bæði í 2. deild. C. P. hefur aðeins
unnið einn leik á útivelli, gegn
Manch. City í síðustu viku 1—0,
en gert 8 jafnteflj f 17 leikjum.
Derby er með 12 vinninga heima
í 18 leikjum, 3 jafntefli.
Ipswich—Sunderland 1
Leikur milli tveggja botnliða.
Ipswich er þó líklegra til sigurs og
í þessum leik leikur Jimmy Robert-
son (50 þús. pund frá Arsenal) i
fyrsta sinn fyrir Ipswich. Ipswich
hefur unnið 5 leiki heima, en gert 5
jafnteflj í 17 leikjum. Sunderland
unnið einn leik úti.
Liverpool—Everton x
Erfiður leikur Liverpool-liðanna.
Mjög óvænt vann Liverpool fyrri
leikinn í vetup á leikvelli Everton
með 3 — 0. Everton stefnir nú i
meistaratitilinn — og sigur í þess-
um leik mundi næstum tryggja
hann. Jafntefli þó líklegustu úrslit-
V Manch. City—West Ham 1
West Ham hefur átt, afar slaka
leiki að undanfömu, og eina von
liðsins, að eitthvað fari úrskeiðis
hjá City í Evrópukeppninni, sem
gætj skemmt keppnisskap leik-
manna, en City leikur gegn Aca-
demica á morgun (miðvikudag).
Heimasigur mjög líklegur.
LectCXH. — (ÍRiVXT iaw- iqui- Wfe*
o-oy 5-1
- MftKU!. uu. i-i, 1-1, 1-3
- C .■?« o-l » a-o
WIC« *SUICP«JRW«»C1> A-O, •• 9 —
LCM ER?OOk- BVSRTO/T M I 1-0, 1-1
HflifcH.omf-wwT M / 5*0. 1-M
rrcvocnsTkft-sroicfc 5-0, 1-1' 3-1
W.u).- o-l, 0-0, O-lj
bovcr AAMFToK -BRSEKAk l*L; x-o, l-l
r»trc.K«»M>co4E»aRY 7-0, H-l,
0-0, 1*0, — ■
LÞxcc.'Stc.r.sussc uU. — » 0-0, l-Z
Og nánar um leikina:
O Bumley—W.B.A. x
Burnley er með slakan árangur
heima. 5 vinninga, 5 jafntefli, og 7
töp, en WBA hefur unnið 4 leiki á
útivelli, gert 3 jafnteflj og tapað 9.
Jafnteflislegur leikur, en hvorugt
liðið hefur að neinu að keppna í
deildinni.
0 Chelsea—Manch. Utd. 1
Þetta ætti að vera „öruggur"
leikur fyrir Chelsea, þar sem Uni-
ted leikur gegn Leeds öðru sinnj í
bikarkeppninnj mánudaginn 23.
marz — og leikmenn Manchester-
liðsins „spara“ sig í þessum leik.
Þess ber þó að geta, að United
hefur ekkj tapað í 17 leikjum —
síðan 6. des. — þá tapaði félagið
fyrir Chelsea á heimavelli.
Newcastle—Stoke x
Newcastle er líka að berjast i
Evrópukeppni og einbeitir sér þar,
því liðið hefur fyrir engu að berjast
í deildakeppninnj lengur. Stoke
hefur gert mikið af jafnteflpm á
útivelli, og þrátt fyrir „úrslitin í
fyrra ætti þetta að geta orðið jafn
leikur.
Derby—C. Palace 1
Derby hefur sigrað í fjórum
síðustu leikjunum og ætti að sigra
í þessum leik — þó svo, að C. P.
Sheff. Wed.-Nottm. For. 1
„Miðvikudagsfélagið" berst fyrir
tilveru sinni í 1. deild, og hefur náð
ágætum árangri að undanförnu.
Keppnisharka leikmanna er miklu
meiri en áður. Heimasigur mun lík-
legri.
Southampton—Arsenal 1
Þarna ætti Southampton að hafa
góða möguleika á sigri, þar sem
Arsenal stendur vel að vigi í borga-
keppni Evrópu, og leikmenn liðs-
ins hætta ekki á neitt gegn Sout-
hampton, enda engra hagsmuna að
gæta í deildakeppninni lengur. Leik-
menn Southampton munuhinsvegar
berjast um hvern bolta, þar sem
félagið er nú í mikillj fallhætfu.
Tottenham—Coventry 1
Tottenham er á uppleið, þrátt fyr-
ir tapleikina gegn Everton í siðústu
viku, en Coventry hefur staðið sig
heldur illa að undanförnu og á
laugardaginn meiddist bezti varnar-
maður liðsins, Barry. Tottenham
hefur unnið Coventry á heimavelli
undanfarin ár og ætti einnig að gera
það nú.
Wolves—Leeds 2
Leeds verður að sigra í þessum
leik ef takast á að verja meistara-
titilinn — og þótt Úúlfamir séu með
góðan árangur heima, 8 vinninga
og 7 jafntefli í 17 leikjum, verða
þeir sennilega að sætta sig við tap
i þessum leik.
Leicester—Sheff. Utd. 2
Sheff. Utd. er í öðru sæti i 2.
deild og hefur mikla möguleika að
komast aftur í 1. deild. Leicester,
sem féll niður í fyrra, er hins vegar
í^9?'SætSffI deildinftKog hefur-litla
sem enga möguleika að' komast
upp. Sheff. Utd. vann ágætan sigur
í Blackburn nýlega — og ættj í
þessum leik að vinna sinn sjötta
sigur á útivelli á leiktímabilinu.
Jóhann sigursæll
Jóhann Vilbergsson frá Siglu-
-firði er nú orðlntV'Reykvikingur"
starfar hér syðra'víð leigubila-'
akstur, og stundar skíði eftir
megni, en sannast sagna er það
erfiðara hér en t.d. á Siglufirði,
þar sem skíðabrekkumar eru
svo að segja inni í miöjum bæ.
Engu að síður hefur Jóhann
stundaö æfingar og oröið sigur-
sæll hér. ekki síður en fyrir
íorðan.
'Um helgina varð Jóhann
Reykjavikurmeistari bæði I
svigi og stórsvigi. Á þessari
mynd, sem Bragj Jónsson tók
fyrir okkur, sést Jóhann á fullri
ferð í brautinni með sinn sér-
kennilega stíl. Á stærri mynd-
inn; sést biðröð við togbrautina.
- rsfrtt+’ í,‘ Í-'.í ' r
Páskavikan í Jósepsdal
• Dvalið verður í skíðaskáia Ár-
menninga í Jósepsdal yfir páska-
vikuna. Þar er nú nægur og góður
skíðasnjór og vonazt er til að svo
haldist.
Tvær skfðalyftur verða í gangi,
drifnar með dráttárvélum, svo
engir þurfa að örvænta að þeir
komist ekki upp brekkurnar. Skíöa-
kennsla verður alla dagana, bæði
fyrir byrjendur og lengra komna.
Kennsluna mun annast hinn gamal-
reyndi skiöakappi B.iarni Einarsson,
með aðstoð eldri félaga. Þá mun
verða staðsettur snjóbíll í daluuni,
til öryggis og þæginda fyrir þá er
þangað koma: Fjölbreytt skemmti-
efni verður á kvöldvökum, með
þátttöku dvalargesta og stiginn
dans. Forsala á dvalarkortum
verður á fimmtudag og föstudag frá
kl. 18 til 22 í Antikbólstruninni,
Laugavegi 62.