Vísir - 17.03.1970, Qupperneq 5
V í S IR . Þriðjudagur 17. marz 1970.
Farið þér reglulega til
tannlæknis til eftirlits?
E; rn Ingólfsson,
ge: ég nú sagt að ég fari fyrr en
ég er búinn að fá all hressilega tann
pínu. Þetta er svo helv ... dýrt.“
Tómas Óskarsson, 11 ára nemi í
Austurbæjarskólanum: „Já mamma
pantar alltaf reglulega tíma fyrir
mig hjá skólatannlækninum."
Jón Halldórsson, nemj í Stýrimanna
skólanum: „Nei, ég hef aldrei farið
til tannlæknis. Og svei mér þá ef
nokkur tönn er skemmd i mínum
munni!“
Þóra Jónsdóttir, 4 ára gömul: —
Hún svaraði raunar ekki fyrir sig
sjálf, heldur móðir hennar, sem
sagði: „Ég fylgist ákaflega vel með
tönnum krakkanna, og ég er einmitt
nýbúin að taka eftir því, að tveir
jaxlar í henni Þóru eru að byrja að
skemmast. Ég ætla því strax með
hana til tannlæknis.“
Jón Ólafsson, nemi í Austurbæjar-
skólanum: „Já, ég fer alltaf með
séx mánaða mUIibili. Þá finnur mað
ur ekkert fyrir þessu og viðgerðirn-
ar veröa ekki eins dýrar.“
Gömul hús hverfa — Stjórnarráðshús kemur í staðinn
■ Mörgum er sárt um gamla
hluti. Þannig er það gjarnan, þegar
gömul hús verða að hverfa af sjón
arsviðinu fyrir nýjum. Þá verða
margir til þess aö mótmæla breyt-
ingunum. Þeim finnst að gamla
borgarmyndin fái á sig annan og
óviökunnanlegri blæ. Á myndinni
sem hér fylgir sjást gömul hús, sém
lengi hafa þjónað Reykvikingum
og verða senn að hverfa fyrir niður
rifsmönnum. Á þessum stað verður
síöar reist stjórnarráðsbygging, þ.e.
milli Amtmannsstígs og Bankastræt
is. Eflaust munu margir sakna þess
ara fulltrúa gamals byggingarlags í
miðborginni, — en reisulegt aðset
ur stjórnarráðsins verður væntan
lega síðar meir til að græða „sár-
in“ og verður vonandi eitt af stór-
hýsum borgarinnar, sem allir borg
arbúar verða stoltir af.
„PÁLMI ÁTTI 4. SÆTIÐ
— segir Guðni Jónsson, formaður féfags
frjálslyndra og vinstri manna
Frjálslyndir og vinstri-
menn í Kópavogi hafa mót-
mælt ummælum Pálma Stein
grímssonar, eins af mönnum
þeirra, sem taldi sig eiga víst
annaö sæti listans eftir próf
kjörið, en lenti í staðinn í
fjórða sæti.
Guðni Jónsson, formaður fé-
lagsins segir að vegna skrifa
þessara þyki félagi frjálslyndra
og vinstri manna rétt að
■ leggja- staðreyndrr málsinsiá
borðið.
Segir hann að samkvæmt regl
um, sem starfsráðsfundur i félag
inu hafi einróma samþykkt 21.
febrúar skyldi þannig farið að,
að sá er hlyti flest atkvæði í
fyrsta sæti fengi það sæti, sá er
hlyti flest atkvæöi í 1. og 2.
sæti fengi 2. sæti, sá er hlyti
flest atkvæði í 1., 2. og 3. sæti
fengi 3. sæti o.s.frv.
Ef atkvæði féllu hins vegar
jöfn, skyldu atkvæði manna í
næsta sæti fyrir neðan ráða úr-
slitum. Við talningu kom í ljós
ið Sigurjón Ingi Hiláríusson og
Pálmi Stéingrímsson fengu at-
kvæði sem hér segir: Pálmi 34
atkvæði í 1. sæti 5 atkvæði í 2.
sætið alls 39 atkvæði, Sigurjón
29 atkv. í 1. sæti og 11 atkv.
í 2. sætið, samtals 40 atkvæði.
Samkvæmt reglunum bar Sigur
jóni þannig annað sætið.
Guðni Jónsson telur sjálfan
sig einnig réttkjörinn samkv.
sömu reglum í 3. sætið. Hann
hafði 13 atkvæði, sem efsti mað
ur listans, 24 í annað sætið, og i
3. sæti 21 atkvæði, samtals 58
•atkvæði gegn 52 atkvæðum
Pálma. Samkv. þessu var Pálmi
rétt kjörinn í 4. sæti listans, seg-
ir Guðni.
Heildartöilurnar urðu þær aö
Hulda Jakobsdóttir hlaut 120
atkvæði. Sigurjón Ingi 96, Guðni
Jónsson 91, Jón Bragi 69 og
Pálmi 64. —JBP—
Kenndi flugfreyjum
Flugfreyjur Loftleiða hafa að und
anförnu setið á námskeiðum, sem
f sjálfu sér er ekki nýmæli, því
flugfólk þarf oft að setjast á skóla
bekk. Það óvanalega við þetta var
það að á þessu námskeiði lærðu
3/5 verk-
stjórar í
landinu
Haukúr Guöjónsson var kjörinn
formaður Verkstjórafélags Reykja-
víkur um síðustu helgi, þegar félag
ið hélt 50. aðalfund sinn á Hótel
Sögu. Með honum verða i stjórn
þeir Einar K. Gíslason, ritari. Gunn
ar Sigurjónsson gjaldkeri. Jóhann
Ágúst Gunnarsson, varaformaður
og Guðmundur R. Magnússon vara
gjaldkeri.
Á fundinum voru mestar umræð
ur um nýja kjarasamninga við
vinnuveitendur. Allsneru gjaldskyld-
ir meðlimir inna* Terkstjórafélags-
ins 315 talsins og gengu 40 nýir
meðlimir í félagið á síðasta ári. —
Hagur félagsins hefur aldrei verið
betri, segir að lokum i fréttatil-
kvnningu frá fundinum. — JBP—
þær hvernig haga ber snyrtingunni.
Ensk stúlka, Sheila Boyes hefur ver
ið að kenna stúlkunum sitt af
hverju í þessum efnum við góðar
undirtektir.
Alls tóku 104 stúlkur þátt í jjessu
námskeiði, en það fór fram á*veg
um Loftleiða. Reyndar var einn
karimaður (flugþjónn) tekinn með
á listann yfir nemendurna, en mis
tökin komu í ljós og slapp hann við
allar aðgeröir.
Sheila Boyes starfaði frá morgni
til kvölds heila viku við kennsluna
og voru 23 stúlkur á hverju nám-
skeiði. Á námskeiðunum var tekin
fyrir almenn snyrting, andlitssnyrt
ing, handsnyrting og leiðbeiningar
um hárgreiöslu.
Ungfrú Boves er fulltrúi Orlane
fyrir Norðurlöndin og fer vítt og
breitt um löndin til að kenna snyrt
ingu og auka vinsældir fyrirtækis
síns. Ágúst Kristmanns, forstjóri
hjá Snyrtivörum hf. sagði að til
stæði að hún kæmi með haustinu
og yrði þá allt að 2 mánuði og
mundi þá halda snyrtinámskeið.
Snyrtivöruframleiðsla er fyrir
löngu orðin stórkostlegur iðnaður
og sem dæmi um úrvalið, sem kon-
ur geta valið úr eftir smekk og
þörfum, þá framleiðir Orlane um
15000 mismunandi snyrtivörugerð-
ir,— séu allir tónar lita taldir með
t þvf dæmi. —JBP