Vísir - 16.05.1970, Page 9
V í SIR . Laugardagur 16. maí 1970,
9
Kaupstefnan — Reykjav'ik opnar i næstu viku sýninguna „Heimilið — Veröld innan veggja
Fyrsta heimifíssýningm a fslandi
Litið inn i Laugardalshöll, jbar sem unnið er
að undirbúningi, en sýningarsvæðið er jboð
langstærsta, sem tekið hefur verið undir
eina sýningu hér á landi — rætt
við Gisla B. Björnsson og Ragnar Kjartansson
„Cýning þessi, HeimiliS — Ver-
öld innan veggja, hefur
þann tilgang að gefa lands-
mönnum kost á að kynnast á
einum stað framboði allra
þeirra hluta, sem bústofn og
rekstur beimi'lis varða. í flestum
staerri borgum álfunnar er ár-
Iega efnt til Slíkra sérsýninga
um heimi'lishald, og hafa þær
gefið sérlega góða raun. Hin
áriega sýning „Ideal Home“ í
London er t.d. mest sótta sýn-
ing þar i borg.“
Svo segir í sýningarskránni,
sem Kaupstefnan í Reykjavík
hefur gert um einhverja um-
fangsmestu sýningu, sem haldin
hefur verið hér á landi og sem
er jafnframt fyrsta íslenzka
„heimilissýningin"
Við fórum á stútfana með ljós-
myndara inn í Laugardalshöll
nú í vikunni, með það fyrir aug-
um að kynna okkur hivernig slík
sýning sem þessi verður til.
Þar var að sjálfsögðu verið að
vinna af miklu kappi við að
undirbúa sýninguna fjöldi raf-
magnsmanna, smiða, málara,
auglýsingateiknara og annarra,
sem á einhvem hátt vinna að
uppsetningu sýningarinnar,
voru önnum kafnir við störf
sín í hinum ýmsu básum á sýn-
ingarsvæðinu. Okkur var vísað
upp á loft, en þar er skrifstofa
sýningarstjómarinnar til húsa
og við fengum tvo úr sýning-
arstjórninni til að spjalla við
ökkur, þá Gísla B. Björnsson
auglýsingateiknara og Ragnar
Kjartansson, en þeir ásamt
Hauki Bjömssyni reka fyrirtæk-
ið „Kaupstefnan - Reykjavík“,
sem stendur fyrir sýningu þess-
A7"ið gengum með þekn Gísla
’ og Ragnari upp á áhorif-
endapallana, þar sem vel sást
yfir svæðið og tylltum okkur
niður og Ragnar segir okkur frá
tihirð þessarar sýningar.
,,Það var í maí 1969, sem á-
kveðið var að halda þessa sýn-
ingu og þá um haustið hófst
undirbúningurinn. Við sendum
einum 7—800 aðilum gögn um
sýninguna, og 140 aðilar ákváðu
að sýna hér í 93 sýningardeild-
um. Að vísu vildu margir koma
inn í sýninguna, eftir að tiltek-
inn umsóknartími var liðinn, en
þeir sem pöntuðu á rétturn tíma,
komust allir hér inn.“
„Hvernig skiptið þið þrír með
ykkur verkum?"
„Gísli sér aðallega um ytra
útlit sýningarinnar, sér um alla
prentvinnu í sambandi við sýn-
inguna, en það er geysilega mik-
ið starf. Ég sé að mestu um
þennan daglega rekstur, en
Haukur er sá okkar sem mesta
reynslu höfur í þessum málum,
en hann stofnaði upphaflega
fyrirtæ-kið „Kaupstefnan". Nú
svo höfum við ýmsa aöra menn
með okkur í þessu, hér er t.d.
Gunnar Bjamason leiktjalda-
málari, hann sér um skiltamál-
unina, Kjartan Guöjónsson
teiknari gerir myndir héma i
þróunardeildina í kjallaranum,
en þar verður sett upp þróunar-
sýning á heimilishaldi frá örófi
alda, meða-1 annars verður þar
aldamótastofa og svo auðvitað
framtíðarstofa, búin svissnesk-
um mjög nýtfzkulegum plast-
húsgögnum," segir Ragnar.
„Hvað gerið þið ráð fyrir að
starfsfólkiö veröi hér margt?“
Og nú svarar Gísli:
„Á ofckar vegum starfa 15 —
20 manns, en á vegum fyrir-
tækjanna sjállfra starfa a.m.k.
200 manns. Sýningin verður
opin frá kl. 2 á daginn til kl.
10 á kvöldin, en fólk getur
verið á sýningarsvæðinu til kl.
11. Hér veröur fjöldamargt til
skemmtunar. Trúðurinn Tóti
verður hér á ferðinni til að
spjalla við bömin, barna-
skemmtanir verða á daginn og
Svavar Gests mun sjá um fjölda
margar skemmtidagskrár."
„Hér sýna svo væntanlega
bæði erlend og innlend fyrir-
tæki?“
„Já, erlendir aðilar, sem hafa
umboðsmenn hér á iandi, senda
Fleiri tugir af tæknimönnum vinna nú ötullega viö að koma
fyrir ljóskösturum rafleiðslum, skilrúmum og ýmiss konar
tréverki í básana á sýningarsvæðinu.
margir sýningarbásana að utan,
suma sniðna eftir básum, sem
hafa veriö í hinum stóru „Ideal
Home“ sýningum. — Við leggj-
um mikla áherzlu á útlit þess-
arar sýningar, og hún veröur
mjög lffleg, Hér verða erlendir
sérfræðingar með sýnikennslu
á ýmsum nýjungum í heimilis-
tækjum og fleiru, fyrirlestrar
verða einir 13 og 6 tízkusýning-
ar, en miðað er við fatnað, sem
eingöngu tilheyrir heimilinu,"
segir Gísli ennfremur.
Við sjáum hér að auglýsinga-
teiknarar og aðstoðanfólk þeirra
er önnum kafið í nokkrum bás-
anna við að mæla og teikna, og
nofckrir eru þegar famir að raða
upp ýmsum hlutum og innrétt-
ingum í básana.
„Hafið þið nokfcurt eftiriit
með s-kreytingu básanna?"
Og Ragnar svarar: „Við höf-
um leyfi til að skipta okkur af
því ef ástæða þykir til, en til
þess kemur nú tæplega. Marg
ir af básunum verða óskreyttir
fram á siðus-tu stimdu, því menn
vilja gjarna halda þessu leyndu
fyrir hinum, þar til í það allr.a
síðasta. Nú, svo eru margir,
sem gera innréttingamar og
Ragnar Kjartansson og Gísli B. Björnsson fylgjast með Gunnari Bjarnasyni, leiktjaldamálara
en hann sér um málun á skiltum, sem sett verða upp í sambandi við sýnlnguna.
skreytingamar annars staðar,
og koma svo með þær hingað i
heilu lagi. Við viljum nú samt
hvetja menn tiá að verða efckl
á síðuBtu stundu með þetta, þvi
að menn þurfa að geta séð þetta
í ró og næði dálítinn tíma, áður
en endanlega er gengið frá básn
um eins og hann á að vera.“
„Bfnið þið kannski til sarn-
keppní um fallegasta básinn?"
„Nei, við vildum ekkj fara út
í slíkt, það verðlaunar sig sjálft,
það sem vel er gert,“ segir Gisli,
og heldur svo áfram: „Það er
athyglisvert með þessa sýningu,
að mjög margir aðilar sýna hér
í samvinnu við aðra, t.d. sýna
saman teppafyrirtæki, húsgagna
fyrirtæki og fyrirtæki sem
s-elja útvarpstæki. Hér verða sett
upp heil heimili, ef svo má
segja t.d. verður Valbjörk á
Akureyri með stóran hliðarsal
fullan af húsgögnum. Þetta er
langstærsta svæði sem notað
er undir eina sýningu hér á
landi."
•Við sjáum að við getum efcki
tafið þá lengur frá störfum og
spyrjum að lokum: — „Er fyrir-
hugað að hailda fleiri slíkar
sýningar í framtíðinni?“
Og Ragnar svaran „Ef vel
tefcst til með þessa sýningu, þá
er ætlunin að halda slíkar sýn-
ingar á 2—3ja ára fresti.“
A ð lokum eru svo hér nokkr-
ar upplýsingar fyrir les-
endur, sem hafa hug á að skoða
þessa sýningu. — . Hún verðui
opnuð kl. 8 að fcvöldl 21. mai
og er opin frá 2 — 10 til 7. júnl.
Verð er kr. 75 fyrir fullorðna,
en 25 kr. fyrir börn 6—12 ára.
Þana verður hægt að fá kaffi
og léttar veitingar, en matvæli
eru ekki kynnt á sjálfri sýn-
ingunni. Þama verða á ferðinni
ýmsar nýjungar, t.d. í húsgagna-
iðnaði og eldhústækjum, — og
sýndir verða t.d. skrautfiskar,
plaköt póstkort, frímerki auk
allra þeirra hluta, sem beinlínis
tiliheyra heimilinu. Verndari
sýningarinnar er viðskiptamála-
ráðherra, og munu hann og for
seti íslands verða viðstaddir
opnunina.
— þs.
TÍSffiSm:
Hvem gætuð þér hugs-
að yður sem borgar-
stjóra, ef Geir verður
það ekki?
Sigfús Johnsen, kennari • viö
Vogaskóla: „Ég vil Geir og eng
an annan.“
Garðar Jóhannsson skrifstofu-
maður hjá Tryggingamiðstöð-
inni: „Það er mjög erfitt að
svara þessu. Það yrði þá að
vera einhver af efstu mönnum
hinna flokkanna."
Guömundur Guðmundsson, húsa
smiöur: „Hef bara ekki hugleitt
málið".
...v '>v;, -,;-4
Anna Auðbergsdóttir, húsmóðir:
„Hef ekki hugmynd um það!“
Þórdís Jóhannsdóttir, húsmóðir:
„Ég vil bara hafa Geir áfram."