Vísir


Vísir - 05.08.1970, Qupperneq 1

Vísir - 05.08.1970, Qupperneq 1
MÝVATNSMÁUÐ TEKIÐ FYRIR Á FÖSTUDAG 0 Mál það, sem landeigendur við I ir á Húsavik föstudaginn 7, þ.m. Mývatn hafa höfðað gegn rík- Eru þetta undirbúningsréttarhöld inu (Kísiliðjunnl) verður tekið fyr-1 og óvíst hve lengi þau standa. Leit skakkt á klukkuna varð eldsins var Ungur bóndi bjargar fjólskyldu sinni úr eldsvoða / morgun Ungur bóndi bjargaði f jölskyldu sinni og þrem ungum börnum, eins til fjögurra ára, ásamt móð urbróður eiginkonu sinn ar, úr eldi, sem komið hafði upp í íbúð móður- bróðurins að Skeggja- brekku, sem er 2—3 kíló metra frá Ólafsfirði. Bóndinn, sem heitir Sigurður Jóhannsson vaknaði óvenju snemma, fannst kiukka-n vera að verða 6, en þá var hún reynd- ar 5 að morgni. Ætlaðj hann að gegna verkum í fjósi, en upp- götvaði þá að hann var full snemma á ferli og ætlaði að leggia sig aftur. Fann hann þá megna reykjarlykt að sögn hús- freyjunnar á Skeggja'brekku, sem við ræddum við í morgun, en hún var þá með börn sín á bæ í grenndinni. Sigurður vaxti konu sína og börn strax og hann varð eldsins var svo og Tryggva Jónsson, en eldurinn virtist hafa komið upp i næsta herbergi við Tryggva. Lygnt veður og gott var í morgun við Ólafsfjörð og fljót- lega dreif að margmenni af ná- grannabæjum og slökkvilið Ól- afsfjarðar kom á vettvang. Gekk vel að bera muni út úr bænum og tókst að ráða niðurlögum eldsins, áður en hann ynni veru- leg spjöll á íbúðarhúsnæði ungu hjónanna. en f íbúö Tryggva Jónssonar eyðilagðist flest, ef ekki allt. Innbú mun hafa verið tryggt. - JBP I Málið var síðast tekið fyrir fyrri hluta júWmánaðar, en þá gagn- I stefndi ríkið öllum bændum á( svæðinu til þess að þola dóm tit beinnar viðurkenningar á eignar- rétti rfkisins að botni og botn-, verðmætum vatnsins. Höfðu bænd ur krafizt þess aö ríkið viöurkenndi eignarrétt þeirra aö vatnsbotnin- um, en ekki er ágreiningur um veiðirétt jarðanna. Mál þetta er með umfangsmestu málum, sem hér hafa komið fyrir rétt og engin hliðstæða er til um slík mál hér-. lendis. Lögmaður Mývetninga, Páll S. Pálsson, hefur nú sent orðsend ingu til allra landeigenda viö veiði vötn á ísiandi, þar sem hann óskar eftir upplýsingum um eignar- og af notarétt að vötnum. Lögmaður rík ins er Sigurður Ólafsson. — ÞSj ÁTVR tekur nýjar full- komnari vélar í — / nýja brugghúsinu eru vélar sem fylla á 1200 fl'óskur á klst. 0 Hinar nýju vélar sem ÁTVR hefur tekiö i notkun í hinu nýja húsnæði sinu i Hraunbæ eru mjög afkastamiklar. Þær fylla 1200 flöskur á klukkutíma og ætti það að geta haft undan þyrstum fslend- jngum. Jón Kjartansson forstjóri Áfeng- is- og tóbaksverzlunar rfkisins tjáði Vísi í morgun að núna flytti öll starfsemi ÁTVR þangað upp eftir í nýja húsnæðið, að undanskildum skrifstofum stofnunarinnar. Það er sannarlega kominn tími til að ÁTVR fái nýtt húsnæði, sagði Jón. „Gamla brugghúsið, Ný borg, var upphaflega byggt fyrir upphaf fyrri heimsstyrjaldar og í Gjaldkerinn lét handtaka ávísana- þjófana Árvekni gjaldkeranna i Sam- vinnubankanum leiddi til handtöku tveggja pilta, 15 ára, sem ætluðu að leysa út stolna ávísun í bank- anum í gær. Höfðu bankarnir verið varaðir við því, að ávísun að upphæð 2380,00 kr. hafði verið stolið úr Keflavík, og áttaöi gjaldkerinn í Samvinnubankanum sig strax á því. þegar honum var framseld á- vísunin, að þama var stolna ávís- unin á ferð. Lét hann gera lögregl- unni viðvart, sem kom á staðinn og handtók piltana, en þeir voru báðir úr Keflavík. — GP fyrstunni notað sem geymsla. ÁTVR fékk húsið til sinna þartfa árið 1923, en þangað til hafði starf- semi fyrirtækisins verið víða — sundruð út um allan bæ. Til dæmis var hluti starfseminnar í kjallara Reykjavíkurapóteks og annar i Brydekjallara að Vesturgötu 2.“ Jón sagði að nú væri því sann- arlega kominn tími til að komast í nýtt hús og þá væri einnig hægt að auka starfsemina eitthvað. „Við .stefnum nú að þvi að flytja vínið inn í stærri belgjum eða ámum“, sagði Jón, „og ætlum þá auðvitað að tappa því á flöskur hér“. Og hvað með íslenzka bláberja- vínið? „Jú, það mál er í athugun, verð- ur ef til vill farið af stað með eitt- hvað I haust. Málið hefur að vísu ekki verið rannsakað nema fjár- hagshliö þess, en hún er lika í lagi“. — GG Vikublöðin rækta upp hégómann Sjá fj'ólskyldusiðu bls. 13 Krefst ómerkingar á allri málsmeðferð — ákveðið að áfrýja Laxárvirkjunarmálinu til Hæstaréttar • „Við krefjumst ómerkingar á allri málsmeðferð. Skipaður setudómari i málinu (setufógeti) hefur engan lagalegan rétt tii að skipa meðdómendur. Með þvi að skipa tvo verkfræðinga sem með- dómendur teljum við að hann hafi afhent verkfræðingastéttinni dóms vald í málinu án lagalegrar heim- ildar.“ — sagði lögfræðingur Laxárbænda, Sigurður Gizurarson, er blaðið hafði samband við hann í morgun. Sem kunnugt er var dómur í Lax- árvirkjunarmálinu kveðinn upp í gær og var synjað um framgang lögbannsgerðarinnar. Sigurður sagði að ákveðið væri að áfrýja málinu til Hæstaréttar. „Hvergi er til heimild í lögum fyrir því að setufógeti geti skipað meðdómend- ur. Verkfræðiiega hliöin á þessu máli er aðeins einn þáttur hennar. Spumingin um tjónið er fyrst og fremst búnaðarfræðilegs og nátt- úrufræðilegs eðlis og því mjög ó- eðlilegt að meiri hluti dómsins sé 1 skipaður af verkfræðingum," sagði Sigurður ennfremur. — ÞS Og nú fer aftur að hlýna • Borgarbúar vöknuöu upp i morgunsárið við sólskin og blíöviöri. Strax fyrir kl. 8 var fólk farið að tinast i sundlaug ar og sólböð, enda hitinn 12 stig og sást varla ský á himni. Og það er allt útlit fyrir að við fáum að njóta veðurblíðunnar i nokkra daga, samkvæmt veð- urspám. Knúlur Knútsson, veð- urfræðingur tjáöi blaðinu i morgun, að spáin fyrir næstu daga væri góð um allt land. Léttskýjað veður hér sunnan- lands og gott vcður annars staö ar á landinu, en dálítið skýjað á Norðausturlandi. —ÞS

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.