Vísir - 12.08.1970, Side 5

Vísir - 12.08.1970, Side 5
VÍSIR . Miðvikudagur 12. ágúst 1970. 1 Skoraði mörk á Melaveliimim fyrir 48 árum, en selur ná íslenzkum plustpínur Það var mikið um að vera á Melavellinum sumarið 1922 — og í fimm kvöld þyrptust Reykvíkingar á völlinn — skozkir knattspyrnu- m«nn frá Civil Service Strollers í Edinborg voru í heimsókn og það var í annað sinn, sem er- lendur knattspyrnu- flokkur gisti ísland. Og nú var eitthvað að sjá, McAlpine með plaströrin. leikmenn frá einni af há- borgum brezkrar knatt- spýrnu frá sjálfu móður- landi íþróttarinnar, Bret landseyjum. - Athyglin dróst ósjálfrátt einna mest að hægri innherja liðsins, lánsmanni frá Queens Park í Glasgow, frægasta áhugamanna- liöi heims, því oftast sendi hann knöttinn í mark heimamanna og var að auki höfðinu hærri en flestir aðrir í skozka liðinu. Og nú á niánudagskvöldið hittum við þennan hávaxna inn- herja Civil Service Strollers, James B. McAlpine, á Hótel Borg, en hann er nú kominn aftur í heimsókn til Islands á- samt norskri eiginkonu sinni og fáir myndu trúa því, að þaö séu 48 ár liðin síöan hann lék listir sínar á Melavellinum gamla — maður gæti frekar haldið, að hann hefði lagt skóna á hilluna í fyrra. En þarna var sem sagt McAlpine sem eitt sinn var ógnvaldur íslenzkra markvarða, en er nú kominn í friðsamari erindagjörðum — sem sagt, að selja fslenzkum plastpípur og fleira viðkomandi pípulagning- um gn hann rekur þrjár verk- smiðjur í Skotlandi og þær selja framleiðslu sína til flestra landa heims. Og þegar maður sér píp- umar undrast maöur — að vísu fáfróður í kynjaskógi pípulagna —.að þær skuli ekki fyrir löngu hafa mtt sér til rúms hér á landi. — Já, það var gaman að koma til Reykjavíkur 1922, og ennþá eru atvik úr leikjunum á Melavellinum mér minnisstæð Áhorfendur voru alveg við hlið arlínurnar og hvöttu sina menn mjög — einkum í síðari leikjun- um — því þeir vildu sjá fs- lenzk mörk. En þeim varð ekki að ósk sinni, það næsta var hörkuskot i þverslá — en 28 sinnum fór knötturinn í markið í leikjunum fimm hjá íslenzku markvörðunum. En við vorum líka með gott lið, og nokkrir lánsmenn auk mín frá Queens Park. Það voru nokkrir ágætir leikmenn í íslenzku liðunum — en Thorsteinsson (Friðþjófur) bar þó af. Hann heimsótti mig síðar í Glasgow -— er hann á lífi ennþá? og McAlpine varð hrygg ur á svip, þegar við sögðum honum, að Friðþjófur — þessi Albert ísl. knattspyrnu eftir fyrri heimsstyrjöldina — heföi látizt fyrir nokkrum árum. Lékst þú alla tíð með Queens Park? - Já, ég lék frá 1919 til 1934 með félaginu — en gerðist aldrei atvinnumaður þótt bæði stóru Glasgow-félögin, Celtic og Rangers, væru á höttunum eftir mér. En fjölskyldufyrirtækið, þar sem ég er nú forstjóri, var þyngra á metunum. Ég lék nokkra landsleikj með áhuga- mannaliði Skotlands — hinn síðasti var í Kaupmannahöfn 1934 — og auk þess var ég nokkrum sinnum valinn í úrvals- lið skozku deildarinnar, þótt ég eigi reyndar að teljast Englend- ingur, þar sem ég er fæddur í London, þótt foreldrar mínir hafi verið skozkir. Og þú hefur alla tið starfað fyrir Queens Park? — Já, Queens Park hefur alla tið verið mitt annað Wf. Ég var forseti félagsins í áratug og er nú í f ramkvæmdanefndinni, sem sér um Hampden Park, sem McAlpine-hjónin. (Ljósmynd Bjarnleifur.) Celtic vann Rangers Chelsea kaupir nýja i 3-1 og markmann • Celtic og Rangers léku til úrslita ;í bikarkeppni Glasgow-borgar í ifyrrakvöld og sigraði Celtic með 3—1. Bakvörðurinn Tommy Gemm- jeH skoraði tvö af mörkum Celtic, Quinn hið þriðja. Fyrir Rangers /skoraði fyrirliðinn Greig. Þessi úr- slitaleikur, sent leikinn var á 'Hampden Park, átti að fara fram •:á síðasta keppnistímabili, en vegna .leikjafjölda Celtic þá varð að fresta .honum þar til nú. Lundúnaliðið Chelsea keypti í gær John Phillips, ungan markvörð frá Aston Villa, fyrir 25 þúsund pund, en varamarkvörður Chelsea, Hughes, fótbrotnaði nýlega í leik í Hollandi. aðalþjálfari liðsins síðasta keppnis- timabil. Sir Matt Busby er aðal- framkvæmdastjóri félagsins. Shy Brennan, sem leikið hefur með United í 18 ár, er á förum frá fé- laginu. En fyrir dygga þjónustu mun Manch. Utd. greiða honum 15 sterlingspund á viku, það sem hann | á eftir ólifað en slíkt er algerlega [ nýtt í enskri knattspyrnu. Brennan, sem er írskur landsliðsmaður er 33ja ára og réðist til United á sama tíma og Bobby Oharlton, og var fastur liðsmaður í nær áratug. Hann er þó ekki að leggja skóna á ! hilluna — mun annaðhvort fara til Preston eöa Aldershot. sekt., þar sem hann var rekinn af leikvelli, þegar Sheffield var á keppnisferðalagi í sumar. Hann leikur því ekki með Blackpool á laugardaginn — en dómurinn kom forráðamönnum Blackpool alveg úr jafnvægi, þvi þeir höfðu ekki hug- mynd um, að Coleman ætti eitt- hvað slfkt yfir höfði. er leikvöllur félagsins, stærsti leikvöllur Evrópu, og ég einnig í stjórn félagsins. En það er nú erfiðara að halda góðum leik- mönnum hjá áhugamannaliði en áður var — og við höfum að undanförnu verið aö berjast í 2. deild, en þegar ég lék með liðinu var þaö eitt af hinum betri í 1. deild. Ætlar félagið að selja Celtic Hampden Park? — Nei, það held ég komi aidrei til, þótt mjög erfitt sé að reka þennan stóra völ'l ,fyrir á- hugamannafél. Nei ég held við 'helgur reitur_ þetta er okkur selgur reitur, en hins vegar kann svo að fara', að Queens Park leigi Celtic völlinn á þessu keppnistímabili þar sem gagn- gerð viögerð á að fara fram á Parkhead leikvellj Celtic, í vet- ur. Annars er gott að eiga „sam- starf við þetta sterka félag — og það er hliðhollara áhuga- mannaliðum, en flest önnur á Bretlandseyjum. Hefur ekki margt breytzt hér f í Reykjavík síðan þú varst hér fyrst á ferð? — Jú, ég hef auðvitað ekki mikið séð — þar sem við hjón- in erum nýkomin — en næstum allt virðist breytt, nema tjörnin, en er ekki Valhölí á sama stað við. Melavöllinn? Ég bjó í því húsi 1922 — eini s'kozki leik- maðurinn, sem bjó þar — og þá voru melar ofe tún, svo langt sem augað eygöi í vestur og suður að sjá úr gluggunum, og svo tjömin fyrir austan. Já, Reykjavfk var friðsamur bær þá — en virðist nú orðin miMl borg. Hjá þeim hjónum var einnig séra Robert Jack, hinn ötuli skozki prestur áð Tjörn á Vatns- nesi, og hann kom gagngert að norðan til að taka á móti McAlpine-hjónunum. í dag halda þau norður að Tjörn og verða gestir séra Roberts fram undir helgi. En þá kalla skyldu- störfin á ný — McAlpine-hjón- in halda til Osló á sunnudag, bóndinn í viðskiptaerindum, en frúin til að heimsækja systur sína, og hún mun dvelja þar meðan Mr. McAlpine bregður sér til Stokkhólms en Norð- menn og Svíar eru meðal beztu viðskiptavina hans. Wilf McGuinness var i gær ráð- inn framkvæmdastjóri liðs Manch. Utd. (team-manager), en hann var Tony Coleman. sem hlaut meist- aratitil bæði í deild og bikar meö Manch. City, var nýlega seldur frá Sheff. Wed. til Blackpool, en Black- pool komst upp í 1. deild i vor. Og í gær var hann dæmdur í fjögurra Vikna keppnisbann og 75 pund f Geoff Strong, einn af kunnustu leikmönnum Liverpool, var í gæi seldur ti'l Coventry og mun leika með hinu nýja félagi sínu, þegar deildakeppnin enska hefst á laug- ardaginn. Auglýsið í VÍSI Erlendur sendi- ráðsstarfsmaður óskar að taka á leigu einbýlishús með stór- um stofum og 3—4 svefnherbergjum. Uppl. í síma 24083 frá kl. 9—6.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.