Vísir - 18.08.1970, Blaðsíða 3

Vísir - 18.08.1970, Blaðsíða 3
'W&mK . feri&judagur 18. ágúst 1970. 3 í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Kínverjar gagnrýna Tékka fyrir að loka sendiráðinu Umsjón: Gunnar Gunnarsson. — S'ihanouk sendi Svoboda skeyti frá Peking KÍNVERJAR gagnrýna í fyrsta sinn í gær tékknesk yfirvöld fyrir að hafa lok- að kambódíska sendiráð- Husak, Svoboda: Láta gagnrýni Kínverja sem vind um eyru þjóta. Gengur seint að koma gasinu fyrir — óveður oð skella á v/ð Flórida 0 Óveöur vofir nú yfir svæði þvl, þar sem sökkva á hylkj unum 12.500, sem innihalda hið banvæna taugagas. Banda- rfkjaher hefur þegar fermt Lib- erty-skipið gamla, sem sökkva á meö farminum, en ekki er alveg útséð með að hernum tak- ist sú fyrirætlun sín að sökkva gasinu eftir því sem nýjustu fregnir herma. Haugasjór er nú að verða suður af Bahamaeyj- um og verður vart við skip ráð- ið á þessum slóðum, enda hef- ur Liberty-skipinu ekki enn ver- ið sökkt. Áætlað var að sökkva skipinu kl. 19 í kvöld að ísl. tíma, en þá átti og að hafa tekizt aö draga flakið gamla þessar 480 sjómílur frá herskipalæginu í Sunny Point, Norður-Karólínu. Kóleran stingur sér niður við Miðj arðarhafið B Blöðin í Beirut í Líbanon sögðu í gær aö þar í landi hefði fjöldi manns látið Hfið vegna kól- eru-farsóttar, sem borizt hefði til landsins. Yfirvöld í Líbanon fyrirskipuöu í gær bólusetningarherferö og nær sú herferö einnig til Sýrlands og Jórdaníu. Bólusetningarherferöin var á- kveðin eftir aö heilbrigðisyfirvöld allra þessara þriggja landa höfðu hitzt og ræðzt viö í Líbanon í gær. í frétt frá þessum sameiginlega fundi segir, að reyndar hafi ekkert kólerutilfelli verið skráð ennþá, en læknar vissu um fjölda tilfella, sem minntu mjög á kóleru. Frá heilsugæzlumiöstöðinni al- þjóðlegu, sem staðsett er í Egypta- landi, hafa þegar verið sendir 900.000 skammtar af bóluefni til Líbanon. inu í Prag þann 10. ágúst s.l. Sendiráðinu var lokað vegna þess að annar sendi- ráðsritari þess gerðist ærið umsvifamikill. Hann lýsti stuðningi við Síhanouk prins, sem nú er í útlegð í Kína og stjórnar þaðan útlagastjórn Kambódíu. Eftir því sem fréttastofan Nýja Kína í Peking segir, þá fékk mál þetta nýja stefnu, er tékknesk yf- irvöid tóku til viö aö meðhöndla sendiráðsritarann, Isoup Ghanty, ómannúðlega — og sömuleiðis sam særismenn hans 10 talsins, en þeir voru allir kambódískir stúdentar í Tékkóslóvaku. Segir í frétt frá Nýja Kína, að Tékkar hafi lokaö sendiráði Kambódfu algjörlega að ástæðulausu. Er gripið var til aðgerða gegn Ghanty og mönnum hans, sló lög- reglan hring um bygginguna og neitaði öllum um aö fara þar inn Uppreisnarmennirnir fengu heidur ekki að taka viö heimsókn frá kín- verska alþýðulýðveldinu — frem- ur en frá sendimönnum Norður- Víetnam eöa öðrum þjóðum, sem óskuðu eftir því að færa uppreisn- armönnum þessum og stuönings- mönnum hins landræka Síhanouks prins, vistir og hughreystingu. Tékkar hafa lokað fvrir rafmagn til sendiráðsins og vatn að verulegu leyti og á sunnudaginn var göt- unni sem það stendur við einnig Sihanouk prins: Biður Tékka að fara ekki illa með stuðnings- menn sína ... lokað. Endahnútinn á mótmæli þessi rak svo Síhanouk sjálfur, þar sem hann situr í Peking, en hann lét nú í fyrsta sinn um langa hríð umheiminn heyra til sín, er hann sendi Svoboda skeyti og mót- mælti meöferðinni á stúdentunum og stuðningsmanni sínum, Ghanty. Laird segir ísraelsmenn ekki geta scnnað vopnahlésbrotið — Abba Eban mótmælir Laird og ætlar ad kæra Egypta fyrir USA og SÞ ABBA EBAN utanríkisráðherra Israels sakaði Egypta í gær um að hafa notfært sér vopnahléið sem nú stendur yfir til þess eins að styrkja eldflaugavarnir sínar Abba Eban. við Súezskurðinn, og þar með um Igið gert sig seka um vopna- hlésbrot þegar í upphafi þess, en sem kunnugt er á vopnahléið að standa í þrjá mánuði. Á blaðamannafundi í Jerúsalem sagöi Abba Eban, að komizt hefði 1500 LSD-töflur fundust í Osló Osilóarlögregiian komst i feitt, er 1500 LSD-töflur fundust f húsi einu. Verömæti þessa fundar er talsvert á 3. milljón ísl. króna. Maðurinn, sem handtekinn var vegna þessa, er 20 ára gamall Bandaríkjamaður, sem áður hefur verið handtekinn með 192 LSD-töflur í vösunum. Lög reglan fann töflurnar í síöustu viku en fréttinni var haldið leyndri, því lögreglumenn vöktuðu hverja hreyf ingu mannsins til þess að komast aö „verzlunarsamböndum" hans. Þær eftirgrennslanir hafa svo leitt til þess að 20 nnglingar verða yfir- heyrðir. upp um brambolt Egypta þar við Súez, hefði borizt vitneskja til ísra- els um skotpallabyggingar Egypta og tilfærslu á eldflaugum á mis- munandi stöðum. Sagði Eban, að Egyptar hefðu ekki sinnt gagnrýni ísraelsmanna á þessar framkvæmd- ir þeirra, heldur haldiö áfram til- færslum sínum meö eldflaugarn- ar. Þetta kvaðst Eban ætla að kæra fyrir Bandaríkjamönnum og Sam- einuðu þjóðunum. i Þá mótmælti Abba Eban um- mælum bandaríska utanríkisráð- herrans, Mervin Laird, en Laird sagði á sunnudagskvöld eð var, að ísraelsmenn hefðu ekki nægilegar sannanir til að geta sakað Egypta um vopnahlésbrot. „Síðasta orðið í þessu máli er ekki sagt,“ sagði Eb- an, „ísrael og Bandaríkin eiga enn eftir að ræða um það í alvöru, Mervin Laird. hvort Egyptar hafi í raun og veru brotið vopnahléiö." Landamærum V-Þýzkalands\ og Tékkóslóvakíu lokaö — vegna afmælis innrásarinnar 0 1750 bifreiðum, sem voru á leið til Tékkóslóvakíu, var um helgina snúið við á landa- mærum Vestur-Þýzkalands og Tékkóslóvakíu. Og orsökin? Jú, Sovétríkin eru nú á miklum æf- ingum inni á tékknesku landi ásamt með tékkneska hernum og mun tilefnið vera afmæli inn- rásarinnar í Tékkóslóvakiu 1968. Öll ferðamannaumferð til landsins hefur verið bönnuð frá þvi á sunnudag síðast er var og fram á þriðjudag í næstu viku. Fá engir útlendingar að koma til landsins, og skiptir engu, hvort um er að ræða er- lenda stúdcnta, sem nema þar við skóla eður fréttamenn. — Reyndar fá þeir fréttamenn ein- ir að vera kyrrir í Prag, sem ' hafa fast starf við einhverja tékkneska fréttastofnun. Er haldið var upp á árs af- mæli innrásarinnar í fyrrasum- ar uröu mikil upphlaup vlða um landið og eiga þessar ráð- stafanir núna sennilega að koma í veg fvrir að þeir atburöir end- urtaki sig.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.