Vísir - 19.08.1970, Síða 1
I
VISIR
60. árg. — Miðvikudagur 19. ágúst 1970. — 186. tbl.
Skemmdarverk á trjágróðri
eru hversdagsatburðir
Trén við Suðurlandsbraut brotin
niður og eyðilögð
— Þetta eru nánast orönir hvers
dagsatburðir, þótt það sé kannski
ekki alltaf jafnáberandi og þessi
: spjöll við Suðurlandsbraut, sagði
■ Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri,
. um skemmdarverk, sem unnin
: hafa verið á trjánum við Snoðar-
: vogsblokkimar hjá Suðurlands-
‘ braut.
Eitt slikt tré, sem plantað er til
fegrunar umhverfinu, kostar milli
1000 og 1500 kr. — auk svo allrar
vinnunnar við ræktunina. Svo af
þessu leiðir töluvert fjárhagslegt
tjón, sem mörgum finnst þó hé-
gómi miðað við hve svona spell-
virki þykja andstyggileg. —GP
Þar hafa trén verið klofin, brot-
in niður og rifnar af þeim grein
ar, svo að börkurinn hefur fletzt
af. Svo greinilega er þarna að
unniö, að það fer ekki á milli mála,
að mannahendur hafa þamá verið
að verki.
„Þessi tré eru þau þriðju, sem
við höfum plantað þama á 8 ár-
um, en það var viðleitni til þess að
reyna, hvort unnt væri að rækta
götutré, svona meðfram akbraut-
um. Reynslan spáir ekki góðu um
það“, sagði Hafliði.
„Mikið af trjám í görðum borg
arinnar eyðileggst af knatt-
spyrnuleikjum unglinganna, en
þarna hafa krakkar líka brotið af
trjánum greinar trl þess að hafa
fyrir markhæla. Því miður eru for
eldrar ákaflega sinnulitlir um at-
ferli barna sinna.“
rÞaB er eins og ferðamenn
fælist kirkjuklukkurnar"
— Prestar syngja sj'ó messur i Skálholti á
sunnudaginn fyrir ferðamennMinna á til
bvers kirkjan er, segir Guðmundur Óli
Ólafsson, prestur i Skálholti
Eflaust væri Reykjavík sviplítil borg án Tjarnarinnar og þess
vegna rétt óg skyit að hlúa vel að þessum augasteini borgarinnar.
í morgun yoru menn komnir með pála og rekur og farnir að dytta
að eystri bakká Tjarnarinnar í sólskininu á kantinum framan við
fíallargarðinn. — JH
^PRESTAR munu syngja
messu í Skálholti svo til
samfleytt allan næsta
sunnudag. Munu messur
byrja klukkan tíu og
standa fram á kvöld. Alls
fara þar fram sjö guðs-
þjónustur og munu fjórir
prestar prédika.
— Við gerum þetta ti.l þess aö
Ieggja áherzlu á tiil hvers kirkjan
er. Hún á að vera til guðsþjónustu,
en ekíki sem sýningargripur, sagði
Guömundur Öl; Ólafsson prestur
i Skálholti, sem er upphafsmaður
að þessari nýbreytni.
— Þaö er svo til stöðugur sfraum
ur ferðamanna í Skálholt yfir sum-
artímann, sagði Guðmundur.
Plestir stanza þar stutt. Fæstir
koma í kirkju. Fólk fælist í burtu
þegar það heyrir í kirkjuklukkun-
um. Svo þyrpisf það að aftur að
lokinni messu.
Messurnar á sunnudaginn verða
með svipuöu sniði og í fyrra. en
þá gerðum við tilraun með þetta.
Okkur þótti hún takast mjög vel.
Þorri þess fölks, sem þá fór um
staðinn settist inn í kirkju til þess
að hlýða messu einhverja stund.
Alls munu um 600 manns hafa sótt
messur í kirkjunni þennan dag.
Við munum byrja með barna-
guðsþjónustu klukkan tíu um
morguninn og síðan hefjast almenn-
ar guðsþjónustur klukkan hálf tólf.
A'lls veröa sex almennar guðsþjón-
ustur yfir daginn, Þar af verða að
minnsta kosti ein eða tvær meö
venjulegum hætti. Sumt af þeim
verða hins vegar lesmessur, þar
sem ekki er viðha'fður venjulegur
sálmasöngur.
Við verðum h'klega fjórir prestar
saman, séra Arngrímur Jónsson í
Háfteigsprestakalli, séra Magnús i Skálhofti og margar messur sungn-
Guðjónsson á Eyrarbaikka og svo ar og mörgum mun finnast sem
mun Valgeir Ástráðsson, stud. 1 þessar tíðagjörðir klerka í hinni
theoil. senniilega prédika, og senni- i nýju Skálholtskirkju séu mjög i
lega flein. I anda sögunnar og minni á«foma
Það hefur fýrr verið fjölmennt i I fræ^ð. — JH
Islenzkur síldarsjómaður
fangelsaður í Álaborg
Skipverji af , S'íidarskipi
nokkru frá Austfjörðum situr nú
inni í Álaborg, eftir örlítið ævin-
týri, sem bann lenti í, þegar
skip hans var að landa síld í
Danmörku fyrir nokkru. —
Maðurinn hefur nú verið
hálfan mánuð í landi, og mun
sendiráð islands í Kaupmanna-
höfn vera að reyna að fá hann
lausan úr fangelsinu. Ekki hefur
verið dæmt í máli mannsins og
ekkert hefur fengizt uppgefið
um afbrot hans en hann hefur
nú setið inni í viku eða svo. Var
í fyrstunni gerð mikil leit að
honum, áður en uppgötvaðist
að hann hafði lent á þessum
vonda stað. Alilar vonir standa
til að hann verði innan tiðar
frjáls undan þessari ánauð Dana.
- JH
NÓG ELDS-
ITEYTI AÐ PÁ
segir handbók flugmanna um flugvöllinn
á Hornafirði
Ár Bensínafgreiöslumá! flug-
véla virðast hitamál meöal
þeirra, sem eiga og reka smáflug-
vélar, en frá þessum málum var
greint í gær í blaðinu. Bentu flug-
menn, sem hringdu i blaðiö á í
því sambandi, að i handbók flug-
manna, Aeronautical Information
Publication, sem gefin er út af
Flugmálastjórn fyrir flugmenn hér
á landi, segir m. a. svo, þar sem
gefnar eru upplvsingar um flugvöll-
inn á Hornafirði varðandi bensín-
afgreiðslu: „Fuel available, 130 oct
ane, owned by Flugfélag íslands.“
Sem sagt, að þarna sé eldsneytl að
fá, 130 oktana bensín, en það sé
í eigu F.í.
Eins og fram hefur komið, telur
Flugfélag íslands sjg ekki geta
stundað sölu á bensíni til flugvéla
á Hornafirði, né á öðrum stöðum,
bar sem félagið á bensínbirgðir.
Hins vegar kvaðst einn flugmaður-.
inn vilja taka sérstaklega fram í'
þessu sambandi, að á Akureyri;
nytu flugmenn á litljim flugvélum
velvilja Tryggva Helgason.ar, flug-
manns, en hann á- að öllu jöfnu
nokkrar birgðir eldsneytis á flug-
vellinum á Akureyri. —JBP
i