Vísir - 24.08.1970, Blaðsíða 8

Vísir - 24.08.1970, Blaðsíða 8
8 V1SIR . Mánudagur 24. ágúst 1970. VÍSIR Otgefan ii Reykjaprent bt. Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson Ritstjóri- Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660 Afgreiðsla- Bröttugötu 3b Sími 11660 Ritstjóru: Laugavegi 178 Simi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr 165.00 á mánuði innaniands t lausasölu kr. 10.00 eintakiö Prentsmiðja Vfsis — Edda hf. .............—■ Le/ð/'n til sósíalisma Pyrir nokkru var sagt frá því í Þjóðviljanum, að Æskulýðsfylkingin, samband ungra sósíalista, geng- ist fyrir útifundi á Akureyri til þess að kynna boð- skap sinn. Jafnframt var sagt, að ráðstefna yrði hald- in „með ungum sósíalistum á Norðurlandi um vanda- mál uppbyggingar sósíalskrar baráttuhreyfingar á landsmælikvarða“. Þannig var þetta orðrétt í blaðinu. Sennilegt er að það bögglist fyrir ýmsum, hvað átt er við með þessu orðalagi. Og vel má vera, að sá skilningur, sem í það er lagður hér, sé ekki réttur. Líklega veit sá, sem fréttaklausuna samdi, sjálfur hvað hann átti við, og mætti þó efast um það. Menn hafa hingað til haldið, að kommúnistaflokkurinn, sem nú kallar sig víst Alþýðubandalag, eftir margar nafn- breytingar, teldi sig vera sósíalska baráttuhreyfingu á landsmælikvarða, en eftir þessu virðist eitthvað þurfa um að bæta. Líklega er það rétt, að þessi „uppbygging“ sé tals- vert „vandamál". Kommúnistum hefur hingað til gengið fremur treglega að afla sér fylgis út um lands- byggðina víðast hvar, a. m. k. í sveitum, og ósenni- legt er að áhugi sé þar enn mikill fyrir fræðslu „um leið íslands til sósíalisma“. Hvaða tegund af sósíalisma er það, sem þetta unga fólk vill vísa leiðina til? Kommúnisti einn, sem lengi dvaldi í Svíþjóð, sagði eftir heimkomuna, að „íhald- ið“ á íslandi væri hátíð, samanborið við kratana í Sví- þjóð. Svipað álit munu hann og hans líkar hafa á Jafn- aðarmönnum á hinum Norðurlöndunum. Ekki munu þeir heldur vera sérlega hrifnir af sósíalismanum í Englandi. Við verðum líklega að leita lengra austur á bóginn að fyrirmyndinni, sem Æskulýðsfylkingin hefur í huga. Kommúnistar hafa um langt árabil varazt það eins og heitan eldinn að nefna sig réttu nafni. Sama máli gegnir um sjálfa stefnuna. Þeim þykir betur henta að kalla hana sósíalisma en kommúnisma. Þeir vilja fyrir alla muni láta sem minnst á því bera, að þeir séu undir áhrifum þeirrar stefnu og stjórnarhátta, sem ríkjandi eru austan jámtjaldsins. Og þeim hefur tekizt að blekkja marga með þessum hættL Allir nytsömu sakleysingjarnir, sem gengið hafa í þjón- ustu þeirra, hafa látið blekkjast. Er það sósíalismi eins og hann er nú framkvæmd- ur í Tékkóslóvakíu, sem Æskulýðsfylkingin vill koma á hér á íslandi? Og vill hún beita til þess svipuðum aðferðum og gert var þar? Veit þetta fólk í raun og veru, hvers það er að óska og hverjum það er að þjóna? Er því ókunnugt um, hvað menn eiga á hættu austan jámtjaldsins, ef þeir leyfa sér að gagnrýna þjóðskipulagið og gerðir valdhafanna? Man þetta unea fólk eftir skáldunum, sem hafa gert það og verið varpað í þrælabúðir eða sett á geðveikrahælL Neyðaróp sumra þeirra hafa nýlega borizt til hins frjálsa heims. Má ekki eitthvað af því læra? Eftírlýst fyrir hlut- deild aó morði Angela Davies. Lögreglan leitar um öll Bandaríkin að Angelu Davies, negra- stúlku, sem er fyrrverandi háskólaprófessor í heimspeki. ■ Ákœrð fyrir hlutdeild aS morðunum í San Rafael. velmenntaður háskólaprófessor □ Hin 26 ára gamla Angela Davies er ekki einasta svört og fögur. Hún er einnig þekkt fyr- ir sínar byltingarkenndu skoðanir og sína virku þátttöku í hreyfingunni Svart vald. Einnig er hún þekkt meðal há- skólamanna fyrir það, að í júnímánuði s.l. var henni vikið úr prófess- orsstöðu við Kalifomíu- háskóla. — Háskólayf- irvöldin höfðu nefnilega vanþóknun á yfirlýstum kommúnisma hennar. — Núna er Angela Davies eftirlýst um öll Banda- ríkin fyrir að eiga hlut- deild í æði óvenjulegu morðmáli. Öhugnanlegt blóöbaö varö i sjöustu viku utan viö rétfcarsal í Marin County f KaHfomíu. Sakbomingar tóku dómara her skildi og var hann síðan skotinn ásamt þremur sakbominganna sem rændu honum. Enginn veit hver þaö var sem fyrstur skaut á dómarann og sakboraingana þrjá, þar sem þeir stóöu utan viö réttarsalinn, en hins vegar vora vopn þau er notuð voru vSð skotárásfna keypt út á nafn Angelu Davies, og leiðir nú lögreglan getum að því. hvort Angela hafi vitað til hvers átti aö nota vopnin. Þáttaskil Attmrðimir við réttansalinn i Marin County marka sennilega þáttaskii í pólitfekri réttinda- baráttu negra í Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta skipti sem baráittan færist raunverullega inn fyrir veggi réttarsalar. Þaö átti að yfirheyra þrjá fanga, sem ailir voru svertingj ar. Dömari var Harold Haley. Fangarair voru ákaerðir fyrir morð á fangaverðd við Soledal fangelsið en það er eins konar undirdeild hins fræga fangelsis, San Qnentin. Einn þeirra sem skotnir voru við dómshúsvegginn ásamt Haley dómara, var Jonathan Jackson, 17 ára gamall piltur, sem miklar vonir voru bundnar við innan hreyfingarinnar Svart vald. Huey Newton, foringi Svarts valds sem nýlega hefur verið látinn laus úr fangelsj lýsti yf- ir er hann frétti lát Jonathans og félaga hans: „Baráttumenn byltingarinnar hafa verið myrt- ir af hinni hvítu vaildamaskinu.“ Byssur Angelu Davies Jonathan Jackson hafði með sér fjórar skammbyssur, er hann kom til réttarhaldanna i San Rafael um 20 km ffá San Francisco. IIIIIIIHIIIB m mm Umsjón: Gunnar Gunnarsson. Meðan á yfirheyrslum stóð, tókst að smygla vopnum tO sak bominganna þriggja. Andartaki síðar heyrðist skothvellur. Á- kærandinn féll niður með skot sár á öxil. Markmiðið var greini lega að nema bæði dómarann og ákærandann í brottu sem gísila og reyna að fá síðan fang ana lausa í skiptum fyrir gfsl- ana. En lögreglulið umkringdi þegar f stað dómshúsið og skytt ur ftiá San Quentin-fangelsinu voru strax komnar á vettvang. Þegar fangamir sáu að þeir gátu ekki sloppið gegnum varn armúr lögreglumanna, skutu þeir Haley dómara. Samtímis var skotið á þá utan af svæð- inu umhverfis bygginguna. — Tveir mannræningjanna og Jona than Jackson fédiu dauðir um. En hvar var þá Angela Dav- ies? Lögreglan heldur því fram að hægit sé að sanna, að vopn in sem notuð voru utan við rétt arsalinn hafi verið keypt i henn ar nafni. Send var út handtöku skipun, en samt fer hún enn ferða sinna og eni taidir mögu ‘ leikar á að hún sé I Kanada. Flokksbundinn kommúnisti Á meöan á þessu gengur held- \ ur mál hennar f sambandi við ( brottvikninguna frá háskólanum •; áfram. Angeia Davies var á sin- um tima sett aðstoðarprófess- or í heimspeki. Sá aitburður ■ einn saman var stórhneyksli. Að * menn skyldu voga sér f því ör- ; ugga vígi hægrimanna f Banda-, rfkjunum, Kalifomíu að ráða unga konu, svarta, og þar að auki kommúnista í prófessors- stöðu, var aldeilis forkastanlegt. Hún var hin fyrsta og menn vildu halda því fram, að hún yrði þá eflaust ekki hin sfð- asta. Hins vegar gat enginn ef- aat um hæfni hennar til að gegna stöðunni. Hún var ein- stök — jafnvel andstæðingar hennar viðurkenna það. Hún nam í Frakklandi og Þýzkalandi, en enginn þekkti til flokkspólitíkur hennar, er hún var ráðin. Það var ekki fyrr en gengið hafði verið frá ráðn ingunni að FBI upplýsti að hún væri flokksbundinn kommún- isti. Og um ieið og útsendarar lögreglunnar skýrðu frá því voru örlög Angelu sem prófess ors ráðin. Ekki var hirt um að virða ánægju stúdenta og með ■ prófessora Angelu viðlits held ur stefnt að því að losna við hana úr skóianum. Akademískt frelsi Með San Rafael blóðbaðinu hafa svo andstæðingar Angelu við Kalifomíuháskóla fengiö beitt vopn ( hendumar. Nú er iátlaust bent á tengsl hennar við Svart vald og möguleg tengsl við morðingja Haleys dómara og eflaust fær hún ekki lengi að ferðast um frjáls. — Handtakan vofir yfir og aðeins spurning um tíma, hvenær lög reglan hefur uppi á henni. Þar með er framtíð hennar sem há- skóiaprófessors ekki lengur spuming um akademískt frelsi — sem var helzta röksemd sam stöðumanna hennar. —GC

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.