Vísir - 26.08.1970, Blaðsíða 12
12
m
ÞJONUSTA
SMURSTÖÐIN
ER OPIN ALLA
DAGA KL. 8—18
Laugardaga kl 8—12 fJi.
HEKLA HF.
Laugavegi 172 - Simi 21240.
a 82120 ■
rafvélaverkstædi
s.melsteds
skeifan 5
Tökum aö okkun
■ Viðgeröir á rafkerfi
dtnamóum og
störturum.
■ Mótormælmgar.
■ Mótorstillingar.
H Rakaþéttum raf-
kerfið
Varahlutir á staönum
ÞJÓNUSTA
MÁNUD. TIL
FÖSTUDAGS.
Sé hringt fyrir kl. 16,
sœkjum viS gegn vœgu
gjaldi, smáauglýsingar
á tímanum 16—18.
SfaSgreiSsIa. VÍSIR
Allt fyrir hreinlætið
HEIMALAUG
Séðheimum 33.
Spáin gildir fvrir fimmtudaginn
27. ágúst.
Hrúturinn, 21. marz —20. apríl.
Gættu þess aö tíminn er fljótur
að líöa þegar flest gengur aö
óskum og njóttu hverrar stundar
eftir því sem tök veröa á. Og
fyrr en varir er dagur aö kvöldi
kominn
Nautið, 21. april—21. maí.
Taktu daginn snemma heima
eöa aö heiman, og komdu því í
verk, sem ekki veröur hjá kom-
izt, svo að þú getir svo notiö
þeirrar hvíldar eöa skemmtunar
sem býðst.
Tvfburamir, 22. maí—21. júní.
Þetta getur orðið góöur dagur
aö því er virðist, nema þá að þú
verðir annars hugar, einhverra
orsaka vegna og mun þá gagn-
stæöa kynið eiga sinn þátt í
því.
Krabbinn, 22. júni—23. júlí.
Þatta l'ítur út fyrir aö verða
skemmtilegur dagur, þótt oltiö
geti á ýmsu meö hvíldina, sem
þó er aö mestu undir þér sjálf-
um komið. Kvöldiö getur orðið
í lengra lagi, til dæmis.
Ljónið, 24. júlí — 23. ágúst.
Góður dagur yfirleitt, — nema
hvað skapsmunimir geta komiö
að einhverju ieyti í veg fyrir
að þú njótir hans til fulls, nema
aö þú hafir taumhald á þeim
gagnvart smámunum.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.
Nýir og gamlir kunningjar setja
svip sinn á daginn, sem lftur út
fyrir aö veröa hinn ánægjuleg-
asti, að minnsta kosti á yfir-
borðinu, þótt einhverjar áhyggj-
ur kunni að leynast undir niðri.
Vógin, 24. sept,—23. okt.
Allt virðist ganga ákjósanlega,
en þaö er jafnvel eins og þú
verðir dálítið utangátta af
hverju svo sem þaö kann aö
stafa. Kannski þreyta frá því
dagana áöur.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.
Einn af þessum dögum, þegar
flest gengur árekstralaust og
greiðis't vel úr öTlu. Þú ættir aö
sjá svo um að þú getir notiö
þeirrar hvíldar og ánægju, sem
þér mun bjóöast.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.
Góður dagur en þó skaltu ætla
þér af í hverju sem er. Þaö ffitur
út fyrir að gamlir kunningjar
VTSTR . Miðvikudagur ágúst 1970.
auki á ánægjuna, eöa þá að
skemmtilegt feröafólk geri dag-
inn eftirminnilegan.
Steingeítin, 22. des— 20. jan.
Þetta getur orðið þér góður og
hressandi dagur, ef þú vilt svo
vera láta. Þú ættir að reyna aö
varpa frá þér öllum áhyggjum
og njóta lífsins í ró og næði.
Vatnsberinn, 21. jan—19. febr.
Það getur verið að eittnvaö
slettist upp á samkomulagið,
ef þú ert á feröalagi, en láttu
sem ekkert sé, og þá jafnast
allur ágreiningur af sjálfu sér
fyrr en varir.
Fiskarnir, 20. febr. —20. marz.
Dagurinn lítur út fyrir að veröa
hinn ánægjulegasti, aö minnsta
kosti fram eftir. Með kvöldinu
getur margt gengið semna, en
ekki svo aö þaö verði neitt al-
varlegt.
Bu-Fa töframaður verður ofsa hræddur
við sína eigin „töfra“ sem voru miklu
áhrifarikari en hann dreymdi um...
... og ofsahræddir töframennimir eru
vissir um að heimurinn sé að farast með
%rauki og bramli.
„Ég held ég hafi séð yður áður —
en þá voruð þér ekki sjðmaður?“ „Lífið
kemur manni ætíð á óvart — eruð þér
kannski skipsjómfrú hér?“
„Þetta er konan mín.“ „Ég biðst af-
sökunar, nú man ég — þér eruð frændi
útgerðarmannsins og ætluðuð með í
brúðkaupsferð...“
„Hann er víst slæmur á taugum —
ég væri heldur ekki allt of rólegur í
hans aðstöðu“.