Vísir - 31.08.1970, Side 8

Vísir - 31.08.1970, Side 8
 v i SIR . Mánudagur 31. ágúst 1970 Otgefan ii Reykjaprent bt. Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson Ritstjóri ■ Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Simar 15610 11660 Afgreiðsla- Bröttugötu 3b Sími 11660 Ritstjóm • Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr 165.00 ð mánuöi innanlands 1 lausasölu kr. 10.00 eintaklB Prentsmiðja Vtsis — Edda hf. Neyzla fíkniefna Talið er víst að neyzla fíknilyfja fari nú mjög vax- andi hér á landi, og að innan skamms muni þetta vandamál verða orðið álíka erfitt viðureignar hjá okk- ur íslendingum og frændþjóðum okkar Dönum og Svíum. Um þetta var birt athyglisverð grein í Tíman- um í vikunni sem leið, og mættu fleiri blöð landsins taka málið til rækilegrar meðferðar oftar en gert er. Neyzla fíknilyfja er tízkufyrirbrigði, en við þau er alltaf erfitt að ráða, eins og reynslan hefur lengi sann- að. Það er allt að því ógerningur að koma að fullu í veg fyrir að þessum efnum sé smyglað inn í landið, hversu strangt sem eftirlitið væri. Sú er reynsla ann- arra þjóða, t. d. Bandaríkjamanna, sem líklega allra þjóða mest eiga við þetta böl að stríða, þrátt fyrir víð- tækt og strangt eftirlit. Hér gerist hið sama og um önnur tízkufyrirfrigði, að einn apar eftir öðrum. Ungl- ingar leiðast út í þetta, af því að þeir vilja ekki vera minni menn en hinir, sem byrjaðir eru á því, og jafn- vel storka þeim til að taka fyrsta skammtinn. Sumum, eða líklega flestum, sem byrja á neyzlu fíkniefna, eins og hash og marijuhana, er sagt að þau séu hættulaus, valdi aðeins notalegum áhrifum, en ekki vananeyzlu. Fólk geti hætt að nota þau þegar það vilji. Þetta er vitaskuld mesta blekking, og þarf ekki annað en minna á, hve erfitt flestum reynist að hætta tóbaksreykingum. Hér við bætist svo það sem alvarlegast er, að þessi fyrrnefndu efni eru oftast blönduð öðrum stórhættulegum, vanabindandi efnum, einkum ópíum, og þá er ekki að sökum að spyrja um áframhaldið. Flestir, sem hyrja á neyzlu þess eitur- lyfs, verða þrælar þess alla ævi. Rétt og sjálfsagt er að hafa eins öflugar varnir og unnt cr gc^n því, að þessum efnum sé smyglað inn í landið. En en"r>’- -nrnir eru einhlítar, ekkert eftir- lit svo strangt, ao cakí verði fram hjá því komizt með ýmsum ráðum. Þess vegna þarf einnig að koma til almenn fræðsla um skaðsemi fíkniefna, flutt í öllum fjölmiðlunartækjum og af þeim, sem ungt fólk tekur mark á. Sennilega væri áhrifamest að fá til þess ein- hverja af vinsælustu skemmtikröftum unglinganna, sem vitað er með vissu að ekki neyti þessara efna. Þeir gætu fengið aðstoð sérfróðra manna við undir- búning slíkra fræðsluerinda. í vetur sem leið tók hópur ungmenna hér í borg- inni sér fyrir hendur að vara við þessari miklu hættu, og komst þá um stund nokkur hreyfing á málið. En nú má heita að hljótt sé orðið um það aftur. Við svo búið má ekki standa. Herferð þá, sem sumir hétu í vetur. verður að hefja nú þegar. Það er ekki seinna vænna, eftir upplýsingum þeirra, sem gerst vita hvert stefnir. MÁTTUR DREGINN ÚR SVÖRTUM í S-AFRÍKU — 20 vænta liflátsdóms i Pretóriu Upp á ðíðkastið hefur Suður-Afríka ekki verið svo mjög í fréttum, eða öllu heldur málefni hennar. En nú eru þó allar líkur á að kastijós fréttastofnana taki að beinast þangað suður eftir. Ástæður þess eru margar. Blöð virðast hafa nóg að gera við að skrifa um mál- efni ríkjanna fyrir botni Mið- jarðarhafs, Víetnam stríðið eða kynþáttabaráttuna f Bandaríkjunum. Nú hefur svo Hailie Selassie, keisari Eþfópíu vakið athygli á ekki einasta málefnum Suður- Afríku, heldur málefnum svertingja um alla Afríku, eða þar sem hvítir menn f minnihluta njóta þeirrar að- stöðu að geta kúgað minni- hlutann — og notfæra sér þá aðstöðu. 20 meðlimir hins bannaða kommúnistaflokks Suður- Afríku voru dregnir fyrir rétt í síðustu viku í Pretóríu. Þeir eru ailir ákærðir fyrir að hafa virt að vettugi að- skilnaðarlögin, en refsing við því broti er tíðast lífiáts- dómur. IIIIIIIIIlll Umsjón: Gunnar Gunnarsson. Meöal hinna ákærðu er 35 ára gömul kona, Winnie Mandela, tveggja bama móðir og gift Nelson Mandela, sem hefir set- iö í refsivist á Robheneyju síð- an 1964. Nelson var varaforseti og aðalritari Sam-afríkönsku nefndarinnar, þegar hann var hand'tekinn 1963 og ákæröur fyrir að viröa að vettugi lög um skemmdarverkastarfsemi. Leiö- togi flokksins, Walter Sisulu var ásamt Nelson dæmdur f Hfs- tíðarfangelsi og hefði ekki ver- iö fyrir haröa gagnrýni erlend- is frá, hefðu þeir eflaust veriö teknir af lífi. Undarlegt réttarfar Réttarhöldin yfir hinum 20 eru ekki síður alvarlegt mál, þó ekki hafi máJ þeirra veriö jafn- mikið til umræðu í blööum og mál Nelsons og Walters. Núna eru talsvert færri hópar f Suð- ur-Afríku sem stunda neða-n- jarðarstarfsemi gegn apartheid stefnunni, en voru 1964 — og einhvern veginn hefur siðferðis- legur styrkur erlendis frá minnkað upp á síðkastið. Forleikur máls hinna 20 verður að teljast heldur lélegur vitnisburöur um rétt- arfar Suður-Afríku, eöa öllu heldur stjórn landsins undir forystu Vorsters. 19 hinna 20 sem nú standa fyrir rétti voru handtekin í maí 1969, og ákærö fyrir að Mýðn- ast ekki löngum sem banna starf semi kommúnista. Bftir að fólk- inu hafði verið haldið 6 mánuði í einangrunarklefum og það oröið að þola margsháttar pyndingar af hendi lögreglunn- ar, var það dregið fyrir rétt í Pretóríu. Þann 16. febrúar sl. var fólkinu sleppt: Ákærandinn tilkynnti réttinum allt f einu að hann hefði fallið frá málinu! Síðan var fólkið formlega dæmt saklaust af dómaranum, Simon Bekker. Fangar píndir Sakaruppgjöfin kom öTlum á óvart, og ekki hvað sízt sak- borningunum. Fyrst f staö var gleöi mikil yfir fengnu frelsi, en kátínan hvarf fljótlega þegar lögreglan rak alla áheyrendur að réttarhöldunum út úr réttar- sainum og færði síðan sakbom- ingana í einangrunarklefana aftur. Ákærunni hafði nefnilega ver- ið breytt úr brotum á kommún- istalögunum í brot gegn öryggi ríkisins og fyrirætlanir um að steypa stjóminni. Hingað til hafa alis 68 menn verið dæmdir samkvæmt þessum frumlegu lögum: 20 fengu ævilangt fang- elsi, 29 langa fangelsisdóma. Tveir dóu meðan málið var fyr- ir rétti, 8 fengu sakaruppgjöf og 9 fengu minniháttar dóma. Listinn yfir þá sem dáið hafa í fangelsum Suður-Afríku bend- ir hreinskilnislega á hvílí’ka meðferö pólitískir fangar fá þar f landi. Frá þvf f september 1963 þar til í september 1969 létust 14 fangar vegna pynd- inga — skýringar þær sem lög- regla landsins gefur á þessum dauðsföllum em yfirleitt á þá lund aö viðkomandi hafi dottið á gólfið og hálsbrotnað eða þá að hann hafi framið sjálfsmorð. Og ákærur á hendur þessum mönnum em yfirleitt fremur fmmlegar. Til dæmis em sumir ákærðir fyrir að fara inn á járn- brautarstöð með það i huga að sprengja hana f loft upp, eða að hafa rætt samninga við skæra- liða í öðium Afrfkurfkj-um. Sennilega hafa réttindamál svartra í Suður-Afríku aldrei staðið eins illa að vígi og nú. Hundmð leiötoga em f fang- eisum og aðrir hafa verið rekn- ir úr landi. Lögreglukerfi lands- ins er svo umfangsmikið, að leynilögreglan hefir komið út- senduram sínum inn f allar hneyfingar sem máli skipta. — GG 1 Suður-Afríku eru yfirvöld ekki í vandræðum með að út- búa lög til þess að koma „óæskilegu“ fólki undir lás og slá.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.