Vísir - 26.09.1970, Side 3
V í SIR . Laugardagur 26. september 1970.
Markverðar hljómprótuuppfókur á vegum Fálkans:
Óðmenn og Trúbrot til
HAFNAR, Ríó / Háskóla-
bíói á þriBjudaginn
— fyrirhugað er að taka upp tvær LP plótur með Oðmönnum — LP plata
Rió hljóðrituð að viðsfóddum áheyrendum — rætt við Ólaf Haraldsson
Þessi mynd var tekm af Gunnari Þórðarsyni, er fyrsta LP.
plata Trúbrots var hljóðrituð, það var í London, en nú
verður haldið til Kaupmannahafnar.
upptöku, aö ógleymdu klappi
og öðrum votti um ánægju frá
þeim tæplega þúsund manna á-
heyrendahópi, sem að öilum lik
indum mun sitja í hljómleikasal
Háskólabiós þetta markverða
haustkvöld. Miðasalan er jjegar
hafin i hljómplötudeild Fálkans
og er verði miðanna mjög stillt
í hóf, en það hefur verið ákveð-
ið 100 kr.
Fálkinn stendur að þessari
hljóðritun, og útgáfan hefur
fleiri tromp á hendinni. Innan
skamms halda Trúbrot og Óð-
menn utan til hljómplötuupp-
töku og í báðum tilfellum verða
hljóðrituð frumsamin lög. Þetta
og ýmislegt fleira kemur fram
I eftirfarandi viðtali við Ólaf
Haraldsson, forráðamann hljóm
plötuútgáfu Fálkans.
— Hvaöa hljómplata hefur
sélzt bezt af þeim, sem komið
hafa út á þessu ári?
— Það er 2ja laga platan með
Trúbroti. Platan með Roof Tops
fékk ágætar móttökur, og Ríó
platan gengur alveg skínandi
ve! og ekkert lát er á sölunni.
Platan með Engilbert Jensen
selst jafnt og þétt, en engin
reynd er komin á sölu hennar
þar sem platan er tiltölulega ný
komin út.
— Hvaða hljómplötur eru
væntanlegar?
— Núna upp úr mánaðamót-
unum kemur út þriggja laga
plata með Trúbroti, sem var tek
in upp í Kaupmannahöfn um
leið og tveggja laga platan. Er
sú hljóðritun fór fram, var
hljómsveitin skipuð eins og hún
var, er hún var stofnuð. Shady
syngur ivö laganna, en Rúnar
eitt.
í þessum sama mánuði sendir
útgáfan frá sér fimm laga plötu
með söngflokknum Fiðrildi. Það
eru löig sérstáblega valin viö
hæfi yngstu hlustendanna og
Næstkomandi þriðjudags-
kvöJd kl. 21.30 verður Háskóla
bíó vettvangur mjög sérstæðra
hljómleika. Þeir, sem verða þar
í eldlínunni eru Ríó-tríó. Allt,
sem fer fram á þessum hljóm-
leikum veröur tekið upp á segul
band, og þeir, sem þama verða
viðstaddir, verða um leið þátt-
takendur í fyrstu LP-plötu Ríó.
Hver hósti og stuna fer beint
inn á þessa sérstæðu hljómplötu
Kynnir á Ríó skemmtuninni
verður Ómar Ragnarsson, og
hann mun sjá um að ófyrir-
sjáanlegar tafir verði áheyr-
endum léttbærari.
jafnframt er þetta fyrsta plata
Fiðrildis.
Nýlega var lokið við að taka
upp þrettán lög með Heimi og
Jónasi, en með þeim á plöt-
unni syngur Vilborg Ámadóttir.
Fyrsta platan þeirra „Fyrir
sunnen Frfkirkjuna“ fékk ákaf-
lega góðar viðtökur. Á þessari
væntanlegu plötu verða mest-
megnis þjóðlög, þar af meira en
helmingurinn íslenzk þjóðlög.
— Hvað geturðu sagt mér af
fyrirhuguðum hljómplötuupptök
um?
N.k. þriðjudag verður bljóðrit
uð fyrsta LP plata Ríó-tríósins.
Sú upptaka verður noklruð frá
brugðin öðrum slfkum upptök-
um að því leyti að hún fer fram
að viðstöddum áhevrendum,
slikt var að vísu gert fyrir
nokkrum árum, en þá var áheyr
endahópurinn mörgum sinnum
M ' '11 - ... 1 '
UMSJÓN
BENEDIKT
VIGGÓSSON
minni en sá, sem verður í Há-
skólabíói nú ef allt gengur sam
kvæmt áætlun.
— Hvemig verður efnisskráin
hjá Ríó þetta kvöld?
— Hijómleikamir standa yfir
í einn og hálfan tíma, og á þess
um tífna verða flutt um tuttugu
lög, en þetta lagaprógramm má
heita þverskurður af því, sem
Ríó tríóið hefur flutt að undan-
fömu. Fjölbreytnin er mikil, lög
in bæði ný og gömul, öll flutt
með íslenzkum textum, sem eru
flestir eftir Jónas Friðrik.
Auðvitað vonum við, að
stemmningin verði upp á það
bezta, því að þeir, sem verða
þama umrætt kvöld, munu
vissulega leggja mikilvægan
skerf til plötunnar.
Úr þessari hálfsanrsars tíma
upptöku verður síðan valið af
kostgæfni, en endanleg lengd
hljóðritunarinnar, tilbúin til
vinnslu á LP plötuna, verður 40
mínútur. Hljóðritað verður í
stereo, en um þá hlið málsins
mun Pétur Steingrímsson sjá,
Jón Þór Hannesson verður hon
um til aðstoöar.
— Verða einhverjir hijóðfæra
leikarar Ríó til aðstoöar?
— Gunnar Þórðarson mun að
stoða í nokkrum laganna með
flautu og gítarleik, en þau lög
hefur hann útsett ásamt Ríó. —
Tveir aðrir hljóðfæraleikarar
munu koma lítillega við sögu,
Ari Jónsson trommari Roof
Tops og Reynir Sigurðsson
píanóleikari. Kynnir verður
Úm tuttugu lög verða á efnisskránni
þriðjudagskvöld.
Ómar Ragnarsson, og hann mun
sjá um, að viðstöddum lciðist
ekki, ef einhverjar tafir verða í
sambandi við upptökuna.
Við stefnum að þvf aö fylla
húsiö, þess vegna var miöaverö
ið ákveðið svoxa lágt, þannig að
sem flestir heföu tækifæri til að
vera viöstaddir. Höfuötilgangur
inn er að fá samstilltan hóp I
Háskölabíó á þriðjudagslcvöld,
hitt er aukaatriði hvort hljóm-
leikamir standi fjárhagslega
undir sér. Þá er rétt að geta þess
aö hver miöi er jafnframt ávís
un á 10% afslátt af plötunni,
er hún kemur á markaðinn.
— Em ekki einhverjar LP-
plötur með pop-„grúppum“ fyrir
hugaöar?
— Óömenn fara til Kaup-
mannahafnar næstu daga og i
athugun er að taka upp tvær LP
plötur með hljómsveitinni I
Höfn, sem verða þá gefnar út
saman í albúmi. Komi þetta til
framkvæmda, verður hér um
nýjung að ræöa í íslenzkri
híjómplö. nitgáfu og verðið á
þessum tveim plötum verður
einkar hagstætt.
Alilt, sem hljóðritað verður, er
frumsamið af Óömönnum, bæði
lög og textar, megnið er eftir
Jöhann Jóhannsson. Þaö verður
lögð mikil áherzla á aö hraða
sem allra mest vinnslu í sam-
bandi við pressunina úti og ann
að, því víð stefnum að því að
þetta framlag Óðmanna komi á
markaðinn I byrjun nóvember.
Mér láðist að minnast á Til-
veru, er við ræddum tveggja
laga plöturnar, en seinni part-
inn I október koma út tvö af
þeim sex lögum, sem tekin voru
upp meö hljómsveitinni I júll I
sumar. Lögin eru öil'l eftir Axel
Einarsson.
Trúbrot fara til Kaupmanna-
hafnar sjöunda' október, og
yrsta hálfa mánuðinn spila
þeir í klúbbnum, sem þeir komu
fram I siðast, er þeir voru 1
Höfn. Síðan hefst hljómplötu-
upptakan. Á þessari annarri LP-
plötu Trúbrots verða eingöngu
lög og textar eftir þá sjálfa,
flest laganna eru eftir Gunnar
Þórðarson. Gert er ráð fyrir, að
plata Trúbrots komi út í desem
ber.
Við höfum orðið margs vís-
ari af þessu spjalli við Ólaf Har
aldsson og áður en við fórum,
sýndi hann okkur inn í hljóm
plötuverzlun, sem Fálkinn mun
opna I hinu nýja húsnæði að
Suðurlandsbraut 8 innan
skamms, en verzlunin á Lauga-
veginum mun starfa áfram eft-
ir sem áöur. Hin nýja verzlun
verður innréttuð á hinn smekk-
legasta máta, en þama veröa á
boöstólum pop, létt millimúsík
og klasslsk.
Oðmenn eru á förum til Danmerkur til hljómplötuupptöku,
í athugun er að gefa út tvær LP. með hljómsveitinni.