Vísir - 05.10.1970, Blaðsíða 1
Siguriaunin afhent
• KEMPURNAR tvær fremst
á myndinni, þeir Albert
Guðmundsson og Ríkharður
Jónsson, voru um árabil
fremstu knattspymumenn
okkar, en í dag era þeir í
forystuhlutverkum á ný, en
nú sem framámenn i knatt-
spyrnumálum okkar. Hér er
mynd frá verðlaunaafhend-
ingu í gærdag á Melavelli,
Albert afhenti Akurnesingum
sigurlaunin, ISLANDSBIKAR
INN, en Ríkharður er þjálf-
ari liðsins. — SJÁ NÁNAR
IÞRÓTTIR BLS. 4 og 5.
Strætisvagnmn fór fram hjá og
farþegarnir urðu ui bíða í 20 mín.
Mikib álag á SVR eftir að skólaganga hófst
— Varahluta- og verkstæðisskortur háir SVR
Mikið álag var á strætis-
vögnunum í morgun,
þegar skólanemendur
flykktust í skólana. —
Kom þetta ekki sízt
fram í Breiðholti, þar
sem farþegar urðu fyrir
því að strætisvagnstjóri
með yfirfullan vagn gat
ekki tekið þá upp. Urðu
farþegamir að bíða í 20
mín. eftir næsta vagni.
Haraldur Stafánsson eftirlits-
maður hjá SVR sagði f viðtali
við blaðið í morgun, að ástandið
væri langt frá þvd aö vera gott.
„Okkur þykir gott að hafa
vagnakost á föstu leiðimar. í
morgun var fyrsti dagurinn eftir
þau mánaðamót þegar skóla-
ganga er yfirleitt hafin af full
um krafti. Það reyndist vera
mjög erfitt að maeta álaginu á
vissum leiðum t.d. Breiðholts-
leið og Voigaleið, en við munum
14 og 16 ára innbrotsþjóf-
ar teknir á stolnum bíl
Tveir piltar, 14 og 16 ára gaml-
ir, vora teknir á stolnum bíl í
Síðumúla í gær. Komu lögregiu-
menn að piltunum á bflnum,
sem stolið var af verkstæði Fiat
í Síðumúla.
Brotizt var inn á fjórum stöðum
f grennd við Síðumúla um helgina,
inn í málmstevpuna Hellu að Síðu-
múla 7, radíóstofu Síðumúla 17,
Hagsmíði s.f., Síðumúla 13 og inn
í skrifstofur tveggja fyrirtaekja í
Ármúla 14. En hvergi var stölið
neinu verðmæti sem söknuður var
'að.
Voru lögregluþjónar að rannsaka
þessi innbrot, þegar þeir veittu eft-
irtekt piltunum tveimur og tóku
þá fasta. Síðustu tvær vikumar
hefur lagreglan unnið að rannsókn
á þriðja tugs innbrota, sem framin
hafa verið um síðustu helgar, og
hafði vaknað grunur um, að ein-
hverjir afbrotaunglingar væru vald-
ir að þeim.
• inu.
senda aukavagna þangað, sem
álagið er mest undir eins og við
höfum aukavagna. Álagið var
mest í Breiðholti fyrir klukkan
átta í morgun.
Það er alltaf meira eða minna
af vögnum, sem eru í viðgerð
og er mjög mismunandi hversu
margir vagn'ar bila á degi hverj-
um. Það, sem háir okkur mest
er varahlutaskortur og verk-
stæðisskortur, en viðgerðimar
flara nú fram í smáskemmu og
aöstaða eiginlega hin versta. —
Þetta la-gast væntanlega, þegar
verkstæðið kemst í gang fyrir
áramót og varahilutimir koma
smátt og smátt, en það tekur
sinn tíma að byggja upp vara-
hlutalager. í byrjun desember
koma fimm nýir vagnar, sem
verða strax settir inn á föstu
leiðimar." —SB
Rsidíóvítar úr flug-
vélinni runnsukaðir
hjá SAS
Ekkert hefur komið í ljós, sem
skýrt gæti orsakir flugslyssins í
Færeyjum. Danska slysarannsóknh
nefndin er nú farin frá Færeyjum
og tók meðal annars með sér tvo
radíóvita úr flugvélinni og verða
þeir reyndir hjá tæknideild SAS.
Ljóst er, að flugvélin hefur verið
í rangri hæð á röngum stað án
þess að flugmennirnir hafi gert sér
grein fyrir því og kemur ekki ann-
að fram af seguibandsspólum þeim
sem geyma fjarskipti við flugvél-
ina, en allt hafi veriö álitið
eðlilegt. Þegar slysið varð, var flug
stjórinn að hækka flugið, þar sem
hlann var hættur við að lenda, en
ekki vegna þess að hann hafi talið
flugvélina í neinni hættu, að því
er talið er.
Ekki hefur enn verið hægt að
taka skýrslu af aðstoðarflugmann-
inum, Páli Stefánssyni, og verður
það ekki gert fyrr en ifann hefur
náð sér af kjálkabroti, sem hann
fékk. — Hins vegar verða flug-
freyjurnar yfirheyrðar á næstu dög
um og mun íslenzka loftferðaeftir-
litið annast það fyrir hönd dönsku
slysanefndarinnar. — VJ
Kom í Ijós, að piltarnir á stolna
bílnum höfðu aðfaranótt sunnud'ags
ins brotizt inn á fjórum stöðum í
grennd við Múlana.
Pi'ltamir voru hafðir í haldi um
helgina — annar á upptökuheimil-
inu í Kópavogi og hinn í fanga-
geymslunni — en grunur leikur á
því, að þeir kunni aö hafa einhverja
vitneskju um fyrri innbrot, sem
framin hafa verið þarna í hverf-
— GP
Stærsta skip sem
liingað hefur komið
„Ocean Master" liggur / Straumsvikurhöfn
Stærsta skip sem í íslenzka segjía upp á enskuna, en það
höfn hefur komið, liggur nú viö merkir aö skipið beri 35.000
festar í Straumsvík. Skip þetta venjuleg tonn.
heitir því virðulega nafni
„Ocean Master" og ber 35.800
deadweight tonn eins og þeir
Hingað kom skipiö með 18000
tonn af súráli til álverksmiðj-
unnar og fer tómt héðan. Skipið
kom hingaö frá Su'ður-Ameríku
með viðkomu í Trinidad. Það
er norskt að þjóðerni en siglir
núna fyrir Alcoa skipafélagið.
Það er Eimskipafélagið sem hef-
ur umboð fyrir þlað 'hér á landi.
Hjá álverksmiðjunni fengum
við þær upplýsingar að með
venjulegum gangi tæki um 4
sólarhringa að skipa 18000 tonn
um af súráli upp, en nú heföi
verkið tafizt um einn sólarhring,
en þó vonazt til að skipið gæti
farið út annaö kvöld. Engum
vandkvæðum vlar bundið að
koma skipinu að garðinum og
mun það að líkindum komast
út aftur í hvaöa veðri sem er.
- GG
< Stærsta skip, sem lagzt
hefur aö bóiverki hér, í
Straumsvík í morgun.