Vísir - 07.10.1970, Qupperneq 1
Húsnæðisskort-
ur á Akureyri
J
— fólksfjölgun mikil þar og fjör að færast
byggingarframkvæmdir
„Aðstreymi fólks til Akureyrar
;r mikið þó ekki sé hér um neina
verulega stórfenglega hluti að
ræða sem stendur“, sagði Bjami
Einarsson bæjarstjóri Akureyr-
ar Vísi í morgun. „Fólki hefur
fjölgað mikið hér s.l. 4 ár — og
hefði eflaust fjölgað meira hefði
ekki verið skortur á húsnæði
hér“.
Sagði Bjami að „mikil og yfir-
þyrmandi nauðsyn væri á að gera
nýtt aðalskipulag fyrir bæinn og
stórauka íbúðabyggingar. Ætli okk-
ur vanti eibki 80 tii 100 fbúðir hér
núna“.
Sagði Bjami, að allar byggingar-
framkvæmdir hefðu dottið mikið
niður á Akureyri í kreppunni síð-
ustu, en í ár hefði svo verið byrjað
á miklu fleiri fbúðum en árin á
undan. „Við reynum að gera okkar
bezta til að koma lagi á íbúðamál-
in, því eftirspum eftir húsnæði —
leiguhúsnæði — er mikil. Ástandið
vægast sagt mjög alvarlegt", sagði
Bjarni. Sagði hann að bæjaryfir-
völd reyndu að halda vel á spöðun-
um varðandi lóðaúthlutanir, en
miklar vonir væm og bundnar við
nýja aðalskipulagið, því það gamla
er löngu orðið úrelt, var gert árið
1927.
Ætluðu uð stelu
súkkuluði, en
eyðilögðu fyrir
200 þús. kr.
— og stálu svo
umbúðapappirnum
Þjófar, sem brutust inn i
sælgætisgerðina Mónu í Stakka-
hrauni í Hafnarfirði fyrir
nokkru, spilltu þar 600 lítrum
af súkkulaðivökva, sem nemur
að verðmæti um kr. 200 þúsund.
Þegar þeir brutu rúðu f hús-
inu, hrukku glerbrotin niður f
súkkulaðipottinn, og varð síðar
að fleygja öllum súkkulaðileg-
inum.
Lögreglan í H'afnarfirði hefur
haft hendur í hári þjófanna,
sem reyndust vera tveir ungir
piltar, 17 og 19 ára gamlir.
Hafði þá langað i súkkulaði, og
þvi brotizt þarna inn i sælgætis
gerðinh. Þeir höföu á brott með
sér nokkra pakka af súkkulaði,
sem reyndist svo ekki vera
súkkulaði, þegar þeir gáðu bet-
ur að í dagsbirtunni. Heldur að-
eins nokkrir pakkar af umbúðh-
pappfr., - GP
Gestur Ólafsson skipulagsfræð-
ingur hefur verið ráðinn til að
vinna að nýju aðalskipulagi Akur-
eyrar og er áætlað að hann verði
f 2 ár að vinna nýtt skipulag fyrir
bæinn. — GG
• Islendingar hafa ferðazt mikið til útlanda i sumar, en senn er ferðamannatímabilið á enda,
þó að sólin í Suðurlöndum haldi sínu striki næstu vikurnar. Þessi mynd var tekin á Arenal-
strönd á Mallorka í gær, ferðalangamir voru að fylgjast með háttalagi marglyttu, sem lónaði
við land. 1 september komu 4650 tslendingar til Iandsins, að sögn útlendingaeftirlitsins.
A tvinnuhorfur betrí en uné■
anfarín 3 ár
— er samdóma álit launþegafélaganna
• Atvinnuhorfur á vetri
komanda virðast nú vera
afar góðar, en það er sam-
dóma álit allra þeirra aðila,
sem Vísir leitaði til í morgun,
að horfur séu nú betri en þær
hafa verið a. m. k. þrjú imd-
anfarin ár. Núna og í sumar
hefur verið meiri eftirspurn
en framboð eftir vinnuafli í
flestum ef ekki öllum grein-
um. Allir þeir, sem Vísir leit-
aði til þorðu að fullyrða, að
næg vinna yrði a. m. k. fram
yfir hátíðir, en menn spáðu
varlegar fyrir tímann þar á
eftir.
Atvinnuhorfumar núna eru
betri, en þær hafa verið a.m.k.
þrjú undanfarin ár, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, vara
fbrmaður Dagsbrúnar í viðtali
við Vísi. Núna er mikil eftir-
sprnm eiftir vinnuafli sérstaklega
f byggingariðnaðirmm, en yfir-
leitt er mikið að gera f október
mánuði í byggingariðnaðinum,
sagði Guðmundur. Október er
alla jafna nasst mesiti steypu-
mánuðurinn, en þá em margir
að keppast við að gera foikihelt
fyrir veturinn. Það eykur á
þensluna á vinnumarkaðnum
f þessum mánuði, að háitt i þrjú
þúsund skölanemendur eru nú
famir af vinnumarkaðnum.
Guðmundur sagðist hafa trú á
því, að töluiverð vinna yrði við
stórar byggingar opinberra og
einkaaðila a.m.k. fraiman af
vetri, en einnig virtist vera mik
il gróska hjá hinum ýmsu verk
stæðum. Þá sagðist hann hafa
trú á því, að vinnsla t.d. hörpu
disks mundi bæta atvinnuá-
stand töiluvert í vetur.
Mikil gróska virðist abnennt
vera í iðnaðinum, Runólfur Pét
ursson formaður Iðju, félags
verksmiðjufólks, sagði að marg
ir frasnleiðendur hefðu efcki und
an og væri fyrinsijáanlegt að
mikil vinna yröi a.mJk. eitthvað
fram yfir áramót. Runólfur
sagði að fjöldi félaga í Iðju hefði
aldrei verið jafn mJki'H. Nú eru
2300 skráðir í Iðju, en voru á
sl. ári um 1700. Og árið er ekki
liðið enn. Töluverð fjölgun virð
ÍKt vera framundan, en mörg
stór og traust iðnfyrirtæki eru
að auglýsh eftir fólki. Runólfur
kvað mjög áberandi grósku vera
í fataframleiðslunni og hafa
margir fataframleiðendur ekki
undan við að afgreiða pantanir
sem bárust á fatakaupstefnunni
í haust og effír hana.
Astandið er nú alilt annað en
það hefur verið undanfarin þrjú
ár, sagði Jón Snorri Þorleifsson
formaður Trésmiðafél. Reykja-
vfikur. Eftir verkfall ogj alveg
fram á þennan dag hefur verið
meiri eftirspum en framboð á
trésmiðum. Hann taldi vfst, að
nóg yrði að gera fram að há-
tíðum, en sagöist óttast ein-
hvern samdráitt eftir áramótin
einn og al'la jalfna verður, þó að
útivinna að vetri hafi aukizt
noktouð hin seinni ár. Innivinna
við trésmíðar í byggingarvinnu
hefst svo eklki fyrr en seinni
hluta vetrar, þannig að nokk-
ur lægð gæti komið í vinnu hjá
trésmiðum um miðjan vetur.
H'á múrarum og pípulagning
armJnnum er að m’estu leyti
sömu söguna að segja og hjá
trésmiðum. Töluvert hefur vant
að á að þessinr aöilar hafi getað
annað eftirspurn í sumar og
haust. Guðbrandur Guðjónsson,
starfsmaður hjá Múrarafélagi
Reykjavíkur taldi næga vinnu
verða hjá múrurum a.m.k. fram
yfir áramót og sarma taldi Grím
ur Bjömsson, formaður Meist-
arafélags pípuilagningarmanna.
Þó má búast við, að síður ’komi
lægð í vinnu h'já þesisum síðast
töldu aðilum, þar sem þfeir geta
haldið áfram vinnu, þegar og
húsin eru orðin fokheld,, en tölu
vert margar stórar bygigimgar,
sem kröfjast mikils vinnuafls
verða fokheldar í haust og fyrir
áramót. —VJ
Míkil sala á heimilistœkjum
— frystikisturnar renna út i sláturtiðinni — kaup-
geta almennings virðist vera meiri — afgreiddi
300 b^ottavélar á nokkrum dögum
# Sala á heimilistækjum hefur
verið mikil undanfarna daga.
Þar er um árlega hausthrotu að
ræða f sumum tilvikum — en sala
á frystikistum er allajafna góð i
sláturtiðinni. Einnig virðist kaup-
geta fólks vera með meira móti.
Blaðið hafði tal af nokkram fyr-
irtækjum, sem verzla með heimilis-
tæki og spurðist fyrir um söluna.
„Það ber mest á frystikistusöl-
unni, en hún hefur verið góð þessa
dagana og eiginlega furðulega mik-
il," sagði verzlunarstjóri Föinix.
„Sláturtíðin bindur söluna þessa
dagana, en einnig er fól'ki að verða
ljós nytsemi frystikistnanna."
Verzlunarstjóri Dráttarvéla h.f.
sagði, að salan hefði verið með á-
gætum nú undanfarið. „Þennan
tíma er salan yfirgnæfandi mest
á frystikistum og frystiskápum.
Salan hefur vfirleitt verið ágæt i
haust, en þó sérstaklega núna. Und
anfarin ár hefur al'ltaf komið sölu-
skorpá á heimilistækjum á haustin.
Þar er fyrst og fremst um að ræða
sölu á frystikistum vegna sfáturtíð-
arinnar, en einnig getur það haft
áhrif, að bústaðaskipti eru meiri
og það, að fólk kemur úr sumar-
vinnu, sem það hefur haft gott upp
úr.“
„Fólk á svo mikið af peningum
nú orðið,“ sagði verzlunarstjóri
Heimilistækja sf„ „salan hefur ver
ið mjög góð, sérstaklega á þvotta-
vélum, en einnig dálítið mikil á
frystikistum. Margir hafa fengið
svo góðar kauphækkanir að undan-
fönnu og fólki er gjarnit á að eyöa
þeim strax f stað þess að geyma
peningana svolítið."
Verzlunarstjóri Pfaff haföi þá
sögu að segja, að yfir 300 þvotta-
vélar hafi farið frá verzluninni á
nokkrum dögum. Ástæðuna fyrir
því kvað hann vera sumpart vegna
þess, að þvottavélar, sem hefðu
verið pantaðar, hefðu komið seint
og engar þvottavélar hafi verið til
sölu í ágústmánuði og hafi hundr-
að pantanir legið fyrir. Einnig hafi
þvottavélamar verið afgreiddar til
umboðanna úti á landi, en eftir-
spurnin virðist vera mikil þar. —
„Þetta hefur verið ofsaleg hrota
þess vegna. En það virðist vera þó
nokkuð mikið af peningum í veltu
núna og það er mikið um það, að
fólk borei alveg út í hönd, þó það
geti fengi heimilistækin með af-
borgunum. Sala á frystikistum er
einnig mikil núna í sláturtíðinni.“
— SB
Farþegar á flugileiðum í Evr-
ópu hafa að undanfömu orðið
fyrir miklu ónæði við skoðun
vegna sprengjuhættunnar. Ha'fa
'nargir íslendingar orðið þessia
varir á ferðum sinum og tafir af
þessum völdum orðið töluverðar
í mörgum tilfellum. Á bls. 2
segir frá slfkum erfiðlei'kum.
SJÁ SUNNUDAGS’MORGUN
1 FRANKFURT.