Vísir


Vísir - 14.10.1970, Qupperneq 1

Vísir - 14.10.1970, Qupperneq 1
60. úrg. — Miðvikud 14 október 1970. — 234. tbl. Horfur á miklum ullarinnflutningi — ekki nóg af góðri islenzkri ufl i gæðaframleiðslu • Horfur eru nú á að ull, sem hráefni, verði flutt inn í veru- legum mæli á næstunni frá Nýja Sjálandi, Ástralíu og ef til vill Argentínu. Kemur þar tvennt til: Verðið á islenzku ullinni er komið langt upp fyrir heims- markaðsverð og einnig er hrein- lega ekki til nóg af fyrsta flokks íslenzkri ull í gæðaframleiðslu. Álafoss hefur þegar flutt inn um 15 tonn af ull frá Nýja Sjálandi og kostar hún hingað komin og þvegin ú ml05 kr. kg., á meðún íslenzka ullin er seld hér innan- lands á kr. 129 kr. kg. þvegin. — Að því er Pétur Eiríksson hjá Ála fossi sagði í viðtali við Vísi í morg Verðstöðvun í nóvember? - og fram á mitt næsta ár — „meginatriði að láta batann ekki renna út i sandinn", sagði forsætisráðherra i sjónvarpsviðtali Ríkisstjórnin kannar nú möguleika á verðstöðv- un, sem yrði að vera á- kveðin einhvem tíma í næsta mánuði. Mundi hún væntanlega ná fram á mitt næsta sumar að minnsta kosti. — Kom þetta fram í sjónvarps- viðtali við Jóhann Haf- stein forsætisráðherra í gærkvöldi. Forsaetisráðherra kvað það einmitt vera einn megintilgang viðræðnanna milli ríkisstjóm- arinnar, vinnuveitenda og laun þega og bænda að draga úr á- greinimgi um verðstöðvun og framkvæmd hennar. Hann taildi sennilegt, að þetta mundi verða eitt aðalmál alþingis næstu vik urnar. Ekki væri að búast við miklum deilum á þingi, þótt menn kymni að greina á um ein- stök atriði f framikvæmd verð- stöðvunarinnar. Jafnframt mundi rfkisstjórn- in nota tiltæk ráð til að lækka verð á einhverjum brýnustu nauðsynjavörum. Svíar og Danir hafa báðir ný- lega innteitt verðstöðvun. For- sætisráðherra sagði, að aðstæð- uir á ísilandi væru þó alllt aðrar en til dæmis i Danmörku. Sagt hefði verið, að dansikur efna- hagur „væri kominn út af spor inu.“ ,Við erum á sporinu* sagði forsætisráðherra, „og höldum greitt fram á við“. Það sæist á gjaldeyrisstöðunni og viðskipta- kjörum. Hims vegar yrði að vernda kaupmátt launa. Víxl hækkanir verðlags og kaup- gjalds hefðu jafnan verið hættu legar, og nú yrði að hafa hemil á verðbólgunni. „Meginatriðið er að láta batann ekki renna út í sandinn", súgði ráðherra. Forsætisráðherra taldi, að verðigæzlufrumvarpið mundi koma fram f tengsilum við verð stöðivun. Með breytingum á verð gæzlu, sem fyrirhugaðar væru yrði hún í rauninni falin þeim, sem með stjóm fæm hverju sirnni. Innan ramma laga um verðgæzlu og samkeppnishöml- ur yrði unnt að grípa til tíma- bundins verðlags'eftirlits, ef á- stæöa þætti til og slfkra að- geröa. Meginistefnan yrði hins vegar frjálsari álagning en ver ið hefur. Stefnuyfirlýsing riikis stjómarinnar, sem menn kalla „hásætisræðuna", verður birt á morgun. Er það orðin vemja, að stjómin geri í upphafi þings grein fyrir helztu máilum, sem hún mun beita sér fyrir. —H'H un er Álafoss nú að hagleiða stór aukinn innflutm'ng uiiar og er m.a. að þreifa fyrir sér Argentínu með ullarkaup. Hann sagði, að nægjan legt magn af 1. flokks ull væri ekki til í landinu, en ekki nema lítill hluti íslenzku ullarinnar flokk hst í fyrsta flokk. Þetta stafar fyrst og fremst af því, að bændur fara ekki nógu vel með ullina, sagði Pétur, en hann sagöi hana skemm ast af skít og óhreinindum. — Pét ur sagðist ekki vitla enn, hve mik- ið magn þeir myndu flytja inn, en ekki væri fráleitt að tala mn 100 tonn á þessu ári. Þeir blanda ís- lenzku ullinni saman við þá inn- fluttu. Arnór Þorsteinsson, verksmiðju stjóri Gefjunar á Akureyri sagði í viðtali við Vísi í morgun, 'að þeir hefðu ekki enn flutt inn óunna ull, en mjög athugandi væri að gera það. Verðiö á íslenzku ullinni væri komið upp úr öllu valdi og hefði farið langt upp fyrir heimsmark- aðsverð. UIl sem Gefjun kaupir frá Ástr'alíu í fataefnisframleiðslu sína heföi þannig lækkað upp á síðkastið, en á sama tíma hefði íslenzka ullin hækkað. Þeir fara ekki eftir neinum forsendum þeg- ar þeir hækka íslenzku ullina. Þeir bara hækka án tillits til alls, sagði Arnþór. Að því er Pétur Eiriksson sagði er gífurlegt umstang og pappírs- vinna að fá að flytja inn ullina hverju sinni .Þarf að leita til land búnaðarráðuneytisins og yfirdýra- læknis hverju sinni og það væri því ekki gert upp á grín að flytja ullin'a inn. —VJ Landfestar Höfsjökuls voru leystar þegjandi og hljóðalaust, enda hafa yfirmennirnir þar ekki sagt upp störfum. „EF VIÐ HÖFUM BROTIÐ LÖG, VILJUM VIÐ FÁ ÞEIM BREYTT' — verkfræðingar óska eftir rannsókn á fram- kvæmdastjóramáli Sementsverksmiðjunnar ,,„Ef við höfum botið lög, vilj- fram'k'væmdastjóras'töðu við Sem- um við fá þeim breytt“. Þetta sjón armið finnst okkur lýsa nokkuð vafasamri afstöðu og öfugþróun“, sagði formaður stjórnar Verkfræð- ingafélags íslands, Guðmundur Ein arsson á fundi með blaðamönnum í morgun, þar sem var til umræðu ráöning í embætti framkvæmda- stjóra Sementsverksmiðjunnar. Vitnaði formaður stjómar V.I, í bréf frá Svavari Pátesyni, löggilt- 'im endurskoðanda, sem gegnir nú entsverksmiðjuna, þar sem segir, að stefnt skuili að því aö fram- kvæmdastjórar verði tveir, en ef það verði ekki talið löglegt, þá að lög verði sett um tvo framkvæmda stjóra — annan er annist fjármál, en hinn er annist tæknilega hlið starfseminnar. Var þetta svar við brðfi verkfræðingafélagsins þar sem bent hafi verið á að ekki hafi verið rarið samkyærrit lögum um ráðningu i starf framkvæmda- stjóra Sementsverksmiðjunnar, en samkvæmt lögum skuli hann hafa verkfræðilega menntun. Hefur verkfræðingafélagið sent Saksóiknara ríkisins bréf þar sem það krefst þess, að málið um ráðn ingu framkvæmdastjóra verði tekið til rannsóknar. Telur félagið, að aðalábyrgðin á misferli í ráðn ingu í framkvæmdastjórastöðuna hvíli á stjórn Sementsverksmiðj- unnar. Samrit þessa bréfs til sak- sóknara hefur verið sent iðnaðar- ráðherra og dómsmálaráðherra. —SB Samkomulagshljóð í farmannedeilunni — yfirmenn á Hofsjökli s'ógðu ekki upp og sigldi skipið utan i morgun • Eitthvað hefur þokazt í sam komulagsátt í deilu yfirmanna farskipaflotans og útgerðarfyr- irtækjanna, en mikið ber enn á milli að því er Björgvin Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, sagði í viðtali við Vísi í morgun. Fuillitrúar deiluaðila hittust á fundi kl. 16.30 í gær og stóð sá fundur til kl. 1.30 í nótt, án þess að samkomulag næðist. Nýr fundur hitífur alftur verið boðaður í dag kl. 16. Virðist því sem einhver samikomulagsgrundvölilur sé fyrir hendi, þar sem deiluaðilar hittast svo aft, en aldrei hefur endanilega slitnað upp úr samningaviðræðun- um. Að því er Ingól'fur Ingólfsson, for maður Vélstjórafélagsins, sagði í viðtaili við Vísi í morgun, hafa út geröarfélögin leitað til hinna al- mennu fölaiga um borð með það fcauptilboð, sem lagt hefur verið fram af þeirra hálfu og hafi þeir við það fengið staðlfestingu á því, að ekki væri nóg boðið. Hann taldi þó, að nofekuð hefði þofcað í sam- komulagsátt, þó að ný tilboð frá atvinnurefcendum hafi ekki komið fram á fundinum í gær. Átita kaupskip lágu inni í Reykja vfkurh'öfn snemma í morgun, en kl. 10 leyisti Hofsjöikuilil landfestar og si'gldi utan. Yfirmenn sikipsins, sögðu ekki upp störfum sínum utan tveir, sem drógu uppsagnir sínar til baka, þegar þeir sáu að ekki væri grundvöllur fyrir ailmennurn uppsögnum þar um borð. Skýringin á þvf að jnfirmenn Hofsjökuls sögðu ekki upp störfum sínum mun að ein hverju leyti vera sú, að þeir vora víðsifjarri, í Rússilandi, þega,r upp halfilega var ákveðið um fjöil'daupp- sagnir. —VJ Halldór Jónsson, Guðmundur Einarsson og Hinrik Guðmimdsson úr stjórn Verkfræðingafélags íslands á fundi með blaðamönnum í morgun um ráðningu í starf framkvæmdastjóra Sementsverksm-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.