Vísir - 19.10.1970, Síða 1
60. árg. — Mánudagur 19. október 1970. — 238. tbl.
•‘.('V' c'.
Varla nokkur bátur á sjó
vont veður og gæftaleysi á miðum
Bátar hafa ekkert komizt i tæri
við Suðurlandssíldina yfir helgina.
Veður hefur hamlað veiðum, bæði
á miðunum vestur af Surtsey og
eins í Faxaflða, undir Jökli. Veðr-
ið mun eitthvaö að ganga niðiu- á
miðunum undan Jökli, og í morgun
komin þar 2 vindstig. Síidarleitar-
skipið Óskar Magnússon leitaði í
Flóanum í nðtt og fann ekki síld.
Og ejcki er betri fréttir að færa
af öðru fiskiríi. Einn línubátur fðr
Ut frá Sandgerði í morgun og er
sá hinn fyrsti hér suðvestanlands
sem hefur línuveiðar. Eitthvað
munu þeir vera farnir að hugsa
til hreyfings í Vestmannaeyjum, þð
ekki sé það almennt.
Fyrir Austurlandi er nú norðan
strekkingur og engir bátar á sjð.
Fram til þessa hefur verið dágóður
afli hjá línubátum en eitthvað verr
hefur gengið með handfæri og troll.
Einn bátur frá Norðfirði er að byrja
á rækju, en enn ekki vitað hvem-
ig bað tekst til. — GG
Tvö ungmenni drukkna, er
bí/ var ekið fram afbryggju
Ung stúlka komst lifs af og komst aðframkomin
til kunningjafólks og tilkynnti um slysið
TVÖ ungmenni fórust á
Akureyri í gærmorgun,
þegar bíll fór fram af
gamalli bryggju, sunnar-
lega á Oddeyri. Ökumað
urinn, 18 ára piltur úr
Reykjavík og 15 ára
stúlka frá Akureyri biðu
bana en 15 ára stúlka
frá Akureyri komst lífs
af.
Þau sem fórust hétu Sigurður
Brúni Brynjólfsson Grettisgötu
72 og Lára Harðardóttir Lund-
argötu 17. N’afn stúlkunnar,
sem komst lífs af er María
Jakobína Sölvadóttir Eiðsvalla-
götu 26.
Tilkynning um slysið barst
lögreglunni á Akureyri klukkan
rúmlega sex um morguninn, en
María h’aföi komizt út um
glugga á bílnum, upp í fjöru og
til kunningjafólks sína að
Strandgötu 53, sem hún gerði
viðvart um slysið.
Lögreglunni var gert viðvart
og fóru lögreglumenn aö leita
að verksummerkjum, sem var
erfitt vegn'a myrkurs. Gerðar
voru ráðstafanir til aö leita á
báti, einnig voru froskmenn
kvaddir til og kranabíll. Lög-
regluþjónamir sáu verksum-
merki á gamalli trébryggju, sem
er næsta bryggja norðan við
Olíustöðina á Oddeydartangan-
um. Eftir nokkra stund fundu
froskmennimir bílinn á hvolfi
í sjónum, um 8—9 metra frá
landi klukkan 7.50. Hafði bíll-
inn farið út af norðausturhorni
bryggjunnar.
Stúlkan, sem komst lífs af,
gerði sér ekki grein fyrir hvar
slysið hafði gerzt, enda aðfram-
komin.
Stúlkumar höfðu hitt öku-
manninn í bænum eftir skemmt
un, sem þær höfðu sótt og voru
ásstmt öðrum kunningjum sínum
búin að aka lengi í bflnum um
nóttina. M. a. höfðu þau farið
inn 1 Eyjafjörð, síðan ekið um
bæinn, en kunningjafölkið var
farið úr bflnum nokkru áður en
slysið varð. Ökumaðurinn var
búinn aö vera í nokkra daga
hjá kunningjafólki sínu á Akur-
eyri og hafði fengið bflinn lán-
aðan 'hjá einum kunnnigja sín-
um. Bryggjan, sem þau óku út
á var auð, þegar slysið varð,
ekki hál, en ofurlítið rök. Er
hún slétt en með trélista fram
með brúninni. — SB
Á 3. hundrað leita rjúpnaskyttu
sá týndi þrautþjálfaður fjallamaður
Á þriðja hundrað manns frá
björgunarfélögum á Suðvestur-
landi leituðu í allan gærdag að
týndri rjúpnaskyttu, án árang-
urs og álíka stór hópur hóf leit
strax við birtingu í moreun. Ekk
ert hefur spurzt til Viktors Han-
sens, fertugs bifreiðastjóra og
þrautþjálfaðs fjallamanns frá kl.
13 á laugardag, að hann fór á-
samt félaga sínum Agli Hall-
grímssyni á rjúpnaveiðar frá
skálanum Amarsetri við Blá-
fjöll.
Við vorum báðir ágætlega búnir
til þessarar farar, þó að við hefðum
ekki hafit með okkur áttavita né
önnur öryggistæki, enda setluðum
við aðeins að standa stutt við í
birtu, sagði Egill í viðtali við Vísi
í morgun áður en hann hólt upp
Bláfjöll ásamt fleirum að leita að
félaga sínum. — Við vorum komnir
að Amarsetri um kl. 13 á laugardag
og ætluðum aö hititast afltur við bfl
inn um kl. 16.30. — Viktor héit í
austur, en ég í vestur og vissum
við því ekkert hvor af öðrum. Veðr-
ir var heldur leiðinlegt, en ekki af-
leitt. Það geikk á með éljum og
þokuslæðingur lagðist yfir annað
slagiö, en birti vel upp á milii, þann
ig að mér fannst eikki taltakanlega
villlugjamt, sagði Egil.
Ég kom svo alftur að bílnum á til
skildum tíma og beið etftir Viktor
til kl. 19. Þá fór ég að leita að hon
um og s'kauit nokkrum sinnum upp
í loftið til að láta hann heyra í
mér, en fékk ekkert svar á móti.
Um kl. 21, þegar ég haföi ekkert
Leitarflokkur við Bláfjöll í gærdag, þegar vv. . . mjög slætnt til itertar.
heyrt í honum talldi ég rétt að leita
aðstoðar og gekk því niður á Sand
skeið um tveggja Bíma gang til að
ná í aðstoð. Við höfðum báöir lykil
að bíilnum og taldi ég rétt að skilja
hann eftir, ef Viktor skilaði sér aö
bílnum.
F1 ugbj ö rguna rsve it i n stjómar
leitaraðgerðum, en þar kemur
tvennit tiiL Hún var fyrst á vett-
vang aðfaranótt snnudags, en eins
var Vifctor félagi í sveitinni fyrir
nokkrum ámm.
Aö þvi er Ámi Edwins hjá Flug-
björgunarsveitinni sagði Vísi í
morgjun, var mjög slæmt leitarveð-
ur í gær. Mifcidl skafrenningur var
á svæðinu I gær og mikild veöur-
ofsi á Heiðinni hárri. Þannig var
ekki hægt að þrautleita addt svæðið
í gær og leit úr lotfiti gedck ilda, en
Bárður Daraíelsson og þyrla frá
vamarliðinu leituðu úr lofti í gær.
Aðidamir, sem leituðu í gær, voru
auk Flugbjörgunarsveitarinnar,
sdysavamadeildirnar í Reykjavik
(Iugólfur), á Seltjamamesi, Kópa-
vogi, Hafnarfirði, Sandgerði, Sel-
fossi, Eyrarbakka og Mosfeldssveit,
hjálparsveitir skáta i Reykjavík,
Hafnarfiröi og Njarðvdkum, en í
morgun bættust viö slysavarnadeild
ir frá Garði, Hafnum, Þorlákshöfn,
Grindavík og Stokkseyri, en einnig
munu félagar úr Skotfélagi Reykja-
vikur hafa bætzt við i leitina.
Ölllum aðilum, sem Vísir tadaði
við í morgun bar saman um, að
Viktor væri mjög vanur og gætinn
fjaldamaöur og að því er félagi hans
sagði, var hann viö hina beztu
heilsu, þegar þeir lögðu upp á laug-
ardag. Leit verður gerð að Viktori
á öllu svæðinu, sem kemur tid
greina að hann sé á, en sérstök
áherzla veröur lögð á hraunkantinn
fyrir ofan Sandskeið, þar sem marg
ar gjótur og sprungur eru, etf ske
kynni að hann hafi dottið þar ofan
f gjótu og slasaö sig. — VJ.
Ungfrú Alheimur
orðin móðir
— SJÁ VIÐTAL VIÐ GUÐ-
RÚNU BJARNAD. BLS. 9
Lögregluvörður
dug og nótt við
Austurbæjurbíó
Um 30 nianna hópur safnaðist sam-
an fyrir framan Austurbæjarbíó í
gærdag, þegar fimm-sýning var í
þann veginn að hefjast, og las hóp-
urinn upp f hátalara ýmis mót-
mæli, sem Víetnamhreyfingin hef-
ur látið í Ijós við myndinni The
Green Berets.
Hópurinn safnaðist á eyjuna á
Snorrabraut framan víð bíóhúsið,
en hafði áður gengið undir fána
upp Laugaveg frá Tjarnargötu 20,
þar sem haldinn hafði verið fundur.
Útifundur, sem boðaður hafði verið
við Miðbæjarskólann, féll niður
vegna veðurs og fámennis, en var
í þess stað haldinn í Tjamargötu
20.
Lögregluvörður hefur verið við
inngöngudyr Austurbæjarbiós und-
anfarin kvöld, þegar níu-sýningar
hafa byrjað, vegna átakanna á mið-
vikudags- og fimmtudagskvöld f
síðustu viku. Raunar hefur lög-
reglan haft gát á bíóhúsinu á næt-
urnar einnig, en ekki hefur borið
til neinna tíðinda og kvikmynda-
sýningarnar hafa farið friðsamlega
fram síðan á fimmtudagskvöld. -GP