Vísir - 19.10.1970, Blaðsíða 6
6
VISIR . Mánudagur 19. október 1970.
Tegund „Palma“ er fallegt og létt sófasett. Framleitt
úr bezta svampi sem völ er á. Grindin er smíðuð úr
brenni svo hún er örugglega sterk, þótt grönn sé, og
fer ekki úr límingu. Grindina getið þér fengið gljáandi
rauða — eða bláa — græna — brúna, sem mahoni
eða dökka sem palisander. — 2ja sæta sófar fást einnig.
cfoeir
<r <r
Simi
» I
-22900
Laugaveg 26 |
Keflavík í undanúrslitin
— vann Valsmenn 2:1 í rokinu i gær
KEFLAVÍK tókst að sigra
Valsmenn í gærdag, — og
komast þannig lengra í ár
en nokkru sinni fyrr í bik-
arkeppninni. Undanfarin
ár hefur bikarkeppni KSf
einhvem veginn ekki boð-
ið Keflavíkurliðinu upp á
langa veru, jafnvel b-lið
KR sló liðið á sínum tíma
út, nokkrum dögum eftir
að liðið varð fslandsmeist-
ari.
I gær vann Keflavík nokkuð sann
gjarnan sigur á heimavellinum,
skoraði 2 mörk gegn einu marki
Valsmanna. Veður og ölil skilyrði
voru mjög ó'hiagstæö fyrir knatt-
spymu, hífandi rok og malarvöllur
inn blautur og þungur. Hófst leik
urinn ekki fyrr en nokkru eftir aug
lýstan tíma, því unnið var að því
að þurrka upp mikinn forarpoll í
öðru markinu.
Keflvíkingar, sem léku undan
vindi f fyrri hálifleik, skoruðu
snemma á 12.—13. mínútu leiksins.
Sending kom inn að marki til Karls
Hermannssonar, sem stýrði boltan
um í vinkilstöðu til Birgis Einars
sonar, sem aifgreiddi lag-
lega áfram fram hjá mark-
verðinum bróður sínum, Sigurði
Dagssvni í Va'smarkinu.
Reyndar voru þetta tækifærin í
fyrri háWleik. Leilrmenn léku og
mikiö með háum spymum, virtust
ekki gera sér ljósa grein fyrir mik
ilvægi þess að haida knettinum við
jörðina.
í síðari hálfleik jöifnuðu Vals-
menn eftir 12 mínútur. Þorsteinn
Friðþjófsson átti langskot, sem
nafni hans Ólafsson varði naumlega
í þverslá og yfir. Or homspyrnunni
skoraði Þorsteinn Friðþiófsson hins
vegar, þvi hann átti lokaoröið i
beirri sókn.
Þetta mark leysti að því er virð
ist úr læðingi sóknarkraft í Kefla-
víkurliðinu. Þeir sóttu sannarlega í
sig veðrið, — gegn veðrinu. Þetta
bar þó ekki árangur fyrr en 5 mín.
voru eftir af leiknum. Úr horn-
spyrnu, sem mér virtist þó vafa-
söm, skoraði Keflavik 2:1. Boltinn
kom hátt fyrir markið og datt
„dauður“ niður fyrir aftan Sigurð
markvörð. Kari Hermannsson skor
aði, fyrst virtust Valismenn hafa
bjargað (boitinn þó fyrir innan að
því er virtist), en Kari átti svo ann
að tækifæri og þá var enginn vafi
lengur.
Eftir jöfnunina áttu Valsmenn
tvívegis tækiifæri á að ná foryst-
unni. Tvær aukaspyrnur frá Þor-
steini Friöþjófssyni og Halldóri
Einarsisyni, lentu báðar í þversiá.
Hins vegar blasti 3. markið við
Keflvíkingum þegar 3 mín. voru
eftir, Birgir komst einn inn fyrir
en brenndi herfilega af.
Leikmenn gátu ekki sýnt sínar
beztu hliðar í þessum leik, enda
ekki von, tilviljuhin réð mestu um
leikinn í heild. Vöm Keflavikur
stóð sig þó vel, einkum Guðni, Ein
ar og Ástráður. Þá verður ekki ann
að sagt en Birgir og Friðrik hafi
verið virkir í framlínunni.
Sigurður Dagsson stóð sig lfka
vel f marki Valsmanna, og Berg-
sveinn Alfonsson var sérlega góð
ur þessum leik og var beztur Vals
manna ásamt Halldóri Einarssyni.
Furðumargir horfðu á leikinn, —
allifiestir f bfium. Aðeins allra frfsk
ustu Suöurnesjamenn létu sig hafa
það að standa úti og horfa á leik-
inn, —. og þótti það vel gert. —emm
FH vnnn Breiða-
bSik með 24:10
Einn leikur fór fram í gærkvöldi
í Reykjanesmótinu í handknattleik
í íþróttahúsinu á Seltjarnamesi. —
Þaö var leikur Breiðabliks og FH.
Eins og vænta mátti varð þetta
yfirburðasigur FH, 24:10, og held
ur FH því striki sínu f keppninni,
sem greinilega verður uppgjör
milli Hafnarfjarðarliðanna tveggja.
Leikir í mótinu eru nær því að
vera af löglegri lengd en er f
Reykjavíkurmótinu. Leikimir eru
j 25 mínútur, en stefnt er að því að
þeir verði í framtíðinni 30 mínútur
I hvor hálfleikur, eins og lög gera
[ ráð fyrir Er þetrta klippt niður
; um 5 mfn. á hvorn hálfleik vegna
þeiss að þannig sparast tiimi, sem
' jafnframt kostar mótaðila nokkra
í peninga.
Enskti meistararnir teknir
í kennskistund hjá Arsenal
— grein Halls Simonarsonar um ensku knattspyrnuna i blaðinu
á morgun vegna mikilla þrengsla i dag